Tíminn - 26.01.1980, Qupperneq 1
Stðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Steingrímur Hermannsson:
„Nánast ósvífni”
Framsóknarmenn reiðubúnir að
vinna að meirihlutastjórn
„Þessar nýju tillögur Alþýöu-
flokksins uröu mér mikið undr-
unarefni”, sagði Steingrimur
Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, i viðtali við
blaðið i gær um „umræðugrund-
völl” þann, sem Benedikt Grön-
dal lagði fram i stjórnarmynd-
unarviðræðunum.
„Og ég verö aö taka undir þaö
sem fjölmargir flokksmenn i
Fr amsókna rf lokknum hafa
sagt, aö þessar tillögur eru nán-
ast ósvifni eins og málin standa
og eftir þaö sem á undan er
gengiö”, sagði Steingrimur.
„Við framsóknarmenn gát-
um ekki annað en hafnaö þess-
um tillögum sem umræðu-
grundvelli”, sagði hann. „Fyrri
tillögur Alþýðuflokksins, frá þvi
i desember, voru i rauninni
málefnalega mjög nálægt okkar
hugmyndum, og aðilar i forystu
Alþýðuflokksins höfðu fullviss-
aðokkur um að þeirhefðu góðan
og mikinn vilja til þess að ganga
til samkomulags. Hið sama
skildist okkur á fyrsta fundinum
sem haldinn var undir forystu
Benedikts Gröndal, áöur en
hann lagði þessar nýju tillögur
fram.
í þessum tillögum Alþýðu-
flokksins er gengið svo langt i
ýmsum málaflokkum, t.d. land-
búnaðarmálunum, að það væri
ekki til neins að leggja fram ein-
stakar breytingartillögur. Sjálf-
ur grundvöllurinn yrði að ger-
breytast ef von ætti að vera um
samkomulagþarsem við ættum
hlut að máli.”
Blaðið spurði Steingrim hvers
nú væri að vænta i stjórnar-
okkur það ljóst”, sagði Stein-
grimur, ,,að ábyrgð fylgir
kosningasigri okkar, og við ætl-
um ekki að vikjast undan henni.
Við erum reiðubúnir til þess að
vinna að öðru samkomulagi um
meirihlutastjórn, ef þess er þá
kostur.
Við erum tilbúnir með tillögur
sem fylgja i grundvallaratrið-
um kjarnanum i okkar upphaf-
legu tillögum, en taka mikið til-
littil þesssem fram hefur kom-
ið frá öðrum flokkum i viðræð-
unum.”
Steingrímur Hermannsson.
myndunarviðræöunum. Hann
sagði:
„Við höfum hingaö tfl lagt alla
áherslu á myndun vinstristjórn-
ar, og viö höfum gert allt sem
unnt hefur veriö til þess aö
koma henni á fót.
Viðviljum hins vegar aö sjálf-
sögöu ekki berja höföinu viö
steininn, eftir að Alþýöubanda-
lagiö lokaöi fyrst fyrir þennan
möguleika og Alþýöuflokkurinn
síöan.
Við framsóknarmenn gerum
SkUar Benedikt Gröndal umboðinu í dag?
Ræður Lúðvík
einn aístöðu
Alþýðubanda-
lagsins?
HEI— Sannarlega blæs ekki byr-
lega um stjórnarmyndunartil-
raunir Benedikts Gröndal. Er
hann boðaði fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins á sinn fund, sagði
hann Lúðvik einn hafa komið og
hafnað viðræðugrundvellinum án
þessaö hafa einu sinni fyrir þvi
að lesa tillögurnar. Það hefði
komið greinilega iljós hjá Lúðvik
að Alþýðubandalagið væri ekki
tilbúið til að taka þátt i fjögurra
flokka stjórn. Benedikt færði þá I
tal möguleika á myndun Nýsköp-
unarstjórnar, en sagði Lúðvik
hafa hafnað þeim möguleika á
stundinni og hvorki þurft til þess
umhugsunartima né samráð viö
samflokksmenn sina. TUlkaði
Benedikt þetta sem að Aiþýðu-
bandalagið hefði á vissan hátt
dregið sig Ut úr islenskri pólitlk
nú i miðri stjórnarkreppunni.
