Fréttablaðið - 09.05.2007, Qupperneq 4
MARKAÐURINN 9. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
– Vel lesið
Notaðu mest lesna* blað landsins
til að dreifa kynningarefni til
þinna viðskiptavina
Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög
Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband
í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is
Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
*Gallup maí 2006
Vertu inní Fréttablaðinu
með þitt kynningarefni
Landsbankinn opnar skrifstofu
í Cannes í Frakklandi í sumar.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, segir að 2-3
starfsmenn muni halda utan um
útibúið í byrjun.
Hlut-
verk
þeirra
verður
að bjóða auðmönnum lán út á
dýrar fasteignir á frönsku rivíer-
unni og á Spáni.
Landsbankinn rekur einnig
svipaða starfsemi á Marbella á
Suður-Spáni. - eþa
Landsbankinn
í Cannes
Íslenskir fjárfestar hafa verið at-
kvæðamiklir á sænskum hluta-
bréfamarkaði á árinu og fjár-
fest grimmt í sænskum stór-
fyrirtækjum.
Í Dagens Industri kemur fram
að Landsbankinn hefur tekið hluta-
bréfastöður í Nordea, Electrolux,
tóbaksframleiðandanum Swedish
Match og leikjafyrirtækinu Net
Entertainment.
Straumur-Burðarás hefur aukið
fjárfestingar sínar á sænska
markaðnum um rúma níu millj-
arða króna á árinu, í 21 milljarð
króna. Meðal þeirra félaga sem
Straumur er hluthafi í má nefna
Saab, Swedbank, heimilistækja-
framleiðandanum Husqvarna og
Electrolux auk Net Entertainment.
Þá er finnska fjármálafyrirtækið
Sampo orðið þriðji stærsti hlut-
hafinn í Nordea með 2,3 prósenta
hlut. Exista er sem kunnugt er
stærsti hluthafinn í Sampo.
Sænski markaðurinn hefur
verið á ágætisflugi á árinu, þannig
nemur gengishækkun í Electro-
lux einu og sér tæpum fimmtíu
prósentum. - eþa
Íslenskir fjárfestar
atkvæðamiklir í Svíþjóð
Íslendingar hafa keypt í Saab, Husqvarna, Electrolux
og fleirum. Straumur hefur keypt fyrir 21 milljarð.
Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna
hefur höfðað mál á hendur starfs-
manni svissneska fjárfestinga-
bankans Credit Suisse í Banda-
ríkjunum vegna innherjasvika í
tengslum við yfirtöku fjárfest-
ingafélagsins Kohlberg Kra-
vis Roberts á bandaríska orku-
fyrirtækinu TXU fyrr á þessu
ári. Kaupvirði nam 45 milljörð-
um bandaríkjadala, tæpum 2.900
milljörðum íslenskra króna.
Þetta er einhver stærsta skuld-
setta yfirtaka í heimi.
Credit Suisse veitti ráðgjöf
vegna viðskiptanna og mun
maðurinn hafa nýtt sér innherja-
upplýsingar í hlutabréfaviðskipti
með bréf í félaginu.
Maðurinn, sem er 37 ára
og af pakistönskum uppruna,
hafði samband við annan aðila í
heimalandinu og festu þeir sér
6.700 framvirka hluti í TXU í
febrúar. Gengið hækkaði um 13
prósent við yfirtökuna og nam
hagnaðurinn 7,5 milljónum dala,
um 480 milljónum króna.
Sami maður liggur nú undir
grun um að hafa nýtt sér inn-
herjaupplýsingar í níu öðrum
yfirtökum á fyrirtækjum sem
Credit Suisse veitti ráðgjöf um.
Verði maðurinn fundinn sekur
á hann yfir höfði sér sekt upp á
fimm milljónir dala hið minnsta,
um 320 milljónir íslenskra króna,
og 20 ára fangelsi. - jab
Svik í stærstu yfirtökunni
Vaxtaákvörðunardagar eru hjá
bæði Englandsbanka og evr-
ópska seðlabankanum á morg-
un. Greinendur eru sammála um
að Englandsbanki hækki vexti til
að koma verðbólgu, sem hefur
ekki verið hærri í áratug, niður
að tveggja prósenta verðbólgu-
markmiðum bankans. Reyndar
búast flestir við hækkunum á
evrusvæðinu á næstunni en hvort
3,75 prósenta stýrivextir fari upp
á morgun eður ei er óvíst.
Evrópusambandið sendi frá
sér uppfærða hagspá fyrir evru-
svæðið á mánudag. Spáð er 2,6
prósenta hagvexti á evrusvæðinu
á árinu, sem er 0,2 prósentustiga
hækkun. Þar af var hagvaxtar-
spáin fyrir Þýskaland hækkuð
um 0,7 prósentustig í 2,5 pró-
sent. Fram kemur í spánni að
aukinn hagvöxtur verði knúinn
áfram að auknum fjárfestingum
fyrirtækja, sem skilar sér í auk-
inni eftirspurn. Greiningardeild
Kaupþings bendir á að einmitt
þetta auki líkurnar á stýrivaxta-
hækkun á næstunni hvort sem
það verði í sumar eða síðar
Talsverðar líkur eru á hækk-
un stýrivaxta í Bretlandi.
