Tíminn - 27.01.1980, Blaðsíða 21
Sunnudagur 27. janúar 1980
LSiilillL
l
21
★ ★ ★ ★ ★ Frábœr - ★ ★ ★ ★ Eiguleg -..★★★ Áhegrileg - ★ ★ Sœmileg - ★ Afleit
*
Ymsir -
Night Moves
/ K - Tel
★ ★ ★
Margir munu kannast viö hin-
ar svokölluðu K-tel plötur, en
þær hafa notiö töluverðra vin-
sæida á undanförnum tveim,
þrem árum. A plötum þessum
leiöa hin ýmsu hljómplötufyrir-
tæki saman „hesta” sina, enda
er K-tel fyrirtækiö tilkomið
vegna þessarar sam-
keppn i/samvin nu.
Á nýjustu K-tel plötunni
„Night Moves”eru20 vinsæl lög
siðustu vikna og mánaða, og
eins og nafn plötunnar gefur til
kynna þá er hiin kjörin fyrir þá
sem hrifnir eru af smákvöld-
hreyfingu. A plötunni eru lög af
öllum stæröum og gerðum og
meöal þeirra tónlistarstefna
sem bryddað er upp á eru rokk,
new wave, diskö, soul, reggae,
popp og léttur jazz. Meðal flytj-
enda eru sum stóru nöfnin i
dægurlagaheiminum s.s. Blond-
ie (Dreaming), Sister Sledge
(Lost in music), Crusaders
(Street life), Darts (Can’t get
enough of your love), Anita
Ward (Ring my bell) og Roxy
Music (Angel Eyes). Meðal
minni spámannanna, sem þó
eru ekki si'stir á þessari plötu,
eru Bill Lovelady með besta
lagiö á plötunni — reggae lagið
„Reggae for it now”, B.A.
Robertson með „Bang Bang”,
Judy Tzuke með „Stay with me
til dawn”, Buggles meö „Video
killed the radio star”, Noosha
Foxmeð „Skin tight” og Bomb-
ers með „Get dancin”. Eins og
þessi upptalning gefur til kynna
þá eru á plötunni sjö lög til við-
bótar, en flytjendur þeirra eru
Sad Café, Tourists, The Jags,
A1 Hidson and the Partners,
Dooleys, Spyro Gyra og Mad-
ness.
Núveitégaðsumirmega ekki
heyr a á K-tel minns t án þess að
fá grænar bólur á rassinn, en
hvað sem þvi liður eiga þessar
plötur fullan rétt á sér. Allar
upptökur eru „orginal”, en
helsti kosturinn er þó sá að
lengd (spilatimi) platnanna er i
rúmu meðallagi, eða um
klukkustund sem er ekki ónýtt á
þessum siðastu og verstu verð-
bólguti'mum. —ESE
Herb Albert -
Rise
AM Records
★ ★ ★ +
Bandariski trompetleikarinn
Herb Albert, sem núer43áraaö
aldri, sneri sér f.vrst að jazzi er
hann gegndi herþjónustu i land-
her Bandarikjanna. Alpert hóf
annars feril sinn ungur að árum
(8 ára) og snemma var hann
farinn að semja sin eigin lög.
Meðal þeirra, sem Alpert starf-
aði með áður en hann var
kvaddur í herinn, voru nafnarn-
ir Lou Adler og Lou Rawls, en
siðar tók hann upp samstarf viö
JerryMoss, sem unnið hafði hjá
Dore Records.
Þeir félagar Alpert og Moss
stofnuðu siðan i sameiningu
hljómplötufyrirtækið Carnival
Records, sem siðar varð AM
Records — eitt af stóru nöfnun-
um i bandariskri útgáfustarf-
semi. Árið 1969 er Herb Alpert
haföi sankað að sér nokkrum
gullplötum fyrir leik sinn, dró
hannsig i hlé um nokkurra ára
skeið, eöa til ársins 1974 og helg-
aði sig upptökustjórn hjá AM
Records.
Um þetta leyti uppgötvaöi
Herb Alpert söngdúóið The Car-
penters, sem naut mikilla vin-
sælda um miðjan siöasta ára-
tug.
Ariö 1974 sneri Alpert siöan
aftur i hljómplötuslaginn og til
þessa dags hefur hann sent frá
sér nokkrar plötur sem flestar
hafa öðlast töluverðar vinsæld-
ir. Nýjasta plata Herb Alperts,
„Rise” er þar engin undantekn-
ing, en er þó full köflótt fyrir
minn smekk. Bestu lög plötunn-
ar eru titillagið „Rise” og
„1980”, en meðal annarra laga
má nefna „Street life”, sem
Crusader hafa gert frægt,
„Aranjunez”, sem m.a. er á
plötunni „String of hits” meö
Shadows og „Love is”, sem
margir hafa spreytt sig á meö
góðum árangri. Sjálfur á Herb
Alpertekki nema tvö lög á plöt-
uunni og er annað þeirra
„1980”, sem minnst er á hér að
framan.
Helstu kostir þessarar plötu
eru mjög gott titillag og óað-
finnanlegur hljóðfæraleikur, en
meöal þeirra sem aðstoða Al-
pert á plötunni eru Carlos Rios
(gitarleikari Jakobs Magnús-
sonar), Abe „Ode tó Abe”
Laboriel (bassi), Manolo Bad-
rena (ásláttur) og Tom Scott
(sax.). Sjálfur verður Herb Al-
pert að teljast snjall trompet-
leikari og ekki er óliklegt að
honum eigi eftir að takast betur
upp i framtiðinni. —ESE
Styx -
Cornerstone
/AM Records
Hingað til hefur borgin
Chicago i Bandarikjunum eink-
um verið fræg fyrir þrennt,
þ.e.a.s. samnefnda hljómsveit,
kjötkatla borgarinnar og stór-
glæpamanninn A1 Capone, en nú
er full ástæða til að bæta rokk-
hljómsveitinni Styx á þennan
lista — enda er hljómsvcitinn
sannkallaður borgarsómi.
Styx er reyndar komin nokkuð
til ára sinna — stofnuö i byrjun
sjöunda áratugarins, en þá und-
ir öðru nafni. Stofnendur hljóm-
Framhald á bls. 23.
éfgsrðimor fré MITSUBISHI
verða sýndarí sýningarsal Heklu hf. Laugavegi 170 - 172
sunnud. 27. jan. frá kl. 13.00 - 18.00
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240