Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 8
MARKAÐURINN 9. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR8
Ú T T E K T
SKARPI SJÓNAUKINN STEINGRÍMUR J.
Steingrímur J. Sigfússon er fyrst og fremst mikill
baráttujaxl, maður úthalds, snerpu og einbeit-
ingar. Það er sameiginlegt mat þeirra Svandísar
Svavarsdóttur og Hugins Freys Þorsteinssonar,
tveggja af kosningastjórum Vinstri grænna. „Það
er ekki heiglum hent að yfirfæra slíka eiginleika
yfir á hlut eða vöru. Upp í hugann kæmi fyrst
skarpur sjónauki. Með sterkum, skörpum sjón-
auka sést lengra og skýrar. Sjónaukinn Steingrím-
ur er hvorki nýr né tölvustýrður heldur traustur,
sígildur og varanlegur. Með honum má skoða nátt-
úru, samfélag, heiminn allan og jafnvel horfa gegn-
um holt og hæðir. Hnífskarpur fókus og leiftursýn
sem greina fljótt og vel það sem máli skiptir gera
það að sjónauki kemur upp í hugann þegar þessi
spurning er borin upp nú í aðdraganda kosninga.“
BÓKIN INGIBJÖRG SÓLRÚN
Sigrún Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Samfylking-
unni, líkir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur við bók.
„Í bókinni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er gnægð
af úthugsuðum lausnum og ráðum varðandi hin
ýmsu vandamál samfélagsins sem við blasa í dag,
jafnt á sviði efnahagsmála sem velferðarmála. Þar
er byggt á langri reynslu en fyrst og fremst horft
til framtíðar. Bókin er vel skipulögð og auðvelt
að fletta upp í henni og finna nýjar hugmyndir og
nálganir gagnvart málefnum líðandi stundar. Í bók-
inni er tekist á við samtímann af skynsemi og með
opnum hug með jafnrétti og kvenfrelsi að leiðar-
ljósi. Þetta er skemmtileg bók í flottu bandi. Hún
fer vel í hillu, þó hvergi eins vel og í Stjórnarráðs-
húsinu.“
KRAFTMIKLI SMÁBÍLLINN ÓMAR
„Ómar Ragnarsson er eins og
knúinn áfram af umhverfisvæ
liggur vel á veginum og er me
Þannig lýsir Sólborg Alda Pétu
kosningastjórn Íslandshreyfin
flokksins. „Bíllinn Ómar hefu
til að komast klakklaust yfir a
vegi hans verða. Snjór og hálka
þó svo að nagladekk fari aldre
er að setja bílinn í fluggír ef sv
arnir geta því notið þess að vir
lofti sem og láði. Sérstök hljóm
bílinn, sem bæði geta sent frá s
um er tölva sem hefur svar við
ins er heitið er aldrei að vita
óvæntar beygjur. Hann getur
U-beygju og farið í allt aðra átt
haflega heitið, verði eitthvað á
þarf nánar að.“
Formenn í augum Kjósendur verða líklega fyrir allt eins
miklum áhrifum af
kosningastjórnum
flokkanna og af
málefnaskrá þeirra.
Þær gegna því
mikilvægu hlutverki
í íslensku samfélagi
þessar vikurnar.
Markaðurinn fór
þess á leit við
liðsmenn kosninga-
stjórna allra flokka
að þeir líktu for-
manni flokks síns
við einfalda vöru
eða hlut sem endur-
speglaði helstu
eiginleika formanns-
ins. Útkoman er
forvitnileg eins
og sjá má. Ef til
vill vitnar hún um
andann og áhersl-
urnar í flokkunum
sjálfum. Allir eru
sammála því að
sinn formaður sé
vönduð og traust
gæðavara. En hvort
ætli kjósendur vilji
bók eða bíl til að
fylgja sér næstu
fjögur árin? Nú,
eða hlýja flík?
Frambjóðendur til komandi
alþingiskosninga gefa allir
súkkulaðihúðuð og sæt lof-
orð. Þau renna þó ekki svo
ljúflega niður meltingarveg
kjósenda. Kannanir sýna
að innan við tuttugu pró-
sent þeirra telja líklegt að
stjórnmálamenn standi við
gefin loforð. Hólmfríður
Helga Sigurðardóttir kynnti sér
kúnstina að baki markaðs-
starfi stjórnmálamanna.
Enginn sem koma vill boðum á framfæri
við fjöldann hefur efni á að líta framhjá
markaðssetningu. Gildir þá einu hvort
vekja á athygli á dísætum sykurlausum
gosdrykk, hagstæðustu mögulegu íbúða-
lánunum eða þeim mönnum og konum
sem stjórna eiga landinu.
Ekki eru allir á einu máli um hvort
sömu lögmál gildi um markaðssetningu
stjórnmálamanna og hverrar annarrar
söluvöru. Karl Pétur Jónsson, stjórn-
málafræðingur og starfsmaður fjárfest-
ingaráðgjafar Aska Capital, hefur fylgst
með markaðsstarfi stjórnmálaflokka
undanfarin ár. „Stjórnmálaöfl hafa tekið
í sína þjónustu sömu tækni við að koma
skilaboðum áleiðis og bjóðendur vöru og
þjónustu. Þetta eitt gerir stjórnmál og
stjórnmálamenn ekki að vöru og þjón-
ustu,“ segir hann. „Að halda því fram
er mikil einföldun. Það er ómögulegt að
líkja stjórnmálamanni við vörumerki.
Þegar þú kaupir vöru veistu nákvæm-
lega að hverju þú gengur. Stjórnmála-
maður er lifandi manneskja en ekki
fasti. Þar fyrir utan hefur hann stjórnar-
skrárbundna skyldu til þess að hlýða þér
ekki eftir að þú ert búinn að kjósa hann.
Hann á að fylgja sannfæringu sinni og
engu öðru.“
Þórhallur Guðlaugsson, dósent við Há-
skóla Íslands, hefur í starfi sínu skoðað
markaðsstarf stjórnmálaflokka. Hann er
á öndverðri skoðun. „Sumir segja að
ómögulegt sé að líkja stjórnmálamönn-
um við hverja aðra vöru. En það er líka
hægt að segja að lyf séu ekki eins og
hver önnur vara eða að háskólanám sé
ekki eins og hver önnur vara. Að lokum
kemst maður að þeirri niðurstöðu að
hver vara hefur sína sérstöðu. Þá getur
maður alveg eins litið svo á að sérstaða
stjórnmálamanna sé þau skilaboð sem
þeir þurfa að koma til kjósenda.“
MARGT MÁ BETUR FARA
Stjórnmálamenn og neysluvörur eiga
það sameiginlegt að hafa eitthvert erindi
við neytendur. Til að koma því á fram-
færi standa verkfæri á borð við sjón-
varp, útvarp og dagblöð til boða. Hins
vegar þarf að taka tillit til ýmissa sér-
stakra aðstæðna sem gilda við markaðs-
setningu stjórnmálamanna sem ekki er
fyrir að fara með venjulegar neysluvör-
ur. Afar sjaldgæft er að vörur séu seld-
ar til fjögurra ára í senn. Þá búa fáar