Tíminn - 30.09.1979, Side 28
Heyvinnuvélar f
fjölbreyttu úrvali.
Til afgreiðslu strax.
X)/iái£iUuHéJUx/v kf
MF
Massey Ferguson
Kynnið ykkur verð-
lækkunina á Massey-
Ferguson
hinsigildadráttafvél D/iá&ta./iA/éiaH' h.f <
Sunnudagur 30. september 1979 216. tbl. 63. árgangur
FIDELITY
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
Pantiö myndalista.
Sendum í póstkröfu.
C ihMUAI Vesturgötull
OJUllVML simi 22 600
Nágrannarr
himinlifand
- enda vel hljóðeinangrað”
Rœtt við Rafn Sigurbjörnsson
einn eiganda stúdiósins á
Rauðalœk 32
Það er kunnara en frá þurfi að segja að á undan-
förnum árum hefur islenski hljómplötuiðnaðurinn,
sem gjarnan hefur verið nefndur yngsta atvinnu-
greinin, verið i stöðugri sókn, og þrátt fyrir fjand-
samleg afskipti rikisvaldsins i formi óheyrilegrar
skattpiningar, hafa gæði islenskra hljómplatna
farið stöðugt vaxandi. Tilkoma Hljóðrita h.f. i
Hafnarfirði markaði tímamót i sögu islenskrar
hljóðritunar og þrátt fyrir að Hljóðriti h.f. hafi að
mestu leyti leyst átta og fjögurra rása stúdióin af
hólmi— er ekki er þar með sagt að hlutverki þeirra
sé endanlega lokið. Ný stúdió stinga af og til upp
kollinum og nú munu vera a.m.k. fjögur 4-8 rása
stúdió starfandi hérlendis. Við ræddum nýlega við
Rafn Sigurbjörnsson útvarpsvirkjameistara, einn
aðstandenda stúdiósins að Rauðalæk 32 i Reykjavik
og spurðum hann fyrst að þvi hver hefðu verið til-
drögin að stofnun þessa nýjasta stúdiós landsins.
„Þaö má telja þaö til nýjunga aö allar leiöslur eru laeöar hér neöan á loftiö” — Rafn Sigurbjörnsson I
„salnum” f stúdlóinu aö Rauöalæk
— Þetta er nú búiö aö vera æöi
lengi á stefnuskránni, en viö Sig-
mundur Valgeirsson, útvarps-
virkjameistari, höföum lengi aliö
þanndraum meö okkur aö koma
á laggirnar viöunandi stúdió aö-
stööu. Sökum fjárskorts fórum
við þó hægt i sakirnar, en þegar
viö fréttum af þvi að tveir gamlir
skólabræöurokkar, Agúst Alfons-
son og Gylfi Vilberg, sem báöir
eru útvarpsvirkjar, væru i sömu
hugleiöingum, þótti okkur alveg
tiívaliö aö mynda meö okkur
félag um framkvæmdirnar.
Fimmti eignaraöilinn er svo
Bjarni Ingvarsson leikari hjá Al-
þýöuleikhúsinu en hann haföi
verið i félagi meö þeim Agústi og
Gylfa.
Hönnuðum stúdióið
sjálfir
— Eftir að við höföum gert
félag með okkur fórum viö fljót
lega á stúfana og hófum aö inn-
rétta húsnæðiö hérna, en allar
innréttingar istúdióinu eru hann-
aðar af okkur sjálfum. Þetta var
seinunnið vandaverk, en mestur
timinn fór i aö reikna út stæröina
á upptökuklefanum, svoog hvaöa
tiöni myndi sist eiga viö hérna.
Hvaö um tækjakaup?
— Tækin hérna eru nú flest sitt
úr hverri áttinni, t.a.m. átti ég 4
rása segulbandstækið sem viö
notum og hinir lögðu einnig fram
tæki sem þeir áttu, þannig að okk-
ur vantaöi eiginlega ekkert nema
„mixerinn” (hljóöblöndunar-
tæki), heyrnartól og mikrafóna.
Viö röltum þvi niður i bæ i róleg-
heitum, aö sjálfsögöu meö gal-
tóma vasa, og fyrir einstök liöleg-
heit eigenda verslananna Steríó
og Pfaff gátum vib keypt þessi
tæki. „Mixerinn” sem er af Senn-
heiser gerö keyptum viö I gegn
um Sterió frá Bandarikjunum og
kostaöi hann okkur um tvær mill-
jónir króna. Viö smlöuöum siöan
sjálfir hátalara sem okkur
32
vantaöi og aö fengnum þessum
tækjakosti var okkur ekkert að
vanbúnaði og gátum þvi sett I
gang.
