Fréttablaðið - 28.03.2007, Side 20

Fréttablaðið - 28.03.2007, Side 20
 28. MARS 2007 MIÐVIKUDAGUR Verðlaun Nýsköpunarsjóðs náms- manna voru veitt í lok febrúar. Þau hlaut að þessu sinni Martin Ingi Sigurðsson fyrir verkefnið Áhrif aldurs á utangenamerki manns- ins. Utangenamerki eru upplýs- ingar sem tengjast erfðaefninu án þess að vera hluti af DNA-röð- inni sjálfri. DNA metýlun tilheyr- ir þessum hópi utangenamerkja og gegnir einkum því hlutverki að kveikja og slökkva á genum í frumum líkamans. Verkefnið miðaði að því að kanna hvernig mynstur DNA metýlunar breytist með vaxandi aldri. Niður- stöðurnar renna stoðum undir nýtt líkan af tilurð sjúkdóma sem getur m.a. skýrt hvers vegna tíðni ým- issa sjúkdóma á borð við krabba- mein hækkar með aldrinum. Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður 1992 til þess að út- vega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Á undanförnum tólf árum hefur sjóðnum tekist að ávinna sér gott orðspor fyrir vinnu þeirra mörg hundruð námsmanna sem starfað hafa á hans vegum og niðurstöður verkefnanna sem þeir hafa leyst af hendi. Önnur verkefni sem hlutu sér- staka viðurkenningu voru: GEO - BREEZE, unnið af Hildigunni Jóns- dóttur og Valdimar Olsen, Nýsköp- un í sýndarverum, unnið af Hrafni Þorra Þórissyni, Rafmagnsflug- an, unnið af Steinþóri Bragasyni, og Þráðlaus mæling stökkkrafts, unnið af Guðfinnu Halldórsdóttur og Birni Ómarssyni. Nýsköpunar- verðlaun Martin Ingi Sigurðsson hlaut verðlaun Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Innan tíðar ber fram- leiðendum bygginga- vara að CE-merkja framleiðslu sína. Æ fleiri samræmdir staðl- ar berast frá Evr- ópusambandinu fyrir byggingavörur. Til að standast kröfurnar í viðeigandi staðli þurfa framleiðendur því að hefja undirbúning að skjalfestri framleiðslu- stjórnun. Til að leiðbeina fyrirtækjum um hvernig haga beri merk- ingum fram- leiðsluvara og upplýsa um hvaða reglur gilda hafa Sam- tök iðnaðarins opnað vefsetur á slóðinni www. si.is/ce Þar er á ferð- inni gagnlegur gátlisti sem í rökréttri röð inni- heldur upplýsingar og staðreynd- ir sem eru til þess fallnar að veita framleiðendum og birgjum djúp- an skilning á CE-stöðlum með stuðningi raunverulegra dæma. Gátlistinn hefst á fróðleik og staðreyndum og endar á fagleg- um upplýsingum og leiðbeining- um. Leitast er við að láta hvern hluta listans innihalda upplýsing- ar og dæmi sem auðvelda fram- leiðendum/birgjum að átta sig á hvað kröfur eru gerðar til tiltek- innar vöru þannig að þeir geti tekið réttar ákvarðanir út frá eigin forsendum. Evrópustaðlar í byggingavörum Vefsíðan www.si.is/ce leiðir framleiðendur skref fyrir skref í gegnum frumskóg CE-staðlanna. Borgartún 37 | 105 Reykjavík | Sími 569 7700 | Fax 5697799 | nyherji@nyherji.is | www.nyherji.is Verndaðu fjöregg fyrirtækisins Nýherji er markaðsdrifið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framsæknum lausnum á sviði upplýsingatækni. Hlutverk fyrirtækisins er að skapa virðisauka með þekkingu starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina. Með frábæru starfsfólki, betri lausnum og góðri samvinnu skapast forskot sem viðskiptavinir okkar þekkja. H im in n og h af / SÍ A APC varaaflgjafar – tryggja öryggi tölvukerfisins APC varaaflgjafar verja viðkvæman búnað fyrir spennusveiflum og ófyrirsjáanlegu straumrofi og tryggja þannig rekstraröryggi til muna. Áreiðanlegur og traustur búnaður APC varaaflgjafar hafa verið notaðir í skipum, íslenskum iðnaði og fjölmörgum tölvurýmum á Íslandi í á annan áratug með góðum árangri. Búnaðurinn er auðveldur í uppsetningu og viðhaldi og þekktur fyrir lága bilanatíðni og langan endingartíma. SMART UPS SMART UPS RT Fáanlegt í aflstærðum 750 VA til 5000 VA Fáanlegt í aflstærðum 1000 VA til 10 KVA APC SMART UPS línan er hönnuð fyrir netþjóna, gagnageymslur, net- og stjórnbúnað, jafnt í almennum rekstri á tölvukerfum sem og í rekstri annars búnaðar í iðnaðarumhverfi. SMART UPS fæst í nokkrum útgáfum, bæði í 19” og frístandandi einingum. Rafhlöður fyrir APC búnaðinn eru útskiptanlegar á meðan búnaðurinn er í fullum rekstri.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.