Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 10
fréttablaðið háskólar 9. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR2
UMSÓKNARFRESTUR HÁSKÓLANNA Á Íslandi eru átta
háskólar sem bjóða upp á fjöldann allan af námsbrautum. Umsóknar-
frestur flestra þeirra nær fram í júní
en margir biðja um umsóknir sem
fyrst og lofa auknum líkum á há-
skólavist ef umsóknin er fljót í hús.
Hér á eftir fer listi yfir háskólana átta
og umsóknarfrest í grunnnám þeirra.
Umsóknarfrestur í framhaldsnám er
liðinn í flestum skólanna en í sumum
rennur hann út í vikunni. Það er þó
mjög mismunandi milli skóla og
jafnvel milli deilda innan skólanna:
Kennaraháskóli Íslands: Umsóknar-
frestur í grunnnám er til 18. maí.
Háskóli Íslands: Umsóknarfrestur í grunnnám er til 5. júní.
Háskólinn í Reykjavík: Almennur umsóknarfrestur er til 31. maí.
Háskólinn á Bifröst: Miðað er við að umsóknir um stað- og fjarnám
hafi borist í seinasta lagi 10. júní ár hvert en 15. maí fyrir meistaranám.
Háskólinn á Hólum: Frestur til að sækja um skólavist rennur út 1.
júní.
Háskólinn á Akureyri: Umsóknarfrestur í grunnnám í öllum deildum,
fjarnám og staðnám, er til 5. júní.
Landbúnaðarháskólinn: Umsóknarfrestur er til 4. júní.
Listaháskóli Íslands: Umsóknarfrestur er liðinn.
Menntaskólanemendur klára
brátt stúdentspróf sín og margir
þeirra stefna á háskólanám.
Í næsta mánuði verða fyrstu lögfræðingarnir með meistarapróf
útskrifaðir úr HR eftir fimm ára nám, en í ágúst 2002 var deildin
stofnuð.
Lögfræðingarnir eru þeir fyrstu sem útskrifast á Íslandi með
fullnaðarpróf í lögfræði úr öðrum skóla en Háskóla Íslands, svo
segja má að það dragi til tíðinda.
Lögfræðinámið við Háskólann í Reykjavík er töluvert frábrugðið
því sem hingað til hefur verið kennt hér á landi, en tilgangurinn
með stofnun deildarinnar var að umbylta náminu og færa það til
nútímans. Það hefur meðal annars verið gert með þeim hætti að
bæta við námið hinum „nýju“ kjarnagreinum lögfræðinnar, það
er að segja félagarétti, skattarétti, samkeppnisrétti, fjármála-
þjónusturétti, hugverkarétti, Evrópurétti og þjóðarrétti. Að auki
hefur nemendum verið falið að takast á við margs konar verk-
efni sem tengja námið þeim veruleika er bíður þeirra að námi
loknu. Í meistaranáminu er boðið upp á starfsnám hjá innlendum
og erlendum fyrirtækjum og stofnunum, en námið er einnig opið
öðrum en þeim sem hafa lokið BA-gráðu í lögfræði. - mhg
Fyrstu lögfræðingarnir
útskrifast frá HR
Þórður S. Gunnarsson, forseti lögfræðideildar Háskólans í Reykjavík.
Nútímafræði er þverfaglegt
BA-nám í hugvísindum við
Háskólann á Akureyri sem
dregur nafn sitt þeim hug-
myndaheimi hóf að mótast á
Vesturlöndum á 18. öld.
„Námið hófst haustið 2000 og er
aðeins í boði á Akureyri. Áherslu-
sviðin eru sex og hafa verið í þess-
ari mynd síðastliðin tvö ár,“ segir
Sigurður Kristinsson, umsjónar-
maður nútímafræði við Háskólann
á Akureyri.
Nútímafræði er þverfaglegt hug-
vísindanám með vali innan félags-
og hugvísinda. Áherslusviðin sex
eru: hugvísindi, Austur-Asíufræði,
samfélags- og hagþróunarfræði,
félagsvísindi, lögfræði og fjöl-
miðlafræði.
Að sögn Sigurðar hentar námið
vel fyrir þá sem hafa fjölbreytt
áhugamál og vilja síður hengja sig
í eitt fag.
„Þetta er einstaklingsmiðað nám
þar sem fjölbreytileikinn er í fyr-
irrúmi. Það eru engir tveir nútíma-
fræðingar með nákvæmlega sama
nám að baki þrátt fyrir að grunnur-
inn sé hinn sami,“ segir Sigurður.
Nemendum er gefinn kostur á
að móta eigin námsleið að miklu
leyti og geta til dæmis blandað
saman jafn ólíkum fögum eins og
sálfræði, ítölsku og kínversku.
