Tíminn - 03.10.1979, Side 3
Miðvikudagur 3. október 1979
lllSjjljSlí n:<
Borgarráð samþykkir stórkostlega
endurnýjun á vagnakosti SVR:
Ákveðið er að kaupa
40 nýja strætisvagna
Kás —A fundi borgarráðs i gær
var samþykkt að hefja endur-
nýjun á strætisvagnakosti SVE,
með þvíað kaupa 40nýja vagna
á næstu fimm árum.
37 vagnar fara beint til endur-
nýjunar á eldri vögnum, þar eö
vagnkostur SVR er nil ekki
orðinn upp á marga fiska en 3
vagnarbætast við til aukningar.
1 framhaldi af þessari sam-
þykkt var ákveðið að bjóöa nú Ut
kaup á 20 vögnum. Útboðið
verður með tvennum hætti.
Annars vegar verða boönir Ut
undirvagnar og hins vegar yfir-
bygging á þá. En einnig veröur
aöilum gefinn kostur á að bjóða
vagnana til sölu fullbúna. Er
með þessu freistaö þess að
koma til móts við islenskan
iðnað ef viöunandi boð bjóöast i
yfirbyggingu vagnanna, en
vitaskuld veröa undirvagnanir
fluttir inn.
Dag-
vistunar
gjöld
hækka
um 14%
— Samt greiða
sveitarstjórnir 10%
meira en þeim ber
Kás — Akveðið hefur verið að
hækka gjöld á dagvistunar-
stofnunum um 14%, frá 1.
september sl., að telja, og
kemur viðbótarhækkunin i
september til greiðslu nd i
byrjun október, þegar októ-
bergjöld verði greidd.
Heilsdagsvist á dagheimili
hækkar Ur 28. þUs. kr. I 32 þús.
kr., og gjald fyrir barn á leik-
skóla hækkar Ur 16 þús. kr. i
18.500 kr. Fimm klukkustunda
gæsla hækkar Ur 20 þús. kr. i
23 þús. kr.
Lengi vel hafa dagvistunar-
gjöld verið ákveöin meö hliö-
sjón af meðlagsgreiðslum.
NU hafa þau fyrrnefndu dreg-
ist nokkuð aftur Ur en meö-
lagsgreiðsla er um 35 þús. kr. i
dag. Hér vantar því nokkuð
upp á að jafnvægi hafi náðst.
1 lögum um dagvistunar-
stofnarnir er gert ráð fyrir þvl
að sveitarstjórnir greiði 40%
kostnað af rekstri dagvistun-
arstofnana, en 60% af kostnaði
við leikskóla. Láta mun nú
nærri aö sveitarstjórnir greiði
nú hins vegar 10% meira en
þeim ber, samkvæmt upplýs-
ingum sem Timinn fékk hjá
Bergi Felixsyni, fram-
kvæmdastjóra Dagvistunar-
stofnunar Reykjavlkurborgar.
Þeir sem eiga börn á dagvist-
unarstofnun ættu þvi að geta
unað nokkuð vel við sinn hag,
þrátt fyrir þessa hækkun,
/egna rausnarskaps sveitar-
'élaganna.
100-sýning
á Fröken
Margrét
Sýning ÞjóðleikhUssins á
Fröken Margréti eftir Roberto
Athayde hefur hlotiö mikla að-
sókn og verður 100. sýning I kvöld.
Herdis Þorvaldsdóttir leikur
Margréti hina vinsælu kennslu-
konu, og þykir gera hlutverkinu
mjög góð skil. Hafa leikdómarnir
bæði hérlendisog i Finnlandi, þar
sem þessi sýning Þjóðleikhússins
var á ferð á liðnu vori, verið á
einu máli um ágæti sýningarinn-
ar og túlkun Herdisar.
Leikinn þýddi Úlfur Hjörvar,
enBenedikt Arnason er leikstjóri.
Fólki sem hyggst sjá sýningu
þessa, er ráölagt að draga það
ekki öllu lengur, þar eð sýningum
fer nú að ljúka.
Guðbergur Bergsson
Ragnheiður Jónsdóttir aö ofan og
Gunnar Reynir Sveinsson til
hliöar.
Kaupfélag Árnesinga
auglýsir eftir vönu starfsfólki til almennra
bókhalds- og skrifstofustarfa.
Umsóknir sendist til skrifstofustjórans,
sem veitir allar upplýsingar um störfin.
