Tíminn - 09.10.1979, Síða 1

Tíminn - 09.10.1979, Síða 1
Þriðjudagur 9. október 1979 223. tölublað— 63.árgangur Eflum Tímann Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Steingrimur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins: Mjðg vafasamt að reka þjóð- ina út í kosningabaráttu AUir samningar lausir Fjárlög óafgreidd Kratar stofna til öngþveitis HEI — „A rikisstjórnarfundum siðustu vikurnar hefur verið rætt ýtarlega um efnahagsmál- in, m.a. ýmsar hugmyndir okk- ar framsóknarmanna tfl aö ná verðbólgunni niður. Þar hef ég ekki orðið var við ágreining hjá samstarfsflokkunum. Þetta frumhlaup Alþýðuflokksins get- ur þvi ekki byggst á ágreiningi um efnahagsmálin, þar sem samkomulag var alls ekki full- reynt,” svaraöi Steingrimur Hermannsson, spurður um hvort samkomulag um efna- hagsaðgerðir hafi verið von- laust innan rikisstjórnarinnar. Hins vegarsagði Steingrimur, að með þessari uppgjöf hefðu kratar komiði veg fyrir að unnt yrði að reyna til hlitar hvort samkomulag um raunhæfar að- gerðir I veröbólgumálunum hefði náðst i stjórninni, 1 fáum oröum sagði Stein- grimur hugmyndir fram- sóknarmanna vera, að setja það markmið aö verbólgan fari niður fyrir 30% að meöaltali á næsta ári, sem þýddi að hán kæmist niður i 23-24% I lok árs- ins, ogsiðan yrði haldið áfram á sömu braut árið 1981. Þetta yrði gert með þvi að ákveða árs- fjórðungslega iækkandi áfanga verðhækkana og gengisbreyt- inga, t.d. 9% 1. des. n.k., 8% 1. marsog siðan lækkandi um 1% á ársfjoröungi út árið. Agrein- ingur virtist ekki hafa verið um að vinna yrði að hjöðnun verð- bólgunnar i áföngum. Til aö tryggja þessa áfanga sagði Steingrimur að rætt hefði verið um hina svokölluöu norsku-leið en hún gerir ráö fyrir, að sett sé bremsa á alla megináhrifaþætti verðbólgunn- ar, þ.e. verðlag, gengissig og launahækkanir. Hann sagðist hafa gertsér vonir um, aö sam- staða gæti náðst um þessa leið eða útfærslu á henni. Þar sem núverandi rfkis- stjórn byggöi á samstöðu við launþega hefði hann að sjálf- sögðu gert ráð fyrir að leitað yrði samkomulags við þá um þessar leiðir. Hann hefði þegar haft fundi með launþegahópum og fundiö á þeim fundum vilja til harðra aðgerða til að tryggja að framanlýst markmið náist. Steingrfmur sagðist persónu- lega telja þingrof mjög ótfma- bært nú og vægast sagt vafa- samt að reka þjóðina nú út i kosningabaráttu. Samningar væru nú allir lausir og engin fjárlög afgreidd svo þetta skap- aði eiginiega eins mikið öng- þveiti og hægt væri að stofna til. Steingrimur Hermannsson Framkvæmdastjórn og þingmenn Framsóknarflokksins: Verður að bregðast hart við Fra m kvæ m dast jór n og þingmenn Framsóknarflokksins komu saman til fundar I gær- kvöldi til að ræða stjórnmálaviö- horfín eftir samþykkt flokks- stjórnar Aiþýðufiokksins um stjórnarslit og nýjar kosningar. A fundinum var einnig rætt um efnahagsástandið og þær tillögur um harðar aögeröir, sem ráð- herrar Framsóknarf lokksins hafa fyrir nokkru lagt fram i rikisstjórninni. Fundarmenn voru á einu máli um það að stjórnarslit nú, kæmu I miðjum kliðum umræðna um efnahagsað- gerðir og að þingrof og kosningar nú myndu valda aigeru stjórn- leysi og öngþveiti I þjóðlifinu. Voru fundarmenn sammála um að Framsóknarflokkurinn veröur að bregðast hart við hinni óvæntu stöðu. Fiokkurinn hefur boðað tii þingflokksfundar kl. 16 ámorgun. Magnús H. Magnússon ráðherra: Veit ekki hvaða ávinningur er að nýjum kosningum