Tíminn - 03.01.1980, Page 5
Fimmtudagur 3. janúar 1980
5
Vegna þrengsla I áramótablaði Timans féllu út tvö viðtöl við þá Einar Glslason forstöðumann Flla-
delfíusafnaðarins og Einar Ólafsson formann SFR um minnisverðustu atburði siðasta árs. Eru hlutað-
eigendur beðnir velvirðingar á, en viðtölin fara hér á eftir.
Einar Olafsson formaður SFR:
Glæsilegur sigur Framsókn-
arflokksins minnistæðastur”
„Margir atburðir koma I hug-
ann, af innlendum og erlendum
toga” sagði Einar ólafsson for-
maður Starfsmannafélags rikis-
stofnana. „Athugum fyrst inn-
lenda sviðið.
A slðastliðnum vetri gerði for-
ysta BSRB samkomulag við fyrr-
verandi rikisstjórn um bætta
réttarstöðu opinberra starfs-
manna. Trilnaðarmenn og for-
ystumenn félaga voru á einu máli
um, að þarna væri stigið jákvætt
spor. Það þótti ekki mikil fórn að
láta af hendi 3% áfangahækkunar
gegnstyttinguá samningstima og
meira jafnrétti við aðra I samn-
ingsréttar- og réttindamálum.
Félagsmenn i BSRB kolfelldu
hins vegar þetta samkomulag I
allsherjaratkvæðagreiðslu.
Félagsmenn fengu sin 3% og
þaðfengu einnigaðrirlaunþegar i
kjölfarið og þessi 3% launahækk-
un gekk yfir þjóðfélagið og varð
að engu. Að minum dómi varð
opinberum starfsmönnum þarna
á I messunni, — hrekkjalómurinn
„verðbólga” brenglaöi félagslega
sýn hins almenna launamanns.
En það getur fleirum orðið á en
opinberum starfsmönnum. Fleiri
geta vanmetið stöðu sína og oröið
leiksoppar annarlegra viðhorfa.
Þar á ég við raunasögu Alþýðu-
flokksins eftir hinn stórkostlega
sigur þeirra I kosningunum ’78,
misheppnaða þátttöku þeirra i
vinstri stjórninni og frumkvæði
þeirra að eigin óförum með
Einar Gíslason,
forstöðumaður
Ffladelfíu
r
„Osk mín, að
veldi áfengis-
ins megi
minnka”
Fyrsti mars 1979 er mér
minnistæöastur, sagði Einar
Glslason forstöðumaður Fila-
delfíusafnaðarins, er við ræddum
við hann. „1. mars 1979 fórst vél-
báturinn Ver frá Vestmannaeyj-
um og fjórir ungir menn drukkn-
uðumeð honum. Ég var sjálfur á
sjó þennan dag, farþegi á
Herjólfi, og þegar fréttin barst
um þetta slys var ég enn minntur
á ægivald sjávar og vanmátt
mannanna, þrátt fyrir góðskip og
vel útbúin, þvi að það var Ver.”
„Ósk mln gagnvart Islensku
þjóðinni á árinu 1980 er númer
eitt, að veldi áfengisins megi
minnka. Hér er einn bölvaldur
þjóðarinnar er tekur I skatt svo
milljörðum skiptir. Þess vegna
höfum við grátandi börn, særð
móðurhjörtu d| fangelsi fúll af
ungum mönnum.
Lausn vandamála þjóöarinnar
tel ég kristilega vakningu,
byggða á oröum ritningarinnar,
fyrir alla Islendinga. Og ég vil
vitna IJeremlas spámann, þar
sem hann segir: „ó, land, land,
land, heyr orð Drottins”.
stjórnarslítum, þingrofi og kosn-
ingum.
Annars er hinn glæsilegi sigur
Framsóknarflokksins I síðustu
kosningum mér minnistæðastur
atburða af innlendum vettvangi á
siöasta ári.
Af erlendum toga langar mig til
að benda á furðulega þversögn I
samtíðarmanninum. Stórveldin
meðallarsínarhelsprengjur ráða
þegar allt kemur tilalls ekki öDu i
heiminum. Það sýnir sendiráðs-
takan I Iran. Fámennir hópar,
stúdentar, héldu heilu stórveldi I
heljargreipum með þvi að taka
bandariska sendiráðið i
Teheran herskildi og halda
starfsfólki þar I gíslingu. Jafnvel
stjórnvöld heima fyrir virðast
engu ráða. Þetta færir okkur
heim sanninn um það að vald
rlkja, þótt stór séu, eru þegar öllu
er á botninn hvolft, takmarkað.