Kaupfélag Árnesinga,
Selfossi
Hjólbarðasólun, hjólbarðasala
og öll hjólbarða-þjónusta
Eigum fyrirlintuandi fleuar sUerdir
hjólbaróa sólaóa ag nýja
Töknm allar venjulagar stsrðlr
hjólbarða Ul súlunar
Dmfelgun —
JafnvsglssUUing
HEITSÓLUN
KALDSÓLUN
Mjög
gott
verð
Fljót og góð
þjónusta
Opið alla daga
PÓSTSENDUM UM LAND ALLT
CUMMÍ
VINNU
siomi
Hf
Skipholt 35
105 REYKJAVÍK
simi 31055
Listahátíö í Reykjavik:
Kaupir þrjú
verk íslenskra
listamanna
AM —Listahátlð í Reykjavik 1980
hefur pantað verk frá þremur Is-
lenskum listamönnum, vegna
hátlðarinnar i júni næstkomandi
og hlýtur hver þeirra 1500 þúsund
krónur fyrir þetta starf. Greiðist
heimingur upphæöarinnar strax,
en afgangurinn, þegar verkinu er
skilað.
Njörður P. Njarövik, formaður
Listahátiðar, sagði að þeir lista-
menn sem fyrir valinu hefðu orðið
væru þau Guöbergur Bergsson,
sem tekið hefur að sér að semja
barnaleikrit til flutnings á leik-
sviði, Ragnheiður Jónsdóttir, sem
gerir röð grafikmynda sem sýnd-
ar verða á hátlðinni og Gunnar
Reynir Sveinsson, sem semur
tónverk fyrir litla jazzhljómsveit
og sinfóniuhljómsveit, til að flytja
á Listahátiö 1980.
Njörður sagði, að vænlegra
hefði þótt að velja einstaka lista-
menn sérstaklega og styðja þá til
að vinna að tilteknum verkum i
ákveðinn tima, en efna til sam-
keppni, eins og oft hefur áður
tiðkast.
Unnið er nú aö undirbúningi
Listahátiðar af fullum krafti og
hefur mikið starf verið unniö viö
að kanna möguleika á að fá
hingaö hið færasta listafólk. Má
segja að á degi hverjum komi eitt
og tvö bréf með tilboðum eða
ábendingum um listafólk, og
veröa auövitað ekki tök á að fá til
alla þá sem þó væri mikill
vinningur aö sjá hér og heyra,
vegna þess að rammi dagskrár og
timi leyfa þaö ekki.
Meðal þess efnis sem þegar er
ráðið aö i boði verði á Listahátlð
1980, má nefna sýningu á nútima
Islenskri húsagerðarlist, og sam-
tima myndhöggvaralist. Leikhús-
in I Reykjavik munu bjóða hið
vandaðasta efni og auk þess er
von á leikflokknum „Els Come-
diants” frá Barcelona.
Meðai tónlistarefnis má geta
konserts Wolf Biermanns og
hljómleika ,,The Wolfe Tones”,
sem flytja Irskar ballödur. Stór-
söngvarinn Lugiano Pavarotti
mun syngja ásamt Sinfóniu-
hljómsveit íslands, undir stjórn
Kurt Adler og gitaristinn Göran
Söllischer heldur fiér hljómleika.
Þá er að nefna flutning konserts
fyrir fjögur sólóhljóðfæri og
kammerhljómsveit eftir Leif
Þórarinsson og er þá fátt eitt tal-
iö.
Listahátiðin mun standa 1.-20.
júní næsta sumar, en kvikmynda-
hátið Listahátíöar verður hins
vegar 2.-12. febrúar og er þá von
hingað góðra gesta, eins og þeirra
Andrzej Wajda og Carlos Saura
og hugsanlega Bertolucci.
Mörg nýbreytni er á döfinni hjá
stjórn Listahátiöar I Reykjavik,
m.a. er áhugi á að efna til atriða
undir berum himni sem flesta
daga, i þeirri von aö hátiðin megi
setja sem mestan brag á bæjarh'f-
ið og lifga upp á það, hátiöardag-
ana. Þá er veriö að kanna fjölda
möguleika, svosem á sviði mynd-
listar, popp og jazztónlistar.
I hátlðarnefnd eiga sæti þau
Njörður P. Njarðvlk, formaður,
Hildur Hákonardóttir, varafor-
maður, Atli Heimir Sveinsson,
tónskáld, Sveinn Einarsson leik-
hússtjóri, Thor Vilhjálmsson, rit-
höfundur og Ornólfur Arpason,
leikskáld , framkvæmdastjóri.
Beomaster 2400
Skipholti19