HEI — „Ég taldi og tel að ekki hafi veriö látið reyna óyggjandi á það, að samkomulag næðist um aðgerðirgegn verðbólgunni innan stjórnarinnar” sagði Magniís H. Magnússon, ráöherra i gær er Timinn spurði hvort umræöur um efnahagsmál innan rikisstjórnar- innar hafiveriðkomnar áþab stig að útséð væri um samkomulag. — Nú hefur mér skilist að þið Benedikt Gröndal — án þess að segja það beint — telduð fyrst og f remst ómögulegt að stjórna með Alþýðubandala ginu? — Það er aíveg rétt. Það reikn- ar enginn með þvi að Alþýðu- bandalagið sé tilbúið 1 að taka svo ákveðið á málum og þarf aö gera. Aftur á móti vildi ég láta reyna á það, þannig að afstaða þeirra stæði einhversstaðar svart á hvitu. — Af hverju létuð þiö ekki á þetta reyna og sfðan Alþýöu- bandalagið sprengja ef það vildi ekki failast á raunhæfar aögerö- ir? — Þaö var einmitt það sem ég vildi og taldi réttara, en þing- flokkurinn var ekki sama sinnis. — Nd er Alþýðuflokkurinn þó i stjórn. Eftir hvaða leiðum reiknar hann með að koma sinum máium betur áfram að afstöðnum nýjum kosningum? — Þvi get ég ekki svaraö, þvi ég hef spurt að þessu sjálfur og ekki fengið nein viðhlítandi svör. — Trúir þú þvf sjálfur? — Nei ég hef ekki trú á þvi eins og málin standa i dag. — Fékkst þú ákúrur á flokks- stjórnarfundinum fyrir að vera einn á móti stjórnarslitum nú? — Égstóð ekki einn þar. I ræðu minni á fundinum tilkynnti ég aö til þess að halda einingu 1 flokkn- um og forðast sundrungu mundi ég sitja hjá og lagði til að þeir sem væru sama sinnis og ég gerðuþað lika. Flokksstj órnarfundur Alþýðuflokksins: 53 vilja stjórnarslit 2 á móti, 14 sátu hjá Ekki ríkti algjör eindrægni andans á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins i gærkvöldi. Atkvæðagreiöslu um hvort flokk- urinn ætti að draga sig út úr stjórnarsamstarfinu fór þannig að 53 greiddu stjórnarslitum atkvæði, 14 sátu hjá og 2 voru á móti. Miklar umræöur voru á fundinum á undan atkvæöa- greiöslunni og þar skoraði Magnús H. Magniísson ráöherra á menn að sitja hjá. Atkvæða- greiðslan var leynileg. Það að tæpur fjórðungur fundarmanna sat hjá sýnir að all- verulegur ágreiningur er meðal Alþýðuflokksmanna um stjórnar- slit. Verkalýösarmur flokksins er á móti því aö sprengja stjórnina og þeim glundroða sem þaö at- hæfi kemur til með aö valda. Sighvatur Björgvinsson: Hefur verið áratugur Alþýðubandalagsins — hlýtur að vera langt þar til kjósendur treysta þeim aftur HEI — „Við samþykktum að segja okkur úr þessari ríkisstjórn og krefjast þingrofs og kosninga þegar i staö” sagði Sighvatur Björgvinsson eftir flokks- stjórnarfund i gær. — Hvert veröur framhaidið nú? — Það er Olafs Jóhannessonar aðleika næstaleik. — Er ekki ábyrgðarleysi að ana f kosningar nú? — Ég tel meira ábyrgöarleysi að fresta þeim þar til samningar veröa lausir, en að ljúka þeim áöur en að þvi kemur. Þá viljum viö einmitt að viö verði tekin alvöru rikisstjórn. — Nú segja skoðanakannanir Framhald á bls 19 Leiksýningar eru aila jafna ekki á mánudagskvöldum. t gær var brugðið út af venjunni, þvi þá efndi Aiþýðuflokkurinn til sýningar á „Sprengjum stjórnina” i Iðnó við góða aðsókn flokksstjórnarmanna. 1 stjórnarmyndunartilraununum fyrir ári fóru flokksstjórnarfundir fram i litlum sal uppi á lofti i Iðnó. Farsinn „Sprengjum stjórnina” hlaut hinsvegar miklu meiri aðsókn þannig að fiytja varð fundargesti I aðalsal.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.