Tíminn - 03.10.1980, Blaðsíða 7

Tíminn - 03.10.1980, Blaðsíða 7
Föstudagur 3. október 1980. 7 Ú tvarpsreks tur einstaklinga eða f élagasamtaka Ný viðhorf i rniðlun útvarps- og sjónvarpsefnis t fjölmiðlum er útvarpsrekst- ur af þvi tagi sem fyrirsögnin vísar til oft nefndur „frjáls” eða „óháður”. Ég felli mig engan veginn við slika notkun þessara hugtaka og skal reyna að gera grein fyrir ástæðum þess. Einkaréttur Rikisútvarpsins er á sinn hátt takmörkun á frelsi til óheftrar útvarpsfjölmiðlun- ar. Orðið „frjáls” getur þvi átt við um andstæðu þess. Ef við göngum út frá þvi að réttur til útvarps verði rýmkaður, mun samanburður milli Rikisút- varpsins og annarra útvarps- stöðva hins vegar byggjast á dagskrá og dagskrárgerð. Þar með verður notkun orðanna „frjáls” eða „óháður” um aðrar stöðvar en Rikisútvarpið út i bláinn, þvi að hinar nýju stöðv- ar yrðu vissulega háðar ýmsu, t.d. skoðunum þess hóps sem rekur stöðina, f jármagni o.fl. Ef út i það væri farið væri Rikisút- varpið á ýmsum sviðum bæði „frjálsara” og „óháðara”. Ég hygg að tækni og aðstæður til útvarpsfjölmiðlunar séu nú orðnar með þeim hætti að nauð- synlegt sé að rýmka rétt til út- varps. Bg tel þó að sá réttur eigi ekki að vera ótakmarkaður, heldur verði leyfi veitt að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum, og þyrfti þá einkum að hafa eftirfarandi atriði i huga. 1 fyrsta lagi er ástæðulaust að gera útvarp að hreinu við- skiptatæki, þar sem ætlunin er að afla fjár með auglýsingum. Þá yrðium beina samkeppni að ræða við Rikisútvarpið um tekj- ur, þvi að auglýsingar eru mikilvægur tekustofn fyrir stofnunina. Tel ég auðsætt, að hyggilegra sé að nota tekjur af auglýsingum til dagskrárgerðar en að beina þeim til einkaaðilá, að hluta i vasa þeirra en að öðru leyti til greiðslu kostnaðar við umgjörð auglýsingastarfsem- innar. Þarna yrðiað setja skyn- samleg mörk fyrir magn aug- lýsinga, þvi að einkahagsmunir fárra hljóta i þessu að vikja fyrir hagsmunum þess fjöl- miðils sem nær þjóðinni allri. Fjár til reksturs útvarpsstöðva yrði svo væntanlega að öðru leyti aflað með framlögum ýmissa aðila eöa jafnvel með afnotagjöldum i einhverri mynd. I öðru lagi er rétt að við veit- ingu leyfa sé það gert að skilyrði að útvarp byggi ekki á erlendu fjármagni. Virðist þörf á slikum varnagla, enda nýleg dæmi um beina erienda fjárstyrki til stjórnmálasamtaka i fjölmiðl- unarskyni. 1 þriðja lagi kemur svo það sjálfsagða skilyrði að við dag- skrárgerð haldi menn sig innan ramma almennra velsæmis- reglna og meiðyrðalöggjafar. Sennilegt er að hugur áhuga- manna um einkarekstur út- varps standi einkum til útvarps af viðskipta- eða hugsjóna- ástæðum. Einkaaðilar vilja lik- lega byggja dagskrá á auglýs- ingum en fylla dagskrártima að öðru leyti með léttri tónlist og öðru léttmeti sem þætti til þess fallið að laða fólk að tækjunum. Félagasamtök ýmis konar myndu fyrst og fremst vilja flytja boöskap sinn, sem verið gæti trúlegs eðlis, stjórnmála- legs eðlis og i rauninni allt þar á milli. Engan veginn er útilokað að landshlutasamtök óski að koma á fót héraðsútvarpi, og þvi skyldu einbeittir ,,disco”-áhugamenn ekki koma sér saman um „disco”—stöð? Aðeins til góðs — með skilyrðum Með þeim skilyrðum til út- varpsreksturs sem að framan voru nefnd, teldi ég að afskipti af dagskrárgerð einkastöðva ættu að vera upp talin. Menn yrðu einfaldlega að horfast i augu við þá auknu valkosti sem á boðstólum væru og yrðu vita- skuld að sætta sig við einhliða boðun á hvers konar stefnum i útvarpi án ihlutunar. Einnig yrðu menn þá aö gera sér ljóst, að mjög er misjafnt, hvert fjár- hagslegt bolmagn samtök hefðu til útvarps, en meðrýmkunrétt- ar yrði auðvitað engin leið að setja á slikt