Tíminn - 30.09.1979, Qupperneq 13
Sunnudagur 30. september 1979
13
Hann heitir Joe Jackson og er ein nýjasta stjarna
bresku „nýbylgjunnar". Fyrrverandi nemandi við
hinn virta skóla Royal Academy of Music og ef ör-
laganornirnar hefðu ekki gripið i taumana/ þá væri
hann líklega orðinn konsert-pianisti. Margir hafa líkt
honum við Elvis Costello og til eru þeir sem fullyrða,
að ef Costello sé konungur „nýbylgjunnar"/ þá sé Joe
Jackson a.m.k. krónprins hennar. '
„Ég er meðal-
mennskan
uppmáluð”
— segir Joe Jackson nýjasta
stjarna „nýbylgjunnar”
„Ég var or&inn dauöleiöur á
öllum formlegheitunum i skól-
anum og þvi hætti ég eftir
þriggja ára nám”, segir Joe
Jackson. „Það var eins og allir
nemendurnir væru þátttakend-
ur i einu allsherjar yfirstétta-
leikriti, og þegar væmnin keyröi
úr hófi, sá ég mér þann kost
einan að hætta. Reyndar þótti
mér gaman i timum hjá Johnny
Dankworth, sem var fenginn til
þess að vera meö eins konar til-
raunajazz, en á endanum lögö-
ust þeir timar niöur vegna ann-
rikis hjá honum”.
Þvingaði foreldrana til
þess að kaupa píanó.
Fyrstu raunverulegu kynni
Joe Jackson af tónlist voru er
hann var 11 ára gamall, en þá
hóf hann aö læra á fiðlu. Fljót-
lega vaknaöi einnig löngun hjá
honum til þess að semja sina
eigin tónlist og texta, en litiö
mun þó hafa borið á þessum
tónsmiöum fyrr en eftir að hann
hafbi þvingab foreldra sina til
þess að kaupa pianó á heimilið.
„Ég hafði aldrei gaman af
iþróttum”, segir Jackson þegar
hann minnist þessara tima.
„Mér fannst þaö hreint fárán-
legtað eltast við fótbolta i kulda
og trekki, og svo var ég einnig
tæpur til heilsunnar. Ég þjáðist
af astma og var alltaf frekar lit-
ill fyrir mann að sjá, þannig að
ég var kjörið fórnarlamb allra
hrekkjusvina i skólanum. Börn
og unglingar geta verið alveg ó-
trúlega grimmlynd hvert við
annað og þær voru ófáar bar-
smiðarnar, sem ég varð fyrir á
minum fyrstu skólaárum”.
Lifði á 5 sterlingspundum
á viku.
Eftir grunnskólanám og þrjú
ár viö Royal Academy of Music
hætti Joe Jackson i skóla og
gekk i hljómsveitina Arms and
Legs. Sú hljómsveit lagöi þó
fljótlega upp laupana og Joe
Jackson varð að takast á við al-
vöru lifsins. „Ég svalt oft heilu
hungri”, segir Jackson. „Ég
varö að lifa á 5 sterlingspundum
á viku og guð einn má vita
hvernig mér tókst aö láta þá
peninga endast vikuna út”.
Joe Jackson varö þó ekki
hungurmorða þvi hann fékk
vinnu i kabarett hljómsveit i
Playboy klúbbnum I Ports-
mouth, þar sem hann var um-
kringdur hálfnöktu kvenfólki
öllum stundum. Siðar fékk hann
vinnu sem umboðsmaður söng-
dúetts, sem nefndi sig „Coffee
’N’Cream, og með þeirri vinnu
tókst honum að aura það miklu
saman að hann gat látiö gera
prufuupptökur með nokkrum af
lögum sinum. Forráðamenn
hljómplötufyrirtækisins A&M
Records heyrðu siðan þessar
upptökur og varð það til þess að
Joe Jackson gerði samning við
fyrirtækiö.
Fyrsta plata Joe Jackson
undir merkjum A&M Records
kom út i sumar og bar hún heitið
„Look Sharp”. Skemmst er frá
þvi að segja, að hún sló i gegn og
allt i einu var Joe Jackson orð-
inn stjarna. Að visu lltil stjarna,
en stjarna engu að slður.
