Tíminn - 20.07.1979, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.07.1979, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 * Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldslmer 86387 & 86392 Samþykkt ríkisstjórnarfundar i gær: BRAÐABIRGÐALOG UM OLIU- Afl riCinrrD n • Vfsitalan hækkar um 7—8% vegna UlJ JT Idli V £llitl olíuhækkananna HEI — Eftir tvo fundi rikis- stjornarínnar f gær mun endan- lega hafa verib samþykkt aO gasoifa hækki nú f 137 krónur lilrinn og svartolfa i 67.200 kr. tonnið.og gildi þetta verð til 1. okt. n.k. Jafnframt er gert ráö fyrir að Seölabankinn útvegi oliufélögum rikistryggt lán til nokkurra ára, til að greiða þann halla, sem þegar er orðinn hjá ollufélögunum og verður þar til veröiö hækkar að fullu i það sem olfan kostar f raun. Jafnframt gerir samþykkt ríkisstjórnarinnar ekki ráð fyrir -þvi að gengiö veröi til samn- inga um nýtt fiskverð, heldur veröi gefin út bráöabirgðalög — sennilega i dag — um hækkun olfugjalds úr 7% i 15%,en af þessari 8% hækkun komi 3% tii skipta, sem þýðir 3% hækkun til s jómanna. Þá voru samþykktar tvær til- lögur, sem Steingrimur Her- mannsson flutti i anda sjónar- miða sem komið höfðu fram á þingflokksfundi Framsóknar- flokksins. t fyrsta lagi var samþykkt, að aflaö yrði tekna til hækkunar ollustyrks til þeirra sem kynda með oliu. Einnig var samþykkt að taka leiöir til jöfnunar upp- hitunarkostnaöar heimila i landinu til heildarendurskoöun- ar og gert ráð i. fyrir að i haust verði tilbúnar tillögur til aö leggja fyrir Alþingi, um breytta tilhögun þessara mála. Jafnframt lét Steingrímur gera þrjár bókanir þess efnis að i framtiðinni veröi oliuverðs- hækkanir teknar alveg út úr visitölunni, —að efnahagsmálin verði tekin til athugunar með það i huga að leitað verði að rót- tækum leiöum til stöövunar veröbólgu — o g að stefnt veröi að þvi aö oliuveiðarfærakostn- aður fiskiskipa veröi greiddur af óskiptum afla, þannig að sparnaður á þessum liðum geti oröið til tekjuauka, bæöi fyrir sjómenn og útgeröarmenn. Eftir heimildum blaösins munu heildaráhrif oliuhækkun- arinnar nú verða til að hækka vísitöluna um 7-8%. Vegna áhrifa viðskiptakjara- visitölu mun hluti þeirrar hækk- unar,nær2% 1. sept. og áiika 1. des, veröa tekin út úr visitöl- unni, en aö ööru leyti mun oliú- hækkunin leiða til kauphækkun- ar, nemageröar verði sérstakar ráðstafanir til þess að taka þær út úr visitölu. Kás — I gærkveldi fór 25 tonna steypubili frá BM-Vallá út af veginum á Artúnshöfða. Er hann talinn gjörónýtur eftir veltuna. ökumaöur steypubilsins, sem var kona'. , slasaðist nokkuð, en þó ekki al- varlega. Slysið varð með þcim hætti, að steypubillinn ók niður Artúnshöfðabrekkuna á hægri akrein. A vinstri akrein ók fólksbifreið með utanbæjarnúmeri. Sveigöi hann allt i einu fyrir steypubilinn, sem vék jafn- harðan undan út á vegarkantinn, með þeim afleiöingum, að hann lét undan biinum. Skipti engum tog- um, að hann valt niður brekkuna, fullur af steypu, og er talinn gjörónýtur. Mesta mildi er talin, að öku- maður skyldi ekki