hömlur. Sammerkt einkastöðvum yröi væntanlega að þær ýrðu nokkuð staðbundnar, og það einkum af þeim tveim ástæðum að þær myndu ekki ráða yfir eða ráða við dreifikerfi sem næði öllum landsmönnum og hefðu enda mestan áhuga á að ná til þétt- bílissvæðanna. Hvaða áhrif hefði svo þessi þróun á Rikisútvarpið? Ég hef þegar látið i ljós þá skoðun að sjá þurfi til þess að einkastöðv- ar skaöi ekki um of fjárhag Rikisútvarpsins, nema þá að ný leið finnist til tekjuöflunar. Samkeppni i dagskrárgerð get- ur hins vegar aldrei orðið til annars en góðs. Það grund- vallaratriði hljóta svo allir að geta tekið undir að Rikisútvarp- inu mun áfram bera skylda til að sjá þjóðinni allri fyrir fjöl- breyttu dagskrárefni og alhliöa umræðu um þjóðfélagsmál sem nái eyrum og augum allra landsmanna. Fréttir af stofnun sjónvarps i Grænlandi fyrir skemmstu vöktu athygli mina. Þar kom fram að litlar sjónvarpsstöðvar hefðu starfað i stórum bæjum um skeið og sent út efni af myndsegulböndum, oft án leyfis og greiðslna. Nú þætti hins veg- ar ekki annað fært en að stofna til sameiginlegssjónvarps fyrir sem flesta landsmenn. Ég fæ ekki betur séð en þessi frétt styðji þá skoðun að sameiginleg fjölmiðlun útvarps og sjónvarps sé nauðsynleg þjóð i dreifbýlu landi. i „Nærradio” t sumum nágrannalanda okk- ar fara um þessar mundir fram talsverðar umræður um einka- rétt útvarps. í Noregi komu i vetur fram allitarlegar tillögur frá Hægriflokknum, þar sem m.a. var lagt til að leyfa út- varpsrekstur einkaaðila i ein- hverjum mæli, en þar i landi hafa einkum ýmsir trúarhópar sýnt sliku áhuga. Samt fór það nú svo að ný útvarpslög voru samþykkt þar i lok mai i vor án verulegra breytinga i þessa átt. Þó var látið að þvi liggja að ekki væri langt að biða frekari tið- inda, þar eö fjölmiðlanefnd starfar nú á vegum Stórþingsins og á að skila áliti innan tveggja ára. Sviar eru komnir nokkru lengra. Þeir tóku sig til fyrir einu ári siðan og leyfðu rekstur einkaútvarpsstöðva við hlið rikisútvarpsins á afmörkuðum svæðum og með vissum skilyrð- um, sem einkum eru þau, að ekki séu auglýsingar i útsend- ingum og að stöðvarnar haldi sig innan marka almennra laga. Þetta tilraunaútvarp sem nefnist „nærradio” á að standa til 1982 og verður þá tekin endanleg ákvöröun um fram- hald þess. t „nærradio” — kerfinu fá alls konar hópar tækifæri til að út- búa dagskrá i 2klst. á dag eða 14 klst. á viku. Mikil bylgja nýrra stöðva kom þegar fram, eftir að leyfi fékkst, og munu nú vera um 270 útvarpsstöðvar af þessu tagi á 16 reynslusvæðum i land- inu. Fjarri fer þó að þær sendi allar út i 2 klst. á dag og sumar þeirra starfa mjög óreglulega. Eins og vænta mátti eru það einkum ýmsir trúarhópar og félagasamtök svo sem náttúru- verndarsamtök, samtök á ysta væng stjórnmála, samtök út- lendinga i Sviþjóð o.fl. o.fl. sem stunda útvarpsrekstur i „nær- radio” en sumar stöðvar senda aðeins tónlist. Vinna við útsend- ingar er fyrst og fremst sjálf- boðaliðastarf, en rekstur að öðru leyti kostaður með frjáls- um framlögum félaga og ein- staklinga. Geta má þess að þegar hefur verið gerð könnun á hlustun fyrsta reynsluárið. Skýrði sænska sjónvarpið frá þvi i fréttum 27. ágúst s.l. að hún leiddi i ljós að mjög fáir hlusti á „nærradio”. Þannig höfðu 70% útvarpshlustenda á 15 af 16 reynslusvæðum aldrei hlustað á „nærradio” — dagskrá. Vissu- lega verður fróðlegt að fylgjast með hvert framhaldið verður. Ný viðhorf i miðlun sjón- varpsefnis Vikjum nú aðeins að sjón- varpi sérstaklega og þá fyrst að notkun myndsegulbanda i heimahúsum sem mjög voru til umræðu hér siðastliðið vor, einkum dreifing sliks efnis i fjölbýlishúsum. Myndsegulbönd eru enn eitt afsprengi tækniþróunar sefn sjálfsagt er að nýta til lræðslu og skemmtunar þar sem þaö er kleift. Er þegar farið að selja eða leigja hið fjölbreytilegasta efni á böndum. Ég tel ekki að notkun mynd- efnis i heimahúsum eða á stofn- unum geti með nokkru móti skaðað Rikisútvarpið og dag- skrá þess, og jafn fráleitt aö reyna að stemma stigu við þvi og ef eltast ætti við notkun tón- listar eða annars efnis ai tón- böndum. Það ber hins vegar varla vott um sanngirni að ætlast til þess að i útvarpslögum frá 1971 sé tekið tillit til að- stæðna sem þá voru ekki fyrir hendi og ekki fyrirsjáanlegar. 