Tíminn - 11.10.1979, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 11. október 1979
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gfslason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúia 15 sfmi
86500. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 200.00. Áskriftargjald kr.
4000 á mánuöi. Blaðaprent.
Erlent yfirlit
Ræða Brésnjefs hefur
vaMð raiklar umræður
Bókun Steingríms
Hermannssonar
Það er ljóst af bókun Steingrims Hermanns-
sonar, formanns Framsóknarflokksins, á rikis-
stjórnarfundi i fyrradag, að Framsóknarflokkur-
inn hefur verið búinn að leggja fram til umræðu i
rikisstjórninni heilsteyptar efnahagstillögur áður
en Alþýðuflokkurinn tók þá ákvörðun að rjúfa
stjórnarsamstarfið.
Samkvæmt bókun Steingrims Hermannssonar
er það meginstefna þessara tillagna, að verðbólg-
an verði ekki meiri en 30% á ársgrundvelli á árinu
1980 og 18% á árinu 1981. Til að tryggja þetta
verði ákveðnar i samráði við launþega, bændur og
vinnuveitendur eftirfarandi ráðstafanir:
Leitað verði eftir samkomulagi við launþega
um, að launahækkanir 1. desember n.k. verði ekki
yfir 9% gegn umbótum, sem meta má til kjara-
bóta. Hefur verið bent á húsnæðismálalöggjöfina,
lifeyrissjóð fyrir alla landsmenn og hækkun fjöl-
skyldubóta á lægstu laun.
Lögfestar verði leyfilegar hámarkshækknair á
verði vöru og þjónustu, sem fari stigminnkandi
ársfjórðungslega þannig að verðhækkanir verði
innan 30% árið 1980 og 18% 1981.
Gengissig verði ekki leyft meira en svo árs-
fjórðungslega, að verðhækkanir verði innan um-
ræddra marka.
Leitað verði samkomulags við launþega um
engar grunnkaupshækkanir á árinu 1980 og, ef
nauðsynlegt reynist, að lögbinda hámark árs-
fjórðungslegra verðbóta á laun i samfæmi við þær
verðhækkanir, sem mestar verða leyfðar, m.a. til
þess að koma i veg fyrir að einstakir launahópar
brjótist út úr þeim ramma, sem settur er.
Leitast verði við, að halda þeim kaupmætti, sem
nú er orðinn og auka hann, þegar liður á umrætt
verðhjöðnunartimabil. í þvi sambandi verði þó
tekið fullt tillit til viðskiptakjara þannig að versn-
andi viðskiptakjör leiði ekki til launahækkana, en
batnandi geti hins vegar gert það.
Skattheimta samkv. fjárlögum verði ekki yfir
29% af vergri þjóðarframleiðslu. Útgjöld fjárlaga
verði nokkuð minni, þannig að staðið verði við
fyrri áform um greiðslu skuldar við Seðlabanka
íslands. Gætt verði mikils aðhalds i rikisfjármál-
um, fjárfestingarmálum og penirigamálum.
Fjárfestingarlánsfjáráætlun miðist við fjárfest-
ingu, sem verði um 25% af áætluðum þjóðartekj-
um. Rikisstjórnin leiti eftir samkomulagi við
sveitarfélögin um samsvarandi aðhald i fjárfest-
ingu og rekstri.
Verðbótaþætti vaxta verði ekki breytt 1. des.
n.k., en hann siðan lækkaður i samræmi við þá
hjöðnun verðbólgu, sem ákveðin er. Bönkum verði
óheimilt að auka útlán um meira en 30% 1980 og
18% 1981. Settar verði reglur, sem takmarki mjög
afborgunarkjör i viðskiptum.
1 bókun Steingrims Hermannssonar kemur
fram—að hann taldi verulegar horfur á þvi, að
samkomulag gæti náðst i meginatriðum um
framangreinda stefnu. Það er einstætt ábyrgðar-
leysi, að Alþýðuflokkurinn skyldi hlaupast undan
merkjum, undir þeim kringumstæðum og efna i
staðinn til upplausnar og stjórnleysis næstu mán-
uði, eins og oftast vill fylgja þingrofi og kosning-
um.
