Fréttablaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 30
MARKAÐURINN 28. MARS 2007 MIÐVIKUDAGUR14 F Y R S T O G S Í Ð A S T H E I M S K R I N G L A N Hólmfríður Helga Sigurðardóttir atrice Olofsson varð himinlifandi þegar hann sá auglýsta framkvæmdastjórastöðu fransks viðskiptaráðs. Starfið virtist henta honum fullkomlega. Bæði var hann stoltur af sínu heimalandi og forvitinn um framandi lönd. Hann gat vel hugsað sér að yfirgefa Frakkland um stund með það að markmiði að koma á og hlúa að við- skiptasamböndum milli franskra fyrirtækja og er- lendra. Þá rak hann augun í neðstu línu umsóknarinnar. „Starfsstöðvar á Íslandi” stóð þar skrifað. Þessu hafði Patrice ekki reiknað með. Þrátt fyrir ævintýragirni var hann borgarbarn. Og evrópsk borgarbörn búa víst ekki í Reykjavík. Eftir nokkra umhugsun lét hann þó slag standa, sótti um starfið og landaði stöðunni. Síðan eru liðin tæp tvö ár. STÓRAUKIN SAMSKIPTI MILLI LANDANNA Frakkland er fimmta stærsta efnahagsveldi heims miðað við landsframleiðslu og þriðji stærsti þjónustu- útflytjandinn. Það er því ekki hægt að loka augunum fyrir mikilvægi Frakklands í alþjóðavæðingunni. Það hafa fjárfestar heldur ekki gert. Hvergi í heiminum er eins mikið innflæði þeirra og í Frakklandi, nema í Kína. Þá er umtalsverður hluti franskra fyrirtækja í eigu er- lendra aðila. Íslensk fyrirtæki eru engir eftirbátar annarra landa þegar kemur að fjárfestingum í Frakklandi. Þar hafa fjölmörg þeirra starfsemi. Má þar nefna matvælafyrirtækin Alfesca, Marel, Icelandic Group og Bakkavör, Eimskipafélagið, Icelandair og stoð- og stuðningstækjaframleið- andann Össur. Árið 2005 keypti Lands- bankinn franska veð- bréfafyrirtækið Kepler, stuttu eftir að Patrice tók við stöðu framkvæmda- stjóra Fransk-íslenska viðskiptaráðsins. Hann varð var við að kippur kom í viðskipti milli landanna einmitt um það leyti. Þá segir hann áhuga Frakka á ís- lenska markaðnum hafa aukist. Opinberar tölur styðja þetta. Árið 2006 nam innflutn- ingur frá Frakklandi til Íslands tæpum tólf milljörð- um króna. Það var þrjátíu prósentum meira en árið 2005. Viðskiptin jukust einnig um rúmlega þrjátíu prósent milli áranna 2004 og 2005. Mikill hluti franskra vara er fluttur inn í gegnum önnur lönd og kemur því ekki fram í innflutningstölum. Heildarinnflutn- ingur er því töluvert meiri en opin- berar tölur gefa til kynna. Útflutningur frá Íslandi til Frakk- lands dróst saman milli áranna 2005 og 2006. Þá nam hann tæpum tíu milljörðum króna. Árið 2006 markaði tímamót fyrir viðskipti milli Íslands og Frakklands. Í fyrsta sinn í meira en tíu ár var vöruskiptahallinn Frökk- um hagstæður. LÍFSEIGAR KLISJUR UM FRAKKLAND Patrice segir að ýmsar hugmyndir fólks í garð frönsku þjóðarinnar eigi sér engar stoðir í raunveruleikan- um. Margir haldi því fram að franski markaðurinn sé lokaður, illa sam- keppnishæfur, þar sé flókið að stofna fyrirtæki og, síð- ast en ekki síst, vinnumarkaðurinn sé hryllilegur. Þetta segir hann allt saman byggt á sleggjudómum. Franski markaðurinn sé þvert á móti opinn fyrir erlendum áhrifum. Hann sé einn stærsti útflytjandi vara og þjón- usta heims og því vel samkeppnishæfur. Patrice gefur líka lítið fyrir lífseiga ímynd um hrylli- legan vinnumarkað, þar sem starfsmenn eyði stórum hluta tíma síns í hádegismat að plotta um hvenær eigi næst að fara í verkfall. „Þetta er rangt,” segir