Tíminn - 20.07.1979, Blaðsíða 5

Tíminn - 20.07.1979, Blaðsíða 5
Föstudagur 20. júli 1979. 5 I dag opnar Steingrimur Sigurðsson listmálari sýningu á tuttugu nýjum vatnslita- myndum i Þrastarlundi við Sog. Sýningin verður opin til mánaðamóta. Myndirnar á sýningunni eru allar málaðar á þessu ári, en Steingrimur hefur nú um skeið helgað sig hinni erfiðu list vatnslitanna. kringlur eru góðar 32? með kaffinu! BRAUÐGERÐIN Krútt AÐALGATA 9 BLÖNDUÓSI SÍMI 95-4235 Mjðg ánægður með undirtektir” segir sjávarútvegsráðherra um viðbrögð manna við orku- spamaðartillögum i sjávarútvegi HEI — ,,Á þessu stigi bað ég hagsmunaaðila, sem þeir sam- þykktu, að koma með hug- myndir sinar um hvernig aetti að hrinda orkusparnaðaráform- unum I framkvæmd, og mat þeirra á þvi hvað framkvæmd hinna ýmsu hugmynda myndi koma til með að kosta hjá hverjum og einum” svaraði Kjartan Jóhannsson, sjávar- útvegsráðherra spurningu um það hvað ráðuneytið hygðist gera til að koma sparnaðar- áformum sinum sem fyrst i framkvæmd. ,,Þá er auðveldara að meta arðsemina og raða verkefnum i forgangsröð. Sumt af þessu er þess eðlis, að einhverskonar sameiginlegt átak þarf til að ná fram hvatningu til aðgeröa. Annað er þess eðlis að útvega þarf fé i fjárfestingalána- sjóðum, eða jafnvel að breyta reglum þeirra.” Kjartan sagðist mjög ánægður með hvað menn hafi verið jákvæðir og sýnt vilja til að koma sem flestum þessara hugmynda I framkvæmd. Steingrímur Steingrímur í Þrastarlundi Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar: Engin þörf á endur- skoðun Kás — Það hefur verið lenska hjá mörgum sveitar- félögum undanfarin verö- bólguár, að endurskoða fjár- hagsáætlun sina um mitt árið, þegar fyrir liggur álagning opinberra gjalda fyrir það árið. Hefur mönnum þótt verðbólgan sprengja upþ ýmislegan kostnað, sem fyrir bragðið hefur reynst óraunhæfur þegar til kom: Þeir á Akureyri virðast hins vegar vera farnir að kunna lagið á verðbólgunni, þegarþvi á fúndi bæjarrófis Akureyrar fyrir nokkru, var samþykkt að ekki væri ástæða til að taka fjárhags- áætlun bæjarins til endur- skoðunar svo sem samþykkt var við gerð hennar um ára- mót. Gamlar bækur til sölu Misjafn sauður i mörgu fé. efti.r Eirik á Brúnum, Stjörnufræði Ursins Viðey 1842 (þýð. Jónas Hallgrims- son), Bútar úr ættfræði Islendinga, eftir Stein Dofra, Ævi- saga Sr. Arna Þórarinssonár 1-6 eftir Þórberg Þórðarson, Encyclopaedia Britannica 1-23 og Atlas (1966), Um hagi og réttindi kvenna eftir Brieti Bjarnhéðinsdóttur, Rit Jóhanns Sigurjónssonar 1—2, Sól- on íslandus 1—2, Fornaldarsögur Noröurlanda 1—3, Ver- aldarsaga Sveins frá Mælifellsá, Palladómar Magnúsar Storms 1—2, Reykjavikurbiblia (1859), Heklugosið 1947, Handbók fyrir hvern mann eftir Magnús Stephensen, Leirárgöröum 1812, Innstrúx fyrir hreppsstjórnarmenn á Islandi (Magnús Stephensen), Leirárgöröum 1810, Völu- spá eftir Eirik Kjerulf, Blað