Þ.Þ.
Fréttaskýrendur eru ekki á einu máli
RÆÐA, sem Leonid
Brésnjef, leiötogi Sovétrikj-
anna hélt I Austur-Berlin i til-
efni af 30 ára afmæli Austur-
Þýzkalands, hefur vakið sér-
staka athygli af tveimur ástæö-
um. önnur ástæöan er sú, að i
fyrri hluta ræöu sinnar varaöi
hann Nató-rikin, einkum Vest-
ur-Þýzkaland, mjög viö þeim
fyrirætlunum aö koma upp nýj-
um eldflaugum i Vestur-
Evrópu, þvi að Rússar myndu
gripa til gagnráöstafana. Hin
ástæöan var sú, aö hann boöaöi
fyrirætlun Rússa um aö draga
úr herafla sinum i Miö-Evrópu.
Þar sem liklegt er, aö þessa
ræöu Brésnjefs eigi oft eftir aö
bera á góma, þykir rétt aö rekja
hér meginefni hennar sam-
kvæmt útdrætti frá APN.
EFTIR aö Brésnjef haföi far-
iö lofsoröum um Austur-Þýzka-
land og samvinnu þess og Sovét-
rikjanna, vék hann aö öryggis-
málum Evrópu og komst þá svo
aö oröi, ,,að hinar hættulegu
áætlanir um aö staösetja nýjar
tegundir bandariskra eldflauga
i löndum Vestur-Evrópu valda
okkur áhyggjum” þvi aö
„þessar fyrirætlanir myndu
raska verulega hernaöarhlut-
föllum i álfunni.” 1 þvi tilfelli
gætu sósialisku rikin ekki setið
aögeröalaus hjá þessum hern-
aðartilraunum Nato.
Brésnjef greip siöan til sterk-
ari viövarana og segir svo i út-
drætti APN:
„Leonid Brésnjéf benti á hvi-
lika hættu þessar áætlanir fælu i
sér fyrir Þýzka sambandslýö-
veldiö (Vestur-Þýzkaland), og
einnig fyrir Bandarikin. Þeir
sem móta stjórnmálastefnu
Þýzka sambandslýöveldisins,
sagöi hann, „veröa aö gera upp
viö sig hvort er betra fyrir
FRG: Aö hjálp til að efla friöinn
I Evrópu og stuöla aö friösam-
legriog gagnkvæmt ábatasamri
sambúö rfkja i álfunni i anda
gagnkvæms trausts, eöa leggja
skerf sinn til aö auka deilur og
gera allt ástand i Evrópu
ótryggara og óstööugra, og
raunar i heiminum öllum, meö
þvi aö settar veröi upp i Vestur-
Evrópu bandariskar eld-
flaugnastöðvar, þar sem vopn-
unum er beint gegn Sovétrikj-
unum og bandalagsrikjum
þeirra. Þaö er þvl augljóst mál,
aö ef Þýzka sambandslýöveldið
velur slöari kostinn, þá mun aö-
staöa þess versna verulega. Þaö
er auövelt aö gera sér i hugar-
lund hverjar afleiöingar þaö
heföi fyrir FRG, ef eigendur
þessara vopna færu allt I einu aö
nota þau i alvöru. „Framan-
greiht á auövitaö einnig viö um
önrpr NATO-riki i Evrópu, sem
yröu svo „heppin” aö fá banda-
Brésnjef aö flytja ræöuna I Berlin.
riskar meöaldrægar eldflaugar
staösettar innan landamæra
sinna,” sagöi Leonid Brésnjef.
„Sem yfirmaður varnaipála i
SSSR vil ég gefa eftirfárandi
yfirlýsingu: Meöaldrægum eld-
flaugum i Evrópuhluta Sovét-
rikjanna hefur ekki veriö fjölg-
aö um eina einustu eldflaug
undanfarin tiu ár. Þvert á móti,
meöaldrægum eldflaugum og
kjarnaoddum þeirra hefur
fækkaö nokkuö undanfariö.
Sama er aö segja um meöal-
drægar kjarnasprengjur. Og
Sovétrikin geyma slik vopn alls
ekki nálæet landamærum
annarra rikja. 1 fjöldamörg ár
höfum viö heldur ekki fjölgað i
herjum okkar i Mið-Evrópu.”