Þaðer útaf fyrirsig gott. En þetta
sýnir okkur einnig að öfgahópar
geta hvar sem er tekið völdin i
sinar hendur. Ekkert fær hamið
hið dýrslega eðli mannsins. Smá-
hópar I krafti vopna geta orðið
hættulegir mannlifi i siðblindu
sinni.
Þótt langsótt sé sú samlíking,
langar mig tilað setja hana fram.
1 þjóðfélagi okkar eru það smá-
hóparnir sem setja stærstu strik-
in i' ráöagerðir stjórnvalda. Gera
oft á tiðum i krafti aðstöðu sinnar
að engu áætlanir þeirra og raska
þeirri samstöðu sem þau hafa
náð við stærstu samtök launa-
fólks. Til þessa má að stórum
hluta rekja ófarir okkar i efna-
hagsmálum.
Varðandi næsta áratug vil ég
segja það.að það búa liklega eng-
ir I eins góðu landi og við tslend-
ingar og liklega eiga engir eins
góðar og jafnævarandi uppsprett-
ur auðs. En það er vandi að fara
með þessi gæði og það hefur okk-
ur ekki tekist sem skyldi. Við
verðum þvl ekki verkefnalaus á
næsta áratug. Við rekum alltof
stóran fiskiflota verslunin er allt-
of mikið bákn og landbúnaðurinn
stenst ekki kröfur timans.
Þessi atriði og mörg önnur
þurfum við að færa til betri veg-
ar, ef okkur á að takast að jafna
hér lifskjörin og byggja hér þjóð-
félag sem stenst samanburð viö
það sem gerist með nágrönnum
okkar.
Um þessi áramót búa 2000 Is-
lendingar I Sviþjóð. Hvað eigum
við marga borgara I öðrum rikj-
um? Sumir eru að visu við nám,
en aUtof margir hafa flutst út i
leit að betri lifsafkomu. Þennan
fólksflótta verðum við að stööva.
Það lifir engin móðir á þvi að
flytja út börnin sin. Til þess að
stöðva þennan flótta verðum við
að jafna kjörin og bæta þau. Það
hlýtur að verða forgangsverkefni
næsta áratugar. Hvernig til tekst
mun skipta sköpum fyrir Islensku
þjóðina.
Félagsmenn
Dagsbrúnar
sem breytt hafa um aðsetur á árinu 1979
eru beðnir að hafa samband við skrifstof-
una og tilkynna núverandi heimilisfang
Lindargötu 9,
Afgreiðslustörf
Við óskum að ráða strax eða sem fyrst af-
greiðslumann i verzlun okkar að Suður-
landsbraut 32.
Umsækjendur un starfið þurfa að hafa
nokkra kunnáttu i ensku, ökupróf og helst
nokkra þekkingu og áhuga á vélum.
Nánari upplýsingar um starfið svo og
launakjör veitir framkvæmdastjórinn.
A/
Suðurlandsbraut, 32, Reykjavik simi 86500.
Utboð
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar ósk-
ar eftir tilboðum i framleiðslu forsteyptra
brunna fyrir dreifikerfi i Borgarnesi.
Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 10.
janúar 1980 kl. 11 f.h. á Verkfræðistofu
VST h.f. Berugötu 12, Borgarnesi. Útboðs-
gögn fást afhent á Verkfræðistofunni
Berugötu 12, Borgarnesi og Ármúla 4,
Reykjavik gegn 30 þús. kr. skilatrygg-
ingu.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN H.F.
Armúli 4, Reykjavik, simi 8-44-99
TiJ ii M ijplawwMwia
■ ei.fi'inthVy'ju
Vakin er athygli á núgildandi reglum um lánskjör við innlánsstofn-
anir, sem meðal annars fela í sér eftirfarandi:
Ný lán: A. Vísitölubundin
Lán verðtryggð með lánskjaravísitölu bera lága vexti. Verðbætur
greiðast hverju sinni aðeins á gjaldfallinn hluta láns.
B. Tengd veróbótaþætti
Verðbótaþáttur vaxta leggst við höfuðstól láns á gjalddaga og
greiðist eins og hann. Á þetta viö um vaxtaaukalán og skuldabréfalán
og hliðstæð greióslukjör annarra lána.
Eldri lán:
Breyta má skilmálum eldri lána og taka upp nýju kjörin með endur-
skoðun lánssamnings.
Kynnið ykkur nánar þær reglur, sem gilda um lánskjör viö
innlánsstofnanir. Hafió samband við banka ykkar eöa sparisjóð.
Reykjavík, des. 1979
Samvinnunefnd banka og sparisjóóa