Tíminn - 07.10.1979, Side 21

Tíminn - 07.10.1979, Side 21
Sunnudagur 7. október 1979 21 Cheap Trick — Dream Police Epic/Karnabær ★ ★ ★ ★ Loksins, loksins eftir langa mæðu er „Draumalögreglan” komin til aö handtaka þig og við segjum bara— og þó fyrr hefði verið. „Lögregla” þessi er ann- ars hljómplatan „Dream Police”, en aðstandendur henn- ar eru engir aðrir en hljóm- sveitin Cheap Trick, sem nú nýtur fádæma vinsælda um all- ar jaröir. Eins og kunnugt er sendu Cheap Trick nýlega frá sér plöt- una „Live at Budokan”, sem tekin var upp á hljómleikum þeirra i Japan, en upphaflega var ákveðið að platan yrði að- eins gefin Ut þarlendis. Vinsæld- ir plötunnar urðu þó meiri, en nokkurn óraði fyrir. Eftir að bandariskar útvarpsstöðvar höfðu komist yfir plötuna og hún var orðin söluhæsta innflutta platan i Bandarikjunum, sáu út- gefendurnir Ser ekki annað fært en að gefa hana einnig út i Bandarikjunum. Um svipað leyti voru Cheap Trick tilbúnir með plötuna „Dream Police”, en vegna vinsælda hinnar fyrr- ne&idu var ákveöiö að fresta Ut- gáfúdeginum.NUhefur „Dream Police” sem sagt verið gefin Ut og ekki er að sjá aö biðin hafi gert henni neitt illt. Hún er eins fersk eins og hugsast getur, og ekki er annað aö heyra en að Cheap Trick fari á kostum. Sem fyrr er þaö kraftmikil rokktón- list sem er einkennandi fyrir Cheap Trick, og ólikt fáum öör- um hljómsveitum leggja Cheap Trick mikla áherslu á textana. Töluverð hugsun liggur þvl að baki „Dream Police” og sem dæmi um textana, sem margir hverjir eru bráösmellnir látum viö f lakka hér brot Ur textanum viö titillagið á plötunni.: „They ar waiting for me / look- ing for me / every single night / drivin ’me insane / those men inside my brain” — Það er sem sagt enginn óhultur um þessar mundir, hvort sem hann er I svefni eöa vöku, þvl aö „Draumalögreglan” er komin á stúfana. —ESE Frank Zappa — Joe's Garage CBS/Karnabær ★ ★ ★ ★ + Einn umdeiidasti snillingur siðari ára á vettvangi popptón- listarinnar er bandarfski tón- listarmaðurinn Frank Zappa. Eigi alls fyrir löngu setti Zappa allt á annan endann i Banda- rikjunum með plötunni „Sheik Yerbouti”, sem m.a. hafði aö geyma lagið „Jewish Princess”, en nú er Zappa mættur á nyjan leik, að þessu sinni með plötuna „Joe’ s Garage part 1” (Bflskúrinn hans Jóa, fyrsti þáttur) og lagiö „Catholic girls”. „Jewish Princess” varð þess valdandi að bandarisku gyðingasamtökin urðu tjúlluð, en „Catholic girls” mun vera stefnt gegn kaþólikkum i Bandarikjunum og mótmælin eru þegar farin að streyma inn. „Joe’ s Garage” er eins og Zappa segir sjálfur-heimskuleg saga um tilraunir yfirvalda til þess að banna tónlist og tón- listarflutning, vegna óæskilegra áhrifa þessa miðils á almenn- ing. Sagan, sem gerist einhvern tima í framtiðinni, segir frá nokkrum ungum mönnum sem stofna hljómsveit i bflskúr og þeim erfiðleikum sem þeir lenda I vegna tónlistarinnar. Sögumaður er persóna, sem Zappa nefnir Central Scrutiniz- er, en sá er eins konar einvaldur iþjóðfélagi þvisem sagan gerist i. Sjálfur segir Zappa