Tíminn - 19.09.1980, Qupperneq 4
4
í spegli tímans
Föstudagur 19. september 1980,
Gyðingar mótmæla Vanessu
Vanessa Redgrave er
ekki beint heitt elskuð
meðal Gyðinga, enda hef-
ur hún lýst því yfir bæði
hátt og í hljóði, að hún sé
eindreginn stuðningsmaði
ur Frelsishrey f ingar
Palestínu, PLO. Samt fór
nú svo, að eftir henni var
falast til að leika hlutverk
í nýrri kvikmynd, sem
fjallar um hörmungar
Gyðinga í útrýmingar-
búðum nasista, sem ný
lega er búið að minna
okkur íslendinga ræki-
lega á með sýningum á
Helförinni í sjónvarpinu.
Vanessa, sem sést hér á
myndinni, önnur frá
vinstri, fer með hlutverk
konu, sem lifði
Auschwitz-dvölina af. Sú
-<--------------
kona, Fania Fenelow,
segir: — Að velja yfir-
lýstan stuðningsmann við
hryðjuverk Araba gegn
Gyðingum í hlutverkið er
hrein móðgun. Gyðingar í
Bandaríkjunum hafa nú
hrundið af stað mikilli
mótmælaherferð gegn
myndinni og hvetja fólk
til að láta hana framhjá
sér fara. Engu að síður
eru framleiðendur mynd-
arinnar gallharðir á því
að koma henni á markað.
Engar sögur fara af gæð-
um myndarinnar, en
e.t.v. verður allt þetta
f jaðrafok til þess að aug-
lýsa hana meira en ella.
Hún heitir Playing For
Time.
Hér er Vanessa sem fangi i Auschwitz, önnur frá vinstri. Þarna er
leikkonan snoðklippt og klædd tötrum.
Diana Dors i nýju hlutverki
Sú var tíðin, að breska leikkonan
Diana Dors vakti lostaf ullar hug-
renningar í brjóstum karlmanna.
Þeir dagar eru nú reyndar liðnir,
en í nýjasta hlutverki sínu töfrar
hún þó marga. Þar leikur hún
— Heyrðu elskan. Hér er komin
sú, sem veitti þér harðasta
keppni.
— Mundu það næst þegar þú
pantar borö, aö þú verður aö
panta stólana lika.
— Pabbi, get ég orðið kúreki,
þegar ég er orðinn stór?
gamla konu, sem er galdranorn
líkust. Sonur hennar, Jason, sem
er hér á myndinni með mömmu
sinni, fer með smáhlutverk í
myndinni, sem ber nafnið Childr-
en Of The Full Moon. Hlutverk
Diönu í myndinni er fólgið í því,
að hún á að annast hóp af börn-
um, sem eru að hálf u leyti mann-
leg og að hálfu leyti úlfar. Er
sagt að hún geti a.m.k. endurlif-
að gamla tíma í sambandi við
úlfseðlið í börnunum, því að
margur karlmaðurinn hafi
reynst úlfur í sauðargæru í sam-
skiptum sínum við hana.
i'-'.Á.,
bridge
I sjöttu umferð á Evrópumótinu í Israel
spilaði ísland við Breta. Þetta var einn af
þeim leikjum þar sem allt gengur á aftur-
fótunum hjá öðru liðinu, í þessu tilfelli Is-
lendingum, og þegar upp var staðið höföu
Bretar unnið meö 20-5. Bretarnir höfðu
góðu liði á að skipa á pappirnum, m.a.
Lodge og Granville, sem voru i sigurliðinu
1978, og Kirby, sem spilaði i opna liðinu á
Evrópumótinu 1979. En þeir náðu sér
aldrei á strik og enduðu fyrir neðan
miðju. En á móti tslandi gekk þeim allt i
haginn eins og eftirfarandi spil er gott
dæmi um.
Norður. S.G105 H. 95
T. D742 L.D943 V/AV
Vestur. Austur.
S.AK74 S.986
H. 74 H.KG10
T. AK96 T. 10
L. A86 Suður. S. D32 H. AD8632 T. G853 L. L. KG10752
1 opna salnum spiluðu Granville og
Jackson 3 grönd i AV og fengu 12 slagi eft-
ir hjartaútspil frá suðri. 1 lokaöa salnum
voru sagnir hálf skrautlegar. Skúli og
Þorlákur sátu i AV og Kirby og Lodge i
NS.
Vestur. Noður. Austur. Suöur.
llauf lspaði 2lauf 2spaðar
dobl redobl pass 3tiglar
dobl allir pass.
Spaði norðurs yfir sterku laufopnuninni
sýndi annaðhvort háliti eöa lágliti (!) og
tveggjaspaðasögn Lodge i suður var til
þess ætluö aö grugga vatnið. Redoblið
sýndi auðvitað láglitina. Skúli i vestur
kom út meö ás og kóng i tigli og spilaði
þriðja tiglinum sem Lodge tók heima.
Hann spilaði hjarta á niuna og Þorlákur
fékk á gosann og spilaði spaöa til baka.
Skúli tók á kóng og grunlaus um hjartalit
suðurs spilaði hann nú sfðasta tiglinum.
Lodge tók á drottninguna i borði og spilaði
hjarta og svinaöi drottningunni. Ef Skúli
hefði átt hjartakóng hefði Lodge aðeins
fengið 2 ti'gulslagi og farið 1300 niður. En
hjartasviningin gekk og hjartað lá 3-2 svo
sektin var aðeins 300. Litið uppi geim á
hættunni.