Tíminn - 07.10.1979, Blaðsíða 2
Sunnudagur 7. október 1979
Sunnudagur 7. október 1979
Gunnar Bjarnason viö nokkur verka sinna á sýningunni á Kjarvalsstöðum.
— Jú, yfirleitt er ekki hægt að
ganga út frá ööru, a.m.k. i
leikhúsum hérlendis, og við
verðum að taka tillit til þess.
Setur þetta ykkur ekki þrengri
skorður?
— Jú,i flestum tilfellum, en þó
er það misjafnt. Þetta fer mest
eftir þvi hvernig leikmyndin er
unnin, og min skoðun er sú, að
eftir þvi sem leikmyndin er ein-
faldari, þjóni hún betur sinum til-
gangi og þvi verki sem hún á við.
Þá á ég við að leikmyndin má
ekki vera truflandi, enda væri það
ekki beint heppilegt ef áhorfendur
horfðu frekar á leikmyndina en
leikinn sjálfan. Þvi er best að
leikmyndin sé sem einföldust,
falli sem best að verkinu og
undirstriki inntak hvers leik-
verks.
Verðið þið varir við viðbrögð
áhorfenda við leikmyndinni?
— Það er náttúrulega einstaka
sinnum sem maður heyrir að
þessi eða hin leikmyndin hafi
likað betur eða verr, en það er
náttúrulega persónulegt mat
hvers og eins sem ræður þar um.
Ég held að áhorfandinn liti oftast
á það hvort honum finnist leik-
myndin falleg eða ljót, frekar en
hann geri sér grein fyrir þvi hvort
hún falli að þvi verki sem veriö er
að leika hverju sinni.
Menn staðna og verða
andlega afvelta
— ef þeir vita að ekkert
nema ellin og dauðinn
geta leyst þá frá störfum
hefur fleygt
Að undanförnu hefur staðið yfir á Kjarvalsstöðum#
sýning á verkum nokkurra íslenskra leikmynda-
teiknara# þar sem meðal annars eru til sýnis frum-
drættir að leikmyndum, búningateikningar, leik-
munir, grímur, Ijósmyndir og jafnvel heil leiktjöld svo
eitthvað sé nefnt. Hugmyndin með þessari sýningu er
sú að gefa almenningi tækifæri til að skyggnast bak
viðtjöldin og kynna sér störf og starfssvið leikmynda-
teiknaranna og kynnast listgrein þeirra — leikmynd-
listinni. Við ræddum nýlega við Gunnar Bjarnason,
leikmyndateiknara, einn aðstandenda sýningarinnar
að Kjarvalsstöðum, og fer árangurinn af því spjalli
hér á eftir.
Gunnar Bjarnason lærði leik-
myndateiknun við Þjóöleikhúsiö,
undir handleiðslu Lárusar
Ingólfssonar, á árunum 1953-1956,
en að þvi námi loknu hélt hann
utan til frekara náms við Konst-
fackskolan i Stokkhólmi. í Svi-
þjóö dvaldi Gunnar i eitt ár, en að
loknu námi þar réðst hann til
starfa viö Þjóöleikhúsið, þar sem
hann starfaöi fram til ársins 1974.
Sfðan hefur Gunnar verið svo-
kallaður „free lance” maður og
starfað m.a. við leikmyndagerð
fyrir ýmsa aðila. Eins og áður
segir hittum viö Gunnar að máli
fyrir skömmu og var hann fyrst
að þvi spurður hvernig leikmynd
yrði til.
Náið samstarf
við leikstjóra
— Það má segja að nær undan-
tekningalaust byrji leikmynda-
teiknari aö þvi aö lesa verkið yfir
og kynna sér það eins vel og
frekast er kostur, þannig að leik-
myndin falli sem best að verkinu
og hjálpi til við að magna áhrif
þess. Maður situr oftast á fyrstu
samlestraræfingunum til þess að
sjá hvaða stefnu leikstjórinn tek-
ur og hvernig hann hyggst túlka
verkið, og i framhaldi af þvi gerir
maður skissur og i flestum tilfell-
um módel af leikmyndinni.
Færðu þá frjálsar hendur um
gerð leikmyndarinnar?
— Það er mjög misjafnt. Það
kemur fyrir að leikstjórinn gefi
manni frjálsar hendur, en endan-
leg gerð leikmyndarinnar er að
sjálfsögðu háð samþykki hans.
Það kemur þá e.t.v. fyrir að
leikmyndateiknarinn þurfi að
vinna allt verkið upp á nýtt?
— Það getur komiö fyrir, en
þaö kemur þó að þvi fyrr eða
siöar að leikmyndin er samþykkt
og venjulega tekur það ekki
langan tima, þvi að leikmyndin
þarf helst að vera tilbúin áður en
æfingar hefjast. A þessu stigi
málsins eru leikstjórinn og leik-
myndateiknarinn venjulega búnir
að ræða þaö vel saman að þeir eru
komnir niður á alveg ákveðna
hluti, þannig að eftirleikurinn er
ekki svo erfiður.
