Tíminn - 21.06.1980, Page 3
A þessari mynd sem Landhelgisgæslan tók nýlega má sjá hvernig Hagafellsjökull eystri hefur náö út f Hagavatn. út á vatninu má sjá jaka og Ishrafl úr jöklinum. Hann hefur þvf
hlaupiö fram um eina 200 metra sföan áriö 1975. Ljósmynd: Landhelgisgæslan.
Jökulhlaup í Hagafellsjökli
— Nú hefur hann hlaupiö í Hagavatn, en
siðast i kringum 1950
Kás — Undanfarna daga hafa
ibúari ofanveröri Árnessýslu tek-
iö eftir þvi aö litur Tungufljóts og
Hvitár hefur veriö aö breytast.
Eru árnar nú báöar orönar
mjólkurhvitar. Skýring þessa er
sú, aö HagafellsjökuII eystri og
liklega vestri, hafa hlaupiö fram,
þannig aö nú hcfur Hagafellsjök-
ull eystri náö Hagavatni i fyrsta
skipti siöan i kringum 1950. Arnar
bera þvi merki framhlaups
jökulsins.
Hagfellsjökull liggur suöur af
Langjökli, sitt hvoru meginn viö
Hagafell. Fyrir sunnan Haga-
fellsjökul eystri er Hagavatn.
Alveg frá þvi aö mælingar hófust,
áriö 1930, hefur Hagafellsjökull
veriö aö hopa. Hefur hann hopaö
um fimm kilómetra frá aldamót-
um, að þvi er talið er. Upp úr
Hagavatni fór hann i kringum ár-
iö 1950.
Ariö 1971/72 hljóp Hagafells-
jökull vestri fram um liklega 700
metra, en siöan hefur hann hopaö
um eina 200 metra.
Hagafellsjökull eystri hljóp siö-
ast fram áriö 1975/76, um eina
1200-1600 metra, eftir þvi hvar
mælt var. Vantaði þá aöeins 100
metra á aö hann næöi út. i Haga-
vatn. Siðan hefur hann horfaö um
liklega 100 metra.
Um miöjan april sl. tóku menn
eftir óvenjulegum sprungum i
jöklinum, og um miöjan mai
fékkst þaö staöfest að jökullinn
væri i framrás. Nú nýlega flaug
Landhelgisgæslan þar yfir, og
kom þá I ljós að Hagafellsjökull
eystri haföi náð út i Hagavatn, i
fyrsta skipti síöan i kringum 1950.
Llkur eru á þvi aö framhlaup sé
það gerði hann
einnig nokkuö i Hagafellsjökli
vestri.
„Þetta er ein af gátum jökla-
fræöinnar”, sagöi Helgi Björns-
son, starfsmaöur hjá Eaunvis-
indastofnun Háskólans, i samtali
við Timann I gær, þegar hann var
spuröur aö þvi hvers vegna jökl-
arnir tækju upp á þvi aö hlaupa
fram.
„Þaö eina sem viö vitum er
það, að sumir jöklar hlaupa fram,
en aðrir ekki. Þeir sem hlaupa
fram gera þaö meö nokkurra ára
millibili,” sagöi Helgi.
„Þetta viröist ekki standa I
neinu sambandi viö veðurfar,
jarðskjálfta eða eldvirkni,” sagði
Helgi, „og eins og ég segi, þá
standa menn alveg á gati hverju
þessu valdi. Hins vegar geta
menn lýst þvi hvernig þetta ber
aö. Jökullinn hleypur ekki fram á
venjulegan hátt á milli hlaup-
anna, heldur stendur i staö og
Hér sést mynd sem tekin er I júni árið 1969 sem sýnir Hagafellsjökul
eystri og Hagavatn. Mikiö vantar upp á, eöa nokkur hundruö metra,
aö jökuilinn nái út i Hagavatn. Ljósmynd: Guttormur Sigbjarnarson.
verður brattari og brattari, þann-
ig aö þaö hleöst upp spenna i hon-
um, sem siðan brestur þannig aö
allt fer á fulla ferö fram. Hraöinn
er liklega hundrað sinnum meiri
en venjulegur hraöi,” sagöi Helgi
Björnsson.
Sagöi Helgi aö búast mætti viö
aö framhlaupiö héldi áfram eitt-
hvaö fram á sumar, en siöan tæki
íökullinn upp á þvi aö hörfa á
nýjan leik, enda allur oröinn tætt-
ur og brotinn á jöðrunum.
Hagkvæmara að
fljúga yfir
Atlantshafið
Kás— Sérstök nefnd á vegum
alþjóöa-flugmálastofnunarinnar,
ICAO, er fjallar um skipulagn-
ingu og framkvæmd flugumferö-
arþjönustu á Noröur-Atlantshafi,
hefur nýlega mælst til þess aö
fjarlægö milli loftfara á flugleiö-
um á þessu svæði veröi minnkuö
verulega, bæði aö þvi er varöar
lengdar- og hliöaraöskilnaö.
