Fréttablaðið - 28.03.2007, Page 6

Fréttablaðið - 28.03.2007, Page 6
MARKAÐURINN 28. MARS 2007 MIÐVIKUDAGUR6 F R É T T A V I Ð T A L Á næstu fimm árum ætlar verkfræðifyrir- tækið HRV að verða eitt fremsta ráðgjaf- ar- og þjónustufyrirtæki í heiminum á sviði ál- og orkuiðnaðar með starfsemi í minnst fimm löndum og veltu upp á um tuttugu milljarða króna. Með þetta að markmiði hefur verið ráðist í gagngera endurskipu- lagningu á uppbyggingu fyrirtækisins, leit- að er að framkvæmdastjóra og búið að stofna eignarhaldsfélagið HRV Holding utan um innlendar og erlendar eignir og starfsemi. Útrás HRV er raunar þegar hafin með því að fyrirtækið hefur tekið að sér að endurnýja gamalt „Söderberg“-álver, Kubal í Sundsvall í Svíþjóð. Að sögn aðstandenda HRV er ekki til- viljun að ráðist er í þessa vinnu nú. Núna segja þeir að sé lag, þekking fyrir hendi og aðstæður hagfelldar á alþjóðamörkuð- um þar sem sífellt meiri áhersla sé lögð á vistvæna orku og framleiðslu. Fyrirhuguð aukin útrás HRV rímar enda mjög vel við þær fjárfestingar sem nýstofnuð fjárfest- ingafélög Geysir Green Energy og Hydro- Kraft Invest ætla að ráðast í. „Heimamarkaðurinn er lítill og stór verkefni ráða miklu um verkefnastöðu og rekstraraðstæður fyrirtækja í þessum geira. Þess vegna er mjög mikilvægt að ná þessari sveiflu sem er í fjárfestingum úti í heimi, bæði í orkugeiranum og áliðnaði,“ segir Eyjólfur Árni Rafnsson, starfandi framkvæmdastjóri HRV sem telur nægi- legt að um 70 til 80 prósent af starfsemi fyrirtækisins séu tengd erlendum verkefn- um til að losna við áhrif af sveiflum innan- lands. „Hliðstætt og bönkunum hefur tekist að gera, en af annarri stærðargráðu.“ AÐSTÆÐUR HAGFELLDAR ÁLINU HRV byggist enda á gömlum merg þar sem verkfræðifyrirtækið er sameigin- legt verkefni þriggja gróinna verkfræði- stofa á íslenskum markaði. HRV-samstarfið rekur sögu sína aftur til ársins 1995 þegar hófst samstarf verkfræðistofanna Hönn- unar, Rafhönnunar og Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen (VST). Allar eru þess- ar verkfræðistofur umsvifamiklar og eiga sér langa sögu, VST þó sýnu lengsta enda elsta verkfræðistofa landsins, stofnuð árið 1932. Hönnun var stofnuð 1963 og Rafhönn- un 1969. Þeir eru enda glaðbeittir fram- kvæmdastjórar þessara fyrirtækja þegar þeir lýsa framtíðaráformum sínum með HRV, en saman mynda þeir stjórn fyrir- tækisins. „Hér innanlands hefur með stóriðjufram- kvæmdum orðið til gríðarlega verðmæt þekking sem við byggjum á í útrás okkar,“ segir Skapti Valsson, framkvæmdastjóri Rafhönnunar, og áréttar að ál- og orku- iðnaður falli í flokk hátækni- og þekking- ariðnaðar. „Þótt einhverjir kunni að líta á álver sem skítugan vinnustað þá er ekki svo. Starfsemi álvera byggir á mikilli sjálf- virkni, hugbúnaðargerð og þar að baki ligg- ur mikil þekking og hátækni, þrátt fyrir að vinnslan sjálf, rafgreiningin, hafi svo sem verið þekkt í hundrað ár. Öll önnur vinnsla er hins vegar sífellt að breytast og sjálf- virknin að aukast.