Tíminn - 30.09.1979, Page 2
2
Sunnudagur 30. september 1979
er i morg
að líta
Rætt við Guðmund Guð-
mundsson, slökkviliðs-
stjóra, sem starfað hefur
við liðið í 33 ár
slökkviUftsstjóri: Menn hafa veriö aö leita okkur lúsa meö ýmissi „gagn-
upp á ^okkur ” tíö' V ö t0kUm réttmætum athugasemdum meö ánægju, en viljum ekki aö skrökvaö sé
AM-----Slökkviliðið á Reykjavikurflugvelli er ekki
oft í fréttum og kannski góðu heilli, þvi það ber fyrst
og fremst vott um að á þeirra starfsvettvangi hafa
fremur sjaldan orðið slik óhöpp, að til stórtiðinda
teljist og ef til vill ekki siður vegna þess að með þvi
starfi sem þeir slökkviliðsmenn vinna að þvi að
fyrirbyggja óhöpp og slys, hefur tvimælalaust
mörgum voða verið afstýrt, sem við fyrir vikið höf-
um aldrei þurft að heyra um.
Við fórum i heimsókn i bækistöðvar liðsins nú i
vikunni og ræddum við Guðmund Guðmundsson,
slökkviliðsstjóra um þau margvislegu verkefni sem
hann og menn hans hafa með höndum. Slökkviliðið
hefur aðsetur i gömlu flugturnsbyggingunni og i
skrifstofu Guðmundar á annarri hæð turnsins, þar
sem góð útsýn er yfir vallarsvæðið, hófum við við-
ræður okkar.
Hvernig er tækjabúnaöur ykk-
ar, Guömundur?
„Viö höfum hér fimm bila, sem
bera númer frá einum til fimm og
eru þessi númer kallmerki
þeirra, þvi þeir eru mikiö á ferö-
inni hér um svæðiö en löggæsla er
hér á okkar vegum.
Bfl númer eitt köllum viö ööru
nafni tækjabil og i honum er aö
finna margvislegan búnaö sem
gripa þarf til, ef slys ber aö hönd-
um, þar á meöal rafmótor, sem
knýr sagir og önnur tæki til aö
komast aö mönnum sem lokast
kynnu hafa inni, svo og annan
sérbúnaö. Bill númer tvö er hins
vegar okkar aöalslökkviblll og
kom hann i okkar hendur i fyrra,
alveg nýr. Hann er enskur, en
Bretar þykja standa framarlega i
slökkvibúnaöi á flugvöllum og
bilar af þessari gerð eru mjög
erftirsóttir i öllum heimshlutum.
Hann tekur 1550 bresk gallon af
vatni, sem mundi vera nálægt
6840 litrum. Hann dælir út á
hverri minútu 5460 litrum og
vatnsbyssan sem er á þaki hans
og kallast „monitor” á ensku get-
ur dælt út 3276 litrum á minútu.
Þær vatnsbirgðir sem þessi bill er
meö duga þvi I tvær minútur.
Mörgum kann aö þykja þaö furöu
skammur tlmi, þar sem vatnið er
þetta mikiö en á þessum tima á
billinn aö vera búinn aö leggja
„teppi” allt i kring um slys-
staöinn. Billinn er búinn tank með
froöu, sem er einn tiundi hluti af
vatnsmagninu og blandast froöan
saman viö vatniö um leiö og dælt
er. Blandan er þó aldrei nema aö
einum sjötta hluta froöa svo viö
eigum alltaf til nokkrar auka-
birgöir af henni. Þessi bill á aö
geta verið kominn á 80 kllómetra
hraöa á 45 sekúndum, þótt hann
sé þungur og stór.
Bfll númer þrjú er Mercedes
Benz og var lengi okkar helsti bill
og sá sem viö nefndum „nýja bil-
Tækjabill, bill eitt, meö bátinn I eftirdragi, sem nota skal ef flugvél fer fram af braut og út I Skerjafjöröinn.
Bílakostur Slökkviliös Reykjavikurfiugvallar.
inn”, þar til númer tvö kom þótt
hann sé nú á 17. ári.
Bfll númer fimm er svo gamall
Ford vörubill sem viö geröum
upp úr eldri slökkvibil, en úr hon-
um tókum viö dæluna og notum
hann til þess aö þvo brautirnar ef
vélarnar missa niöur eldsneyti.
Bill okkar númer fjögur er svo
Land Rover jeppi, sem mikiö er
notaöur I eftirlitsferöir hér um
brautirnar.
Auk þessa bilakosts erum viö
meö bát (Zodiac) hér inni, sem
ætlaöur er til þess aö fara á út á
Skerjafjörö, lendi vél út af braut
og fari I sjó fram. Þetta er stór
gúmmíbátur, búinn tveimur
mótorum og hann hefur innan-
borös annan gúmmibát sem blása
má upp á skammri stundu. Alls
ættu þvi 60-70 manns aö geta
komist um borö I þessa báta”.
Hvernig eruö þiö búnir meö
mannafla?
„Mannskapurinn hér er i þjálf-
un alla daga og frá þvi er maöur I
turninum tekur upp simtóliö og
þar til við erum komnir út á
brautarenda á ekki aö liöa nema
ein og hálf mínúta. Þessu marki
höfum viö náö enda byggist þetta
starf á þvi aö menn séu nógu
skjótir aö komast á staöinn og
byrja. Við höfum þvi leitast við aö
byggja upp sem mestan við-
bragöshraöa, þótt ekki sé þvi aö
neita aö viö höfum legið undir
stööugri gagnrýni frá hinum og
þessum stundum harla ómaklegri
og byggðri á vanþekkingu.
Þannig hefur þaö raunar veriö frá
þvi ég kom hér til starfa fyrir 33
árum og viö kippum okkur ekki
mjög upp viö slikt, þótt gagnrýni
sem er á raunverulegum rökum
reist tökum viö auövitaö meö
þökkum”.
Gætiröu nefnt okkur dæmi um
silka óréttmæta gagnrýni?
„Þess er til dæmis skemmst aö
minnast þegar flugvél magalenti
hér I vor. Þá komu strax upp sög-
ur um þaö aö viö hefðum verið sjö
minútur út að brautarenda. Ekki
var ég vel ánægöur meö þá full-
yröingu. 1 turninum er allt tekiö
upp á segulbönd og geymt og lét
ég þvi auðvitaö rannsaka þetta
mál. Nú, þetta var þá punktaö
niöur og sá maður sem bar þetta
upp á okkur var viöstaddur. Tim-
inn reyndist þá vera ein mlnúta
og fimmtán sekúndur. Hitt er svo
Texti:
Eiríkur
Myndir:
Róbert
-