Tíminn - 09.12.1979, Blaðsíða 12
Sunnudagur 9. desember 1979
W
Fjölskylduheimsókn i Walla Walia fangelsinu I Washington.
Bandarísk fangelsi
Endurhæfíngar-
stöðvar
eða leikskólar?
í sumar tók franski dómsmálaráðherrann Alain
Peyrefitte sér ferð á hendur til Bandaríkjanna, þar sem
hann heimsótti fangelsi og fræddist um refsikerfið.
Markmiðið var að notfæra sér reynslu Bandaríkja-
manna í þessum efnum, ef hún væri þess virði. Fangelsi
í Bandaríkjunum og í Frakklandi eru ólík að f lestu leyti.
og hafa Frakkar lítið stefnt í frjálsræðisátt. Hins vegar
hefur frjálsræðið í bandarískum fangelsum ekki upp-
skorið þann ávöxt, sem til var ætlast. — I þessari grein
verður fyrst rætt um Walla Walla fangelsið í Washing-
ton, en innan þess f angelsis ríkir meira f relsi en í nokkru
öðru fangelsi í heiminum, og síðan er almennt spjall við
Peyrefitte um ferð hans. Niðurstöður Peyrefitte eru
m.a. þær, að dómsúrskurði um lengd fangavistar skuli
fullnægt án undantekninga og afnema eigi tilslakanir í
þeim efnum. Góð hegðun í fangelsi eigi ekki að stytta
fangavist.
Alain Peyrefitte, dómsmálarábherra Frakka rœöir hér viö fanga f
Bandarikjunum. Ekki er nú alveg vist, aö hann heföi þann háttinn á I
heimalandi sinu.
Kraftajötnar I Walla Walla fangelsinu. Fangaveröir eru sagöir f nokk-
urri hættu vegna yflrgangs fanganna.
Walla Walla
fangelsið tilraun
Walla Walla fangelsiö i
Washington hefur aö geyma 1400
hættulega glæpamenn. Þetta
fangelsi var stofnaö áriö 1886, en
hefur smám saman veriö breytt i
tilraunaskyni I mikla frjálsræöis-
átt. Innan veggja þess er ekki
lengur skylda aö starfa aö nokkr-
um hlut, kynmök eru leyfö og
hvatt er til iþróttaiökana. Stjórn-
un fangelsisins er „lýöræöisleg”
og i fangaráöi sitja 11 fangar.
„Fangarnir eru hinir raunveru-
legu húsbændur hér innan stofn-
unarinnar” segir fangelsisstjór-
inn James Spaiding. „Viö eyöum
öllum okkar tima I samningaum-
leitanir viö þessa háu herra. Hvaö
viövfkur andlegum framförum
eöa iörun vegna glæpa, þá er
ekkert slikt merkjanlegt.”
Enda þótt forseti fangaráösins
eigi aö vera fulltrúi fanganna
gagnvart stjórn fangelsisins, þá
er hann i raun valdalaus. Hin
raunverulegu völd eru I höndum
klúbba eöa klika. Valdamesti
klúbburinn er sá, sem lifstiöar-
fangar hafa myndaö. Höfuö þess
félagsskapar, Kenny Actua, 26
ára gamall, stjórnar eiturlyfja-
dreifingunni, vændinu og er yfir-
vald i fjármálum. Hann getur
jafnvel látiö elta menn uppi og
drepa þá. En þar sem sannanir
liggja ekki á lausu, sleppur hann
alltaf viö dóm. — Annar valda-
mikill félagsskapur er klúbbur
„mótorhjóladjöfla”, en þeir þeys-
ast um á tryllitækjum hrópandi
slagorö Hitlers. „Þetta endar
meö byltingu”, segir fangelsis-
stjórinn. „Fangaveröirnir eru
hræddir um lif sitt, og einn þeirra
var drepinn i júni sl.”
Þykjast
ekkert sjá
Astarlíf er frjálst á Walla
Walla. Auövelt er fyrir fangana
aö stofna til ástarsambands og
flytja saman. 1 litla „ástarhreiör-
inu”, sem skreytt er ljósmyndum
og útbúiö öllum helstu þægindum,
svo sem sjónvarpi og dálitlu af
bókum, eru tvö rúm. Annaö
rúmanna er vel faliö bak viö tjöld,
svo aö enga aöför sé hægt aö gera
aö einkalifi. Þrátt fyrir þetta
frelsi, kemur oft fyrir, aö
nauöganir eiga sér staö i biói
fangelsisins, — kynvillingarnir
geta ekki fullnægt öllum.
Þeir, sem aöeins geta elskaö
konur, geta fengiö heimsóknir og
fara þær fram I stórum sal.
Návist barna skiptir ekki máli og
veröirnir þykjast ekkert sjá.
Koma flestar konurnar i opnum
kjólum og viöum til þess aö
minna beri á aöförum
elskhugans. Aö heimsóknar-
timanum loknum er gerö leit á
föngunum aö eiturlyfjum, en
aldrei tekst aö koma I veg fyrir
smygliö. Marijúhana, kókain og
heróin eru seld dýrum dómum
innan fangelsisins, er veröiö allt
aö fimmtánfalt hærra þar en utan
dyra.
Tvisvar I viku fá
mótorhjóla”djöflarnir” aö reyna
tryllitæki sin á sérstökum velli.
Forseti félagsskaparins Bobby
Tsow segir aö þeir félagarnir séu
brjálæöingar, sem þori aö
framkvæma óliklegustu hluti.
„Viö komum i þennan heim til
þess aö gera hann aö helviti”.
Fangelsin
ríknannlega
búin
Franski dómsmálaráöherran
Alain Peyrefitte heimsótti nokkur
fangelsi i San Francisco,
Sacramento, Los Angeles,
Chicago og New York. Upplýs-
ingar um Walla Walla fékk hann
eftir öörum leiöum. Þaö sem
stakk Peyrefitte I augun var hve
amerisk fangelsi væru rikmann-
lega búinn miöaö viö hin frönsku.
Taldi hann Bandarikjamenn
veita miklu fjármagni i þessar
stofnanir. Fangar þyrftu ekki
einu sinni aö ganga upp stiga, þar
sem lyftur og rúllustigar væru
alls staöar fyrir. Hreyfingu
fengju fangarnir I fjölbreyttum
Iþróttasölum og jafnvel væri
iþróttaaöstööu aö finna á þökum
fangelsanna. Aftur á móti væru
fangelsisveröir færri aö meöaltali
I Bandarikjunum en gerist i
Frakklandi. Annaö áberandi
atriöi væri umfang kynvillu-
vandamálanna. Sérstök svæöi
væru fyrir karlmenn, önnur fyrir
„konur” og svo enn önnur fyrir
þá, sem væru hvort tveggja.
Peyrefitte dáöist mjög aö
öryggismálum i bandariskum
fangelsum, — nærri óhugsandi
væri fyrir fanga aö flýja. Peyre-
fitte er minnugur þess, þegar
Mesrine, óvinur lýöveldisins
númer eitt, sem franska
Þessi hefur veriö svo óheppin aö halda framhjá og hefur þvl þurft aö
þola misþyrmingar af hálfu sambýlismanns.