„Viö erum reiöubúnir til að
fækka meöaldrægum eldflaug-
um og öörum kjarnavopnum,
sem staösett eru I vesturhluta
Sovétrikjanna frá þvi sem nú er,
en auðvitað aö þvi tilskildu aö
ekki veröi bætt viö slikum vopn-
um i löndum Vestur-Evrópu”,
sagöi Leonid Brésnjef enn frem-
ur.
„Til þess aö taka af öll tvi-
mæli um að viö óskum einlæg-
lega eftir fækkum herja I
Evrópu og slökunar þar, og
sækjumst ekki eftir hernaöar-
yfirburöum, viljum viö hverfa
frá oröum til athafna I þeim
málum. Viö höfum þvi ákveöiö
meö samkomulagi viö stjórn-
völd Þýzka alþýöulýðveldisins
og aö undangengnum sam-
komulagsviöræöum viö önnur
riki Varsjárbandalagsins, aö
fækka einhliöa I sovézkum herj-
um i Miö-Evrópu. Viö munum
fækka um 20.000 hermenn og
þúsund skriðdreka og visst
magn annarra tegunda vopna
veröa einnig fjarlægð frá Þýzka
alþýöulýöveldinu á næstu 12
mánuöum,” sagöi sovézki leiö-
toginn.”
ÞA VÉK Brésnjef aö þvi, að
Sovétrikin væru reiöubúin til að
takmarka landheræfingar og
tilkynna herflutninga, ef um
fjölmennari lið en 20.000 manns
væri að ræða. Sama gilti um
flugheræfingar og flotaæfingar
nálægt landamærum eöa land-
helgi annarra rikja.
Þá hvatti Brésnjef til þess aö
efnt væri til Evrópuráöstefnu á
pólitiskum grundvelli til aö
ræöa um leiöir til hernaöarlegr-
ar slökunar i Evrópu. Hann
taldi þaö mjög brýnt verkefni aö
undirbúa slíka ráöstefnu.
Loks vék Brésnjef aö Salt-3,
en svo eru nefndar fyrirhugaöar
viöræöur um samdrátt kjarn-
orkuvopna i Evrópu, en gert er
ráö fyrir, aö þær hefjist strax
eftir að Salt-2 samningurinn
hefur veriö samþykktur. Mikill
áhugi er i Vestur-Evrópu fyrir
Salt-3.
Viöbrögöin hjá forustumönn-
um Nató og helztu Natorikjanna
við ræðu Brésnjefs hafa yfirleitt
veriö jákvæö, en þó meö fyrir-
vörum. Þvi er fagnaö, aö
Rússar skuli draga úr herafla
slnum i Mið-Evrópu, en skoöa
þurfi betur hversu mikilvægt
þaö skref sé. Hins vegar er ekki
fallizt á þá kröfu hans, að hætt
veröi viö fyrirætlanir um staö-
setningu nýrra eldflauga i Vest-
ur-Evrópu, þvi aö Sovétrikin
hafi nú algera yfirburöi á þvi
sviöi, öfugt viö þaö, sem
Brésnjef heldur fram. Þrjú
stærstu Natóríkin i Vestur-
Evrópu hafa þegar lýst yfir þvi,
að ekki veröi horfiö frá þessum
fyrirætlunum aö óbreyttum aö-
stæöum. Aöur en til sliks kæmi,
yröi aö sjálfsögöu aö fá fulla
tryggingu fyrir, hvaö Rússar
leggöu niöur af meöalldrægum
eidflaugum i Austur-Evrópu.
Þeir fréttaskýrendur, sem eru
andstæöastir Sovétrikjunum,
halda þvi fram, aö ræöa
Brésnjefs hafi fyrst og fremst
veriö áróöursbragö af hálfu
Rússa, en fleiri telja, aö hún gefi
tilefni til aukinna viöræðna um
þessi mál milli rikja Evrópu. Aö
þvi leyti sé hún spor i'rétta átt.
Helmut Schmidt fékk viövörun frá Brésnjef.