Tækninni
fram
Hefur orðið ör þróun i leik-
myndagerð á þeim tima sem þú
hefur unniö við leikhúsið?
— Þróunin hefur verið
gifurlega ör, sérstaklega nú á sið-
ustu árum, og leiktjöld eru nú
sjaldan máluð á þann hefö-
bundna hátt sem tiðkaðist fyrir
20-30 árum siðan. Mörg gerviefni,
s.s. plast o.fl., hafa leyst gömlu
leiktjöldin af hólmi og allri tækni
hefur fleygt fram á við. Þetta á
ekki sístvið um ljósatæknina, en
nú er svo komið að myndvarpar
koma mjög oft i stað málaðra
baktjalda og svo er um margt
fleira sem hefur gjörbreytt
hönnun leikmynda á siðari árum.
Hvernig fer fullvinnsla leik-
myndarinnar fram?
— Eins og ég gat um áðan, þá
byrjar leikmyndateiknarinn á þvi
að gera skissur af leikmyndinni,
og þegar hún hefur verið sam-
þykkt, gerir hann oftast nær
módelaf leikmyndinni, sem siðan
er unnið eftir. Það er einnig til að
einungis séu gerðar vinnuteikn-
ingar, beint fyrir smiði, og þá
taka leiktjaldasmiöirnir beint viö
þessum vinnuteikningum. Eftir
að búið er að mála leiktjöldin er
leikmyndin færð upp á sviðið og
lýst, en að þvi búnu er leikmyndin
tilbúin fyrir sýninguna.
Þvi einfaldari —
því betri leikmynd
Verður leikmyndateiknarinn
ekki aö ganga út frá þvi aö leik-
myndin taki sem minnst rúm,
með tilliti til geymslu?
Gagnrýnin hefur
breytst til batnaðar
En hlutur gagnrýnenda?
— Umsagnir gagnrýnenda um
verk okkar leikmynda-
teiknaranna eru ærið misjafnar.
Sumar fjalla allitarlega um leik-
myndina, en það vill þvi miður
brenna alltof oft viö, að gagnrýn-
andinn minnist ekki einu oröi á
„Atvinnuöryggi lausráðinni leik-
myndateiknara en nákvæmlega
ekki neitt”.
hana. Hvort slikt stafar af fálæti
gagnvart verkinu eða þekkingar-
leysi, skal ég ekki dæma um, en
eins og ég sagði, þá vantar mikið
á, að okkarhlutverki i leiksýning-
unni séu gerð nægjanleg skil. Það
má vera að hluti af sökinni liggi
hjá okkur sjálfum og það er vist
að okkur ber nauðsyn til að kynna
rækilegar en gert hefur verið,
mikilvægi leikmyndarinnar,
verksins sem mótar yfirbragð
hverrar leiksýningar.
Hefur gagnrýnin breytst eitt-
hvað á þessum 25 árum, sem þú
hefur unnið við leikmyndagerð?
— Gagnrýnin hefur breytst til
batnaðar. Það er ekkert vafamál,
en samt vantar mikið upp á að
nóg sé gert.
Nú eiga gagnrýnendurnir að
veita ykkur aðhald. Finnst þér
þeir hafa brugðist skyldu sinni?
— Auðvitað eiga þeir að veita
okkur aðhald, og mér finnst að
það eigi að fjalla um þetta sem
myndlist fyrst og fremst. Leik-
myndalist fylgir allri annarri
myndlist á hverjum tima og hún
breytist eftir timabilum eins og
öll önnur list. Þetta er ekki hlutur
sem menn geta hrist fram úr
erminni á einni kvöldstund, og
meðal þess sem menn verða að
kunna skil á, er húsagerðarlist,
málaralist og búningateiknun,
auk alhliða listar frá öllum tima-
bilum. Um það hvort
gagnrýnendur hafi brugðist
skyldu sinni vil ég ekkert segja,
annað en það að það er e.t.v. of
djúpt i árinnni tekið að segja að
þeir hafi brugðist. Þetta er allt
saman i þróun eins og allt annað
sem snertir leikhúsið og e.t.v.
stendur þetta allt til bóta.
Stöðnun og
andleg afvelta
Hvernig er meö atvinnumögu-
leika leikmyndateiknara?
— Eins og aðstæður eru i dag
má segja að það sé útilokað að
nokkur maöur geti unnið fyrir sér
með þvi að starfa eingöngu sem
leikmyndateiknari, nema sá hinn
sami sé fastráðinn við annað
hvort leikhúsin eða sjónvarpið.
Markaðurinn fyrir leikhúslista-
fólk er mjög þröngur hérlendis,
og mitt álit er það að það væri
strax til batnaðar, ef skipti milli
starfa hjá fólki sem gegnir list-
rænum störfum væru meiri en þau
eru i dag. Mönnum hættir
nefnilega til þess að staðna i
starfi og verða andlega afvelta, ef
þeir vita að ekkert nema ellin eða
dauðinn getur leyst þá frá
störfum.