hann. „Vissulega taka Frakkar langan hádeg- ismat. En þeir vinna líka langan vinnudag og þurfa orkuna.” Framleiðni vinnuafls er mun hærri í Frakklandi en á Íslandi og sú fjórða mesta í heiminum. FRÖNSK MENNINGAR- VEISLA Í FULLUM GANGI „Pourquoi Pas? – Franskt vor á Íslandi“ er mikil menningar- veisla sem nú stendur sem hæst. Fransk- íslenska viðskiptaráðið stendur fyrir veislunni í sam- ráði við menntamálaráðuneytið, franska sendiráðið og Culturesfrance. Patrice ber franska sendiherranum á Íslandi, Nicole Michelangeli, vel sög- una. Segir hann hana hafa staðið sig stórkostlega við skipulagningu há- tíðarinnar, ekki síst við að sannfæra frönsk fyrirtæki og listamenn um að taka þátt í viðburðinum. Fjölmörg íslensk og frönsk fyrir- tæki koma að hátíðinni á margvísleg- um vettvangi. Hvenær sem Íslending- um hugnast að brjóta upp hversdags- munstrið á næstu mánuðum geta þeir treyst á Frakkana. Hátíðinni lýkur nefnilega ekki fyrr en í maí. Gild- ir það jafnt um unnendur dans, tón- listar, bókmennta, vísinda, myndlist- ar, kvikmynda og götulistar. Jafnvel verða atriði í boði sem ekki rúmast í þessa flokka. Hinn 12. apríl verður haldin ráðstefna um viðskipti milli Ís- lands og Frakklands. Þar verða kostir og verðleikar Frakklands fyrir bein- an íslenskan útflutning og íslenskar fjárfestingar kynntir. Á vefsíðunni www.pourquoipas.is má nálgast dag- skrá og fræðast frekar um hátíðina. Franskt vor í viðskiptum ... tekur fólk alla jafna tveggja tíma hádegishlé. Vinnudagurinn er hins vegar yfirleitt langur og framleiðni vinnuafls há. ... tala 65 prósent fólks undir þrítugu ensku og níutíu prósent þeirra sem hafa háskólagráðu. ... er vinnandi fólk hreint ekki svo oft í verkfalli, þótt staðalímyndin gefi það til kynna. Sextán dagar tapast árlega á þús- und íbúa vegna verkfalla, í sam- anburði við 34,7 í Bretlandi. F R Ó Ð L E I K S M O L A R Í Frakklandi ... FRAKKLAND Mannfjöldi: 62 milljónir Hagvöxtur: 2,0 prósent Verðbólga: 1,5 prósent Atvinnuleysi: 8,7 prósent Gjaldmiðill: 1 evra = 88 krónur Heimild: CIA World Fact Book. Bráðabirgðatölur fyrir árið 2006. Þrír fulltrúar frá hagstofum í Evrópu komu hingað til lands í síðustu viku til að ræða um áreiðanleika íslenskra hagtalna og fara yfir það hvernig þær nýttust fjölmörgum fyrirtækj- um og stofnunum, þar á meðal fjölmiðlum. Koma þremenninganna er liður í samevrópsku verkefni þar sem starfsmenn hagstofa víða í Evrópu kanna verklags- reglur við gerð hagtalna. Hag- stofustjórar EES-ríkjanna komu sér saman um að setja slíkar reglur í evrópskri hag- skýrslugerð fyrir tveimur árum í kjölfar þess að Grikk- ir fegruðu ríkishallatölur með það fyrir augum að uppfylla skilyrði fyrir aðild að mynt- bandalagi Evrópusambandsins. Um jafningjaeftirlit að ræða þar sem þriggja manna sendi- nefnd frá þremur hagstofum í Evrópu skoðar verklag við gerð og birtingu hagtalna í hinum ýmsu löndum með hliðsjón af reglunum sem framkvæmda- stjórn ESB setti. Að sögn Franks Nolan, sem kemur frá bresku hagstofunni, er mikilvægt að tryggja sjálf- stæði hagstofa til að koma í veg fyrir misbeitingu hagtalna líkt og gerðist á Grikklandi. Hópurinn dvaldi hér í fjóra daga og skrifaði skýrslu um málið sem birtast mun í árs- skýrslu Eurostat, hagstofu Evr- ópusambandsins, fyrir yfir- standandi ár. - jab Evrópskar hagstof- ur rýna í hagtölur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.