„Þetta gjörbreytti að sjálf-
sögöu öllu hjá mér”, segir Jack-
son, sem nú hefur I fyrsta skipti
i langan tima nóg að bita og
brenna. „Ég á nú þegar nóg efni
á næstu plötu og ég stefni að þvi
að hver plata verði betri og já-
kvæöari en sú næsta á undan.
Sjálfur er ég mjög jákvæður
persónuleiki og reyndar veit ég
fátt neikvæöara en að þröngva
skoðunum eöa hugmyndum upp
á fólk. Ég vil semja lög um lif
nútimamannsins, án þess aö
pólitik þurfi aö sitja þar i fyr-
írrúmi, og ég vil fjalla um þessi
mál án þess að þröngva skoðun-
um minum upp á aöra”.
óttalegur meöalmaður
En hver veröur framtið Joe
Jackson? Veröur hann eiturlyfj-
um og öörum fylgifiskum
frægðarinnar að bráð, eða mun
hann lifa i heimi harðrar sam-
keppni? Sjáifur hefur Joe Jack-
son þetta um eiturlyf aö segja:
„Ég er ekkert hræddur um aö
ég ánetjist eiturlyfjum. Ég hef
aldrei haft neinn áhuga á þeim,
ekki einu sinni á meðan ég var
yngri, og auk þess er þaö sannað
að reykingar eru slæmar fyrir
röddina. Einu pillurnar, sem ég
tek, eru valium þegar ég á bágt
með að sofna, og ég hef engar á-
hyggjur af þvi. Reyndar hef ég
engar áhyggjur af þvi að frægð-
in muni breyta mér, þvi að ég er
og verð óttalegur meöalmaöur.
Sannast sagna þá er ég meðal-
mennskan uppmáluð. Ég er
ekki einu sinni umvafinn þús-
undum fagurra kvenna, enda
hef ég alltaf verið
klaufi í kvennamálum, og ég er
á móti þvi aö blanda saman
kynlifi og tónlist. Og eitt af þvi
sem ég hata mest, eru þau við-
horf, aö enginn kvenmaður geti
verið góö söngkona, nema hún
sé með stór brjóst og sé eins og
klippt út úr tiskublaði”.
Les hasarblöð í frítiman-
um
Það hefur vakiö mikla at-
hygli, að Joe Jackson tekur
jafnan strætisvagn heim til sin
af hljómleikum og enginn hefur
séb hann aka bil. Er hann var
nýlega spurður að þvi hverju
þetta sætti svaraði hann: „Ég
hef aldrei tekið bilpróf, og það
er fátt sem ég hræðist meira, en
það að þurfa að stjórna ein-
hverju vélknúnu. Ég er reyndar
alveg viss um þaö aö ef ég hefði
lært að aka bil, þá væri ég dauð-
ur núná”.
Og hvað gerir svo Joe Jackson
við fritima sinn? „Ég nota
hverja einustu fristund sem ég á
til þess að fara i gegnum banda-
risku hasarblöðin min”, segir
Jackson. „Ég hef keypt þessi
blöð frá þvi aö ég var krakki, og
það siðasta sem ég myndi gera
væri að skilja þau viö mig. Mér
finnst einnig gaman að þvi að
horfa á hryllingsmyndir, og
skrifa smásögur með dulrænu i-
vafi, og hver veit nema ég gefi
einhvern tima út bók. En i
augnablikinu er aðaláhugamál
mitt, aö græöa þaö mikla pen-
inga, að ég geti tekið leigubil
svona endrum og eins I stað þess
að flækjast alltaf um i strætis-
vagni”. (Þýtt —ESE)
4; 1980 Árgeróirnar frá MITSUBISHI
P. STEFÁNSSON HF.
SÍOUMÚLA 33 — SÍMI 83104 - 83105
~í
COLT
LANCERl
Sá besti frá JAPAN
SAPPOROl
Verð frá kr. 3.990.000.-