slasast meira. Timamynd: Róbert. Samstarfsnefndin fyrir bí? KEJ — Eftir tveggja daga fundarhöld samstarfsnefndar isiendinga og Norðmanna um loðnuveiðar i Osló slitnaði upp úr samræöunum i gærdag er í Ijós kom að fulltrúar landanna gátu ekki einu sinni komist að samkomulagsgrundvelli um meginmarkmið viðræðnanna. Fulltrúar Islands i nefndinni, Þóröur Asgeirsson skrifstofu- stjóri I Sjávarútvegsráðuneyt- inu og Agúst Einarsson al- þingismaöur sneru þvi aftur heim til islands að loknum fundi i gærmorgun. Samkvæmt fréttum frá Nor- egi vildu Islensku fulltrúarnir ræða um veiðitakmarkanir Norðmanna sem hefja loönu- veiðarnar á mánudaginn en norsku fulltrúarnir töldu engan grundvöll veiðitakmarkana á svæðinu nema þaö fengist áöur viðurkennt að Norðmenn helg- uðu sér 200 milna fiskveiöilög- sögu umhverfis Jan Mayen. Langlífi okkar Islendinga að gera út af við lífeyrissjóðina: Eru aliir gjaldþrota • iðgjoldin þurfa að vera a.m.k. 15% HEI — „Lffeyrissjóöirnir á ís- lands eru allir gjaldþrota, þó svo að öll þeirra útlán verði verö- tryggö,” svaraði Pétur Blöndal hjá Lifeyriss jóöi verslunar- manna, spurningu um það, hvort verðtrygging útlána sjóðanna þýddu einnig verötryggöan lff- eyri. „Þaö að verötryggja útlánin, frestar auövitaö fyrirsjáanlegu gjaldþroti kannski i nokkra ára- tugi,” sagöi Pétur. Hann sagði verðbólguna eiga stóran þátt í þessu þvl ljóst væri að t.d. iðgjöld frá sjötta áratugn- um væru orðin litils virði nú. Maður sem fer á lifeyri nú, væri búinn aö fá úr sjóðnum allt sem greitt heföi verið i sjóðinnn hans vegna, með vöxtum, á 2-3 árum. Þá færi hann aö ganga á iðgjöld þeirra sem nú væru að borga i sjóöinn. Pétur sagði þetta þó ekki aöal- atriöið, heldur hitt; aö iðgjöldin væru allt of lág miðað við lifeyr- inn sem sjóðirnir lofa, þ.e. um og yfir 60% af launum. Til að ná þessu marki þyrftu iðgjöldin aö vera a.m.k. yfir 15%. Núverandi iðgjöld, 10%, hefðu verið reiknuð út á fjóröa áratugnum og þá gengið út frá dánarlikum á þeim tima. Nú væri meðalaldur oröinn miklu hærri, sem þýddi miklu lengri lifeyrisgreiöslur og þar með stóraukna greiöslubyrði sjóðanna. Kerfið stæðist því ekki lengur. Hvaö væri til ráða og hvort sjóöirnir ætluðu bara að biöa að- gerðarlausir eftir andlátinu, spurði Tíminn. Pétur svaraöi að svo virtist vera. Lifeyrissjóður fyrir alla landsmenn.væri senni- lega á stefnuskrá allra stjórn- málaflokka, en þó hefðu frum- vörp sem flutt heföu verið á Al- þingi þar að lútandi bara sofnað. Eina lausnin á málinu væri að taka upp gegnumstreymis- Frh. á bls. 19. Stjóm Flugleiða lýsir yfir stuðningi við Sigurð KEJ — 1 tilefni blaöa- skrifa að undanförnu hefur stjórn Flugleiða séð ástæðu til að sam- þykkja stuðningsyfir- lýsingu við Sigurð Helgason forstjóra félagsins. Tillagan sem samþykkt var á stjórnarfundi í gær hljóðar svo: „1 tilefni af blaðaskrifum undanfarna daga um málefni Flugleiða h.f. lýsir stjórn félagsins yfir fyllsta stuöningi við forstjóra félagsins, Sigurö Helgason, i vandasömu starfi.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.