Tíminn - 27.01.1980, Blaðsíða 14
14
Sunnudagur 27. janúar 1980
Sunnudagur 27. janúar 1980
15
Fanny Friðriksdóttir, sem veitti saumastofu Þjóð-
leikhússins forstöðu, þar til á síðasta ári er óvenjuleg
kona heim að sækja og síung. Það er ekki langt síðan hún
skrapp til þess að skoða mannlíf ið á diskotekum borgar-
innar og líkaði vel. Það var líka i miðri viku. Franskur
uppruni hennar leynir sér ekki, brún augun og dökkt hár-
ið, en langafi hennar var á frönsku skútunni „Aurora",
sem strandaði á Meðaldalssandi undir Eyjafjöllum.
Fanny er fædd og uppalin í Eyjum, systir aflakóngsins
Binna í Gröf. Á forstofuveggjum hanga m.a. ballettskór,
sem hún fékk senda frá Bolchoi leikhúsinu í Moskvu og
málverk af drottningarskrúða Elísabetar Englands-
drottningar, sem Fanny saumaði fyrir Þjóðleikhúsið
eftir teikningu Lárusar Ingólfssonar. „Hann teiknaði
fallegustu kjólana", segir Fanny með sannfæringu i
röddinni, en málverkið er skilnaðargjöf frá Sveini þjóð-
leikhússtjóra. Þegar Fanny hætti hafði hún starfað inn-
an veggja Þ jóðleikhússins i 23 ár. En hvernig byrjaði
þetta allt?
„Maður var alltaf
að slá af verðinu ”
„Saumaskapur og sniöar léku I
höndunum á mér frá upphafi,
sagBi Fanny, þetta var bara meö-
fætt, en ég fór ekki aö vinna viö
slikt af alvöru, fyrr en maöurinn
minn dó. Dóttir min Edda vinnur
nú á saumastofunni, svo aö segja
má, aö þetta hafi gengiö i ættir.
En ástæöan fyrir þvi, aö ég sótti
um starf i Þjóöleikhúsinu, var
mest sú, aö ég fékk alls ekki nóga
peninga fyrir saumastörf min
heima. Maöur var alltaf aö slá af
veröinu fyrir vini og kunningja og
iöulega gaf ég vinnuna alveg. Ég
var að finna sniö, stytta kjóla eöa
sauma á kraga kauplaust. Þetta
gekk ekki, enda var ég meö tvö
börn á framfæri.
Nanna Magnússon var for-
stöðukona saumastofunnar þá og
haföi sér til aöstoðar tvær stúlk-
ur, en þær gátu ekki sniöiö. Hún
tók mér þvi fegins hendi, en hélt
jafnvel aö ég vildi alveg eins
sauma heima. „Elskan min,
sagöi hún, komdu niður eftir. Ég
er meö nóg af verkefnum handa
þér, sem þú getur fariö meö. En
ég útskýröi fyrir henni, aö ég vildi
einmitt komast út af heimilinu.
„Þaö er svo þröngt um okkur, en
ég verð aö troöa þér inn”. Og svo
var talaö viö þjóðleikhússtjóra
Guölaug Rósinkranz. Leiö ekki á
löngu, þar til ég var fastráöin.
Nanna hætti, þegar ég var búin
aö vinna meö henni i fimm ár og
tók ég viö saumastofunni svo til
strax. Þaö var ekki auðvelt aö fá
færar stúlkur I vinnu, og margar
var slæmt aö missa. Þar á meöal
voru Gislina Ölafsdóttir og Val-
geröur Kristinsdóttir. Þær unnu
fram á áttræöisaldur. Gislina var
handavinnukennri og hin haföi
lært aö sauma úti I Danmörku.
Þær kunnu allt.
