Tíminn - 14.06.1980, Side 2
2
Laugardagur 14. jilnl 1980
#: HAPPDRÆTTI
,
Happdrætti Slysavarnafélagsins: 1 vinninga eru bill, hestur og reiöhjól
Happdrætti Slysavarnafélags íslands 1980:
hestur og reið-
Bíll,
hjól í verðlaun
— síðasti söludagur 17. júní
Kás — Þessa dagana stendur i
yfir saia á happdrættismiöum á I
veguin Slysa varnafélags I
islands og er 17. júni n.k. siöasti |
söludagur, en þá um kvöldiö
verða vinningar dregnir út.
Hér er um aö ræöa hiö árlega
happdrætti Slysavarnafélags-
ins, en ágúOi þess rennur til að
bæta hag félagsins og efla og
treysta starfsemi deilda þess
um allt land, m.a. bæta búnaö
björgunarsveita.
Vinningar i ár eru tuttugu
talsins, allt faraskjótar af sitt
hverju taginu. Aöalvinningurinn
er bifreið, Mazda 929 station
árgerð 1980. annar vinningurinn
er tvævetra hestur, og siðan
eru i verðlaun 18 hestar af öðru
tagi, nefnilega reiðhjól.
Shell Agroma
OlKzn, sem þú getur notaó á vélina,
gúkassann, driiiö og vökvakerfió
Nú er rétti tíminn til að skipta algjörlega
um olíu. Skipta yfir í Agroma, nýju fjöl-
þykktarolíuna frá Shell fyrir landbúnað-
arvélar. Agroma er gerð fyrir allt sem
smyrja þarf - vélina, gírkassann, drifið og
vökvakerfið.
Agroma olían er sérstök að því leyti, að
hana má nota á allar vélarnar, allan ársins
hring. Það skapar öryggi, því ávallter rétt
olía á réttum stað. Það ereinfalt að kaupa
aðeins eina olíutegund, Shell Agroma.
Við vitum að þú ert einn þeirra, sem lætur
þér annt um viðhald vélanna, sem eru í
notkun meira og minna allt árið. Því
kaupir þú Agroma olíuna, sem sérstak-
lega er gerð fyrir landbúnaðinn, diesel/
bensínvélar og hvers
konar önnur tæki.
SHell
i - »
/i
*
Agroma
a ójlum
órstimum
Listdans
á Lista-
hátíð
Mánudaginn 16. og miðviku-
daginn 18. júni verður listdans-
sýning i Þjóðleikhúsinu á vegum
Listahátiðar. Koma þá fram
góðir gestir frá Wiesbaden
Óperunni i Þýskalandi, ballett-
dansararnir Maria Gisladóttir og
Roberto Dimidtievich. Auk þess
mun tsienski dansflokkurinn
frumsýna nýjan ballett eftir
Kenneth Tiilson við tónlist eftir
Jón Nordal.Er sá ballett byggður
á þjóðsögunni um Galdra-Loft.
Maria Gisladóttir hefur
getiö sér mjög gott orð i Þýska-
landi og viðar og dansar nú i
fyrsta skifti á tslandi frá þvi hún
hélt utan kornung til náms. Hún
stundaöi nám við Listdansskóla
Þjóðleikhússins til 16 ára aldurs
en hélt þá til Lundúna til náms við
Marla Gisladóttir
Royal Ballet skólann. Eftir
tveggja ára dvöl þar, hélt hún til
Berlinar og var ráðin dansari við
Berlinaróperuna. Að tveim árum
liönum i Berlin var hún farin að
dansa aðalhlutverk hjá óperunni
og má þá nefna aöalhlutverkin i
ballettum eins og Vorblóti eftir
Stravinsky i uppfærslu Valery
Panovs, Þyrnirósu, Coppeliu,
Svanavatninu og Eldfuglinum.
Orðstir Mariu fer ört vaxandi og
nú hefur hún verið ráðin sem
aðalkvendansarinn að Óperunni i
Wiesbaden.
] Lai IIC Isl liðið
4 ] [ s: k i ik ■ L
— æfir fyrir Olympiuskákmótíð
Stjórn Skáksambands fslands
ákvað á fundi sinum 11. júni s.l.
að senda bæði karla- og kvenna-
sveit á Olympiuskákmótið i ár, en
það fer fram á Möltu dagana 20.
nóv. til 8. des.
Jafnframt valdi stjórnin eftir-
talda skákmeistara til æfinga
fyrir mótið: Friörik Olafsson,
Guömund Sigurjónsson, Helga
Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Jón
L. Arnason og Margeir Péturs-
son. 1 athugun er að fleiri skák-
meistarar taki þátt i æfingum
liðsins. Þjálfari verður Guð-
mundur Sigurjónsson en honum
til aðstoðar og fulltrúi stjórnar-
innará æfingum verður Asgeir Þ.
Arnason, en hann á sæti i stjórn
sambandsins.
Einnig valdi stjórnin eftirtaldar
konur til æfinga: Birnu Norðdahl,
Guðlaugu Þorsteinsdóttur,
Aslaugu Kristinsdóttur, ólöfu
Þráinsdóttur, Sigurlaugu Frið-
þjófsdóttur og Svönu Samúels-
dóttur. Þjálfari kvennánna
verður Jón Pálsson og honum til
aðstoðar Svana Samúelsdóttir.
Æfingar sveitanna verða i hús-
næöi Skáksambandsins að
Laugavegi 71
Nokkrir af félögum MyndlistarklúbbS Seltjarnarness. Formaöur
klúbbsins, Magnús Valdimarsson, er annar t.v. í aftari röö, en fyrsti
formaðurinn, Sigriöur Gyöa Siguröardóttir, situr fremst t.v.
(Timamynd Róbert).
Samsýning félaga í
Myndlistarklúbbi
Seltjarnarness
BSt — Myndlistarklúbbur Sel-
tjarnarness verður 10 ára i janúar
n.k. Starfsemi kiúbbsins hefúr
verið mjög blómleg þessi ár.
Fyrsti formaður Myndlistar-
klúbbsins var Sigriður Gyöa Sig-
urðardóttir og var hún formaður
nokkur ár, en núverandi for-
maður er Magnús Valdimarsson.
Laugardaginn 14. júni verður
opnuð samsýning félaga i Mynd-
listarklúbbi Seltjarnarness i
Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi.
Þetta er niunda sýningin á vegum
klúbbsins. Þeir sem sýna eru:
Anna G. Bjarnardóttir, Anna
Karlsdóttir, Arni Garðar Krist-
insson, Ásgeir Valdimarsson,
Auður Sigurðardóttir, Grétar
Guðjónsson, Guðmundur
Kristinsson, Jensey Stefáns-
dóttir, Lóa Guðjónsdóttir,
Magnús Valdimarsson, Maria
Guönadóttir, Sigriður Gyða Sig-
urðardóttir og Sigurður Karlsson.
Hringur Jóhannesson list-
málari hefur verið aðalkennari
klúbbsins og valdi hann verkin á
sýninguna. Myndir þær sem
sýndar eru nú eru 116 talsins eftir
13 félaga. Þýski myndlistar-
maðurinn Weissauer hefur einnig
kennt s.l. tvo vetur i Myndlistar-
klúbbnum fyrri hluta vetrar fram
til jóla. Hann hefur aðallega
kennt meðferð pastel- og vatns-
lita.
Sýningin verður opin frá 14.-22.
júni, virka daga kl. 17.-22. en um
helgar kl. 14.-22.