Tíminn - 30.09.1979, Blaðsíða 18
18
Sunnudagur 30. september 1979
Umsjón:
Eiríkur S. Eiríksson
—
NÚTÍMINN
Þegar sú frétt spurðist út innan poppheimsins
snemma á síðasta ári, að David Paich, Steve
Lukather, Bobby Kimball, David Hungate og Porcaro-
bræðurnir Steve og Jeff hygðust stofna hljómsveit í
sameiningu, þótti rétt að telja það til meiri háttar tíð-
inda.
Allir þessir listamenn voru i ;
hópi færustu og virtustu |
„session”-manna Los Angeles !
og þvi þótti sýnt aö þetta yrði 1
engin venjuleg hljómsveit. Sú j
hefur einnig orðiö raunin, þvi að j
fáar hljómsveitir geta státað af j
viðlika árangri og TOTO á sinu j
fyrsta starfsári en TOTO er ein- .
mitt nafnið á þessari umtöluðu [
hljómsveit. Fyrsta plata hljóm- |
sveitarinnar kom út i fyrra, og j
þaö er skoðun undirritaðs, að 1
hún sé ein sú besta rokkplata í
sem gefin hefur verið út frá
upphafi vega. Stórkostleg plata
meö fjöldanum öllum af frábær-
um lögum og það sem mestu
máli skiptir — plata sem maður
verður aldrei leiður á, þvert á
móti batnar hún viö hverja
hlustun.
En hver var aðdragandinn að
stofnun TOTO? Til þess að fá
svar við þeirri spurningu þarf
að hverfa ein 10 ár aftur i tim-
ann er Joe Parcaro (faðir Jeff
og Steve) og Marty Paich (faðir
David Paich) léku saman i tón-
listarmyndum i Hollywood en
vinátta þeirra varö til þess aö
þeir David og Jeff kynntust.
Þeir voru þá 13 ára gamlir og
var þetta upphafið aö áralangri
vináttu þeirra sem hefur haldist
siðan. Báöir höfðu þeir erft tón-
listargáfur feðra sinna og sömu
sögu er að segja um yngri Por-
caro bróðurinn, Steve, en hann
hóf fljótlega að leika i ýmsum
skólahljómsveitum. t Grant
High School kynntist hann Steve
Lukather og siöar kom David
Hungate inn i myndina. Sam-
band bræöranna var náið og
varö það til þess aö efla kynnin
á milli þessara 5 áhugasömu
hljóðfæraleikara. Þeir vöktu
einnig snemma athygli fyrir
góðan hljóðfæraleik og vönduð
vinnubrögð og varð það til þess
aö atvinnuhljóðfæraleikarar
sneru sér i æ ríkari mæli til
þeirra með það fyrir augum að j
fá þá til þess að aðstoöa við
hljómplötugerð. Verkefnin juk-
ust dag frá degi og brátt voru
fimmmenningarnir komnir i
hóp virtustu og eftirsóttustu
,,session”-manna Los Angeles.
Til þess að gefa smámynd af
ferli þessara manna fram til
þess tíma er TOTO var stofnuð
þá hafa einstakir meðlimir
hljómsveitarinnar unnið með
eftirtöldum aðilum:
David Paich: Paich sem nú er
25 ára gamall er hljómborös-
leikari TOTO og er hann nú einn
eftirsóttasti útsetjari innan
bandariska rokkheimsins. Hann
hefur einstakt lag á þvi að
semja vinsæl lög og frumraun
hans á þvi sviði var er hann
samdi lagiö „Silk Degrees” i
félagi með Boz Scaggs. Hann
hefur og séð um útsetningar á
lögum hinnar virtu hljómsveit-
ar Doobie Brothers. Of langt
mál yrði upp aö telja, þá sem
Paich hefur unniö meö, en
meðal þeirra eru margar af
helstu stjörnum bandarisks tón-
listarlifs.
Jeff Porcaro: Jeff Porcaro er
eins og áður segir, jafnaldri
Paich og er hann nú viöur-
kenndur sem einn besti
trommuleikari Bandarikjanna.
Hann er mjög fjölhæfur
trommuleikari og til marks um
það er að hann hefur spilaö jöfn-
um höndum með popptónlistar-
mönnum og jazzistum og meðal
þeirra sem hann hefur leikiö
hvað mest með eru Boz Scaggs
og Steely Dan.
David Hungate:Bassaleikar-
inn Hungate er frá Texas og
meðal þeirra sem hann hefur
leikið meö og fyrir eru Barbra
Streisand, Leo Sayer og The
Pointers Sisters.
