Tíminn - 25.06.1980, Síða 16
Gagnkvæmt
tryggingafélag
riiiiíít'i"
Miðvikudagur 25. júní 1980
A fgreiðslutimi
1 til 2 sól-
arhringar StÍmpÍ3gerÖ
Félagsprentsmiðjunnar hf.
Spítalastíg 10 — Sími 11640
FIDELITY
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
Pantiö myndalista.
Sendum í póstkröfu.
C ihMUAI Vesturgötull
OuUnVHL simi 22600
Vilhjálmur Hjálmarsson sáttasemjari:
Hálfur mánuður til stefnu
til að ganga frá samningum
JSS — „Viö höfum haldiö fundi
mjög þétt núna, og ég tel aö menn
hafi unniö mjög vel nú og lagt sig
fram um aö brjúta málin til
mergjar. En þaö liggur i loftinu,
aö menn hafa varla meiri tima en
hálfan mánuö til aö ganga frá
þessum málum”, sagöi Vilhjálm-
ur Hjálmarsson sáttasemjari i
deilu BSRB og rikisins er Timinn
ræddi viö hann I gær. — 1 fyrra-
dag var haldinn fundur meö
deiluaöilum og eftir hádegiö kom
aöalsamninganefnd BSRB saman
til fundar. Ræddi hún stööu samn-
ingamála og lagöi linurnar aö
áframhaldandi viöræöum.
Þröstur ólafsson aöstoöarmaö-
ur fjármálaráöherra sagöi I viö-
tali viö Timann, aö enn væri ekki
hægt aö segja aö samkomulag
heföi náöst um félagslegu atriöin I
samningaviöræöum BSRB og
rlkisins , sllkt væri of sterkt aö
oröi kveöiö. Hins vegar heföu ver-
iö talin upp nokkur félagsmála-
atriöi 1 gagntilboöi fjármálaráö-
herra, sem siöan heföu veriö unn-
in og rædd frekar. A flestum
þeirra heföu veriö geröar breyt-
ingar og náöst um þau samkomu-
lag I megindráttum innan nefnd-
anna. Þó væru enn nokkur atriöi,
sem ekki væri búiö aö ganga frá.
„Þetta sem birtist I blööum,
var einskonar úrdráttur I stöö-
unni eins og hún var á föstudags-
morguninn, en siöan hefur þetta
breyst,” sagöi Þröstur, „En þaö
má gera ráö fyrir aö þetta veröi
rætt mjög fljótlega I ríkisstjórn-
inni”.
t gær kom til heimahafnar hinn nýi togari Bæjarútgeröar Reykjavlkur, Jön Baldvinsson, sem verið
hefur I smlöum um ársbil I skipasmlðastöð I Portúgal. Mun hann hafa nokkra daga viödvöl áður en hann
heldur af staö til veiöa. Tlmamynd: Tryggvi
Ný fiskveiðistefna mótuð
— fjórir sjávarútvegsráðherrar sitja i starfshópnum
Kás — Steingrlmur Hermanns-
son, sjávarútvegsráöherra, vinn-
ur nú aö mótun nýrrar fiskveiöi-
stefnu, og er stefnt aö þvl aö hún
veröi fullmótuö fyrir lok þessa
árs. Honum til aöstoöar hefur nú
veriö komiö á fót sérstökum
starfshóp, þar sem I eiga sæti
fulltrúar allra þingflokkanna.
Allir þingflokkarnir hafa nú til-
nefnt sina fulltrúa. Þeir eru
Stefán Guömundsson, frá Fram-
sóknarflokki, Kjartan Jóhanns-
son, frá Alþýöuflokki, Lúövik
Jósefsson, frá Alþýöubandalagi,
og Matthlas Bjarnason, frá Sjálf-
stæöisflokki. Formaöur hópsins
er núverandi sjávarútvegsráö-
herra, Steingrlmur Hermannsson
en eins og fyrrgreind upptalning
ber meö sér, sitja I starfshópnum
auk hans, þrir fyrrverandi sjáv-
arútvegsráöherrar.
Enn hefur ekki tekist aö koma á
fyrsta fundi I starfshópnum,
vegna anna þeirra sem sæti eiga
I honum.
FLU6LEIÐIR
SE6JA UPP
89 MANNS
Kás — A stjórnarfundi hjá
Flugleiðum I gær var samþykkt
aö segja upp áttatiu og niu af
starfsmönnum félagsins sem
vinna á aðalskrifstofu þess og
flugafgreiöslum. Er þessi ráö-
stöfun gerö vegna árstlöabund-
ins samdráttar I flugi og flutn-
ingum yfir veturinn og I þeirri
viöleitni að draga úr kostnaði.
Uppsagnirnar taka gildi 1.
oktöber n.k.
Eru þetta færri uppsagnir en
taliö var að hugmyndir væru
uppi um meðal forsvarsmanna
Flugleiöa til aö rétta af þann
hallarekstur sem verið hefur á
félaginu undanfarin ár. Athygli
vekur aö engum flugmanni,
flugfreyju eöa flugvirkjum hef-
ur veriö sagt upp, þannig aö þaö
bendir til þess aö flugferðum og
flugleiðum veröi ekki fækkað
verulega. t frétt frá Flugleiðum
er sérstaklega tekið fram vegna
fyrirspurna, að engar hug-
myndir séu uppi um að hætta
flugi yfir Norður-Atlantshafið.
