Tíminn - 10.06.1980, Page 3
Þribjudagur 10. júnl 1980.
3
Allir taki
i „Göngudegi fjölskyld-
unnar” n.k. laugardag
JSS — Um næstu helgi n.k.
laugardag nánar tiltekiö gengst
Ungmennafélag tslands, I sam-
vinnu viö ungmennafélögin f
landinu, fyrir almennum göngu-
degi, „Göngudegi fjölskyldunn-
ar”.
Þessari bráösnjöllu hugmynd
var raunar hrint I framkvæmd á
fundi stjórnar UMFI i október sl.,
þar sem samþykkt var
svohljóðandi tillaga:
„A undanförnum árum hafa
augu manna opnast fyrir nauösyn
almenningsiþrótta og Utivistar
þar sem öll fjölskyldan getur
veriö þátttakandi.
Ungmennafélag Islands vill
hvetja fólk til slikrar þátttöku.
Gönguferöir um landiö er heppi-
leg leiö til litivistar, til hollustu,
til að kynnast landinu betur og til
að efla tengsl fjölskyldunnar.
Ungmennafélag islands hefur
þvi ákveöið aö koma a' „göngu-
degi ungmennafélaganna”
(göngudegi fjölskyldunnar)
laugardaginn 14. júni 1980.
Hvert ungmennafélag skal i
upphafi skipa starfshóp er velji
gönguleiö, helst i nágrenni félags-
svæöis. Gönguleið mætti hugsa
sér 2—7 tima gang. Hvert félag
geturvalið fleiri leiöir. Starfshóp-
urinn skrifi leiöarlýsingu og veröi
hUn fjölrituö. Mun UMFI aöstoöa
þau félög er þess óska. Feröir
þessar veröi vel auglýstar og fólk
hvatt til göngunnar og veröi þær
öllum opnar”.
Sl. vetur var þetta svo
kynnt á þingum héröassam-
bandanna viö góöar undirtektir.
Þá voru send bréf meö leiðbein-
ingum um undirbUning og
framkvæmd til allra ungmenna-
félaga I landinu, en þau eru tæp-
lega 200 talsins.
Og nU n.k. laugardag er komið
að lokasprettinum. Er full ástæöa
til aö hvetja fólk um land allt til
að njóta Utivistar og kynnast
nánasta umhverfi sinu meö þátt-
töku I „Göngudegi fjölskyldunn-
ar. Auk þess fá allir þátttakendur
sérstakt viöurkenningarskjal frá
UMFl og veröa nöfn þeirra er
ekki láta sig vanta skráö i upphafi
hverrar göngu. Er vonast til að
þetta framtak stuöli aö þvi aö
göngudagurinn veröi árlegur
viöburöur um land allt.
Unniö hefur veriö af kappi viö lagfæringu svokailaöra hitamotta, og
er frumviögerö nú lokiö. Prófanir þær sem nú standa yfir, leiöa siöan
I ljós, hvort frekari viögeröa veröur þörf. Tlmamynd Tryggvi.
Jarðstöðin:
Fyrstu viðgerð
um á hita
mottum lokið
Prófanir sýna, hvort frekari
viðgerða er þörf
JSS — Þaö er stööugt unniö aö þvi
aö koma jaröstööinni i gagniö og
nú er viðgerö á hitamottunum aö
mestu iokið. Þó er ekki alveg vit-
aö hvort frekari viögeröa veröur
þörf. Það er verið aö prófa þessi
tæki núna eftir fyrstu tiiraun til
aö gera viö þau, og þær prófanir
skera úr um hvort frekari viö-
geröa veröur þörf.
Þannig fórust Jóni Þóroddi
Jónssyni verkfræöingi orð, er
Timinn innti hann frétta af jarö-
stöðinni. Hefur viögerð á hita-
mottunum gengiö bæði fljótt og
vel fyrir sig, þar sem I upphafi
var gert ráö fyrir aö henni lyki
ekki fyrr en I endaöan júnf.
Það er framleiöandinn ITT
sem sér um viögerö hitamottanna
en horfið var frá þvi aö framleiöa
nýjar, þarsem þaö heföi tekiðall-
langan tima. Sagöi Jón enn frem-
ur, aö afhending stöövarinnar
hefði ekki verið dagsett en hún
færi eftir öllum sólarmerkjum aö
dæma fram einhvern tima I
ágúst.
UMF|
GÖNGUDACá
FJ01.SKVl.Dt-*”!.
> * I vP
t .; 1'
á 1
; -
Pálmi Gisiason formaöur UMFI og Siguröur Geirdal framkvæmdastjóri meö veggspjald sem prentaö
hefur veriö I tilefni „Göngudags fjölskyldunnar”. Tlmamynd Róbert.