Steve Porcaro: Eins og David
Paich, þá leikur Steve á hljóm-
borð og þótt hann sé aðeins um
22 ára að aldri, þá hefur hann
þegar skipað sér I fremstu röð.
Hann hefur unniö með Boz
Scaggs, Gary Wright og Leo
Sayer, auk fjölda annarra lista-
manna.
Steve Lukather: Hinn óvið-
jafnanlegi gitarleikari TOTO
heitir Steve Lukather. Hann er
yngsti meðlimur hljómsveitar-
innar, aðeins 21 árs að aldri en
þrátt fyrir ungan aldur hefur
hann unniö með mörgum af
helstu poppstjörnum siðari ára.
Nægir þar að nefna Alice
Cooper og Boz Scaggs, en auk
þess hefur Lukather unniö mik-
ið með Hall & Oates.
Bobby Kimball: Þá vikur sög-
unni að Bobby Kimball nýjasta
meðlimi TOTO. Bobby er frá
Vinton i Louisiana og áður en
hann kom til Los Angeles, hafði
hann sungiö með fjöldanum öll-
um af hljómsveitum New
Orleans svæöinu. Hann hafði
aðeins verið einn dag I LA er
hann rakst á þá Jeff Porcaro og
Paich i stúdióinu og er TOTO
var stofnuð kom enginn annar
söngvari til greina en Bobby
Kimball. Meðal þeirra sem
Kimball hefur sungið með eru
t.d. Alice Cooper og Bill
Champlain.
Nú eru TOTO tilbúnir með
nýja hljómplötu og þrátt fyrir
að margir efist um að þeim tak-
ist að koma meö betri plötu en
þá siðustu þá eru engu að siður
bundnar miklar vonir við
hljómsveitina og þar til nýja
platan kemur á markað sjá
gömlu lögin, „Hold the line”,
„Rockmaker” og „I’ll supply
the love” um það aö halda
TOTO aðdáendum við efniö.
—ESE
Siouxie and the Banshees — (f.v.) Robert Smith, Lol
Tolhurst, Michael Dempsey, Budgie, Steve
Severin og Siouxie.
Sviptingar innan
Siouxie and the
Banshees
Nokkur átök hafa að undan-
förnu átt sér stað innan hinnar
vinsæiu bresku hljómsveitar
Siouxie and Banshees, og hafa
þau m.a. oröið til þess að þeir
John McKay og Kenny
Morris eru hættir í hljómsveit-
inni.
Þeir félagar létu einfaldlega
ekki sjá sig við upphaf hljóm-
leikaferöar hljómsveitarinnar
urfi Bretlandseyjar, og siðan
hefur enginn hljómsveitarmeð-
lima séð tangur né tetur af
þeim. Siouxie Sue, söngkona
hljómsveitarinnar, varð af
þessum sökum að fresta fyrir-
huguðu hljómleikaferðalagi um
nokkra daga, en i stað þeirra
McKay og Mossis réð hún
trommuleikarann Budgie fyrr-
verandi trommuleikara Slits, og
Robert Smith, gftarleikara
hljómsveitarinnar The Cure.
í sárabætur fá The Cure aö
koma fram með Siouxie and the
Banshees og mun Smith leika
meö báöum hljómsveitunum.
Ekki er vist að þeir Budgie og
Smith veröi ráönir I hljómsveit-
ina til frambúðar, en ákvöröun
þar að lútandi verður tekin I lok
hljómleikaferðarinnar.
—ESE
Baráttuplata frá
Bob Marley
tJt er komin ný plata
með meistara Bob
Marley og nefnist hún
,,Survival”. öll lögin á
plötunni eru ný af
nálinni, þar á meðal
lagið ,,So much trouble
in the world”, sem
gefið var út á litilli
plötu 21. september
siðast liðinn.
(Jtgefandi plötunnar er Island
hljómplötufyrirtækið og sam-
kvæmt heimildum frá þeim eru
litlar horfur á þvf að Marley og
hljómsveit hans The Wailers
komi fram á hljómleikum i Ev-
rópu fyrr en á næsta ári. Marley
er nú að hefja hljómleikaferð
um Bandarikin, og eins og
þegar hefur veriö greint frá, er
kappin væntanlegur hingað á
næstu listahátið, sem veröur á
sumri komanda.
£ Bob Marley
Ný Eagles plata
Nú um helgina kemur út ný
plata með hljómsveitinni
Eagles, þeirra fyrsta sföan
„Hotel California” kom út, og
nefnist þessi nýja plata „The
long run”.
A plötunni eru 10 ný lög og
voru tvö þeirra, „Heartache
Tonight” og „Teenage jail”
gefin út á lftilli plötu s.l. fösu-
dag. Upptökust jóri er Bill
Szymczyk.