Tíminn - 15.08.1979, Síða 3
Miðvikudagur 15. ágúst 1979
3
For-
seta
vegur
Ný leið milli
Laugarfells og
Sprengisands
ÁS — Mælifelli — 1 siðustu viku
var ruddur vegur frá skála
FerðafélagsAkureyrar i Laugar-
felli og á Sprengisandsleið á
nýjum slóöum en fram til þessa
hefur verið farið um grýtta og
fremur seinfarna mela, litt
merkta og nær órudda slóð. Hinn
nýi vegur liggur á milli Laugar-
fells að austan og Laugarfells-
hnjúks að vestan um það bil 20
km. til suðurs uns sveigt er i
austur við Laugarfellskvisl og
þaðan á Sprengisandsleið, og eru
vegamótin sunnan vert við Fjórð-
ungsvatn. Alls munu vera um 30
km milli Laugafells og vegamót-
anna að sögn Finnboga Stefáns-
sonar á Þorsteinsstöðum, en hann
hefur vegaverkstjórn með hönd-
um milli Litluhliðar i Vesturdal
og Sprengisandsleiðar sem alls
eru um 90 km. Telur Finnbogi
hina nýju leið til mikilla bóta og
veginn greiðfæran en umferð er
mikil af Sprengisandi og niður i
Vesturdal um hásumarið og
hefur vaxið jafnt og þétt allt frá
sumrinu 1970 þegar Jökulsá
eystri var brúuð og þessi leið opn-
aðist. Ein á er á nýja veginum,
svonefnd Bergvatnskvisl, en hún
er lítil og botn góður. Rennur hún
suður af þótt upptök eigi svo
norðarlega á fjöllum sem mörg-
um mun þykja nokkur tiðindi
Nýja vegarstæðið völdu þeir
Gisli Felixson vegaverkstjóri á
Sauðárkróki og Sigurþór Hjör-
leifsson ráðunautur I Messuholti
ásamt Finnboga. Svo vel vildi til
að forseti Islands átti leið upp úr
Vesturdal siðast liðinn föstudag
með Einari Ágústssyni alþingis-
manni og frlðu föruneyti rétt
þegar verið var að ljúka við veg-
inn og fór hann fyrstur manna. Af
þessu fágæta tilefni hefur hinni
nýju leið verið gefið nafnið For-
setavegur.
Jarðstöðin I Mosfellssveit. Uppsetnmg loftnetsins er nú hafin eftir sex vikna töf vegna skipaverkfallsins.
Timamynd Róbert.
jarðstöðin er komin i gagnið og
getur fólk þá valið númerið beint
og fengið þvi fyrr samband en
ella. Einnig verður hægt að taka
við erlendu sjónvarpsefni beint á
þeim tima sem það er sent út og
senda íslenskt efni út. Það er hins
vegar ákvörðun útvarpsins hvort
það verður gert og hvenær.
Loftnet jarð-
stöðvarínnar
gæti komist
upp í nóvem-
bermánuði
SJ — Framkvæmdum við bygg-
ingu jarðstöðvar Landsfma Is-
lands i landi Clfarfells i Mosfells-
sveit miðar allvel áfram, og er
byrjað á uppsetningu loftnets
stöðvarinnar. Tafir urðu þó á
þeirri framkvæmd vegna skipa-
verkfallsins. Ætlunin var að upp-
setningu loftnetsins yrði lokið i
október, en fyrirsjáanlegt er að
það dregst eitthvað fram I nóv-
ember.
— Við erum mjög háöir veðri,
sagði Gústaf Arnar, verkfræðing-
ur hjá Pósti og sima, og nú hefur
verið gott veður. Hins vegar má
búast við að uppsetning loftnets-
ins dragist enn lengur ef við fáum
slæm haustveður.
Ætlunin hefur verið að jarð-
stöðin yrði tilbúin 1. febrúar á
næsta ári. Ekkert af tækjabúnað-
inum er enn komið til landsins.
Jarðstöðin kemur til með að
leysa vandamál i sambandi við
simasamband við Utlönd. Fleiri
samtöl eru nú afgreidd með sæ-
strengnum heldur en fært er að
gera með góðu móti og þvi verða
menn oft að biða eftir simtölum.
Einnig er I ráöi að gera talsam-
band við útlönd sjálfvirkt eftir að
Ctsalan
STENDUR SEM HÆST
40-80% AFSLATTUR
Á ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR.
ATH. nýjum vörum bætt á útsöluna daglega
BANKASTRÆTI 14, SIMI 25580.