að ein- hverjum kunni að finnast þetta fyndiðog jafnvel óraunverulegt, en bendir jafnframt þeim sama á, að hann megi vera þakklátur fyrir að búa ekki I einhverju af þeim löndum þar sem tónlistar- flutningi séu settar strangar skorður eins og t.a.m. í tran, þar sem Khomeini æðsti klerkur ræður rikjum. Ósanngjarntværiað rekja hér söguþráðinn i „Joe’ s Garage” til enda, þvi að þessi plata, sem nú hefur litið dagsins ljós hefur aðeins að geyma einn þriðja hluta verksins, en afganginn mun Zappa ætla að gefa Ut á tvöfaldri plötu innan skamms. Þess má þó geta, að „Joe’ s Garage part 1” er öll uppfuli af gálgahúmor og Zappa sannar þaö óumdeilanlega með þessari plötu að hann er engum öðrum likur. Á köflum er platan full klæmin, þannig aö vamm- lausum er eindregið ráðið frá þvi að hlýða á þessa plötu, en þeir sem geta tekið Zappa eins og hann er — fá að launum konunglega skemmtun. —ESE. Bob Dylan — Slow train coming CBS/Karnabær ★ ★ ★ ★ ★ Þærfara nú brátt að nálgast fjóröu tuginn plöturnar sem Bob Dylan hefur sent frá sér i gegn um árin og þrátt fyrir þennan mikla fjölda kemur hann manni alltaf jafn mikið á óvart. Nýjasta platu Dylan heitir „Slo w train coming” og markar hún timamót á ferli þessa merka listamanns. NU eru það trUmálin sem sett eru á oddinn og boðskapur Guös, og trUaö gæti ég þvi að Dylan yrði ekki ónýtur trUboði. „Slow train coming” er fyrir margra hluta sakir mjög merkileg plata, þvi að auk hugarfarsbreytingarinnar hefur tónlistarstefna Dylan breytst nokkuð, og má segja aö hann sé nú alkominn inn á svipaða linu og t.a.m. J.J. Cale og Dire Straits- blús rokkið, en það ber þó að hafa i huga að mörg laga Dylan hafa einmitt verið I þessum stil á undanförnum ár- um. Þá munar einnig um þaöað Mark Knopfler gftarleikari Dire Straits og trommuleikari sömu hljómsveitar, Pick Withers, aöstoöa Dylan að þessu sinni og þvi verða blús-rokk áhrifin sterkari en ella. Þó að Dylan hafði áöur sungið um trúmál sinum, s.s. á „John Wesley Harding” og „Blood on the tracks”, sem báðar voru timamótaplötur, þá hefur Dylan sjaldan eða aldrei verið gagnrýndur eins mikið fyrir neina plötu og einmitt nU. Allir viðurkenna þaö þó, aö tón- listin, undirleikurinn og söngur Dylan er fyrsta flokks, en mönnum hefur þótt Dylan boða trúna á frekar óbilgjarnan hátt og aö samkvæmt kenningum hans eigi menn að trúa i blindni á Guð almáttugan. Eg hallast þó að þvi að boðskapur plötunnar eigi að vera einkamál hvers og eins og ef boðskapurinn er lát- inn liggja á milli hluta, þá stendur eftir frábær plata, jafn- vel ein sú besta sem Dylan hefur nokkurn tima sent frá sér. —ESE. David Werner—^ David Werner Epic/Karnabær ★ ★ ★ ★ Bandarikjamaðurinn David Werner er einn af þeim mönn- um, sem hvað mest hafa komið á óvart Irokkinu að undanförnu, en nU eru liöin fimm ár frá þvi að hann kom fyrst fram á sjón- arsviöið með sina fyrstu plötu, þá tvitugur að aldri. í upphafi vakti David Werner aðallega athygli fyrir góða texta, en svo virtist sem tónlist hans félli ekki i kramið. „Fram- sækið” rokk átti