Tíminn - 22.10.1980, Síða 2
2
Miðvikudagur 22. október 1980.
i * „HÖFUM TEY6T OKKUR
j EINS LAN6T 06 HÆ6T ER” j
• — segir Steingrimur Hermannsson samgönguráöherra um aöstoöina við Flugleiöir •
IFRI — Næsti leikur i stöðunni
hlýtur að vera hjá Flugleiðum
en þeireru á stjórnarfundi nú og
ég hef ekki frétt af þeim fundi,
sagði Steingrimur Hermanns-
• son samgöngumálaráðherra f
viðtali við blaðamann Timans f
Alþingi i gær er við spurðum
hann um framhaldið i málefn-
um Flugleiða.
— — Það eru ýmsar blikur á
lofti i þessu máli og erfiðleikar
Atlantshafsflugsins eru smá-
munir samanborið viö erfið-
leika félagsins i heild.
— Við höfum meö frumvarpi
okkar teygt okkur eins langt og
hægt er að hugsa sér hvað að-
stoð við félagiö varðar með
framkomnu frumvarpi og ég
• vona að siöasta áætlun sem
félagið hefur lagt fram sé raun-
sæ en okkar áætlanir eru byggð-
ar á grundvelli upplýsinga frá
félaginu.
— Það sem gerist á næstu
dögum er aö viö munum biða
a eftir niðurstöðum úr könnun
matsmanna á eignum félagsins
en eftir frumvarpið þá er næsti
leikur hjá Flugleiðum.
Iræöusinnium málefni Flug-
leiða á Alþingi I gær kom fram
hjá Steingrimi Hermannssyni
eftir að hann hafði greint frá
aðdraganda málsins á undan-
förnuári að hallarekstur félags-
ins á Atlantshafi hefði dregið
mjög úr ööru flugi félagsins.
Hann sagðist ekki vera hrifinn
af þeirri hugmynd að mynda
nýtt flugfélag i Luxemburg þar
sem við hefðum takmarkaðan
hagnað af þvi.
Hann sagði I ræðu sinni að
bæta yrði starfsandann innan
félagsins þvi andinn væri langt
frá þvi að vera eins góður og
þyrfti og ætti þetta verulegan
þátt i erfiðleikum félagsins.
Semdæmium þetta nefndihann
deilur milli starfshópa og for-
ráðamanna félagsins.
Hann sagði að hann hefði
beðið félagið að skoða vandlega
hvernig rekstrarfjárstaðan
væri og að hann ætti von á svari
við þvi bráðlega en hún er mjög
slæm nú.
Hann sagðist ekki geta varist
þeirri skoðun að mistök I
stjórnun félagsins ættu hér hlut
að þvl hvernig komið væri og
nefndi sem dæmi um þaö að
ekki hefðú' verið fest kaup á
breiöþotum nógu snemma og er
þaö vargert var keypt þota með
litlu fraktplássi en hins vegar
yröi engum kennt um þann
skaða er varö af DC-10 þotunni
eftir flugslysið á Chicago-flug-
velli.
Mörgum spurningum
ósvarað
Ragnar Arnalds talaði á eftir
samgönguráðherra og sagöi
hann aö mörgum spurningum
málsins væri ósvarað eins og
þvi hvaöa veö verði sett vegna
ábyrgðanna?, Hver sé heildar-
upphæð ábyrgða’heimilda og
hverjir séu skilmálar rikisins?
Ginnig gerði Ragnar Arnalds
skrif Morgunblaðsins um málið
að umræðuefni og taldi þau
harðvituga viöleitni til að koma
höggi á einn stjörnarflokkinn
þ.e. Alþýöubandalagiö.
Ragnar tók mjög i sama
Benedikt Gröndal talaði á eftir ráöherrunum Steingrimi og Ragnari og kvað nauðsynlegt að halda þessu
flugi gangandi.
streng og Steingrimur hvað
varðaöi umfang aöstoðar rikis-
ins við Flugleiðir og sagði i ræðu
sinni „hingað og ekki lengra”
Á eftir Ragnari Arnalds tók
Benedikt Gröndal til máls og
sagði nauðsynlegt að halda
þessu flugi gangandi. A eftir
honum töluðu svo þeir Friðrik
Sophusson og Vilmundur Gylfa-
son og sföan svaraöi Steingrim-
ur Hermannsson fyrirspurnum
sem fram höfðu komið.