Arnarflug fær tvær nýjar vélar:
35 manns í Jórd-
aníuflugi
Kás — Um helgina bætist ný þota
af geröinni Boeing 707-3200 I flug-
flota Arnarflugs. Er hún tekin á
leigu af bandariska flugfélaginu
Western Airlines. Þotan hélt rak-
leitt, eftir aö hafa haft stutta viö-
dvöl hér á landi, til Jórdaniu, en
hún hefur veriö leigö þangaö i
sumar jórdanska fiugfélaginu
Alia, sem ööru nafni heitir Kon-
unglega jórdanska flugfélagið.
35starfsmenn Arnarflugs veröa
aö jafnaöi i Jórdanlu i sumar til
aö annast flug þotunnar, sem
aöallega veröur i förum frá
Amman til staöa innan miö-aust-
urlanda.
„Við erum búnir aö gera samn-
ing um leigu vélarinnar næstu
þrjá mánuöi, en væntanlega
veröa mánuöirnir fimm talsins,
þó ekki sé búiö aö ganga endan-
lega frá leigu vélarinnar siöustu
tvo mánuöina”, sagöi Halldór
Sigurösson, hjá Arnarflugi, i
samtali viö Timann.
En auk Boeingþotunnar, þá
hefur Arnarflug gert kaupleigu-
samning um skrúfuþotu af gerö-
inni Piper Cheyenne II, sem
væntanleg er hingað til lands, ein-
hvern næstu daga. Þessi vél er
mjög hraöfleyg, en tekur ekki
nema 7 farþega i sæti, og er búin
jafnþrýstiklefa.
„Þessa vél ætlum viö aö mark-
aössetja I innanlandsfluginu, auk
þess sem hún býöur upp á mögu-
leika á stuttum og snöggum ferö-
um til útlanda fyrir þá sem þörf
og vilja hafa til slfks”, sagöi
Halldór. Nefndi hann sem dæmi
aö aöeins tæki fjóra tima aö
fljúga henni frá Reykjavik til
Kaupmannahafnar, og tæpa þrjá
klukkutima frá Reykjavik til
Glasgow.
Þegar litla skrúfuþotan hefur
bæst I flugflota Arnarflugs eru
vélar þær sem félagið hefur yfir
aö ráöa orönar sex talsins.
Eimskip:
Tekur upp ferðir til
New York
JSS — Akveöið hefur veriö aö
'Eimskipafélag tslands taki upp
fastar áætiunarferöir til New
York. Fyrst um sinn veröur
gámaskipiö m.s. Berglind notaö
til þessara áætlanasiglinga en
auk viðkomu i New York mun
skipiö jafnframt koma viö i
Portsmouth.
M.s. Berglind fer fyrstu áætl-
unarferöina frá Islandi 20. júnl
n.k., frá New York 30. júni og frá
Portsmouth.
Eimskip hélt uppi feröum til
New York allt fram til árs 1969, en
þá var þeim hætt vegna þess aö
kostnaður var óeölilega hár miö-
aöviöaörarhafnirá austurströnd
Bandarikjanna. Meö auknum
gámaflutningum hafa aftur opn-
ast möguleikar á viðkomum I
New York. Vegna hærri kostnað-
ar viö meöferö og lestun vöru þar,
miöaö viö Portsmouth, veröa
flutningsgjöld um 9% hærri frá
New York en Portsmouth.
í
Elliðaárnar opnaðar.
i morgun kl. 7 voru Elliða-
árnar opnaöar fyrir veiöi-
mönnum og samkvæmt venju
hófu yfirmenn borgarinnar
veiöar þar, meö Egil Skúla
Engilbertsson borgarstjóra I
fararbroddi.
Ef litiö er yfir opnunardaginn
i Elliöaanum aftur til 1975 þá
kemur i ljós aö i fyrra, 1979,
veiddist enginn lax en þá voru
miklir kuldar um allt land. 1978
komu á land 7 laxar, 1977 3 lax-
ar, 1976 4 laxar og 1975 komu 12
laxar á land. Veiöihorfurnar I
Elliöaánum eru betri nú en I
fyrra og ætti þvi eitthvaö af laxi
aö koma á land I dag.
32 laxar í Þverá.
I gær voru komnir á land úr
Þverá I Borgarfiröi 32 laxar aö
sögn Halldórs Vilhjálmssonar
en hann hefur umsjón meö
veiöihúsinu þar. Þetta mun allt
vera fallegur fiskur en þann
stærsta sem komiö hefur á land
þar, 16 punda lax fékk Rósar
Eggertsson.
Halldór sagöi aö veiöin I ár
byrjaöi miklu betur en I fyrra og
sem dæmi má nefna aö i fyrsta
hollinu nú veiddust 25 laxar en
aöeins 11 fyrra. Veiöin nú hófst
þann 6. júnl en I fyrra þann 1.
júní.
Ljómandi gott veður hefur
veriö aö undanförnu viö Þverá
sólskin á hverjum degi. —FRI.
Rennt fyrir lax I EUiöaanum.