Þessar minnkanir aöskilnaðar,
sem væntanlega munu taka gildi
30. októbernk., munu aö likindum
leiöa til þess að loftför geti flogiö
á hagkvæmari flugleiöum, og að
fleiri loftför rúmist á hagkvæm-
ari flughæðum, er aftur leiöir til
hagkvæmari flugreksturs á svæö-
inu.
Nefndin mælir meö minnkun
hliöaraöskilnaöar úr 120 I 60 sjó-
milur, þar sem nákvæmni flug-
leiösögu þeirra loftfara er fóru
um langdrægni radarstööva er
kanna þessa nákvæmni, haföi á
ákveönu könnunartimabili náö
þeim mörkum er sett voru sem
forsenda fyrir minnkuöum hliö-
araöskilnaði.
Einnig mælir nefndin meö
minnkun lengdaraöskilnaðar loft-
fara, vegna aukinnar nákvæmni i
flugleiösögu.
Myndramminn
á Njálsgötu
Nýlega hóf starfsemi sína aö
Njálsgötu 86 Reykjavik fyrir-
tækiö Myndramminn. Tilgangur
fyrirtækisins er innrömmun og
rammagerö.
Þar er boöiö upp á
úrval rammalista bæöi innflutta
og islenska. Einnig fást þar til-
búnir rammar af ýmsum stærö-
um og geröum t.d. Antik rammar
og hringlaga og sporörkjulaga
rammar sem henta t.d. vel fyrir
ljósmyndir og útsaum. Eigendur
Myndrammans eru Haflina
Breiöfjörö og ólafur Olafsson.
Myndramminn er eins og áöur
segir aö Njálsgötu 86 og siminn
þar er 19212.
Gunnar Karlsson skipaður
prófessor
Forseti tslands hefur aö tillögu landssögu I heimspekideild
menntamálaráöherra skipaö dr. Háskóla tslands frá 1. júli 1980 aö
Gunnar Karlsson prófessor I Is- telja.
Hlaöboröiö á Sögu þar sem fyrstog fremstertögö áhersla á þá miklu fjölbreytni sem lambakjötiö býöur
upp á i matreiöslu. Af réttunum má nefna steikt læri, innbakaö fyllt læri, steiktan hrygg, hangikjöt,
hrátt hangikjöt, léttreykt kjöt, kótelettur, lambageira, kæfu, rúllupylsu, sviöasultu, lifur og nýru og
lambakjöt ikarrý, auk allskonar Ijúffengs meölætis. Timamynd Hóbert.
Sauðfjárafurðakynning á Sögu:
Lostætí og lúxus
hei — Meö þessu viljum viö m.a.
reyna, aö selja útlendingum sem
inest af lambakjötinu okkar hér
heima og minnka meö þvi örlitiö
þörfina á aö flytja þaö út meö
útflutningsbótum, sagöi Konráö
Guömundsson hótelstjóri á Sögu
m.a. sl. föstudagskvöld. En þá
var þar fyrsta vikulega kynning-
arkvöldiöá þessu sumri á „Fæöi
og klæöi úr Islenskum landbúnaö-
arafurðum” („The Farmin Food
Festival”). Þessum kynningar-
kvöldum verður siöan haidiö
áfram á hverjum föstudegi I sum-
ar til loka september.
Þessi kvöld er boðið upp á stórt
borö hlaöiö ótal heitum og köldum
réttum úr islensku lambakjöti,
mjólkurmat og ostum ásamt ööru
góögæti og endaö á kaffi meö
pönnukökum. Þá er sýnt þaö nýj-
asta og markveröasta f tiskufatn-
aöi úr ull og skinnum auk skart-
gripa úr silfri. Sérstakur kynnir
útskýrir fyrir gestum — innlend-
um sem erlendum — þaö sem
þama er boöiö upp á aö skoöa og
neyta. Aö lokum er dansaö til kl.
02.00.
Konráö sagöi þaö samdóma álit
þeirra sem komu á þessi kvöld i
fyrra, aö þar færi saman góö
skemmtun og frábær kynn-
ing á isl. landbúnaöi. Farar-
stjórum og öörum sem taka á
móti erlendum gestum hafi þótt
mikill fengur i þessum kynning-
um, þar sem fróðleikur, góöur
matur og góö skemmtun væri
sameinaö fyrir hóflegt verð. Mun
þetta slst veröa rengt af pakk-
söddum ánægöum blaöamanni
eftir ánægjulegt kvöld sl. föstu-
dag. Enda varö ekki annað séö en
viöstaddir, bæöi erlendir og Is-
lenskir gestir, nytu kvöldsins
ágætlega.
Að sögn Konráös hefur nú þeg-
ar veriö pantaö fyrirfram fyrir
marga hópa siöar I sumar. Þetta
er þó langt i frá eingöngu fyrir út-
lendinga, heldur hvern þann sem
vill boröa góöan mat og skemmta
sér á Sögu, fyrir sanngjarnt verö.