“ Auk þeirrar reynslu sem verkfræðingar hér hafa á að byggja segja þeir HRV- menn að aðstæður í heimin- um séu aukinheldur hagfelldar. „Alþjóðleg- ar kröfur um að draga úr útblæstri gróður- húsalofttegunda kalla á auknar áherslur á orkuiðnað þar sem verið er að hverfa frá mengandi aflgjöfum á borð við kol og olíu,“ segir Eyjólfur Árni, sem einnig er framkvæmdastjóri VGK-Hönnunar. Hann segir ljóst að loftslagsskýrslur sem komið hafi frá áramótum, svo sem frá Sameinuðu þjóðunum, séu í raun „vatn á myllu“ HRV. „Krafan er að virkja vatnsafl, gufu og þess háttar orkugjafa meðan dregið er úr hinu.“ Þeir benda á að á þeim svæðum í heiminum þar sem hagvöxtur er hvað örastur, svo sem í Indlandi og Kína, sé áherslan ekki á að draga úr orkunotkun, heldur að aukin notk- un byggi á umhverfisvænum orkugjöfum. Hátt verð á áli í heiminum ýtir svo undir uppbyggingu og endurnýjun í þeim geira. Hækkandi orkuverð gerir einnig að núna séu orðin hagkvæm verkefni sem ef til vill hafi ekki þótt vera það áður. Af þessu leiðir að HRV stendur á tíma- mótum og var um áramót ráðist í gagngera endurskipulagningu þess með stofnun eign- arhaldsfélagsins HRV holding ehf. og HRV ehf. yfir starfsemina hér. Í sumar flyt- ur svo starfsemin í nýtt húsnæði á Höfða í Reykjavík og er þá stefnt að því að hún verði komin á fullan skrið. „HRV Holding er hugsað sem eignarhaldsfélag utan um reksturinn og rekstur annars staðar en hér á landi. Á sama tíma vinnum við að því að ráða framkvæmdastjóra til að styrkja upp- byggingu fyrirtækisins enn frekar,“ segir Eyjólfur Árni. Félögin sem að HRV standa eru saman með hátt í 500 manns í vinnu og í gegnum HRV hátt um 150 manns sem ein- vörðungu sinna álversiðnaði. Áhersla fyr- irtækisins verður að stórum hluta á álver- siðnað þar sem það hefur á mikilli þekk- ingu að byggja, en einnig er horft til annars orkufreks iðnaðar. „Erlendis höfum við líka ákveðið að snúa bökum saman í orkugeir- anum. Félögin, bæði saman og hvert í sínu lagi, eiga í Geysi Green Energy og vonumst við til að vera virkir þátttakendur í þeim verkefnum sem fylgja útflutningi þekking- ar okkar í þessum iðnaði.“ Verkefni HRV að endurnýja álverið í Sundsvall í Svíþjóð segja forsvarsmenn fyrirtækisins að fylgi mikil tækifæri. Viðar Ólafsson, framkvæmdastjóri VST, segir stærð verkefnisins nema um 40 mannárum með verðmiða nálægt hálfum milljarði. Ál- verið er inni í miðjum bæ og af svokallaðri „Söderberg“-gerð, en mörg slík bíða end- urnýjunar. Þau byggja á tækni sem verið er að hverfa frá vegna þess að hún mengar meira en nýjasta tækni. Viðar segir gott að byrja útrásina í Svíþjóð, enda landið okkur ekki framandi. MIKIL UPPBYGGING FYRIRSÉÐ HRV-menn segja hins vegar nokkuð happ hafa verið að fá verkefnið í Svíþjóð því leitað var til fyrirtækisins. „Þetta kom til okkar svona eftir viðræður og fegurðar- samkeppni,“ segir Eyjólfur Árni og Skapti minnir á að HRV hafi jú þurft að keppa við ástralskt verkfræðifyrirtæki sem einn- ig hafi komið til greina. Viðar segir hins vegar ekkert undarlegt við að leitað hafi verið til HRV um verkið, burtséð frá eigna- tengslum sem eru á milli Kubal-álvers- ins og Norðuráls þar sem menn hafi þekkt til HRV, enda allt vinnulag við stórfram- kvæmdir og útboð á alþjóðlegum mark- aði sambærilegt við það sem menn þekkja héðan. „Hér erum við með ráðgjöf, útboð og eftirlit og undirbúum verktakaþátt framkvæmdarinnar fyrir þann markað sem er á viðkomandi stað. Alls staðar er þetta unnið á svipaðan hátt, en