Tíminn - 14.08.1980, Síða 9
Fimmtudagur 14. ágúst 1980
9
Skautadrottningin
Linda Fratienne
er felldur. Ahorfendur gera þaö
hiklaust og láta álit sitt i ljós, og
þaö getur óbeint haft áhrif á
dómarana. Þaö er hins vegar
enginn vafi á þvi, aö þeir, sem
leita aö fólki til aö koma fram á
skautasýningum, i sjónvarpi og
auglýsingum, meta útlitiö mjög
mikils. Enn sem komiö er, er
Linda ekki til viötals um aö fara
aö nota sér skautafærnina i at-
vinnuskyni, þó aö hún þyki hafa
allt til brunns aö bera til þess,
enda var hún árum saman i
skautadansþjálfun hjá Bob
Paul, sem þjálfaöi Peggy Flem-
ing, en hún varö Ólympiumeist-
ari I listhlaupi á skautum 1968.
Orðin niu ára þegar
hún fór fyrst á skauta
Linda er fljót aö tileinka sér
ný atriöi. Hún fór ekki aö stunda
skautamennsku fyrr en hún var
oröin 9 ára en þaö þykir hár
aldur, eigi árangur aö nást. Þaö
tók hana aöeins þrjú ár aö vinna
sig úr unglingadeild upp I
kvennadeild. Dorothy Hamill
þurfti fjögur ár til þess. Sem
barn var Linda ofvirki, svo óró-
leg, aö hún þurfti stundum
lyfjameöferö. Hún haföi litinn
áhuga á skólanámi, allt þar til
hún kynntist skauta-
mennskunni, þá virkjaöi hún
alla orku sina til aö standa sig
sem best á þvi sviöi.
Faöir Lindu er dómari I Los
Angeles og þvl vellaunaöur. Þaö
kemur sér vel, þvi aö þjálfun
Lindu hefur kostaö 12.000 doll-
ara á ári og reiknaö meö aö
þjálfun hennar fyrir Clymplu-
leikana kostaöi 20.000 dollara.
Þessi fjárútlát hafa haft þaö I
för meö sér, aö fjölskylda Lindu
hefur oröiö aö neita sér um
ýmislegt. En móöir Lindu, sem
segist tala fyrir munn fjögurra
systkina hennar á aldrinum 12
til 22 ára, segir: Ég hef ekki
garöyrkjumann eins og ná-
grannarnir og viö höfum ekki
tekiö okkur leyfi árum saman.
En ekkert okkar hefur neitt viö
þetta aö athuga. Systkini Lindu
myndu ekki vilja færa þær fórn-
ir, sem hún gerir. Þau dást aö
henni fyrir þaö, hvaö einbeitt
hún er.
Æfir sig 8 tima á dag
Fórnir þær, sem Linda færir,
felast I þvl aö fara á fætur kl.
4.30, klæöast hálfsofandi, ganga
hálfgert I svefni út I bllinn, sem
móöirhennar ekur henni I þá 20
milna vegalengd, sem er til
skautahallarinnar. A leiöinni
maular Linda einhvern
morgunmat. Þegar til skauta-
hallarinnar er komiö, taka viö
æfingar, sem standa I 8 tlma,
ballettæfingar, lyftingar. I rúm-
iö er hún komin kl. 8. Hún hefur
þegar oröiö aö þola bólgur I
innra eyra, ökklabrot og tognun
á vööva I mjööm. Linda þarf
stööugt aö hafa aögát I matar-
æöi, til aö halda þeirri þyngd,
sem henni hentar best. Hún er
155 cm á hæö og vegur tæp 43 kg.
Auk þessara fórna hefur hún
misst allt samband viö fyrrum
skölafélaga slna, en hún út-
skrifaöist úr gagnfræöaskóla
fyrir tveim árum. Félags-
skapurinn viö annaö skautafólk
er ekki alltaf sérlega notalegur.
— Þeir, sem komast greiölega
upp framastigann, fara gjarnan
fram úr einhverjum, segir
móöir Lindu, — og viöbúiö er, aö
einhverjir reyni aö stjaka viö
þeim, sem vel gengur.