Hefur þú orðið var við þessa
stöðnun?
— Það má segja það, þvi að það
tók mig langan tima bara að
komast frá Þjóðleikhúsinu. Ég
var þá búinn að vinna á sama stað
i 20 ár og á þessum 20 árum
breyttist sáralitið, nema það að
ég eltist um 20 ár. Breytingar i
„Þaö er e.t.v. of mikið sagt að gagnrýnendurnir hafi brugðist....”
leikhúsum hérlendis virðast taka
óratima og ástæðan fyrir þvi að
ég hætti i Þjóðleikhúsinu var sú
að ég hafði ekki áhuga á að lifa
sjálfan mig þar.
Atvinnuöryggi leikmynda-
teiknara virðist ekki vera mikið?
— Atvinnuöryggi leikmynda-
teiknara sem vinna á frjálsum
markaði er ekkert og það fer al-
gjörlega eftir forráðamönnum
leikhúsanna hverja þeir vilja fá
til starfa.
Er ekki bráðnauðsynlegt fyrir
leikmyndateiknara að fylgjast
með þróun mála erlendis?
— Það er algjörlega nauðsyn-
legt til þess að halda einhverjum
tengslum við það sem er að
gerast og það er mitt álit að
maður, sem ferekkiutaná a.m.k.
þriggja ára fresti til þess að
kynna sér nýjungar, dragist óhjá-
kvæmilega aftur Ur.
Safn fyrir leikmyndlist
Hvað gerðir þú margar leik-
myndir á þessum 20 árum sem þú
vannst I Þjóðleikhúsinu?
— Ég gerði leikmyndir við
samtals 44 verk á þessu tímabili,
en leikmyndirnar sjálfar hafa
verið miklu fleiri. Fleiri en ég get
i fljótu bragði komið tölu á.
Nú hljóta að koma fyrir
skemmtileg atvik innan leikhúss-
ins. Eru þér einhver minnisstæð-
ari en önnur?
Það eru alltaf skemmtileg atvik
að gerast i leikhúsinu og þeim
skemmtilegustu getur maður þvi
miður ekki sagt frá, en það væri
þó af nógu að taka.
Svona aö lokum Gunnar. Er
eitthvert eitt verkefna brýnna en
annað i sambandi við leikmynd-
list i dag?
— Það er eitt mál sem verður
að hafa algjöran forgang, en það
er það að koma upp safni fyrir
leikmyndlist hér á landi. Það er
vitað að nú þegar hafa glatast
óbætanlegar heimildir um leik-
myndlist, t.d. frá fyrstu árum
Þjóðleikhússins, og vafalaust á
enn meira eftir aö tapast ef ekki
veröur hið bráðasta unnið að þvi á
skipulegan hátt að varðveita þau
gögn sem til eru i dag. Ég myndi
telja að hér væri veröugt verk að
vinna fyrir Listasafn tslands og
vonandi er að takast megi i fram-
tiðinni að varöveita þessa grein
islenskrar myndlistar sem best.
— ESE
Módel af leikmyndum sem Gunnar efur gert.
Texti: Eiríkur
Myndir: G.E.
Saltsteinar
fyrir búfé
Nauðsynlegt er að hafa SALTSTEINA aðgengilega bæðl í
haganum og gripahúsunum svo öllum skepnum séu lögð
skilyrði til að ná því salti, sem þörf krefur, auk steinefna.
Saltsteinar eru með gati, svo auðvelt er að koma þeim fyrir svo
að þeir nýtist vel, bæði utan húss sem innan.
Saltsteinar leysast ekki upp í votviðrum.
Saltsteinar fást í þremur gerðum: Rockie, KNZ-hvítur og
KNZ-rauður.
Saltsteinar fást í kaupfélögum um allt land.
Rockie KNZ-hvítur KNZ-rauöur
vorbeitarsteinn Fyrir alhliöa notkun fyrir ungviöi
9 pr kg g pr kg . P pr kg
Salt (NaCI) 980,00 989,00 983,00
Kopar (Ku) 0,14 0,40 0,40
Mangan (Mn) 0,17 0,80 0,80
Zink (Zn) 0,23 0,80 0,08
Kobalt (Co) 0,02 0,04 0,05
Joð (J) 0,14 0,04 0,08
Járn (Fe) Magnium (Mg) .... 5,00 0,04 3,80
Athugið að þar sem innihald Saltsteina er aðallega salt er
augljóst, að þeir koma ekki í stað steinefnablandanna en eru
ætlaðir til notkunar með þeim.
Spjallað við junnar Bjarnason leik
tjaldateiknari um gagnrýnendur o.fl.
AUGLYSINGASTOFA SAMBANDSINS