Tíminn - 11.10.1979, Side 9
9
Fimmtudagur 11. október 1979
Ingibjörg Þorvaldsdóttir:
faraldsfæti um Austurland
minnisstæð, nóg af dýrum að i
skoða, meira að segja þribura-
kálfar, og fylgst var með hey-
verkun og fleiru, móttökur og
gestrisnin einstök.
Um kvöldið var varðeldur i
skemmtigarði bæjararins, sem
var öllum opinn, og lögðu margir
leið sina þangað.
Árla er risið úr pokum næsta
morgun, búferlaflutningar fram
undan. Skátaflokkarnir voru
keyrðir i rútum til Reyðarf jarðar,
og þaðan hófst svo ferð er reyndi
á skátana hvern og einn, svo og
allan flokkinn i heild. Það var
ganga um hina fornu alfaraleið
frá Reyðarfirði og upp á Skriðdal,
um 18 km, og áætlað að hún tæki
um 6 tima. bau báru ekki
farangur, utan nesti. Þokan er
niður fyrir miðjar hliþar, og þeim
svipar til fyrstu landnámsmanna,
þar sem þau halda af stað, hver
flokkur út af fyrir sig, og þó meö i
þeirra för er kort og áttaviti, og til
frekara öryggis eru verðir á
þremur stöðum á leiðinni, meö
labb-rabb stöðvar.
r
Starfsliðið hefur mörgu aö
sinna, fella tjöld, ganga frá svæði
og keyra upp á Skriðdal. Það fór
að birta i lofti og er við
nálguðumst Héraðið var komin
sól og hiti. Það stóð heima, að ;
þegar flutningabilar komu á
Skriðdal, sást brátt til fyrstu
skátaflokkanna. Ferðin hafði
fengið i alla staði ágætlega. Rétt i
sama mund birtist á svæðinu
elskulegur eldri bóndi frá Flögu,
hinum megin i dalnum, hann er
kominn þeirra erinda að bjóða
skátana velkomna i dalinn. Nú
Matreiöslan undirbúin.
var setst að á landnámsjörðinni
Arnhólsstööum. Hver skátaflokk-
ur fékk úthlutað svæði, og nú
hófst hið eiginlega tjaldbúðalif,
þar sem hver flokkur sá algjör-
lega um sig, og var nú byggt og
borið, brasað og masað og
margar skemmtilegar hug-
myndir komu i ljós. Er ekki að
orðlengja það, en að nokkrum
stundum liðnum var þar risir; fal-
'leg tjaídborg með öllu tilheyr-
andi.
Það var viðsýnt og fagurt að
lita yfir Skriðdalinn og Múlakoll-
urinn stendur vörð þegar þreytt-
ir, en ánægðir, ferðalangar
leggjast til hvildar.
Næsti dagur er notaður til alls
konar skátastarfa, tjaldbúða-
starfa, t.d. turnbygginga, flug-
drekagerðar, ratleikja, áfanga-
verkefna o.s.frv. Einnig
heimsóttu flokkarnir marga
sveitabæi.
Laugardagur rann upp
sólbjartur og fagur. Nóg var að
starfa, þvi nú átti að opna svæöið
almenningi. Settar voru upp sýn-
ingará verkefnum ársins „skáta-
lif er þjóðlif”, margar vel unnar
og athyglisverðar úrlausnir. Það
eru þó nokkuð margir, bæði úr
nágrenninu og lengra að komnir,
sem skoða svæðið og eru svo meö
á varöeldi, sem alltaf er stórt
atriöi á öllum skátamótum. Þar
gekk fram hreppstjóri þeirra
Skátar hlýöa á boöskap dagsins.
Skriðdælinga og þakkaði skátum
komuna i dalinn.
Lokadagur, sunnudagurinn,
var tekinn snemma. Nú var aö
búast til heimferðar, ganga frá
farangri og svæði, allt á að vera
sem ósnert er frá er horfið, og
með góðri stjórn hefst það. Siðan
var ekið i Hallormsstaðaskóg,
þar sem við áttum ennþá nokkrar
stundir saman, með göngu um
skóginn og endaði með helgi-
stund. Siðan var haldið til Egils-
staöa og hringnum þar með lokið.
Mótinu var slitiö á sama stað og
lagt var upp frá fyrir viku.
Við vorum viðsvegar af land-
inu, en áttum hér saman dásam-
lega daga, fulla af vinnu og leik,
allt hafði gengið slysalaust og
tekist stórvel. Bæði hátt og i hljóði
strengdum viö þess heit að hittast
á landsmóti skáta viö Akureyri
sumariö ’81.
Skátahreyfingin á Islandi á
örugglega eftir aö njóta góðs af
þessu móti, og þá þjóðin lika um
leið, þvi „skátalif er þjóölif”.
Þeim félögum, sem skipulögðu og
stjórnuðu mótinu, tókst með
ágætum, ómæld vinna var lögð
fram af fúsum vilja, uppskeran á
eftir að koma i ljós á næstu árum.
Asbúar, Nesbúar og allir aðrir
Austfirðingar, við þökkum frá-
bærar móttökur.
í öllum lengdum
Þakjárnið fæst í öllum lengdum upp að
10 metrum. Einnig í „standard" lengdum frá
6-13 fet. Höfum einnig fyrirliggjandi:
KJÖLJÁRN ÞAKPAPPA
RENNUBÖND ÞAKSAUM
B.B. fyrir þá sem byggja
BYGGINGAVÖRUR HE
Suðurlandsbraut 4.
Sími 33331. (H. Ben-húsið).
KAUPIÐ TÍMANN
AUKIN PJONUSTA
Hjá okkur er staddur Ing. Otto Beichhardt
ráðgjafi frá verksmiðjunum og mun hann gefa
Wartburg eigendum góð ráð i meðferð bilsins.
Komdu með bilinn að Varahlutahúsinu við
Bauðagerði og þú færð þér að kostnaðarlausu
skoðun, góð ráð og umsögn um bílinn.
I
TRABANT/WARTBURG UMBOÐÍÐ
Vonarlandi v/Sogaveg - Simar 33560 ■ 37710 -