þá erfitt uppdráttar ekki sist ef flytjendurnir voru ungir og óþekktir og þvi varö David Werner aö biöa sins tima. Fyrstu plötur hans tvær, Whizz Kid (1974) og „Imagination Quota” (1975) báru þaö óneitan- lega með sér að þar fór hæfi- leikamaður, en þaö þurfti eitthvað meira að koma til, eins og t.a.m. smá heppni til þess aö Werner kæmist I sviösljósið. Heilladisirnar voru þó ekkert á þviaö heimsækja David Werner i bili og þvi varð hann aö sætta sig viö þaö hlutskipti að falla i gleymsku og dá um tima. Næstu ár fóru I aö semja staönaða skemmtitónlist, en David Werner lét þó aldrei hugfallast: „Eg reyndi aö þrauka og þrátt fyrir ýmsa erfiöleika, þá bitnaöi þetta ekki á tónlistinni”, segir Werner, er hann rifjar upp þennan tima I lifisinu. „Tónlistin var mér eins og trúarbrögö og ég glataöi aldrei trúnni á hæfileika mina. Ég var viss um að ég væri á rettri leiö og þaö eina sem á skorti væri aö koma verkum minum á framfæri á réttan hátt. Mistök min meö fyrri plöturnar tvær voru mér dýrmæt reynsla. Ég var ungur aö árum þegar ég gaf þær út og eins og titt er um unga menn þá haföi ég engan tima til þess aöreikna það dæmi til enda. Aðalatriöið i minum augum var aö gefa plöturnar út og I öllum látunum gleymdi ég mörgu, sem er nauösynlegt þegar plötuútgáfa er annars vegar.” Stóra tækifærið, sem hafði látiö á sér standa i nokkur ár kom upp I hendurnar á David Werner I fyrra er Epic hljóm- plötufyrirtækið bauö honum samning. Werner þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um áöur en hann skrifaöi undir samninginn og árangurinn af þessu sam- starfi er hljómplatan „David Werner” sem út kom fyrir skömmu. Margir hafa orðið til þess i gegn um árin að likja Werner við David Bowie, og enn aðrir hafa fundið hliðstæður með hon- um og hljómseitinni Kinks. Með nýju plötunni kemur Werner mönnum það mikið á óvart aö samllkingar viö aðra listamenn eru út i hött. Tónlistin á plötunni er kraft- mikið rokk, þar sem gitarleik- urinn situr I fyrirrúmi. Meö Werner á plötunni eru valdir listamenn og ber þar fyrst að nefna gitarleikarann og söngvarann Mark Doyle, sem verið hefur i slagtogi meö Werner undanfarin ár. Aðrir sem koma við sögu eru Tom Mooney (trommur), Albritton McClain (bassi) og Tim Capello sem leikur á saxófón. Sjálfur leikur David Werner á rythma gitar og pianó og loks er aö nefna aö Ian Hunter stingur inn kollinum svona rétt til þess aö hressa upp á mannskapinn. KAUPIÐ TÍMANN Norræn menningarvika 1979 Sunnud. 7. okt. kl. 20:30 Finnski bariton- söngvarinn Jorma Hynninen syngur lög eftir Vaughn Williams, Yrjö Kilpinen, Jean Sibelius og Hugo Wolf. Undirleikari er Ralf Gothóni. Mánud. 8. okt. kl. 20:30 Birgitte Grimstad skemmtir með visnasöng (2. tónleikar). Aðgöngumiðar seldir i Norræna húsinu. I sýningarsölum: Verk eftir danska lista- manninn Carl-Henning Pedersen Opið kl. 14:00 til 19:00. í bókasafni og anddyri: sýning á mynd- skreytingum norrænna listamanna við rit- verk H.C. Andersens. NORRÆNA HÚSIÐ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.