„Kaupverð
ibúðarinnar var
rúmar 40 þúsund
krónur”
Sjálf hafði ég verið heppin meö
kennslu, en ég lærði hjá fröken
Herdisi Guömundsdóttur, þá var
ég nýkomin úr Eyjum. Ég giftist
svo manni úr Reykjavik, Agústi
Jónssyni. Hann var sjómaöur og
svo fallegur, aö allar konur sögöu
við mig: „Hvernig fórstu eigin-
lega aö ná I hann?” Og þá varð ég
aö útskýra, að hann hefði bara
dottið fyrir framan fæturna á mér
i Bankastrætinu. Viö áttum Eddu
saman. — Þegar hann var úti á
sjó, haföi ég ekkert aö gera og
dreif mig þá i hús að vinna við
saumaskap. Kaupiö var lágt. En
ég gat þó keypt teppi á ibúöina,
þegar við fluttum inn i verka-
mannabústaöina hér við Háteigs-
veg. Ég man, að viö þurftum aö
greiöa fjóröung kaupverðs út
strax og þaö voru 10 þúsund krón-
ur. Viö áttum átta þúsund, og
fannst mjög erfitt að fá lánaðar
tvö þúsund krónurnar, sem á
vantaði. Agúst dó tveimur árum
eftir aö við fluttum inn og þá höfö-
um viö veriö gift I 10 ár. Ég
kynntist auðvitað mönnum siöar,
en vildi ekki gifta mig. En ég lét
þaö eftir mér aö eignast son, A-
gúst. Hann er læröur þjónn, en
kann langbest viö sig á sjónum og
er þar.
Af hverju vildiröu ekki gifta
þig? Gat þaö ekki verið ágætt?
Mér fannst ég bundin-, ef ég gifti
mig aftur. Viö Agúst fórum alltaf
mikiö i leikhús saman, en hann
dansaöi ekki og vildi ekki lána
mig sem dömu. Ég vildi heldur
vera frjáls.
Herdis Þorvaldsdóttir sem drottningin I Hamlet. Kjóllinn hennar þarna er þaö þungur, aö
þaö þurfti tvær til þess aö koma honum á heröatré.
Fanny Friöriksdóttir á heimili slnu aö Háteigsvegi 19. Hún er listamaöur meö skærin, þarf aldrei aö búa til sniö, heldur teiknar bara beint á efnið,
I' . Jt
5*
„Huernig fórstu eigin-
lega að þuí aðnáí hann?”
sérstök kona. Hún yngdist við
hvert barn og þegar hún gat ekki
eignast fleiri, tók hún að sér tvo
dóttursyni. Sagðist alltaf vilja
hafa vöggu viö rúmstokkinn. Hý-
býlin voru ekki annað en bað-
stofa, þvottahús og litið kames.
yEftir frumsýninguna
voru röndóttar
sherryflöskur
á hverju borði’
Það hefur verið mikið aö gera á
stóru heimili?
Já, við höfðum alltaf viss verk
að vinna krakkarnir og þvoöum
t.d. þvottana frá 12 ára aldri. Fór-
um þá aldrei seinna á fætur en
fjögur á nóttunni. Þaö er kannske
þess vegna, sem við systkinin
þurftum alltaf litið að sofa seinna
meir, rétt blunduðum eins og
fuglar. Strax 14 ára fór ég i
sumarvinnu út á land og fór m.a.
með Binna bíóöur til Sandgerðis.
Þá var hann með „Gúllu” og ég
fékk þá einkunn að veitamönn-
um góðan mat og mikinn. Þá varö
ég hreykin.
Ég var á Skálum ,á Langanesi i
tvö sumur. Þaö er 'nú það eina,
sem ég hef unnið' I fiski, þótt
undarlegt megi viröast. Og svo
var ég á stórbúi i Þistilfirði hjá
systur minni, — állt áður en ég
náöi tvitugs aldri.
Er það ekki sjaldgæft að Eyja-
meyjar sleppi svo til alveg viö
fiskverkun?
Jú, en ég var alltaf aö sauma...
