Tíminn - 23.01.1980, Page 7

Tíminn - 23.01.1980, Page 7
MiOvikudagur 23. janúar 1980 7 Hvar Davíð keypti ölið Davið Scheving Thorsteinsson gerir kröfu til þess að mega kaupa i frihöfninni i Keflavik og hafa heim með sér bjór eins og aðrir þeir sem það hafa fengið. Þetta hefur vakið nokkurt umtal ogleiðirhugimanna aðþvihvað hér er um að ræða. Það er gott að Davið hefur komið hreyfingu á þetta mál. Eðlilegt er að hann vilji hafa sama rétt og aðrir. Það á hann að hafa. En það þýðir alls ekki að honum sé frjálst að kaupa áfengan bjór og hafa heim með sér. Hinir hafa nefnilega engan rétt til þessað i'slenskum lögum. Afengislögin banna sli'kt fortakslaust. Engin ákvæði i lögum landsins heimila það. Hvernig stendur þá á þvi að þetta er leyft? Einhverjir embættismenn hafa sett ákvæði um það i sérstaka reglugerð, — tollskrárreglugerð, — Þó mun það hvergi dregið I efa að alþingi eitt eigi að hafa lög- gjafarvaldið. Eða hvar stendur Nú er vitað hvar Davið keypti ölið en ekki er sopið kálið þótt I ausuna sé komið. það skrifað að einhverjir embættismenn geti með reglu- gerð ógilt eða afnumið l<fe? Reglugerðir eru til að túlka framkvæmd laga, en ekki til að ómerkja þau. Oft er sagt i lög- um að „nánari ákvæði” skuli sett i reglugerð en aldrei að „önnur” eða „andstæð” ákvæöi skuli koma þar. Ráðningarkj ör Það er hvimleitt að fólk sé ráðið með þeim kjörum að hluti af kaupi þesssé ódýrt tóbak eða áfengi, sem þvi er stranglega bannað að selja öðrum. Heiðar- legra væri að afnema þetta en bæta heldur við kaupið þvi sem svarar til þess fjár sem Afengis og tóbaksverslun rikisins hefur fyrir að selja þessar vörur. Stéttarfélögin segja raunar að þessi „réttindi” hafi aldrei verið nokkurs metin til fjár. ömögulegt er að finna nokkur rök að gagni fyrir þvi að þeir» Halldór Krístjánsson: sem íerðast landa milli eigi rétt á þessum óþarfa hér heima á lægra veröi en þeir sem heima sitja, Áhugamál i öðrum löndum Tollfrjáls innflutningur áfengis meö svipuðum hætti og hér hefur átt sér stað hefur viðgengist viðar. Okkur er rétt að vita að norska áfengislaga- nefndin leggur til að þær reglur séu teknar til endurskoðunar. Þessi nefnd var einskonar sam- starfsnefnd ráðuneytanna i Osló. HUn var ekki einhuga um hvernig að því skyldi staðið að binda enda á þessar undanþág- ur. Þvi varð ofan á að ræða skyldi málið þjóða i milli, m.a. i norðurlandaráði en fram kom i nefndinni talsverður áhugi fyrir afnámi þessa tollfrelsis og þeirri skoðun var litt eöa ekki mótmælt. Vel megum við muna þegar hreyfing er nU komin á málið aö úti i þeim stóra heimi berjast menn fyrir þvi að losna við þessar undanþágur. einu sinni þeir fullorðnu hvað þá heldur óþroskaðir unglingar færir um að gera sér hina minnstu raunmynd af öllum þeim ófreskjum, sem eftir er boðið aö lifa. Eru unglingarnir sviknirogrændir? Jens i Kaldalóni: Klækir ríkisvaldsins Stelur rikisvaldið af unglingunum? Það er óhætt að segja það, að þauorðeruí tima töluð, sem við skulum halda að séu á rökum reist, sem I innrammaðri blaöa- grein birtust á baksiðu Timans eftir HEI laugardaginn 5. jan. s.l. Hefi ég fyrir nokkrum árum um þetta sama efni skrifað blaðagrein, þar sem ég þá kallaði þetta opinbert rán, — þá er upp komst eftir nokkur ár, aö mörg hundruð milljónir voru ógreiddar unglingum þess tíma af svokallaðri verðtryggingu sparifjár, — sem þó allir vita, að mikið af þvi fé hefur aldrei komist til skila til réttra aðila, enda ótaldar fjárhæöir i þessu kerfi öllu, sem sneiðst hafa Ut af réttum brautum. Siðanhafa þessi mál aö mestu legið I þagnargildi á opinberum vettvangi og hefi ég satt að segja trúað þvi að svo hefði neglan þétt verið i hripið troðin, að ekki ætti önhur eins ósköp eftir að birtast i lesefni blaða, sem óneitanlega kemur fram I ofangreindri Tímagrein. HEI telur kannski nokkuð stórt upp i sig tekið, aö tala um að stela i þessu sambandi, en hvort um stærri áherslu er að ræða, rán eða að stela, verður slik starfsemi sem þessi engan veginn flokkuö undir ómyndugri