Tíminn - 22.02.1980, Qupperneq 8
8
Föstudagur 22. febrúar 1980
Fóstrurnar á Brákaborg að undirbúa börnin undir skemmtunina.
Oskudagur á Brákarborg
SHG/LF — Það var held-
ur betur líf og f jör í tusk-
unum á dagheimilinu
Brákarborg á öskudag-
inn. Krakkarnir gerðu sér
dagamun, klæddu sig í
margvíslega búninga,
sem voru bæði skemmti-
legir og skrautlegir og
svo var dansað af hjart-
ans lyst, eins og úthaldið
leyfði. Og ekki dró það úr
ánægjunni, að allir ball-
gestirnir fengueins mikið
popp og þeir gátu í sig
látið.
Brákarborg var raunar
ekki eini staðurinn, þar
sem boðið var upp á
margs konar glens í til-
efni dagsins, því á all-
flestum eða öllum dag-
Steinunn H.Guö- Laufey B. Friö-
bjartsdöttir jónsdóttir
í starfs-
kynningu
á Tímanum
Sú litia var heldur betur undrandi þegar ijósmyndarinn smellti af
vistunarstofnunum var
eitthvað um að vera.
Sumir fóru í hópgöngur,
aðrir héldu ,,pulsupartí"
og enn aðrir brugðu á leik
eftir fjörugum danslög-
um. En sjálfsagt hafa
allir þessir krakkar átt
eitt sameiginlegt — þeir
hafa lagst þreyttir
og ánægðir til svefns að
kvöldi þessa öskudags.
„Og svo sveifiast frænkan”....
„Þú færö sko ekki dúkkuna mina”
Ljósmyndarinn vakti svo sannarlega athygli barnanna
Eins og sjá má á myndinni voru börnin klædd f hina fjölbreytilegustu
búninga.