Tæknibúnaður Rikisút-
varpsins er ekki upp á
marga fiska
Hver er hugmyndin með stofn-
un þessa stúdiós?
— Hugmyndin er sú að gefa
listamönnum tækifæri til að taka
hér upp efni á ódýran hátt, sem
þeir geta síöan farið með til út-
gefanda ogspurt: Viltu gefa þetta
út? — Meðþessu móti þurfa þess-
ir aðilar þvi' ekki að gera sig
gjaldþrota, hafi þeir áhuga á að
gefa útplötu. Þá höfum viö einnig
i hyggju er fram lfða stundir að
gefa leikurum tækifæri til að taka
hér upp efni, sem þeir gætu e .t.v.
selt Rikisútvarpinu siðar meir.
Forráðamenn Rikisútvarpsins
munu þó ekkert vera hrifnir af
þessari hugmynd, og þaö er
þeirrastefnaaö taka allt slikt efni
upp sjálfir. Tækjabúnaöur Rikis-
útvarpsins mun þó ekki vera upp
á marga fiskana, þannig aö það
er aldrei að vita nema þeir skipti
um skoöun.
Kynntu okkur i þætti
með Led Zeppelin
(Jeturöu nefnt mér dæmi um
einhverja listamenn sem hafa
notfært sér stúdióiö?
— Já. Guögeir Gunnarsson,
sem varö þriðji i hæfileikakeppn-
inni á Hótel Sögu, hefur unnið
talsvert hérna, og einnig náungi
sem nefnir sig Lilla Popp —
Kristinn Kristinsson mun hann
heita réttu nafni og einnig höfum
ég.og hljómsveitin Stormsveitin
tekið upp töluvert efni hér I stúdi-
óinu.
Hverjir eru i Stormsveitinni?
— Þetta eru allt gamlir félagar
mlir úr hljðmsveitunum Reykja-
vík og Cobra, en lögin sem viö
höfum tekið upp eruöll frumsam-
in. Þaö má e.t.v. geta þess til
gamans aö tveir liösmenn Storm-
sveitarinnar, þeir Björn Thorodd-
sen og Hjörtur Howser, fóru utan
tíl Bandarlkjanna fyrir nokkru og
notuðu þá tækifærið og kynntu
þarlendum útgefendum þessi lög,
og undirtektir voru bara góöar.
Meðal annars voru lögin spiluð i
bandariskri útvarpsstöð i sama
þætti og nýjaLed Zeppelin platan
var kynnt, þannig aö árangurinn
fór fram úr okkar bestu vonum.
Græða ekki nóg á okkur
Hafið þið gert eitthvað til þess
að kynna islenskum útgefendum
þessa tónlist?
— Nei, viö höfum gert litíð af
þvi, en þeim þykir þetta þó ekki
nógugóðsöluvaraogþvl hæpið aö
þeig gætu grætt á okkur. Þetta er
svokölluð „fusion” tónlist, sem
trúlega myndi útleggjast jazz
rokk á islensku, og auövitað sdst
þannig tónlist ekki eins vel og
léttari tónlist.
Svona að lokum Rafn, hvaö er
framundan hjá stúdióinu á
Rauöalæk 32?
— Framtiðin er aö sjálfsögöu sú
aðfesta kaup á átta rása tæki, en
sllk tæki munu kosta um 3.5
milljónir króna i dag. Við vinnum
hér allir endurgjaldslaust, þannig
aö hver króna sem inn kemur fer
tíl tækjakaupa, og e.t.v. er átta
rása tækiö innan seilingar. Við
stofnuðum einnig þetta stúdló
fyrir okkur sjálfa og þaö veitir
manni jafn mikla ánægju aö spila
hérogtaka upp tónlistina um leiö
og aö spila fyrir áheyrendur. Eini
munurinn er sá aö maður tapar
ekki á þessu og rikið græöir þ.a.l.
ekkert.
—ESE
„Karlakórar og lúörasveitir gætu allt eins oröiö okkar bestu viöskiptavinir”
Texti: Eiríkur
Myndir: Róbert
‘-