1 2. gr. reglugerðar um Rikisút- varp er þó þrátt fyrir allt ákvæði um frávik frá einkarétti til útvarps, en þar segir: „Það telst samkvæmt lögum þessum ekki útsending til við- töku almennings, þótt veitt sé upplýsingaþjónusta um hið al- menna simakerfi, sendar út veðurfregnir eða önnur boð til skipa á hafi úti eða sent efni um þráð til viðtakenda innan bygg- ingar eða samliggjandi bygg- inga sömu stofnunar, svo sem i sjúkrahúsum, gistihúsum, skól- um eða verksmiðjum”. Sé litið á, hvað átt er við með stofnunum þarna, þar ekki nema svolitla sanngirni til að túlka greinina með þeim hætti að i lagi sé að senda efni um þráð i fleiri tegundum bygg- mga, og þvi þá ekki i fjölbýlis- husum? Hinu er ekki að leyna að uppsetning kapla sem tengja mörg hús eða jafnvel heilt hverfi er i ósamræmi við út- varpslögin eins og þau eru nú. Með það i huga, að brátt veröur algengt að leggja sameiginleg sjónvarpskerfi i heil hverli er vitaskuld ljóst, að þarna þarf aö taka á málum með breyttar að- stæður i huga. Tæknilega séð má segja að sjónvarp standi um þessar mundir á timamótum að einn einu leytinu. Notkun gervi- hnatta til sjónvarpssendinga eykstnú hröðum skrefum. Jarð- stöðin Skyggnir er að taka til starfa og kemur þá að þvi að islenskasjónvarpiðgeti tekið við beinum útsendingum frá meiri- háttar viðburöum erlendis. NORDSAT Enn stærri i sniðum er sú hug- mynd að taka upp viötæka norræna samvinnu um dreif- ingu sjónvarpsefnis milli Norðurlanda með aðstoö sjón- varpshnattar, þekkt undir nal'n- inu NORDSAT. Island, Græn- land og Færeyjar munu þá eiga kost á 5 sjónvarpsrásum og 10 útvarpsrásum, og Danmörk, Noregur, Sviþjóð og Finnland 7 sjónvarpsrásum og 11 útvarps- rásum. Meginhugsunin meö þessu er að auka menningarleg samskipti þessara grannþjóða á öllum sviöum. Sjónvarpsnot- endur geta þá valið milli dag- skráa allra Norðurlandanna og verða þær að nokkru sendar með textaþýðingum. Ljóst virðist að almenningur muni horfa meira á sjónvarp en nú er ef af þessu verður, einkum á svæðnm þar sem senditimi er nú skammur. Fjölbreytni dag- skrár mun aukast að mun. Sum- ir óttast að það leiði ai'tur tii þeirrar tilhneigingar að velja ætið þá stöð sem sendir léttustu dagskrána hverju sinni en sneiða hjá l'ræðslu- og menningarefni. Vera má aö svo veröi, en hver og einn hefur auð- vitað rétt til að velja sér dag- skrárefni eftir eigin höfði. Þeir sem eftir sem áður óska eftir fræöslu- og menningarefni munu einnig hafa úr mun fjöl- breyttari dagskrá að velja en nú er. Ljóst er að gifurlegur kostnaður verður við aö koma NORDSAT-áætluninni á laggirnar, og mun Island þá liklega greiða svipað hlutfall og i öðrum samnorrænum verkefn- um. Einstaklingar hefðu einnig talsverð útgjöld af þvi að afla móttökutækja og loftneta heima fyrir. Verði áætlunin samþykkt má ætla að undirbúningur taki það langan tima að sendingar hefjist ekki fyrr en i lok þess áratugar sem nú er að hefjast. Skoðanir munu vera mjög skipt- ar um málið og alls óvist hver afdrif þess verða á endanum. Móttökustööin Skyggnir gerir kleift aö taka viö sjónvarpsefni og sjón- varpa hér á landi beint frá útlöndum. Tfmamynd GE.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.