nafngift en samviskulaust arö- rán ef svo reynist rétt sem ti- undaö er, með fullum vilja og vitund þeirra sem meö þessi mál fara, án nokkurrar skýring- ar, athugasemda eöa leiðbein- ingatil þeirra, sem hlut eiga að máli. Eindæma roðflettingar Það sem HEI upplýsir og staöfestir i þessari grein sinni, er áreiðanlega ekki út I bláinn enda myndi enginn maður fara meðjafnalvarlegt mál og þetta, ef ekki væru staðfestar for- sendur fyrir. Vil ég leyfa mér að taka hér smásýnishorn sem áhersluorð Ur nefndri grein: „Þaðer kannski stórt upp I sig tekið að tala um að stela, en er það nokkuð annaö en þjófnaður aö taka meö löggjöf 15% af öllum launum fólks á aldrinum 16-26 ára undir þvi yfirskini að allt sé verötryggt og verið sé að kenna þessu fólki aö spara, en skila þvi svo aftur nær verðlausum krón- um, oft með nánast engum vöxtum. Þaö er sannarlega hörmulegt að rikisvaldið skuli halda þessum ljóta leik áfram árum og áratugum saman”. Ég vil heldur telja það gustukaverk, og þakka þeim, er draga fram i dagsljósiö sllkar eindæma roðflettingar, sem hér eiga sér stað á alsaklausum ungmennum, sem þjóðfélagið sér sig knúið til að taka af fjár- muni sem sparifé og geyma þeim til handa, þar til þeir hafa betur i'grundað framtið sina og fararheill, en sem þó ekki eru betur né tryggara ávaxtaöir þeim til handa af okkar visu landsfeörum en svo er upplýst, sem I nefndri grein stendur. Mér er um það kunnugt, aö margt ungmennið hefur hér úr góðum sjóði haft að spila, þá er alvara lífsins hefur aö fótum þeirra lagst i myndun heimilis og húsakaupa, enda um nokk- urn skatt að ræða sem er 15% af tiu ára brúttót^kjum og af raun- særrihugsun var sú ákvörðun i upphafi tekin i þessu efni. En gæta mættu þeir þess vel sem forsjá unglinganna taka að sér, að meta ekki vangetu þeirra og vanmátt til aö bera hönd fyrir höfuösér á þann veg, að af þeim dragi stórar fjárfúlgur af þess- um fjármunum þeirra og I skjóli þess, að engan veginn er þeim unglingunum sjálfum, á nokk- urn veg færtað kafa svo f þetta margslungna umsýslukerfi, að nokkra grein geti gert sér á þvi krossgátuflóði sem allar pappi'rshillur fyllast af i hönd- um þeirra kerfiskarla sem hvern sinn fingur teygja svo út I þjóöarlikamann að þar eru ekki Væri það furða? Hér verða þeir að treysta á drenglund og heiðarleika hins alvalda lifsins herra. — Og væri það furða þótt beiskjukenndar hugrenningar liðuðust frá hug- skoti litilmagnans Ut i slikar aö- farir, sem lýst er i greinarkorni HEI? Mér er nær að halda að margur hafi veriö látinn „inn” fyrir minna, en að upplýsa slik myrkraverk, sem hér nú sjá dagsins ljós. En hver gerði lögin, reglu- gerðirnar og visdóminn allan, sem allt þetta byggist á? Það er eins og mig minni, aö innan veggja okkar ástkæra og hátt- virta þinghúss, hafi nokkrir visnasveinar, sem þjóðin trúöi til allra góðra verka, á sinum tima eitthvaö um þetta fjallaö, hvort sem þeir nú i fljótheitum einhverjum öryggisatriöum gleymt hafa, sem þá e.t.v. gæti orðiö til eftirbreytni ungling- anna sjálfra, þá út I lifiö væru komnir, eöa i áttina aö ein- hverju viö þaö aö kreista af lambs''eröinu vöggubarnsins til eins ri'kisbankans smáskatt, svo hægar ætti hannmeðað lána þvi hann aftur, er þaö stækkaði en þó meö fullum höfuðstóls- og vaxtagreiðslum. Er þetta svona viðar? En skyldi ekki mega rekja söguna til annarra þátta I sögu okkar ri'kisforsjár? Kæmi mér ekki á óvart þótt einhver krónan hefði þar undir koddann lagst i þeim framkvæmdaþættýsem þó skilvlslega fyrir var lagt að vel skyldi geymast til sumar- gleðinnar, að þá væri sá sjóöur- inn gulltryggöur sem heystabbi á haröindavori, en einhvernveg- inn þykistéghafaað þvi komist, I snertiiígu viö suma menn frá fyrriárum,aöþarhafiekki allt- aí veriö svo fast strokin flikin, aö ekki mætti á henni merkja krumpur og brot þá til.átti aö taka sem Iklæöi til lystistmda I sumarfrlinu og fagnaðar frels- inu. En hér er um hina svoköll- uðu orlofsfjármuni að ræða.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.