Tíminn - 25.06.1980, Page 9

Tíminn - 25.06.1980, Page 9
Miövikudagur 25. júni 1980. 9 Óskar Magnússon kosningastjóri: „Gott að vinna fyrír Guðlaug” „baö ber að fagna þvi, að fylgi Guðlaugs virðist hafa aukist, þannig að hann er núna efstur. Samkvæmt þessari könnun er alveg ljöst, að baráttan stendur milli tveggja efstu frambjóðend- anna. Hinir tveir þyrftu að auka fylgi sitt um 50% til þess að eiga kost á að ná kjöri, og mér sýnist að það muni reynast torvelt á þessum fáu dögum sem eftir eru til kosninga, einkum i ljósi þess, hversu óákveðnum kjósendum hefur fækkað”, sagði Óskar Magnússon kosningastjóri Guð- laugs Þorvaldssonar. ,,Ég held að fólk skipti ekki um skoðun vegna kannana sem þess- arar, en hitt ber að hafa i huga, að könnunin sýnir aðeins ástandið á þeim tima, sem hún er gerð, en ekki endilega á kjördag”. ,,Nú er að ljúka langri og strangri kosningabaráttu. Hvern- ig hefur hún verið”? „Hún hefur verið óskaplega skemmtileg. bað er mjög gott að vinna með mörgu fólki, sem er geysilega samstillt og það hefur verið mjög skemmtilegt að vinna fyrir Guðlaug Þorvaldsson. Við höfum alls staðar fengið slikar móttökur, að menn hljóta að vera i góðu skapi. Allt annað væri i Það eru margir sem leggja hönd á plóginn i yfirstandandi kosningabaráttu, eins og þessi mynd, sem tekin var á kosningaskrifstofu Guðlaugs f gær, ber með sér Tímamynd Robert. mótsögn við þær móttökur sem við höfum fengið”. „Hefur þetta verið hörð barátta?”. „Já, þetta hefur verið nokkuð hörð barátta, en heiðarleg með einni undantekningu, sem öllum er kunnug. Viðkomandi fram- bjóðandi harmaði það opinber- lega, að slikt skyldi hafa gerst, svo ekki er hægt að segja annaö en aö baráttan hafi verið drengi- leg til dagsins i dag a.m.k.”. „Hver verður kostnaöurinn eft- ir slika törn?” „Ég giska á að kostnaðurinn gæti verið svona þúsund milljónir og þetta vil ég láta hafa eftir mér, þvi að nú er ég að tala um alla þá geysilegu vinnu, sem lögð hefur verið af mörkum. En ef við tölum um beinan útlagðan kostnað, þá erum við einhvers staðar nærri 30 milljónum það er engin launung á því og ég trúi þvi, að kostnaður- inn sé ekki undir þvi hjá neinum frambjóöanda”. „Hvaða starfsemi verðið þið með á kjördag?”. „Við verðum með þessa hefð- bundnu starfsemi, nema við verð- um ekki meö fólk i kjördeildum. Við verðum með bilaþjónustu og stuðningsmenn okkar verða á feröinni við að aðstoða fólk og veita allar upplýsingar. Kaffi- veitingar veröa, en staðurinn hef- ur ekki verið ákveðinn enn. Þá verðum við með eina upplýsinga- skrifstofu fyrir Reykjavik, i staö margra smárra. Frambjóðandinn fer væntan- lega milli staða og fylgist með. „Ertu bjartsýnn?” „Já, ég er það en hóflega þó”. Svanhildur Halldórsdóttir kosningastjóri: „Vigdís efst, þar hefur faríð um” sem hún hægt aö fá almennar uppiýsingar um kjörskrá og leiðbeiningar um ýmis atriði. Engin starfsemi færi fram í kjördeildum. „Það á að treysta fólki til að nota þennan rétt sinn sem er helgurmjögaðminu mati”, sagði Svanhildur og frambjóðandinn okkar verður i Reykjavik á kjör- dag”. Fundahöid stóðu yfir á kosningaskrifstofu Vigdlsar Finnbogadóttur f gær, þegar þessi mynd var tekin. Svanhildur Halldórsdóttir t.v. ásamt öðrum stuðningsmönnum „Þetta sýnir ljóslega, að þar sem Vigdis hefur farið um, þar er hún efst”, sagði Svanhildur Halldórsdóttir kosningastjóri