Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 15
Stjórnenda- og leiðtogaskóli í hartnær 100 ár
Frumgreinadeild í fjarnámi
Háskólinn á Bifröst býður nú í fyrsta sinn upp á
frumgreinadeild í fjarnámi. Nú gefst fólki sem ekki
hefur tök á því að flytjast búferlum að ljúka námi úr
frumgreinadeild Hásklólans á Bifröst. Sérstaða náms-
ins er meðal annars sú að nemendur geta stjórnað
tíma sínum að fullu sjálfir og eru ekki háðir fjarfundar-
búnaði eða símenntunarmiðstöðvum. Allir fyrirlestrarnir
eru aðgengilegir á vef skólans og geta nemendur
nálgast þá hvar og hvenær sem er. Tvisvar á önn
hittast nemendur á vinnuhelgum á Bifröst þar sem
þeim gefst tækifæri að kynnast og taka þátt í lifandi
umræðum með kennurum.
Frumgreinadeild í staðnámi
Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum
og verkefnum. Verkefnavinna nemenda er þunga-
miðjan í náminu. Verkefnin eru ýmist einstaklings-
verkefni eða hópverkefni. Nemendur skila 1 verkefni
á viku í sérhverri námsgrein, sem gerir 5-6 verkefni að
jafnaði í viku hverri. Vikuleg verkefni nemenda vega
60% af lokaeinkunn en lokapróf 40%.
Kennslugreinar eru: viðskiptaenska, stærðfræði,
bókhald, upplýsingatækni, hagfræði, lögfræði,
íslenska og danska sem lagamál.
Umsóknafrestur í frumgreinadeild er til 10. júní 2007
Deildin er ætluð þeim sem ekki fullnægja inntökuskilyrðum um stúdentspróf og
öðrum þeim sem vilja styrkja umsókn sína um nám í Háskólanum á Bifröst með eins árs
undirbúningi í grunnfögum. Nám í frumgreinadeild er góð leið fyrir þá umsækjendur
sem hafa verið frá námi í langan tíma.
Frumgreinadeild gefur þér nýtt tækifæri í lífinu
Gríptu tækifærið!