Fréttablaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 25
H A U S
MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007
Ú T T E K T
gla í Reykjavík
Norðurlöndum fyrirtæki sín og framtíðarhorfur fyrir fjárfestum.
Heilbrigðistæknifyrirtækið Kine er eitt
af elstu íslensku sprotafyrirtækjunum
sem kynnir starfsemi sína á fjárfesta-
þingi Seed Forum á morgun. Fyrirtæk-
ið hefur allt frá árinu 1999 unnið að
þróun ýmiss konar vél- og hugbúnað-
ar til hreyfigreiningar en búnaður sem
þessi nýtist sjúkraþjálfurum við með-
höndlun sjúklinga í endurhæfingu sem
lent hafa í meiðslum og þurfa að byggja
upp ákveðna vöðva.
Kine státar af nokkrum vörum sem
allar tengjast hreyfigreiningu; vöðva-
rita, vél- og hugbúnað sem mælir virkni
vöðva. Því tengdu er svo mælir sem
samanstendur af sama vélbúnaði en
öðrum hugbúnaði. Þá hefur fyrirtæk-
ið búið til göngugreiningarforrit sem
gerir skýrslu um vöðvavirkni og hreyf-
ingu sjúklinga.
Vörur undir merkjum Kine má finna
víða um heim en á meðal viðskiptavina
fyrirtækisins er NASA auk háskóla og
sjúkrastofnana jafnt hér sem erlendis.
Bjarni Þór Gunnlaugsson, forstjóri
Kine, segir umtalsvert hagræði fást
fyrir alla aðila með búnaði sem þess-
um. Hann geti til dæmis stytt komu-
tíma sjúklinga til sjúkraþjálfara mikið.
„Venjulega þurfa sjúklingar að koma,
segjum fjórum sinnum, til sjúkraþjálf-
ara til að greina vöðvavirkni. Með bún-
aði Kine má stytta tímann niður í 15
mínútur,“ segir hann. Kine var með
námskeið fyrir fimm fyrirtæki hér
á landi í desember í fyrra. Fulltrúar
fimm fyrirtækja tóku þátt í því og nota
nú þrjú þeirra búnað frá Kine.
Bjarni bendir á að markaður fyrir
vörur sem þessar sé geysistór og vitn-
ar til þess að í Bandaríkjunum einum
leiti 11,2 milljónir sjúklinga sér lækn-
inga vegna hnévandamála. „Svipaður
fjöldi sjúklinga er með axlavandamál,“
segir Bjarni.
Fyrirtækið ætlar sér stóra hluti í
framtíðinni og vonast til þess að með til-
komu viðskiptaengla í fyrirtækið fáist
fjármagn til að efla markaðssetningu
á vörum Kine úti í hinum stóra heimi.
„Það er ekki nóg að vera með háklassa-
vöru. Það þarf alltaf fjármagn til að
koma henni áfram,“ segir Bjarni.
Frumkvöðlar í hreyfigreiningu
Netleikjafyrirtækið Gogogic er yngsta ís-
lenska sprotafyrirtækið sem kynnt verður
á sprotaþingi Seed Forum á morgun. Fyr-
irtækið var stofnað í apríl í fyrra og hefur
búið til auglýsingar fyrir netið auk lítils
netleiks sem kynntur var um síðustu jól.
Stefnan er að búa til fjölspilunarleik sem
höfðar til breiðs hóps fólks.
Jónas Björgvin Antonsson, stjórnarfor-
maður Gogogic, segir tölvuleikjasviðið
geysistórt og sé fjarri að hægt sé að setja
alla tölvuleiki undir einn hatt.
„Þetta er miklu stærra svið en menn
gera sér grein fyrir,“ segir Jónas og bend-
ir á að leikirnir geti verið allt frá því
að vera stórir fjölspilunarleikir á borð
við World of Warcraft og Eve Online til
smærri leikja eins og Bubbles. „Mesti
vöxturinn er í minni leikjum sem höfða
til almennings og hver sem er getur spil-
að í stuttan tíma án þess að lesa leiðbein-
ingarbækling til að komast inn í hann,“
segir Jónas. Leikir sem þessir eru Zuma
og fleiri sem hentugt er að spila í kaffi-
pásum. „Þetta eru leikir sem voru búnir
til fyrir nokkrum árum og enn er verið að
spila,“ bendir hann á.
Leikurinn sem Gogogic vinnur að heitir
Boss of the Bosses og er skilgreindur sem
herkænskuleikur. „Þetta er einn af þeim
leikjum sem framleiddir eru fyrir 90 pró-
sent leikjaspilara,“ segir Jónas og bend-
ir á að notendur leikja á borð við þann
sem Gogogic vinni að séu leikjaunnendur
sem komnir séu með fjölskyldu og vinni
hefðbundin daglaunastörf, oftar en ekki á
skrifstofu. Lítill tími gefst því fyrir stóra
fjölspilunarleiki sem krefjist oft langrar
yfirlegu ætli notandi að ná árangri.
„Þessi hópur, sem fer stækkandi, hefur
orðið svolítið útundan í þróun tölvuleikja,“
segir Jónas og bendir á grein sem nýver-
ið birtist í veftímaritinu The Escapist um
þróun tölvuleikja. Þar kemur fram að nýj-
asta stefnan sé að gera út á þennan ört
vaxandi hóp sem hafi ekki tíma til tölvu-
leikja en vilji taka þátt í fjölspilunarleik á
netinu. Lausnin felst í leikjum sem byggj-
ast á flash-viðmóti, eru léttir í vöfum og
hægt er að spila stuttan tíma í einu.
Ekki liggur fyrir hvenær hann kemur á
markað en Jónas vonast til að gangi allar
áætlanir eftir verði það um mitt næsta ár.
„Áherslan hjá okkur núna er að finna fjár-
magn til að þróa og vinna leikinn,“ segir
hann.
Tölvuleikir fyrir fjölskyldufólk