Tíminn - 20.09.1980, Side 11
Laugardagur 20. september 1980.
IÞROTTIR
IÞROTTIR
að stöðva hann.
Reykjavíkurár í knattspymu....
Víkingur, Valur og Fram
í Evrópukeppnina 1981
Víkingar unnu sigur 2:1 yfir Skagamönnum i gærkvöldi í baráttunni um UEFA-sætiö
Þaö voru ánægðir Vikingar sem
yfirgáfu Laugardalsvöllinn i kol-
niöamyrkri i gærkvöldi, eftir aö
þeir voru biínir aö tryggja sér
sigur 2:1 yfir Skagamönnum og
jafnframt sæti I UEFA-bikar-
keppninni i knattspyrnu 1981. Þaö
eru nú liðin 9 ár siöan aö Vikingar
hafa unniö sér rétt til aö leika I
Evrópukeppni.
Þá má geta þess til gamans
aö meö þessum sigri Vikings,
taka þrjú Reykjavikurliö þátt i
Evrópukeppninni næsta ár — Vik-
ingur, Valur og Fram. Þá eru
jafnframt 31 ár siðan aö þrjú
Reykjavikurliö voru i efstu sæt-
um íslandsmótsins — þaö var
1949.
Vikingar mættu ákveönir til
leiks og þaö var greinilegt aö þeir
ætluöu aö selja sig dýrt — þeir
sóttu stift aö marki Skagamanna
og Lárus Guömundsson, hinn
stórefnilegi sóknarleikmaöur
þeirra opnaöi leikinn, þegar hann
skoraöi stórgiæsilegt mark, eftir.
varnarmistök landsliösmiö-
varöarins Siguröar Hallddrs-
sonar, sem var aö dóla meö kött-
inn. Lárus náöi aö „stela” knett-
inum frá Siguröi og brunaöi siöan
meö knöttinn inn I vítateig Skaga-
manna og skoraöi meö glæsilegu
skoti, sem Bjarni Sigurösson réöi
ekkert viö.
Vlkingar bættu síöan viö ööru
marki á 48. mln. leiksins — þá
brunaöi Lárus fram völlinn og
sendi laglega sendingu til nýliö-
ans Jóhanns Þorvaldssonar, sem
tók knöttinn laglega niður og
sendi hann örugglega I netiö —
2:0.
Skagamenn minnkuöu muninn
á 60 min. — þá skallaöi Július
Ingólfsson knöttinn aö marki Vik-
inga, Diörik ólafsson, markvörö-
ur misreiknaöi knöttinn, sem
barst inn I markteig, þar sem
Ómar Sigþórsson var — hann
setti brjóstkassanni knöttinn, sem
skoppáöi inn I mark Vikinga.
Eftir þetta tóku Skagamenn völd
in I leiknum og sóttu þungt aö
marki Vikinga, sem höföu gefist
upp. Arni Sveinsson átti skot i
stöng — Ur hornspyrnu og rétt
fyrir leikslok varöi Diörik ólafs-
son, markvöröur.meistaralega
skot frá Arna, meö þvi aö slá
knöttinn glæsilega yfir þverslána.
Vlkingar sluppu meö „skrekk-
inn” og fögnuöu sigri.
„Það verður
erfiður róður
hjá okkur
— í siöari leiknum gegn Hvidovre”, segir
• ••
Marteinn Geirsson
m
— Róöurinn veröur erfiöur
hjá okkur I siöari leiknum
gegn Hvidovre. Danirnir eru
meö mjög gott liö og þeir
koma örugglega meö þvf
hugarfari hingaö, aö halda
fengnum hlut, sagöi Marteinn
Geirsson, fyrirliöi Fram, sem
tapaöi 0:1 fyrir Hvidovre f
Kaupmannahöfn i fyrri leik
liöanna I Evrópukeppni meist-
araliöa.
— Viö þurfum aö vinna Dan-
ina 2:0 hér heima, til aö
komast áfram I keppninni. Þá
veröum viö aö koma I veg
fyrir aö Danirnir skori, þvi aö
ekki er nóg fyrir okkur aö
vinna 2:1, sagöi Marteinn.
Ef Framarar næöu aö vinna
sigur 1:0, þá yröi aö fara fram
vitaspyrnukeppni — og i vlta-
spyrnukeppni ættu Framarar
góöa möguleika. Framarar
leika gegn Hvidovre á
Laugardalsvellinum 28.
september.
liðínu
það á fyrir höndum
13 tíma ferð frá
Kaupmannahöfn
til Izmír
Landsliöiö i knattspyrnu á
erfitt ferðalag fyrir höndum,
en landsliöiö heldur til Tyrk-
iands i fyrramáliö, meö viö-
komu i Kaupmannahöfn. „Út-
lendingarnir” sex, sem valdir
voru I iandsiiöshópinn koma
til Kaupmannahafnar á
morgun og annaðkvöld veröur
æfing hjá landsliöinu I Kaup-
mannahöfn, en slöan verður
lagt upp til Izmir á mánudags-
morguninn kl. 10.20.
Þaö er áætlaö aö feröin frá
Kaupmannahöfntil Izmirtaki
landsliöiö 14 klukkustundir,
meö viökomu I Frankfurt og
Istanbúl (Konstantinópel),
þar sem iandsliöiö þarf aö
blöa I 5 klukkustundir, áöur en
haldiö veröur til Izmir viö
Eyjahaf, þar sem landsleikur-
inn fer fram á miövikudaginn
kemur, en áætlaö er aö liöíö
veröi komiö þangaö á mánu-
dagskvöldiö kl. 23.30.
— Þetta veröur mjög erfiö
ferö hjá strákunum, sagöi
Friöjón B. Friöjónsson, gjald-
keriK.S.Í., sem er farastjóri I
feröinni. Friöjón sagöi aö
hann hafi haft samband viö
ræöismann Islands I Istanbúl,
sem mun taka á móti lands-
liöshópnum og veröa meö
hópnum á meöan á feröinni
sterrdur I Tyrklandi. Þá er^
búiö aö skipuleggja skoöunar-
ferö um Istanbúl á meöan
beöiö er eftir feröinni til Izmir.
^SOS.
Í.V .
v ~ ■ . ■ • .. ... ... .
.
VtKINGAR.... sækja aö marki Skagamanna — Róbert Agnarsson og ómar Torfason (fjær), en
Jóni Guðlaugssyni tekst aö bægja hættunni frá. (Tlmamynd Róbert).