Stýrivextir þar standa í 5,25 pró-
sentum en í ljósi 3,1 prósents
verðbólgu í mars sem var um-
fram væntingar var þrýst á Eng-
landsbanka að hann hækkaði
vextina hratt, jafnvel í stærri
stökkum en hann kýs. - jab
Vaxtaákvarðanir í Evrópu á morgunH U G T A K V I K U N N A R
INNHERJAR eru þeir kallaðir sem í
fyrirtækjum hafa aðgang að trúnaðar-
upplýsingum vegna eignaraðildar,
stjórnarsetu, aðkomu að rekstri eða
annarra tengsla. Þetta fólk hefur
aðgang að trúnaðarupplýsingum sem
aðrir á markaðnum hafa ekki. Félög
sem skráð eru á markað verða að til-
greina hverjir innherjarnir eru. Ef inn-
herji í hlutafélagi á viðskipti með bréf
sín er þau nefnd innherjaviðskipti og
eru ólögleg ef þau byggja á trúnaðar-
upplýsingum sem
ekki hafa verið
tilkynntar með
opinberum og
viðurkennd-
um hætti.
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Glitnir er annar stærsti miðlarinn á norrænum verð-
bréfamarkaði á fyrsta fjórðungi ársins eftir kaupin
á finnska fyrirtækinu FIM Group, samkvæmt tölum
sem OMX-kauphöllin og Oslóarkauphöllin (Oslo
Børs) hafa birt.
Þegar horft er til veltu hlutabréfa hefur markaðs-
hlutdeild Glitnis aukist úr 0,8 prósentum á fyrsta
ársfjórðungi síðasta árs í 6,05 prósent á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs, sem er hátt í áttföldun.
Mikinn vöxt Glitnis á norrænum verðbréfamark-
aði má bæði rekja til innri vaxtar og kaupa á
fyrirtækjunum Norse Securities, Fischer Partners
og FIM Group, en yfirtökutilboði í FIM Group lýkur
núna 16. maí. Samkvæmt upplýsingum frá Glitni
nemur samanlögð markaðshlutdeild Glitnis og FIM
á fyrsta fjórðungi ársins 26 prósentum hér á landi,
6,66 prósentum í Finnlandi, 6,28 prósentum í Sví-
þjóð, 5,63 prósentum í Noregi og 3,24 prósentum í
Danmörku.
Frank Ove Reite, framkvæmdastjóri markaðs-
viðskipta Glitnis, segir sterka stöðu á verðbréfa-
markaði efla bankann sem leiðandi fjármálafyrir-
tæki og leggja grunn að frekari vexti og arðsemi.
„Fyrirtækjakaupin hafa aukið við vöruframboð og
auðveldað aðgang viðskiptavina Glitnis inn á nor-
ræna markaðinn auk þess að opna leið inn á nýja
og ört vaxandi markaði. Eftir kaupin á FIM mun
Glitnir vaxa og eflast enn frekar á sviði verðbréfa-
viðskipta og fyrirtækjaráðgjafar,“ segir hann og
bendir á að nú séu 55 fyrirtækjaráðgjafar á vegum
Glitnis í fimm löndum, sem efli mjög stöðu bankans
á þeim vettvangi innan Norðurlandanna. „Sérfræði-
þekking FIM á nýmörkuðum og sterk staða Glitnis á
norrænum fjármálamarkaði mun skapa fjölda nýrra
tækifæra fyrir bankann,“ segir hann og bætir við að
stefna bankans sé að vera áfram í forystusveit veltu-
mestu fjármálafyrirtækja á norræna markaðnum.
Töluverður gangur hefur verið í norrænum kaup-
höllum að undanförnu. Þannig voru í síðasta mánuði
slegin nokkur veltumet í OMX-kauphöllunum. Veltu-
mesti dagurinn í sögu kauphallanna var 26. apríl.
Þá nam veltan 795,5 milljörðum íslenskra króna, en
fyrra met var af fyrsta fjórðungi þessa árs, síðan 28.
febrúar þegar veltan nam 758,6 milljörðum. Fjöldi
viðskipta hefur að sama skapi aukist en á meðaldegi
í síðasta mánuði fóru fram um 172 þúsund viðskipti,
miðað við 143 þúsund síðustu tólf mánuðina á undan.
Frank Reite segir horfur á því að viðskipti haldi
áfram að vera lífleg á markaðnum. „Og það kemur
sér vel fyrir okkur,“ segir hann glaðbeittur.
Glitnir er næststærsti
miðlari Norðurlanda
Markaðshlutdeild Glitnis hefur áttfaldast milli ára þegar
horft er til veltu hlutabréfa á norrænum verðbréfamark-
aði. Aukningin er rakin til innri vaxtar og fyrirtækjakaupa.
M A R K A Ð S H L U T D E I L D Í M I Ð L U N
H L U T A B R É F A Á N O R Ð U R L Ö N D U M
– F I M M S T Æ R S T U
Fjármálastofnun Hundraðshlutdeild
Skandinaviska Enskilda Banken AB 7,53%
Glitnir/FIM 6,05%
Morgan Stanley & Co. International 5,99%
Carnegie Investment Bank AB 5,83%
Svenska Handelsbanken AB 4,44%