Fagið er tiltölulega nýtt en hefur
verið kennt í erlendum háskólum
síðastliðinn einn og hálfan áratug
að sögn Sigurðar. Erlendis nefnist
fagið Modernity studies og dregur
nafn sitt af lífsháttum og menningu
sem ruddi sér til rúms á 18. öld. Í
Skotlandi er fagið einnig kennt í
grunn- og framhaldsskólum, en er
þá sambærilegt samfélagsfræði
sem kennd er á Íslandi.
Nútímafræðingarnir fara víða
í samfélaginu eftir nám og meðal
þeirra er núverandi bæjarstjóri
Akureyrar, Sigrún Björk Jakobs-
dóttir.
„Sumir nútímafræðingar kenna
í framhaldsskólum. Greinar eins
og sögu, heimspeki, bókmenntir,
félagsfræði og jafnvel sálfræði.
Þetta fer eftir því hvaða áherslu-
svið þeir hafa valið í náminu. Aðrir
fara í ýmis sérfræðistörf út af að-
ferðafræði þekkingar eða stjórn-
unarstörf innan menningar- og
menntageirans,“ segir Sigurður.
Árlega hafa tíu til fimmtán
manns komist að í fræðinni þar
sem flestir eru upp úr tvítugu. Að
sögn Sigurðar er þetta alltaf þétt-
ur og samheldinn hópur sem á það
sameiginlegt að vera með fjöl-
breytt áhugamál.
Áframhaldandi nám fer eftir
áherslusviði, en Sigurður nefnir
sem dæmi nemendur sem hafa
farið í framhaldsnám í félagsfræði
og friðarfræðum við Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna.
rh@frettabladid.is
Nútímalegt nám við HA
Sigurður Kristinsson, umsjónarmaður nútímafræðinnar við Háskólann á Akureyri,
segir fagið henta vel fyrir fólk með fjölbreytt áhugamál. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Halla Kjartansdóttir er nemi á
náttúru- og umhverfisbraut við
Landbúnaðarháskólann á Hvann-
eyri. „Ég er á línu sem heitir Al-
menn náttúrufræði og er þver-
faglegt nám því þar lærum við
plöntufræði, dýrafræði, jarðfræði
og fleira,“ segir Halla og bætir því
við að brautin sé mjög skemmti-
leg og þar fái hún innsýn í marga
þætti náttúrufræðinnar.
„Það er alveg frábært að vera
í Háskólanum á Hvanneyri og
tengslin við Rannsóknastofnun
landbúnaðarins, eða Rala, gera
þetta enn meira spennandi,“ segir
Halla. „Bekkirnir eru frekar litlir
og þess vegna verða samskiptin
mjög persónuleg og heimilisleg
auk þess sem kennararnir eru
mjög ferskir og vel upplýstir. Það
er ekkert mál að fá samtal við
kennara eða námsráðgjafa því það
er svo góður aðgangur að fagfólk-
inu,“ bætir hún við og tekur fram
að það sé rosalega gott fólk í skól-
anum og frábært félagslíf. „Ég er
að klára annað árið mitt í skólan-
um og finnst ofsalega skemmtilegt
að vera nemandi í Landbúnaðar-
háskólanum,“ segir Halla hress í
bragði. - sig
Persónulegt og heimilislegt
Halla Kjartansdóttir er hæstánægð með
námið og dvölina á Hvanneyri en þar
er hún að ljúka öðru ári á náttúru- og
umhverfisbraut. MYND/ÁSKELL ÞÓRISSON
Skráning á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans er hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, skipulagning, einbeiting,
jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
Náðu forskoti með okkur í sumar!
“Snilldarnámskeið..kom skemmtilega á óvart hversu
miklum hraða ég náði.”
Guðbjörg Jónsdóttir, 40 ára Framhaldsskólakennari.
“Loksins sé ég fram á það að geta klárað
lesbækur fyrir próf”
Elín Björk Jónsdóttir, 15 ára nemi.
“Ég sexfaldaði lestrarhraða minn á 3 vikum!
Frábært!”
Guðjón Bergmann, 34 ára rithöfundur, f
yrirlesari og jógakennari.
“Ykkur að þakka mun ég rúlla upp samræmdu
prófunum.”
Jökull Torfason, 15 ára nemi.
“Þetta mun nýtast mér alla ævi.”
Jóhanna Helga, 15 ára grunnskólanemi.
“...á eftir að spara mér hellings tíma af
námsbókalestri.”
Ragna Björk Ólafsdóttir, 17 ára nemi og golfari.