ToUalækkun
á saltfiski til
Húsatryggingar Reykjavíkur:
Næstu áfangar
nýbyggingarlána
HEI — Einn þáttur I llfi flestra
þeirra er standa í húsbyggingum
er biö eftir Húsnæöismálastjórn-
arláninu, fyrsta, annars eöa
þriöja hluta þess. Nýlega sam-
þykkti húsnæöismálastjórn næstu
áfanga, samtals aö upphæö 2.649
milljónir króna, sem koma eiga
til greiöslu I júli, ágúst og sept-
ember n.k.
Frumlán til þeirra umsækjenda
sem sendu stofnuninni fokheldis-
vottorö fyrir 1. mars s.l. og áttu
fyrirliggjandi fullgildar og láns-
hæfar umsóknir hinn 1. júnl,
veröa veitt til greiöslu eftir 25.
júnl n.k. Þeir sem sendu fokheld-
isvottorö fyrir 1. mai og áttu full-
gildar og lánshæfar umsóknir
hinn 1. júnl, veröa veitt lán til
greiöslu eftir 1. september.
Þeir sem fengu frumlán sin
greidd 5. mars s.l. eiga aö fá miö-
lánin til greiöslu eftir 5. septem-
ber n.k.
Þeir sem fengu frumlán greidd
5. júli 1979 og miölán 20. jan. s.l.
fá sin lokalán til greiöslu eftir 15.
júll n.k. Þeir umsækjendur er
fengu frumlán greidd 1. ágúst
'1979 og miölán 1. febr. s.l. fá loka-
lán sln greidd eftir 10 ágúst n.k.
Og þeir er fengu sin frumlán 1.
sept. 1979 og miölán 1. mars s.l.
eiga aö fá sln lokalán greidd eftir
1. september n.k.
Spánar
HEI — Hinn 1. júli n.k. ganga I
gildi tollalækkanir samkvæmt
viöskiptasamningi EFTA-land-
anna viö Spán.
Fyrir okkur Islendinga skiptir
þetta höfuömáli varöandi salt-
fiskútflutning okkar til Spánar, en
tollur á honum lækkar úr 10% I
7,5%. Svo dæmi sé tekiö var salt-
fiskur seldur héöan til Spánar
fyrir nær 4,4 milljaröa áriö 1978,
þannig aö þaö ár heföi mismunur
þessarar tollalækkunar oröiö á
annaö hundraö milljónir króna.
Varöandi innflutning okkar frá
Spáni hefur þessi tollalækkun
raunverulega lltiö aö segja, en
tollar munu lækka lítillega á
spænskum iönaöarvörum. Inn-
flutningur iönaöarvara frá Spáni
er frekar litill, eöa um 125 millj.
kr. áriö 1978. Aöallega vefnaöar-
vara, skófatnaöur og rafmagns-
tæki.
Helsti innflutningur okkar frá
Spáni var hins vegar þetta sama
ár salt fyrir um 234 millj., vln f.
rúmar 100 millj. og ávextir og
grænmeti f. rúmar 150 milljónir
króna. Saltiö og vlniö hefur veriö
tollfrjálst og ávextirnir teljast
ekki til iönaöarvara.
Húsnæðismálastofnun ríkisms:
Brunatryggingar húsa lækkaðar um 15%
— heimilt að ákveða bónus til tryggingarverktaka verði fjárhagsafkoma fyrirtækisins hagstæð
Kás — Borgarráö samþykkti I
gær að taxtar núgildandi ið-
gjaldaskrár Húsatrygginga
Reykjavikur um brunatrygg-
ingar húsa yrðu lækkaöir um
15%, en þeir hafa undanfarin ár
veriö framkvæmdir með 20%
lækkun. Er þetta gert til að
koma að mestu til móts við
lækkanir Samvinnutrygginga
og Brunabótafélags tslands á
brunatryggingu húsa um 40%
sem tóku gildi um siðustu ára-
mót.
En I lögum um Húsatryggingar
Reykjavlkur segir aö iðgjöld
vegna brunatrygginga I
Reykjavik- eigi aö vera sam-
bærileg iðgjöldum viður-
kenndra tryggingarfélaga, sem
hagkvæmust tilboð gefa aö við-
bættu gjaldi sem lagt er I sér-
stakan tryggingarsjóö.
Jafnframt þessari iögjalda-
lækkun samþykkti borgarráð aö
nýtt ákvæöi þess efnis, aö verði
fjárhagsafkoma Húsatrygging-
anna verulega hagstæö, þá megi
borgarráð heimila ákveöinn
bónus til tryggingartaka, er
komi til frádráttar af iðgjaldi
við næstu endurnýjun. Keinur
til ákvörðunar borgarstjórnar i
haust, þegar fjárhagsáætlun
fyrir Húsatryggingar veröur
samin, að taka afstöðu tll, hvort
greiða skuli bónus til trygg-
ingartaka af tekjuafgangi árs-^
ins 1979.