Kærastar? Frú Fratienne er
ekki frá því aö áhugi Lindu á
hinu kyninu hafi aukist slöan
nefiö á henni var lagfært. — Oft-
ast eru þrlr bllar fullir af strák-
um á hælunum á okkur, segir
hún. En Linda segir: Ég verö aö
segja strákunum aö trufla mig
ekki I miöri viku og á meöan á
keppni stendur mega þeir alls
ekki tala viö mig. Auövitaö
sakna ég þess aö vera innan um
annaö ungt fólk. En þaö, sem ég
er aö undirbúa, er þess viröi.
Hvaö er hún aö undirbúa sem er
svo mikilvægt? — Framtíö
mina, segir Linda.
Linda hefur æfingar kl. 6 á morgnana og æfir sleitulaust I 8 tlma á
dag. Arangurinn hefur ekki látiö á sér standa, hún er álitin sú
skautastjarna, sem einna bestu valdi hefur náð á tæknilegri hliö
iþróttarinnar.
Eftir aö aögerðin var gerö á nefi Lindu Ariö 1977 varð Linda Bandaríkjameistari I listhlaupi
•—r á hún auöveldara meö andardrátt.
ÞegarLinda Fratienne var 15
ára, áriö 1976 og tók þátt I
Bandarikjameistarakeppni I
listhlaupi á skautum, skrifaöi
einn keppinautur hennar I leiö-
beiningapésann hennar: — Ég á
von á þvl aö sjá gullverölaunin
um háls þér á ólympíuleikunum
1980. Sú, sem skrifaöi þessi orö,
var Dorothy Hamill, en hún
varö Ólymplumeistari 1976 I
þessari keppnisgrein. Sem
kunnugt er rættist þessi spá-
dómur ekki alveg, Linda varö
aö láta sér nægja silfriö.
Ari eftir aö Dorothy Hamill
spáöi þessu um frama Lindu,
geröist Linda sjálf atvinnu-
manneskja I skautalist og þá tók
hún alla titla hennar aö erföum,
nema ólymplutitilinn, eins og
fyrr er sagt. A fyrra ári varöi
hún og vann I þriöja sinn Banda-
rikjameistaratitilinn.
Þjálfari Lindu, Frank Carroll,
segir, þegar hann ber þessar
tvær glæsilegu skautadisir
saman: Hamill var mjög kraft-
mikil. En Linda hefur náö meiri
tækni. Sem dæmi um tækni
Lindu má nefna aö hún er ein af
örfáum konum, sem stööugt
hefur þrefalt stökk á dag-
skránni. En þaö, sem vefst fyrir
bæöi Carroll og öörum er hvort
Linda sé eingöngu sú skauta-
stjarna sem hefur náö mestri
tæknilegri færni eöa hvort hún
hefur þaö til aö bera, sem skilur
á milli listamannsins og tækni-
mannsins. — Hún á eftir aö
koma út úr skel sinni og veröa
listamaöur, segir Carroll.
Nef Lindu lagfært
Fyrir 2 árum steig Linda
skref I þá átt. Hún lagfæröi skel-
ina slna. — Hún haföi andaö eins
og hvalur, segir Carroll. Svo aö
þaö varö úr, aö hún gekkst undir
aögerö til aö láta fjarlægja
kirtla og rétta nefgöngin. Þá
greip Linda tækifæriö, fyrst
þurfti aö krukka I nefiö á henni
hvort sem var og lét lagfæra
lögunina á nefinu I leiðinni.
— Ég haföi lengi haft þaö á
bak viöeyraö aö láta gera þetta.
Eldri systir mln haföi látiö laga
nefiö á sér og núna, þegar búiö
er aö laga mitt, langar yngri
systur mlna til aö feta I fótspor
okkar, segir Linda. — Ég haföi I
rauninni aldrei haft neina
minnimáttarkennd vegna nefs-
ins á mér en þó haföi ég alltaf
smááhyggjur af því. Ef ég t.d.
gekk framhjá spegli, gaf ég þvi
alltaf auga og ef ég var aö tala
viö einhvern, var mjög ltklegt,
aö ég færi ósjálfrátt aö hugsa
um nefiö á mér. En mér fannst
þaö ekki alveg ómögulegt.
Þaö er erfitt aö sýna fram á
þaö, aö dómarar I keppni hafi
tilhneigingu til þess, alveg
ósjálfrátt, aö taka tillit til útlits
keppandans, þegar úrskuröur