Tíminn - 07.10.1979, Page 27

Tíminn - 07.10.1979, Page 27
Sunnudagur 7. október 1979 27 fMbttt ! Frændi og frænka Cousin, Cousine (Frændi og frænka) heitir frönsk mynd frá 1975 sem 1 Háskólabíó sýnir vonandi enn þegar þessi skrif koma fyrir augu lesenda Tímans. 1 auglýsingu um myndina segir að hún sé „skopleg og alvöruþrungin i senn”. Menn ættu ekki að taka alvarlega þetta með alvöruna i auglýsingatextanum þvi hér er á ferð fyrst og fremst ágætasta gamanmynd um framhjáhald. Söguþráðurinn er i stuttumálisá, að maður á sjötugsaldri gengur að eiga konu á sextugsaldri. Brúðkaupið er i söguiegra lagi og stofnast i þvi ástarsambönd milli ættingja brúðhjónanna sem þegar eru i hjónaböndum. Makarnir sem hlut eiga að máli eru af þeirri gerðinni sem eiga ofurlitið erfitt með kroppinn á sér rétt eins og Jón i Gullnahlið- inu, þannig að þeir hafa ekki beinlinis efni á að gera mikinn hávaða út af málinu. En enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þeir taka upp betra liferni, hætta framhjáhaldi og taka að sinna börnum og búi. Allt kemur fyrir ekki. Mótparturinn virðist una hag sinum vel og virðist ekki hafa áhuga fyrir að gera breytingar á. Af þessari mynd má hafa hina bestu skemmtun og ekki spillir fyrir að hún er vel leikin og ágætlega gerð. 1 aðalhlut- verkum eru Marie-Christine Barrault, Victor Launoux, Marie-France Pipier. Leikstjóri og handritahöfu'ndur er Jean- Charles Tacella. , v . \ \ ‘ \ > Victor Launoux og Marie-Christine Barrault, þ.e. frændi og frænka. Alien — slær hún Star Wars við? Clint Eastwood í hlutverki sfnu í myndinni The Enforcer sem Austurbæjarbíó sýnir um þessar mund- ir. Þetta er þriðja myndin um hörkutólið Dirty Harry og hef ur Eastwood leikið aðaIhlutverkið í þeim öllum. nokkur maður áhuga fyrir slíkum myndum. Eitt er vist að nú eru timar visindamyndanna. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Star Warsog Close Encounter of Third Kindhafa slegið svo til öll aðsóknarmet sem hægt er að slá. 1 kjölfarið hefur fylgt aragrúi misjafnlega vel gerðra „science-fiction” mynda. Sú nýjasta á markaðnum heitir Alien bresk að uppruna. Hún kvað vera blanda af Star Wars, Jaws og The Exorcist. Með slikan bakhjarl ætti að vera tryggt að fyrirtækið gefur eitthvað i aðra hönd. Kvikmyndin fjallar um geim- ( skipið Nostauo sem er á heim- leið til jarðarinnar. Á skipinu er sjö manna áhöfn sem verður vör við mjög einkennilega reiki- stjörnu. Akveðið er að kanna málið nánar. Á stjörnunni finnur hún risastjór furðudýr sem hefur gefið upp öndina og rétt hjá egg sem eru i þann veginn að klekjast út. Ahöfnin lendir i margvislegum hrakningum á reikistjörnunni og týnir mjög tölunni. Sagt er að frá tæknilegu sjónar- horni sé myndin frábærlega vel gerð. Með aðalhlutverkin fara Tom Skerritt, Sigourney Weaver, Veronica Cartwright, alltóþekktir leikarar. Leikstjóri er Ridley Scott, sömuleiðis óþekktur. Tónlistin er hins vegar eftir gamlan jálk, Jerry Goldsmith. Myndinni er dreift af 20hh Century Fox og ætti er timar líða að vera sýnd i Nýja biói. GK. Þau eru heldur en ekki vlgaleg á myndinni skötuhjúin Barbara Streisand og Ryan O’Neal. Atriöið er úr nýrri kvikmynd The Main Event. Leikstjóri er Howard Zieff sem einhverjir kannast viö af kvikmyndinni House Calls sem var sýnd ekki alls fyrir löngu I Laugarásbiói. inn á stjá á ný Svonefndar vísinda- myndir eiga misjafnlega miklum vinsældum að fagna. Stundum virðast þær sprengja utan af sér öll kvikmyndahús vegna mikillar aðsóknar, en þess á milli hefur ekki Atriði úr Alien. leysa aðsteðjandi vandamál. I þessari mynd er úrlausnarefnið rán á borgarstjóra New York. Boðskapurínn er sá, að þegar öllu er á botninn hvolft séu það verklagsreglurnar hans Dirty Harry það eina sem undir- heimalýðurinn skilur. Skothrið og læti eru hlutir sem menn búast við þegar þeir fara að sjá kvikmynd með Clint Eastwood. I þvi tilfelli sem hér um ræðir er varan ósvikin og söguþráðurinn ekki eins lygi- legur og i siðustu mynd Clint Eastwood Gauntlet. G.K. Þeir sem sáu Clint Eastwood i gamla daga í sjónvarpsþættinum Rawhide í dátasjónvarpinu hafa,_ tæplega átt von á því að hann ætti eftir að verða einn vinsælasti leikari hvíta tjaldsins. En svonu geta hlut- irnir snúist. Eastwood er á ferð með byssu í hendi í Austurbæjar- bíói um þessar mundir i kvikmyndinni The Enforcer sem valið hefur verið íslenska heitið Dirty Harry beitir hörku. Ekki er beinlinis hægt að segja að hlutverkið sem Clint fer með I myndinni komi á óvart, þvi um er að ræða lögreglu- manninn Dirty Harry sem aðdáendur Clint Eastwood muna vafalaust eftir. Að þessu sinni finnst yfirmönnum Dirty Harry nóg um hörkuna sem hann sýnir glæpönunum og er honum sagt upp störfum. Hann lætur það ekki á sig fá og heldur ótrauður sinu fyrra striki uns yfirmönnumun verður ljóst að Dirty Harry er ómissandi við að Kvikmyndahornið Dirty Harry kom- • —• ■—• — •——•

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.