Eftir að fara yfir viðræðu-
grundvöll Benedikts á löngum
fundi þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar komst Fram-
sóknarflokkurinn að þeirri niður-
stöðu að hann gæti ekki tekiö þátt
i stjórnarmyndunarviðræðum á
þeim grundvelli. En samt tjáði
Framsóknarflokkurinn sig reiðu-
búinn tíl að leggja fram endur-
skoðaðar tillögur um málefna-
grundvöll.
Benedikt sagðist að sjálfsögöu
ekki bíöa eftir heildartillögum frá
öðrum flokki. þegar honum hefði
verið falin stjórnarmyndun. Þá
væri eðlilegra að hann skilaði
umboði sínu og aðrir tækju við.
Aðspuröur sagöi hann enga von
um viðreisnarstjórn, þar sem fyr-
ir henni væri ekki þingmeiri-
hluti. Hann ætlaði þó fyrir kur-
teisissakir að bíða eftir svari
Sjálfstæðisflokksins, eftír þing-
flokksfund i gær. Þingfiokkur Al-
þýðuflokksins mun siðan halda
þingflokksfund fyrirhádegi I dag
og eftir þann fund sagöi Benedikt
það liggja ljóst fyrir hvað gera
bæri. Hann bjóst við að ganga á
fund forseta siðdegis i dag og
skýra honum þá frá gangi mála.
Sennilega þýðir það að Benedikt
muni skila sinu umboði I dag og
þá er enn einu sinni komið að for-
setanum að ákveða næsta skref.
í ljósi þessað framsóknarmenn
segja þennan nýja grundvöll
Benedikts miklu fjarlægari
þeirra sjónarmiðum þeirra en
hina ómenguðu stefnu Alþýöu-
flokksins og að Alþýðubandalagið
hefur greinilega ekki hrifist af
honum heldur, var Benedikt
spurður hvaða flokk kratar hefðu
ætlað að nálgast með tillögum
sinum á þessum grundvelli. Við
þvi fengust engin svör sem henda
mátti reiður á.
Þingflokkur og framkvæmdastjóm:
Framsóknar-
menn eru
reiðubúnir
Hinar nýju tillögur Alþýðuflokksins óhæfar
Siðastliðinn fimmtudag var
haldinn sameiginlegur fundur i
þingflokki og framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokksins.
Fundurinn hófst kl. 16, en
fundarhlé var gefið kl. 18 vegna
þingfunda. Aftur hófst fundur-
inn kl. 9 um kvöldið og stóð fram
um miðnætti.
A fundinum var rætt um
„umræðugrundvöll” þann i
stjórnarmyndunarviðræðunum
sem Benedikt Gröndal hafði
lagt fram af hálfu Alþýðuflokks-
ins fyrr um daginn, og einnig
var rætt almennt um stöðuna i
stjórnmálunum og þær horfur
sem upp eru komnar i viðræðum
flokkanna um stjórnarmyndun.
Við lok fundarins bar formað-
ur flokksins, Steingrimur Her-
mannsson, fram eftirgreinda
tillögu til ályktunar og var hún
samþykkt samhljóða með öllum
atkvæðum.
,,Sameiginlegur
fundur þingflokks og.
framkvæmdastjórnar
Framsóknarflokksins
ályktar að tillögur þær,
sem Alþýðuflokkurinn
hefur nú lagt fram, geti
ekki orðið grundvöllur
að myndun rikis-
stjórnar með þátttöku
Framsóknarflokksins.
Hins vegar er
Framsóknarflokkurinn
reiðubúinn að leggja
fram endurskoðaðar
tillögur um málefna-
samning fyrir meiri-
hlutastjórn”.
FRI — Fokkerar þeir er Finnair fær frá Kóreu lentu á Reykjavikurflugvelli f gærkvöldi. Þeir lögðu upp
frá Seoul þann 12. jan. s.l. og höfðu þvl verið tæplega tvær vikur á leiðinni. Arni Sigurðsson flugmaður
sagði að bótt ferðin hefði veriö löng þá hefði allt gengið með ágætum Ihenni.
Flugvelunum tveim verður breytt hérlendis áður en Finnair fær þær. Vélarnar er Flugleiðir fær koma
hingað sennilega þann 8. feb„ n.k.
Land og
synir
í gærkvöldi var frumsýnd
kvikmyndin „Land og synir”
eftir Indriða G. Þorsteinsson
I Austurbæjarbiói. A opnunni
i dag ræðir blaðamaður okk-
ar við Jón Þórisson leik-
myndateiknara. Myndin er
af einum leikaranna, hund-
inum Týra, sem kemur viö
sögu i viðtalinu við Jón.