Tíminn - 17.05.1980, Blaðsíða 2
2
Laugardagur 17. mal 1980
Lltið sýnishorn af þvl skótaui, sem er á sýningunni.
Timamynd Tryggvi.
Skóþjónustan s.f.:
Sýnir það nýjasta
í skótískunni
JSS — „Þetta er nokkuö ylir-
gripsmikil sýning hjá okkur viö
teljum aö hán gefi allgóöa mynd
af þeim geröum, sem eru hvaö
vinsælastar á markaöinum nú”
sagöi Guöjón Garöarsson I viötali
viö Tlmann, vegna yfirstandandi
skósýningar á vegum Skóþjónust-
unnar s.f.
A sýningunni eru skór frá all-
mörgum þekktum fyrirtækjum
erlendis ss. I Þýskalandi,
Kanada, Finnlandi, Austurrlki,
Itallu, Portúgal, Englandi,
Frakklandi, Brasillu. Þá má
nefna, aö þýska fyrirtækið Sala-
mander hefur nú sent frá sér nýja
vörutegund, svokallaða Camel-
skó, sem eru unnir úr kamel- eöa
hreindýraskinni. Má sjá sýnis-
horn af þessari vörutegund á
sýningunni.
Sagöi Guöjón, aö hlutverk
Skóþjönustunnar væri einkum aö
koma kaupmönnum I bein sam-
bönd viö framleiöendur erlendis,
þannig aö erlendir töskuheild-
salar kæmu sem minnst viö sögu
hér á landi. Meö tilkomu þeirra
yröi skótau um 40% dýrara en þaö
þyrfti aö vera, þar sem þeir
legöu oft um 40% á vöruna frá
viökomandi verksmiöju.
Skósýningin er til húsa aö
Langageröi 1 og er opin eftir kl.
fimm. Lýkur henni n.k. sunnu-
dag, en þangaö til er hægt aö fá
allar upplýsingar I slma 33038
e.kl. 5.
Framleiðslukvóta mótmælt
Þau mistök uröu I prentun
blaösins sl. þriöjudag aö sagt var
aö Búnaöarfélag Dyrhólahrepps
heföi samþykkt aö mæla meö
fóöurbætisskatti sem úrræöi I
landbúnaöarmálum. Þetta er
rangt, og þvi biöst blaöiö vel-
viröingar á þessum mistökum. 1
samþykkt Búnaöarfélags Dyr-
hólahrepps var hins vegar mælt
meö fóöurbætisskömmtun eöa
fóöurbætiskvóta.
I samþykkt Búnaöarfélags
Dyrhólahrepps frá 21. aprll sl.
segir svo m.a.:
„Fundurinn mótmælir harö-
lega framleiöslukvóta þeim til
stjórnunar á framleiöslu búvara
sem koma á til framkvæmda á
þessu ári, og vlsar I þvl sambandi
til fyrri samþykkta félagsins um
þetta mál.
Fundurinn telur 300 ærgilda bú
of lága viömiöun hjá þeim bænd-
um sem lifa eingöngu á búvöru-
framleiöslu. Fundurinn telur visi-
tölubú algert lágmark þess, sem
bændur þurfi til aö lifa af, og mót-
mælir þvl sérstaklega skeröingu
á 300 ærgilda búi hjá þeim bænd-
um sem hafa enga möguleika á aö
afla sér annarra tekna.
Fundurinn skorar á stjórn
Stéttarsambands bænda aö fylgja
fast eftir viö stjórnvöld aö aölög-
unartlmi, allt aö 5 árum, fáist til
aö draga úr áhrifum kvótans eöa
öörum þeim aögeröum, sem farið
væri út I. Fundurinn mælir meö
fóöurbætisskömmtun eöa fóöur-
bætiskvóta, sem álitlegri leiö til
stjórnunar búvöruframleiösl-
unnar.”
BST — 1 Nesstofu á Seltjarnarnesi — Baldur Eirlksson umdæmisstjóri Rotary-klúbbanna á islandi af-
hendir 5 millj. króna gjöf frá Rotary-félögunum til stofnunar minjasafns um lækningar á islandi. Þór
Magnússon þjóöminjavöröur veitir gjöfinni viötöku. Þorsteinn Gunnarsson, leikari og arkitekt, sem á
aö hafa umsjón meö innréttingu Lækningaminjasafnsins sést lengst t.v. — (Tlmamynd: GE)
Kosningafundur Vigdísar
Stuðningsmenn Vigdisar
Finnbogadóttur héldu almenn-
an kosningafund aö Hótel Sögu I
fyrrakvöld. Ávörp voru flutt og
greint frá undirbúningsstarfi
sem unniö er á vegum stuðn-
ingsmanna I Reykjavik. Kom
þar fram, aö skrifstofur hafa
verið opnaöar eöa veröa opnað-
ar á næstunni á ýmsum stööum.
Aðalskrifstofa I Reykjavik er að
Laugavegi 17, annarri hæö. Þá
er I undirbúningi blað stuðn-
ingsmanna sem nefnist Þjóöin
kýsog kemur fyrsta tölublað ut
eftir örfáa daga. — A fundinum
flutti Vigdis Finnbogadóttir
ávarp, geröi grein fyrir aðdrag-
anda framboös sins og ástæöum
þess og lýsti viöhorfi sinu til for-
setaembættisins. Einnig svar- um fundarmanna. Fundi lauk
aði hún fjölmörgum fyrirspurn- meö almennum söng.