1 máli Friöriks Sophussonar
kom það fram að greinargerð
eftirlitsmannanna sem birt er
með skýrslunni er aö miklu leyti
byggð á störfum Rúnars
Jóhannssonar endurskoðanda
hjá rikisendurskoðun. Hann
skrifar þeim bréf sem er dag-
sett 10. sept. þar sem segir m.a.
„Eftirlitsmennirnir ættu ekki,
að áliti Rúnars, aö leggja eitt-
hvert ofurkapp á að toga það
endurmat niður sem stjórnend-
ur fyrirtækisins reyna að hlifa
upp. Hversu mikið sem reynt
verður að toga endurmatið nið- ^
ur veröur ekki hægt að ná ™
„verðmæti” Flugleiöa hf. 3
30.6’80 niður fyrir núllið”.
Áhorfendabekkir þingsins voru þéttskipaðir er umræöur um Flugleiðamáliö fóru fram. Timamynd G.E.
FRI — 1 frumvarpi því til laga
um aðstoð rikisins við Flugleiðir
hf. sem lagt var fram á Alþingi
á mánudag er lagt til að rikis-
stjórninni sé heimilt að veita
Flugleiðum hf. sjálfskuldar-
ábyrgð að láni sem nemur allt
að rúmlega 1,5 milljaröi kr. til
þess að mæta rekstrarhalla, ef
veröur, á flugi félagsins míllí
Luxemborgar og Bandarlkj-
anna frá l.okt. 1980 til 30. sept.
Mikil fjárhags-1
aðstoð tíl
Flugleiða hf. i
— felst I frumvarpi til laga um málefni
félagsins
1981 gegn þeim tryggingum sem
hún metur gildar. Rikissjóði er
jafnframt heimilt að standa
undir vöxtum af láni þessu.
Ennfremur verði rikisstjórn-
inni heimilt að auka hlutafjár-
eign sina I félaginu i allt að 20%
hlutafjár.
I 3. gr. frumvarpsins segir að
rikisstjórninni sé heimilt, gegn
þeim tryggingum sem hún met-
ur gildar, að veita félaginu allt
að rúmlega 6,5 milljarða kr. til
að bæta rekstrarf járstöðu
félagsins.
Samkvæmt 4.gr. frumvarps-
ins er rikisstjórninni heimilt að
fella niður lendingargjöld fé-
lagsins á Keflavikurflugvelli
fram til 1. okt. 1980 og gera ýms-
ar aðrar tilhliðranir gagnvart
öðrum gjöldum félagsins og i 5.
gr. segir að rikisstjórninni sé
heimilt að setja þau skilyrði
sem hún telur nauðsynleg við
veitingu rikisábyrgða.
„VERKFALL ER EKKI EINI MÖGULEIKINN”
segir Jófrlöur Björnsdóttir, formaður Flugfreyjufélags íslands
AB — „Það er ekki rétt
að eina hugsanlega að-
gerðin af okkar hálfu til
þess að fá Flugleiðir til
þess að endurráða flug-
freyjur eftir starfs-
aldurslista sé verkfalls-
boðun,” sagði Jófríður
Björnsdóttir, formaður
Flugfreyjufélags
íslands i viðtali við Tim-
ann i gær.
Jófriöur sagði að félagið hefði
ekki gengiö frá verkfallsboðun og
viðræðum viö Flugleiðir væri ekki
lokið. Þaö væri að sjálfsögöu ósk
alla félagsmanna aö gera allt sem
hægt væri til þess að komast hjá
verkfalli.
Þó sagði Jófriöur aö ef allt um
þryti og viðræöur sigldu i strand
þá sæju flugfreyjur sig knúöar til
verkfallsboðunar, þvi mál þetta
væri mjög þýðingarmikið i þeirra
augum.
Jófriður var að þvi spurð hvort
flugfreyjur myndu setja það á
oddjinn á næstu samningum að fá
ráðningu samkvæmt starfs-
aldurslista samningsbundna.
„Viðhöfum ekkigert þaðaðkröfu
okkar, en litum á þaö sem sjálf-
sagðan og eðlilegan hlut, enda
byggðan á áralangri hefð, að
endurráöningar miðist við starfs-
aldurslista.” sagöi Jófriöur aö
lokum.