Vigdisar Finnbogadóttur varð- andi skoðanakönnun Visis. „En ég verð að játa, að mér finnst þetta nokkuð tortryggilegar að- ferðir, og þvi ráða nokkur atriði, sem ekki er ástæða til aö fara nánar út i hér. Þetta er i 2. skiptið sem sami hópurinn er spurður og við laus- lega athugun sýnist mér, að það séu 56% af upphaflega úrtakinu, sem svarar. Auk þess hljóta þessi vinnubrögð að vekja tortryggni manna, og niðurstöður geta tæp- lega gefið rétta heildarmynd af fylginu”. Aðspurð um, hvernig kosninga- baráttan hefði verið fram til þessa, sagöist Svanhildur ekki hafa haft neina reynslu i sliku áð- ur. Þetta væri i fyrsta sinn sem hún beitti sér i kosningabaráttu og hún hefði mikinn áhuga á sliku málefni. Hún hefði þvi ei'ig- an samanbúrð, en þvi væri ekki að neita að margt kæmi á óvart. „Þetta, að fólk skuli þurfa að ráð- ast aö mótherjanum, án þessað til þess séu ástæður, það er mér óskiljanlegt. Það er leitt til þess að vita, að menn skuli ekki hafa nógu góðan málstað sjálfir, til að byggja kosningabaráttuna á”, sagði hún. „Við höfum reynt að koma fram af réttsýni gagnvart okkar meðframbjóðendum, en það hef- ur aöeins borið á þvi að mönnum hafi þótt ástæða til að klipa i okk- ur. Ég held, að menn eigi að reyna að bera virðingu fyrir and- stæðingnum, enda verður öll keppni skemmtilegri á þann hátt”. Annars sagði Svanhildur að kosningabaráttan hefði verið afskaplega skemmtileg. Hún hefði kynnst mjög mörgu góðu fólki, um allt land og ætti orðið fjöldann allan af vinum, sem hefðu siðan litið inn og spjallað. „Þaö er dálitið skemmtilegt, að tala við bláókunnugt fólk i sima, freistast til að persónugera rödd- ina og svo kemur viðkomandi inn úr dyrunum. Maður verður oft hálf klumsa, þvi maður var búinn að gera sér allt aðra mynd af við- komandi, en hina réttu. En þetta hafa verið mjög skemmtileg og ánægjuleg sam- skipti við fólk, ekki síst stuðnings- menn á hinum skrifstofunum, og við erum öll miklir mátar”. „Hefur þetta verið árangursrik kosningaba rát ta ? ”. „Þaðsjáum við á sunnudaginn! En varðandi kostnað við þetta allt, þá er ómögulegt að segja til um, hvað hann er orðinn mikill, þvi uppgjör hefur ekki verið gert nýlega. En það hefur verið reynt að eyða ekki i óþarfa, svo sem auglýsingar eða neins konar skrum. Við höfum aðallega lagt áherslu á að koma upplýsingum til fólks t.d. um hvernig hægt sé að ná til okkar, og hvert fólk eigi að snúa sér”. Loks sagði Svanhildur, að á kjördag yröi almenn upplýsinga- þjónusta og bilasimar i Lindarbæ og á fleiri stöðum. Einnig yrði r v. Kæru fyrrverandi nemendur og aðrir fornvinir. Þakka hjartanlega gjafir og aðra góðvild i sambandi við 75 ára afmæli mitt 1. júni s.l. Guðs blessun umvefji ykkur öll. Ingibjörg Jóhannsdóttir frá Löngumýri. Ritarar ■ Sé S óskast til starfa við grunnskólaReykjavikur. Laun skv. launakerfi borgarstarfsmanna. Umsóknum ásamt upplýsingun um menntun og fyrri störf skal skila til Fræðsluskrifstofu Reykjavikur, Tjarnar- götu 12, fyrir 4. júli n.k. Fræðslustjóri. i '> M * i Bændur Búvélavarahlutir Fahrfjölfætiutindar ... kr. 1.750.' Heyþyrlutindar Kuhn .. kr. 1.960.- HeyþyrlutindarFella .. kr. 1.960,- HeyþyrlutindarClaas .. kr. 1.720.- Múgavélatindar Heuma ................kr. Múgavélatindar Vicon . kr. Sláttuþyriuhnifar frá .. kr. 400.- 250.- ÁRMÚLA11

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.