Frá kosningarfundi Vigdlsar Finnbogadóttur á Sögu.
Kosningaskrifstofa Guðlaugs
á Selfossi
Stuöningsmenn Guölaugs
Þorvaldssonar I Arnessýslu
hafa opnað kosningaskrifstofu á
Austurvegi 38, Selfossi, (I húsi
Almennra trygginga og Iðnað-
arbankans). Slmanúmer skrif-
Frá forseta
frambjóð-
endunum
stofunnar er 2166.
Einnig hafa stuöningsmenn
Guölaugs opnaö bankareikning
fyrir þá, sem leggja vilja fé af
mörkum til kosninga-
baráttunnar, i Landsbankanum
og Iönaöarbankanum á Selfossi.
Avísanareikningur I Lands-
bankanum er nr. 7293 og i
Iðnaðarbankanum nr. 2527.
Stuöningsmenn eru hvattir til aö
leggja fé I kosningarsjóöinn.
Skrifstofan veröur fyrst um
sinn opin frá kl. 5 til 10 slödegis.
Kosningaskrifstofa
Alberts á Akureyri
Stuöningsmenn Alberts Guö-
mundssonar og Brynhildar Jó-
hannsdóttur hafa opnaö kosn-
ingaskrifstofu á Akureyri.
Skrifstofan er á Geislagötu 10
og er hún opin frá kl. 14—22 dag-
lega. Forstöðumaöur skrifstof-
unnar er Jón Arnþórsson og
skrifstofustúlka Nanna Bald-
ursdóttir. Simar skrifstofunnar
eru 25177 og 25277.
Frá kosningarfundi Péturs Thorsteinssonar I Sigtúni.
Kosninganefnd Vig-
dísar í Skagafirði
Ýmsir áhugamenn I Skaga-
firöi um kjör Vigdlsar Finn-
bogadóttur I forsetakosningun-
um komu nýlega saman til
fundar og var þar kosin 7
manna kosninganefnd I hérað-
inu. Hana skipa: Aöalheiöur
Arnadóttir, sr. Agúst Sig-
urösson, Asthildur öfjörð,
Gunnar Baldvinsson, Helga
Kristjánsdóttir, Rannveig Þor-
valdsdóttir og Sveinn Sölvason.
Kosningaskrifstofa veröur opn-
uö síðar I mánuöinum.
Kynningarfundur var haldinn
þann 9. mai og kom fjöldi fólks
til þess aö sjá og heyra Vigdisi.
Almennir kosningafundir eru
fyrirhugaöir I félagsheimilum i
héraöinu snemma I júnl.
Kosningaskrifstofa
Alberts í Hafnarfirði
Stuöningsmenn Alberts Guð-
mundssonar og Brynhildar Jó-
hannsdóttur I Hafnarfirbi og ná-
grenni hafa opnaö kosningaskrif-
stofu aö Dalshrauni 13, efri hæð,
eöa I húsi Björns Ólafssonar.
Skrifstofan veröur opin á kvöld-
in til mánaöamóta, en um helgar
frá 14.00—21.00, en verður siöan
opin alla daga þar til kosningum
er lokið. Veröur opnunartími
skrifstofunnar þá tilkynntur
nánar, þ.e. eftir næstu mánaða-
mót.
Siminn á nýju kosningaskrif-
stofunni er 5 11 88 og eru stuön-
ingsmenn beönir aö gefa sig fram
þar sem fyrst til sjálfboöaliös-
starfa.
Kosninganefnd Péturs
á Vestfjörðum
Stofnuö hefur veriö kosninga-
nefnd manna, vlösvegar að af
Vestfjöröum, er vilja stuöla að
kjöri Péturs J. Thorsteinssonar.
Formaður nefndarinnar er
Kjartan Sigurjónsson, skóla-
stjóri, varaformaöur Guömund-
ur Þóröarson bygg.m.
Málfriöur Halldórsdóttir er
forstööumaöur skrifstofunnar á
Isafirði. Veröur skrifstofan opin
fyrst um sinn daglega frá kl.
14.00 til 18.00, en lengur er nær
dregur kosningum. Siminn er
94-4232 og 94-4132.
Kosningafundir Péturs
1 fyrradag héldu stuðnings-
menn Péturs Thorsteinssonar
fund I Sigtúni. Sóttu hann á
annaö þúsund manns.
Flutt voru ávörp og voru
kaffiveitingar á boöstólum.
Pétur J. Thorsteinsson er ný-
kominn úr ferö um Noröurland,
þar sem hann sótti heim 9 kaup-
staöi og kauptún á 6 dögum.
Voru þar haldnir almennir
kynningarfundir og auk þess fór
Pétur viða á vinnustaði. Oddný
kona hans var meö honum i ferð
á sumum stöbum og einnig séra
Þórir Stephensen.
Athygli skal vakin á þvl, aö
skrifstofa stuöningsmanna Pét-
urs er nú flutt í rdmgott húsnæði
að Vesturgötu 17. — Um þessar
mundir er verið að opna skrif-
stofu I Keflavlk aö Grundav. 23.
Forstöðumaöur er Arnbjörn
Ólafsson, slmi 92-2144.