Ég á enn kistil fullan af fötum,
sem ég saumaði á dúkkurnar
minar. Viö vorum tvö, sem höfö-
um þessa ástriöu i Eyjum, Ingvi
Þorkelsson og ég.Þaö kom fljótt i
ljós, aö Ingvi átti ekki samleiö
með sjómönnunum, — vildi
heldur sitja viö bróderingar.
Þannig sátum viö saman löngum
stundum jafnöldrum Ingva til
mikillar skemmtunar. Ingvi fór
svo meö frænku minni til
Ameriku, fór að starfa i leikhúsi,
lék og gerði leiktjöld. Hann var
fyrsti leiksviðsstjórinn i Þjóöleik-
húsinu.
En hvernig gekk þitt starf til?
Venjulega fékk maöur
teikningarnar af öllum búningun-
um i einu. Siðan var aö fara út og
vita, hvort efnin fengust.
Búningateiknararnir voru margir
hverjir frábærir, t.d. Lárus
Ingólfsson, Magnús Pálsson og
Baltasar.
Og hvaöa stykki heldurðu aö
•hafi veitt þér einna mesta á-
nægju?
Það var tvímælalaust „Július
Sesar”, en leiktjöld og búninga i
það stykki teiknaði Magnús Páls-
son. Allir áttu að vera i röndóttu
og sauma varö rendur á efnin, áö-
ur en byrjað var að sniöa. Eftir
frumsýninguna voru röndóttar
sherryflöskur á hverju borði i
saumastofunni...
Annars fannst mér mest gaman
aö sauma peródiubúninga
(búninga frá ýmsum tlmum)
fyrir óperur. Leikararnir voru
ekki alveg sáttir við iburðinn i
óperunum og ég man að fröken
Arndis Björnsdóttir kom eitt sinn
og sagöi: „Nú er ekkert til spar-
að”. En þaö var viðburður, ef
kórinn fékk nýja kjóla, uppistað-
an var alltaf sú sama. Ef þaö
gerðist hringdu stúlkurnar I mig
ákafar og ætluöu varla að trúa
sinum eigin eyrum. Þetta voru
eins og börn fyrir jólin. Leikarar
leggja ákaflega mikið upp úr
búningunum og fyrir kemur að
þeir eru ósáttir við það, sem þeir
eiga aö klæöast. Ég man sérstak-
lega eftir Guöbjörgu Þorbjarnar-
dóttur i „Engiil horfðu heim”.
Hún var óánægð með kjólinn, en
hlaut eftirsótt verðlaun fyrir leik
sinn, þannig aö ekki kom kjóllinn
aö sök. Viö höfðum stundum á oröi
I leikhúsinu, að Valur Gislason
fengi alltaf aö ráöa sér og þaö var
rétt.
„Leikhúsfólk hér
áður var eins og ein
stór fjölskylda ”
Nú hefur þú starfaö I Þjóöleik-
húsinu nærri þvi frá upphafi.
Hafa ekki oröiö geysilega miklar
breytingar I starfseminni?
Jú, það hafa oröið miklar
breytingar, en ég veit ekki, hvort
starfsemin hefur aukist svo mjög
mikiö I sjálfu sér. Þegar Þjóöleik-
húsiö var aö byrja, starfaöi þar
meira leikhúsfólk en nú. Allir
hjálpuöust að eins og á stóru
heimili. Ef eitthvaö var i lama-
sessi á saumastofunni, gat ég sent
til sviösstjórans Guöna Bjarna-
sonar og hann sendi mér aftur
einhvern um hæl. Hárkollu-
gerðarmaöurinn var Harald
Adólfsson. Hann var einn. Nú eru
fjórar stúlkur I þessu. Það var ó-
skaplega þægilegt fyrir skap-
manneskju eins og mig að geta
látið hvina i við og við, — maður
verður nefnilega aö hafa bein i
nefinu I þessu starfi. Guðlaugur,
sem var alveg sérstakur hús-
bóndi, tók þvi alltaf af skilningi,
þó að manni þætti viö hann eða
einhvern annan. Nú er skipulagn-
ingin i algleymingi og engum
kemur neitt við annað en skirt af-
mörkuö verkefni.