við höfum safnað hér upp áratugareynslu fyrir fyrir- tæki í svona starfsemi,“ segir hann. Eyjólfur Árni rekur upphafið að starf- semi HRV til undirbúnings byggingar ál- versins á Grundartanga og til stækkunar álvers Ísals í Straumsvík sem í gangi var á svipuðum tíma. „Stækkunin þar braut ísinn í aðkomu erlendra fjárfesta að verk- efnum hér. Ennfremur lagði Kenneth Pet- erson sem þá átti álverið á Grundartanga mikla áherslu á að nýta innlenda aðila til undirbúnings og uppbyggingar álversins og að stofur mynduðu svona samstarf,“ segir hann, en HRV vann einnig að undir- búningi Reyðarálsverkefnisins fyrir Norsk Hydro á sínum tíma. „Þegar Alcoa kemur inn í verkefnið fyrir austan 2002 vorum við ekki lengi að hugsa okkur um hvort við tækjum þátt í því og stofnuðum fyrir- tækið HRV sf.“ Við þetta fékk reksturinn á sig fastara form og hefur undið upp á sig síðan. „Fyrir utan að stýra með verkfræð- ingum Norðuráls uppbyggingu þar, erum við í dag í samstarfi við Bechtel fyrir aust- an við byggingu Fjarðaráls, við vinnum að undirbúningi álvers á Húsavík, við tökum þátt í undirbúningi stækkunar í Straums- vík og sömuleiðis að undirbúningi álvers í Helguvík. Svo erum við komin í verkefni utan landsteinanna í Svíþjóð.“ Þarna eru upp talin stærstu verkefnin en alls telja smærri og stærri verkefni HRV á fimmta tuginn. Eyjólfur Árni segir framtíðina bjarta í álvers- og orkuiðnaði enda spáð mik- illi aukningu. „Hún nemur því að næstu tuttugu árin þurfi á hverju ári einhvers staðar í heiminum að byggja sem nemur þremur Reyðarfjarðarálverum. Við þurf- um ekki að komast inn í nema tíunda eða tuttugasta hvert verkefni til að vera sátt- ir,“ segir hann og kveður að á næstu fimm árum stefni HRV að því að vera með 80 prósent af starfsemi sinni utan landstein- anna. Framtíðarsýnin er sú að um 1.800 manns starfi hjá HRV, 1.500 í útlöndum og um 300 hér heima. „Tækifærin sem við stöndum frammi fyrir núna eru þau mestu sem við höfum upplifað á löngum ferli þessara fyrir- tækja,“ segir Viðar og bætir um leið við að það sem mestu skipti þegar lagt er í upp- byggingu á borð við þá sem nú sé fyrir dyrum hjá HRV sé traustur heimamark- aður. „Heimamarkaður hér hefur verið mjög góður undanfarin ár og nú er lag til að hleypa heimdraganum.“ Þeir félag- ar hnykkja svo á því að uppbygging orku- freks iðnaðar hér síðustu 10 til 12 ár sé for- senda þeirra áætlana sem HRV hefur um útrás. Áframhaldandi og skynsamleg upp- bygging á þessi sviði innanlands segja þeir að muni styrkja þessa útrás enn frekar. Kraftur þekkingarinnar virkjaður í útrás Sérþekking á sviði verkfræði sem hér hefur orðið til á liðnum árum í álvers- og virkjanaframkvæmdum er sú undirstaða sem verkfræðifyrirtækið HRV ætlar að byggja á í útrás sinni. Að HRV standa þrjár grónar verkfræðistofur. Óli Kristján Ármannsson ræddi við framkvæmdastjóra þeirra, þá Eyjólf Árna Rafnsson hjá VGK-Hönnun, Skapta Valsson hjá Rafhönnun og Viðar Ólafsson hjá VST, en þeir mynda stjórn HRV. Verð á yfir 1000 prentlausnum! EINFALT OG FLJÓTLEGT AÐ KAUPA PRENTVERK O D D I H Ö N N U N P 07 .0 0. 42 2 Prentsmiðjan Oddi ehf. • Höfðabakka 3-7 • 110 Reykjavík • Sími 515 5000 • Pantaðu eintak á www.oddi.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.