Fréttablaðið - 25.03.2007, Blaðsíða 18
Þ
að eru margir heima
á Íslandi sem telja
skipta meira máli í
hvernig búningum
við göngum og hvaða
verndartól við göng-
um með en hvaða starf við innum
af hendi,“ segir Ingi þegar við
hefjum spjallið.
Vopnaburður friðargæslunn-
ar hefur verið alræmdur og sér-
staklega eftir að Íslendingar fóru
í teppabúð með alvæpni og tveir
Afganar létu lífið, þegar sjálfs-
morðssprengjumaður gerði árás.
Ingi þvertekur fyrir að þeir hafi
beðið bana út af ábyrgðarleysi og
„hermennskutilburðum“ friðar-
gæslumanna. „Þegar þetta gerð-
ist fóru menn hér af vellinum
oft niður í bæ. Þá var hættustig-
ið talið mjög lágt og engin svona
árás hafði átt sér stað áður. Það
er hluti af friðargæslu að blanda
geði við heimamenn. Fólk, sem
hafði enga innsýn í málið, dæmdi
þá sem lentu í þessu þannig að
þeir hafi verið þarna að leggja líf
sitt að veði í teppakaupum. Fjöl-
miðlar kusu að rangtúlka þenn-
an atburð, frekar en að rannsaka
hann,“ segir hann.
Ingi telur að störf og verkefni
friðargæslunnar hefði mátt kynna
betur til fjölmiðla, til að koma í
veg fyrir háværa umfjöllun. „En
það sem mér finnst sorglegast
er að þeir fréttamenn, sem helst
hafa tekið að sér að kynna þessi
verkefni, þeir jafnvel blekktu
menn um tilgang fararinnar, til
þess að fá upplýsingar sem síðan
voru rangtúlkaðar og gáfu ranga
mynd af starfinu. Friðargæslan
fékk aldrei að njóta sannmælis.“
Ingi segir heimildarmyndina
sem gerð var um friðargæsluna
„skammarlega“. „Fólk heldur að
ég sé með geltandi vélbyssu uppi
í fjalli að skjóta mann og annan
frá níu til fimm. En í grunninn
er þetta ósköp svipað starf og
þegar ég var rekstrarstjóri suður
í Keflavík. Ég hef til dæmis aldrei
þurft að grípa til vopna, þótt ég
hafi gengið um vopnaður í þrjú
ár.“
Vopnaburður kemur starf-
inu alls ekki við, segir Ingi. Hins
vegar er hann nauðsynlegur í
ótryggu umhverfi eins og í Afgan-
istan. „Ef eitthvað kemur fyrir þá
er betra að ég sé vopnaður. Í Af-
ganistan hefur
einn Íslending-
ur látið lífið,
vissirðu það?
Það var hjúkr-
unarfræðingur
á vegum Rauða
krossins. Hann
var óvopnaður.
Það er einfald-
lega frekar ráðist á óvopnað fólk
hér og það er staðreynd.“
Því hefur verið haldið fram að til
þróunaraðstoðar skilaði meiri ár-
angri að láta fé af hendi rakna
til góðgerðarstarfsemi, en að
vera með friðargæslu. Ingi segir
þetta sjónarmið fremur vanhugs-
að. „Staðreyndin er sú að friðar-
gæslan og það starf sem við vinn-
um hér á Kabúl-flugvelli, er grund-
völlur þess að hægt sé að senda
aðstoð og koma henni til skila.
Allar samgöngur hér byggjast á
þessum velli. Það er engin leið að
koma mat eða fötum á endastöð
án flugvallarins. Þegar Íslend-
ingar komu hingað fyrst, þá stóð
flugvöllurinn ekki undir þessu.
Því er það gífurlega mikilvægt
uppyggingar- og hjálparstarf að
halda þessari lífæð opinni.“
Framlag Íslendinga er einung-
is dropi í hafið á flugvellinum í
Kabúl. Ingi telur að hlutfallslega
skili friðargæslan afar góðu starfi
og upphæðin skipti ekki höfuð-
máli.
„Ég held að það sé aldrei hægt
að meta hjálparstarf bara í krón-
um og aurum eða mannfjölda.
