Fréttablaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 22
 28. MARS 2007 MIÐVIKUDAGUR14 fréttablaðið íslenskur iðnaður IÐAN – fræðslusetur ehf. er tæp- lega ársgamalt fyrirtæki sem sinnir símenntun og starfsnámi iðnaðarmanna. Hlutverk IÐUNN- AR er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í byggingar-, málm-, bílgreina- og prentiðnaði og matvæla- og veit- ingagreinum. Fyrirtækið er ungt en byggist á gömlum merg. Þar sameinast fimm fræðslumiðstöðv- ar sem hafa starfað síðastliðna tvo áratugi, hver á sínu sviði. Þetta eru Menntafélag byggingarmanna, Fræðslumiðstöð málmiðnaðar- ins, Prenttæknistofnun, Fræðslu- ráð hótel- og matvælagreina og Fræðslumiðstöð bílgreina. Framkvæmdastjóri IÐUNN- AR er Hildur Elín Vignir. „Ég ber ábyrgð á rekstri og stjórnun og því að koma barninu á legg og batteríinu saman. Við erum nátt- úrlega bara á fyrstu mánuðum í starfi í nýju fyrirtæki, erum á kafi í breytingaferli og sameiningu. Svo mitt starf felst í stjórnun í víðasta skilningi,“ segir Hildur. „Það er heilmargt sem greinarn- ar eiga sameiginlegt. Það sem við leggjum áherslu á er í fyrsta lagi aukið framboð af námi í stjórn- un og rekstri. Einnig leggjum við áherslu á aukið tölvulæsi meðal okkar félagsmanna. Greinarnar skarast víða, málmsuða skarast við byggingariðnað, pípulagnir og málmiðngreinar. Iðntölvustýring- ar og iðntölvufræði eiga við allar greinarnar.“ Eigendur IÐUNNAR eru Sam- tök iðnaðarins, Samiðn, MATVÍS, Félag bókagerðarmanna, FIT, VM, Samtök ferðaþjónustunnar og Bíl- greinasambandið. Eigendurnir álíta samrunann í takti við þróun í atvinnulífinu; að hagsmuna- gæsla og þjónusta við fyrirtæki sé í minnkandi mæli tengd atvinnu- vegum eða einstökum starfsgrein- um, en atvinnulífið leggi nú meiri áherslu á sambærileg skilyrði fyrir öll fyrirtæki. Meðal slíkra skilyrða sé aðgengi að vel mennt- uðu og færu starfsfólki. IÐAN sinnir nú yfir fimmtán þúsund aðildarfélögum, einstakl- ingum og fyrirtækjum. - nrg Fimm fræðslustofnanir undir einum hatti Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Á síðasta ári var þeim reglum sem giltu um útgáfu vegabréfa breytt. Hófst þá útgáfa á nýjum vegabréfum með sérstökum ör- gjörva sem geymir sömu upplýs- ingar og eru sjáanlegar í vega- bréfinu. Tilgangur breyting- anna var að laga íslenskar reglur að alþjóðlegum skuldbinding- um. Samfara þessum breyting- um var komið upp myndavélum á afgreiðslustöðum vegabréfa og umsækjendum boðið að starfs- menn sýslumannsembætta tækju af þeim mynd í vegabréfið án endurgjalds. Þar sem ljósmynd- un er löggild iðngrein höfðaði Ljósmyndarafélag Íslands mál gegn íslenska ríkisinu og krafð- ist þess að viðurkennt yrði að ljósmyndurum einum væri heim- ilt að taka myndir í íslensk vega- bréf. Í nóvember síðastliðinn dæmdi Héraðsdómur Reykjavík- ur að ljósmyndurum með iðnrétt- indi og nemendum í ljósmyndun væri einum heimilt að taka þess- ar myndir. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar og er niðurstöðu að vænta í maí. „Það var mjög ánægjulegt að fá staðfestingu á því frá Hér- aðsdómi að við höfðum á réttu að standa. Málið hefur auðvitað mikið fordæmisgildi enda snýr þetta í sjálfu sér að öllum iðn- réttindum í landinu. Mitt starfs- leyfi er gefið út af lögregluemb- ættinu og þeir gefa mér leyfi til að starfa sem ljósmyndari en sjá svo ekki ástæðu til að skipta við okkur frekar en ómenntaða ein- staklinga á þessu sviði. Ef við vinnum ekki málið er í raun hægt að leggja niður Iðnskólann. Ef til dæmis væri ákveðið væri að taka upp skólabúninga í landinu gæti ríkið bara ákveðið að leita til hvers sem er og gengið algjör- lega fram hjá þeim sem hlotið hafa sérstaka menntun og rétt- indi á sínu sviði,“ segir Gunnar Leifur Jónasson, formaður Ljós- myndarafélags Íslands. Ekkert sambærilegt mál hefur farið fyrir dómstóla hér á landi síðan á níunda áratugnum. Verð- ur það að teljast nokkuð óvenju- legt og segir Gunnar Leifur að það hafi komið á óvart þegar farið var að vinna í málinu. „Það er eiginlega óskiljanlegt hvers vegna ríkið sækir það svo fast að láta sína starfsmenn taka þessar myndir. Þetta snýst um að auka alheimsöryggi íslenskra ríkis- borgara enda skiptir miklu máli að hafa góðar myndir í vegabréf- inu sem auðveldlega er hægt að greina fólk á. Þessi aðferð sem þeir beita, að taka myndina sjálf- ir með lélegum tækjum og tólum, er alls ekki nógu góð og það kemur í ljós að þeir valda í raun og veru ekki þessu verkefni. Græjurn- ar þeirra eru ekki nógu góðar til þess að geta greint það sem þeir ætla að greina. Gagnagrunnur- inn verður því alltaf mjög léleg- ur þegar myndirnar eru ekki vel unnar. Ég mynda 5.000 manns á ári á stofunni minni og hef sér- þekkingu á því að taka myndir af fólki. Því finnst mér mjög undar- legt að ríkið sækist ekki eftir því að nýta mína sérþekkingu.“ Gunnar Leifur segist hafa fundið fyrir heilmiklum meðbyr við málstaðinn í samfélaginu og það þyki honum vænt um. „Við höfum fengið mörg bréf frá al- menningi, sérstaklega iðnlærðu fólki, sem þakkar okkur fyrir að taka upp hanskann fyrir sig og standa vaktina. Þetta hefur for- dæmisgildi fyrir allar iðngrein- ar í landinu og skiptir okkur öll máli.“ Ótvírætt for- dæmisgildi Gunnar Leifur Jónasson, formaður Ljósmyndarafélags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Allt fyrir Höfðabakki 9 • Sími 544 5330 • Fax 544 5355 straumur@straumur.is Áratuga reynsla og þekking við skipulagningu vöruhúsa Þrönggangalyftarar Wave 50 handlangarinn RaftryllurRafmagns lyftarar Hjólatrillur henta vel í útkeyrslubílinn Staflarar Læstir skápar fyrir fatnað og persónulega muni Hillukerfi og skápar fyrir smávörulagerinn Logimat lagerturnarHurðir, veðurhlífar og vörubryggur 23 00 / TA KT ÍK Brettahillur www.straumur.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.