„Fyrsta konan,
sem hann bauð
út i Reykjavik”
Nú ertu frekar suöræn aö upp-
lagi. Hefuröu ekki lent I mörgu
skemmtilegu um ævina?
Jú,»hvort ég hef. Ég veit nú
ekki, hvort þaö er til frásagnar I
blööum. En ég hef t.d. gaman aö
þvi að hitta nýtt-fólk og tala viö
þaö. Hér úti á stoppistöðinni
reyni ég gjarnan aö brydda upp á
samræðum meðan beöið er. Ég
myndi aldrei voga mér það I öör-
um biöskýlum, þú veist nú hvern-
ig íslendingar eru. (hlær).
Annars kom dálitið skrýtiö fyrir
mig, er ég var i eitt sinn á leiö
meö strætisvagni úr Laugarnes-
hverfinu. Þá settist við hliö mér
kornungur maöur utan af landi.
Hann sagöist ætla úr viö Háteigs-
veg og bað mig aö segja sér til.
Ég sagöi þaö auövelt, þvi aö þar
ættiégeinmitt heima. Það kom á
daginn, að hann var á leið á
tónleika i Háteigskirkju og þar
sem hann átti tvo miða, bauö
hann mér meö. Ég þáöi þaö, en
fyrst fórum viö heim og hittum
börnin min og fengum okkur kók.
Ég hef aldrei sýnst neitt fyrir
þeim og þau tóku þessu vel. Siöan
missti ég sjónar af honum.
Svo var það ekki alls fyrir
löngu, aö ég var á prufu i Þjóö-
leikhúsinu. Þá kallar til min
myndarlegur maöur, sem ég
þekkti ekki, söngvari. Hann sagð-
ist einmitt hafa veriö aö segja
fólkinu, aö ég heföi verið hans
fyrsta „date” i Reykjavik. Mér
fannst þetta sniðugt, en ég vissi
ekki einu sinni, hvað oröiö þýddi
þá.
Fanny Friðriksdóttir, sem veitti saumastofu Þjóðleikhússins
forstöðu í 19 ár er i essinu sínu í þessu viðtali
„Mamma vildi
alltaf hafa vöggu
við rúmstokkinn”
Nú ólst þú upp i stórum syst-
kinahópi og við litil efni sjálfsagt.
Hvaö geturðu sagt okkur frá þeim
tima?
Ég á ágætar minningar frá
þessum tima. Það var stórkost-
legt aö búa i Eyjum, mannlifið
margbreytilegt og samskipti
manna náin. Ég hef ævinlega
verið þakklát manninum, sem
sag’öist ekki geta fyrirgefið Eyja-
peyjunum að láta mig sleppa i
land. (Hún hlær). Foreldrar min-
ir Friörik Benónýsson og Oddný
Benediktsdóttir eignuöust 10 börn
úndir Eyjafjöllum og 10 börn úti i
Eyjum. Ég var 19. i röðinni og
man vel eftir siöustu fæðingunni
hjá mömmu. Þá lágum viö
krakkarnir á glugganum. Tólf
komust á legg og þótti það gott i
þá daga. Móðir min var alveg
Texti: FI
„Það gekk ekki alveg átaka laust fyrir sig milli okkar Balta sar I Carmen og þaö kom mér á óvart, þegar hann svo gaf
mér allar teikningarnar úr óperunni”.
Úr „Júliusi Sesar” eftir Shakespeare, t.f.v. Helgi Skúlason, Benedikt Arnason og Eyvindur Erlendsson. „Geysiiega fallegur teiknari”
segir F,anny um Magnús Pálsson, sem teiknaöi búningana.
Myndir: GE ofl.