lögmanna, Ævisaga Alberts Thorvaldsens, Khöfn 1841, Náttúruskoðari, Leirárgörðum 1795, Alþýðubókin eftir Halldór Laxness (frumútg.), 1 Austurvegi eftir Halldór Laxness, Rauður loginn brann eftir Stein Steinarr, Sýslumannaæfir 1—5, Þjóðsögur Jóns Arnasonar 1—2, Annáll 19. aldar 1—3, Verk Þorgeirs Gjallanda 1—4, Sálmar og kvæöi Hallgrims Péturssonar, Móakotsmálið, Byltingin i Rússlandi, eftir Stefán Pétursson Bréfabók Guðbrandar, Orðið, timarit guðfræðinema 1965—1976, Dagrenning og Timarit Máls og menningar. Nýkomið mikið val bóka um þjóðleg fræði, stjórnmál, trúarbrögð, skáldskapur ungra og gamalla skálda, þýdd- ar skáldsögur og hundruð vasabóka á ýmsum tungum. Skrifið, hringið eða litið inn. Sendúm I póstkröfu. Bókavarðan — Gamlar bækur og nýjar — Skólavöröustig 20 Reykjavik, simi: 29720. Framkvæmdastjóri Staða framkvæmdastjóra við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri er Iaus til umsókn- ar. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf berist til stjórnar Fjórðungs- sjúkrahússins fyrir 10. ágúst n.k. Staðan verður veitt frá 1. okt. n.k. eða eftir sam- komulagi. Umsækjendur skulu hafa menntun i viðskiptafræði, stjórnun eða hliðstæðum greinum. Laun samkv. kjarasamningi starfsmanna Akureyrarbæjar. Allar nánari upplýsingar veitir stjórnar- formaður Stefán Stefánsson bæjarverk- fræðingur, simi 96-21000. Stjórn F.S.A. ÓFÆRÐ Á FJÖLLUM ^ fjallabíll sat fastur á Auðkúluheiði I 5 tima ÁS Mælifelli/KEJ — Frétta- ritari Timans að Mælifelli simaði i gær og kvað mikla ófærð þar á Fjöllum og nefndi sem dæmi að siðastliðinn mið- vikudag hafi komið þangað 50 manna hópur á vegum Ferða- félagsins á tveimur bilum. Að Akureyri: Lyftingamenn fá milljón Kás — Nýlega var lagt fram erindi frá Lyftingaráði Akureyrar, fyrir bæjarráð staðarins, þar sem leitað var eftir fjárstuðningi til endur- nýjunar á tækjakosti Lyfdngaráðsins. Bæjarráð samþykkti að veita Lyftingaráðinu allt að einnar millj. kr. styrk til endurnýj- unarinnar. sögn fararstjórans, Hjalta Kristgeirssonar, var mikil ófærð norðan við Galtaból á Auðkúluheiði en farið hefði verið noröur Kjöl. Var aur- bleyta mikil og grunnt á klaka og satannar bUlinn fastur I fimm tima. Sagði Agúst að Ferðafélags- hópurinn hefði ætlað aö fara um Vesturdal og i Laugafell og svo á Sprengisandsleið en Sigurþór Hjörleifsson 1 Messuholti sem kunnugur var leiðinni hefði ein- dregið ráðiö frá þvi. Væri einkum blautt og torfarið sunnan Stafnsvatna. Eðlilegt væri, sagði Agúst, aö nokkur jeppaumferö væri um fjalla- og dalaslóðir svo siðla sumars en stórir bilar færu mjög illa með hina ruddu óbyggöarvegi og I sumum til- vikum gætu spor þeirra jafnvel gert vegina ófæra. Þá hafði hann eftír Rósmundi Ingvarssyni á Hóli í Tungusveit að mikil bleyta væri á heiðum en fært á hestum væri ekki farið út fyrir göturnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.