Mælikvarðinn er alltaf hvernig
þetta skilar sér á leiðarenda. Það
er hægt að leggja mikinn pening í
aðstoð og hún skilar sér illa. Svo
er hægt að leggja lítinn pening og
hann skilar sér vel. Það sem Ís-
lendingar eru að gera hér hefur
skilað sér mjög vel. Það sem
skiptir höfuðmáli er að það er að
skila sér til langtímauppbygging-
ar sem mun nýtast þjóðinni sem
við erum komin til að hjálpa. Upp-
hæðin verður alltaf umdeilanleg,
en henni þarf að vera vel varið til
góðra verka, þannig að við höfum
sáð til framtíðar en ekki verið
með tímabundið verkjalyf.”
Fyrr í vikunni varð blaðamaður
vitni af því þegar bandarískur kaf-
teinn leitaði til Inga vegna starfs
sem þurfti að vinna til að koma
framkvæmdum af stað. Vandinn
var sá að starfið var utan vinnu-
áætlunar. Ingi ráðlagði honum að
hliðra til í áætlunum, án þess að
brjóta reglur beinlínis, og ráða
heimamenn til framkvæmdar-
innar fyrir lítið fé. Nokkurn tíma
tók að útskýra fyrir kafteininum
að þetta væri hægt. Ingi segir að
svona reddingar séu í karakter Ís-
lendinga, þegar hann er spurður
hvort aðrar þjóðir en Íslendingar
séu ekki betur til þess fallnar að
reka flugvöll í Kabúl.
„Lítið samfélag eins og Ísland
gerir menn að mörgu leyti hæfari
til að koma að svona rekstri, því
heima eru menn vanari að vinna á
fleiri en einu sviði og geta bjarg-
að sér. Að redda því sem þarf að
redda. Þegar lítið er til af tækjum
og búnaði og takmörkuð úrræði til
að vinna úr, þá eru þeir sem eru
vanir að vinna á mörgum sviðum
betur settir en til dæmis marg-
ir nágrannar okkar. Þar er vinnu-
reynsla og verksvið hvers og eins
mun þrengri en hjá okkur. Þetta
skilar sér því mjög vel í svona
starfi.“
„Fjölskyldulífið er vissulega slit-
ið í tvennt. Mesta fórnin er að
vera fjarri og missa af lífi sinn-
ar fjölskyldu. Að vera 7.000 kíló-
metra að heiman hefur náttúru-
lega áhrif á fjölskyldulífið, því er
ekki að neita. Svona starf getur
enginn tekið að sér nema í sátt
við sína fjölskyldu. Það er ekki
bara fórn okkar að koma hing-
að út, heldur fórn þeirra sem eru
heima að taka á sig aukna ábyrgð.
Makar, sérstaklega, þurfa að taka
við öllu búnu þegar við sem erum
hér erum ekki til staðar.“
„En að vinna við svona upp-
byggingu er mjög gefandi. Ég
hef aldrei fengið annað en blíðar
móttökur og þegar maður kemur
aftur hingað út eftir brottveru þá
er manni fagnað eins og ættingja.
Þannig finnst manni maður vera
að skila miklu meira en í vinnu
þar sem maður stimplar sig bara
inn og út. Þetta er hugsjón og það
verður að vera hugsjón hjá þeim
sem eru að gefa sig í þetta. Þeir
verða að gera það af alefli og af
sannri trú fyrir starfinu. Ef þú
ert hér bara í vinnu þá er erfitt að
réttlæta þessa fjarveru frá fjöl-
skyldu og vinum.“
Friðargæsluliði svarar fyrir sig
Fólk heldur að ég
sé með geltandi
vélbyssu uppi í
fjalli að skjóta
mann og annan
frá níu til fimm.
En í grunninn
er þetta ósköp
svipað starf og
þegar ég var
rekstrarstjóri
suður í Keflavík.
Allt frá því að sprengju-
árás varð í teppabúð í
Afganistan árið 2004
og heimildarmynd um
störf friðargæslunnar í
landinu var frumsýnd
skömmu síðar, hefur
aðgangur fjölmiðla að
starfinu í Kabúl verið
lítill. Klemens Ólafur
Þrastarson heimsótti
friðargæsluna í Af-
ganistan og ræddi við
Inga Þór Þorgrímsson,
forsvarsmann Íslend-
inga við stjórnun flug-
vallarins í Kabúl.