Tíminn - 22.10.1980, Síða 3
Miövikudagur 22. oktöber 1980.
3
Stefán
Jóhann
látinn
Stefán Jóhann Stefánsson fyrr-
verandi forsætisráðherra lést f
Reykjavik s.l. mánudag. Hann
var 86 ára gamail.
Stefán Jóhann fæddist á Dag-
verðareyri i Glæsibæjarhreppi I
Eyjafirði. Hann lauk lögfræöi-
prófi 1922. Hann var fyrst kjörinn
á þing fyrir Alþýöuflokkinn 1934
Framhald á bls 19
KL— Nk. sunnudag veröur 50.
sýning á barnaleikriti Guörúnar
Helgadóttur, óvitum, f
Þjóöleikhúsinu. Hefur ekkert
islenskt barnaleikrit náö slfkum
vinsældum sem Ovitar, en nú
fer sýningum að fækka. A
myndinni eru Kristinn Péturs-
son, Helga E. Jónsdóttir, Fiosi
Ólafsson og Saga Jónsdóttir í
gervum sfnum fyrir Óvita.
Gosið er i rénun:
„Þó er verulegt
hraunrennsli”
sagöi Magnús Ólafsson jarðfræðingur i gær
AB — „Gosið er enn I gangi, í
nyrsta hluta sprungunnar og er
hraunrennsli verulegt enn. Viö
höfum ekki enn komist aö
hrauninu til þess aö áætla
hversu mikið hraunrennsliö er,
en viö vitum þó aö hraunið er
oröið a 11 stórt, u.þ.b. 10 ferkiló-
metrar. A morgun veröa
trúlega teknar loftmyndir og
veröur þá hægt aö gefa upp
nákvæmari tölur,” sagöi
Magnús Ólafsson jaröfræöingur
i viðtali viö Tfmann i gær, en
hann var þá rétt kominn lil
bvfigöa frá gossvæöinu.
Magnús sagöist aö mestu hafa
veriö noröur frá á gosstöövun-
um, svo hann heföi litiö heyrt i
fólki niöri i byggö. Þó sagöist
hann telja aö uggur væri litill
sem enginn i fólki, enda væru
Mývetningar orðnir ýmsu vanir
þegar eldgos væru annars
vegar.
Kristján
með fasta
viðtalstíma
Kás — Kristján Benedikts-
son, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins,
verður meö fasta viötalstfma
i vetur, kl. 10—11 á miðviku-
dagsmorgnum, á fjóröu hæö
á skrifstofum Reykjavlkur-
borgar i húsi Reykjavikur-
apóteks við Austurstræti.
Ferðamanna-
bændur
halda
aðalfund
HEI — Landssamtök feröa-
mannabænda halda, aöal-
fund sinn miðvikudaginn
29. október, kl. 10 f.h. aö
Hótel Sögu. Allir bændur
sem hafa áhuga á þessum
málum eru velkomnir á
fundinn. Veröa þar sérstak-
lega rædd skipulagsmál
samtakanna, verölagning á
feröaþjónustu i sveitum og
saia á slikri þjónustu.
Blöndalsorðabókin
komin út ljósprentuð
AB — Nú eru liöin '60 ár frá því aö
íslensk-dönsk oröabók byrjaöi aö
koma út i Reykjavik 1920, en út-
gáfu hennar lauk 1924. Aöalhöf-
undur oröabókarinnar, Sigfús
Blöndal (1874-1950) bókavöröur
við Konungsbókhlööuna I Kaup-
mannahöfn, haföi unniö aö henni
um tveggja áratuga skeiö, lengst
af meö aöstoð konu sinnar, einn-
ar, Bjargar Þorláksdóttur Blön-
dal, en um skeiö einnig i samráöi
viö Björn M. Ólsen prófessor.
Meö Blöndalsoröabók eignuö-
ust Islendingar lang-rækilegasta
heimildarrit um tungu sina, sem
þeir hafa tilþessa fengiö i hendur.
Bókin er 1098 bls. þéttprentuð,
uppflettiorö 110-115 þús. og dæmi
um notkun islenskra oröa og
oröasambanda mun fleiri en i
nokkurri annarri oröabók. Hand-
setning og prentun i prentsmiöj-
unni Gutenberg er eitt af afreks-
verkum islenskrar prentsögu.
Þegar aö prentun kom var ekki
útlit fyrir aö nokkur bókaútgef-
anditreystist til að gefa bókina út
á eigin kostnað og varö þvi 1 sam-
ræmi viö hugmynd Bjargar Blön-
dalaö ráöi aö rikissjóöur Dana og
íslendinga kostuöu útgáfuna
sameiginlega gegn þvi aö ágóöa
af útgáfunni yröi variö til þess aö
gera úr garöi endurskoöaöar út-
gáfur bókarinnar siöar.
Meö þessu var islensk-danskur
orðiabókarsjóður stofnaöur og
reglugerð um hann staðfest 1927.
Enda þótt prentuð hafi veriö
6000 eintök af bókinni fram að
þessu, hefur hún verið ófáanleg i
um 15 ár.
Snemma á þessu ári ákvaö
stjórn sjóösins aö láta ljósprenta
Blöndalsoröabók öðru sinni i 3000
eintökum. Reyndar var sjóöurinn
fjárvana, en styrki til verksins
veittu: Dansk-islandsk fond,
Framkvæmdasjóöur Islands,
Menningarsjóöur Noröurlanda,
Sáttmálasjóöur og Þjóöhátiöar-
sjóöur.
Hið Islenska bókmenntafélag
hefur söluumboö fyrir Blöndals-
oröabók, og er almennt verð nú
kr. 80.275, enverö til félagsmanna
kr. 64.220.
Viöauki bókarinnar er nú einnig
uppseldur, en væntanlega verður
ljósprentun á honum lokiö
snemma á næsta ári og veröur
verö á honum u.þ.b. 20.000 krón-
ur. Hið islenska bókmenntafélag
tekur við pöntunum á bókinni og
viðauka.
1 stjórn Islensks-dansks oröa-
bókarsjóðs eru nú Stefán Karls-
son handritafræöingur, formaö-
ur, Baldur Jónsson dósent, Einar
Ólafur Sveinsson fyrrverandi
prófessor, Jón Helgason fyrrver-
andi prófessor og Ole Widding
fyrrverandi oröabókarritstjóri.
Refarækt — Refarækt
Ritverk eftir Björgólf Jóhannsson stud. oecon og Ingólf Skúlason Stud oecon.
Helstu kaflar:
Saga refaræktarinnar. Stofnkostnaður refahúss. Rekstrarkcstnaður
refahúss. Samanburður búgreina. Afurðarsala. Refaeldi Teikningar af
húsum — búrum — og hreiðurkössum. Tilvalin handbók fyrir refaræktar-
menn.
Dreifingaraðili: Kjörbær h/f
Birkigrund 31 Kópavogi. Sími 91. 44450.
Umboðssimar,
16520 á daginn
84766 á kvöldin
og 72250