Tíminn - 22.10.1980, Page 5
Miðvikudagur 22. október 1980.
5
Fær Sambandið að byggja inn við Sund?
„Borgaryfirvalda
að taka afstööu”
segir Þorsteinn Ólafsson fulltrúi forstjóra Sambandsins
KL — ,,Það er borgaryfirvalda aö
taka afstöðu til þessara mót-
mæla. Það verður aö vega og
meta skipulagslega þörf og hag-
ræðingu annars vegar og sjónar-
mið þau, sem þarna eru á ferðinni
hins vegar”, sagði Þorsteinn
Ólafsson, fulltrúi forstjóra Sam-
bandsins, i tilefni af þeirri mót-
mælaöldu, sem risið hefur vegna
fyrirhugaörar byggingar Sam-
bandsins við Holtagaröa.
— Þessi byggingaráform eiga
sér nokkuð langan aðdraganda.
Málið kom upphaflega fyrir
skipulagsnefnd Reykjavikur 1968,
oghefur siöan verið tekið upp við
borgaryfirvöld öðru hverju. A ár-
inu 1970 samþykkti skipulags-
nefnd byggingu birgðastöðvar
Sambandsins viö Holtagarða. í
framhaldi af henni komu siöan
upp hugmyndir um byggingu
skrifstofuhUss á þessum stað. A
árinu 1978 voru teknar upp við-
ræður við skipulagsnefnd og
Þróunarstofnun, þar sem máliö
var til umfjöllunar til febrUar
1980, en þá vfsaði skipulagsnefnd
þvi til hafnarstjórnar, enda fellur
þetta svæöi undir hennar yfirráð.
Þorsteinn Ólafsson.
Siðan gerir hafnarstjórn bókun
um máliö i ágúst siöastliðnum,
þarsem hún samþykkir, að Sam-
band Isl. samvinnufélaga fái að
reisa byggingu fyrir framtiðar-
rekstur aðalstöðva sinna i
Reykjavík viö Holtagarða, allt að
11.000 fm. að stærð.
Áðurnefnd fundargerð hafnar-
stjómar var siðan samþykkt i
borgarstjórn 29. ágúst sl., en end-
anlega er þó beðið eftir samþykki
skipulagsnefndar.
„Það sem fyrir okkur vakir, er
að sameina sem mest starfsemi
Sambandsins á einum og sama
stað. Þarna er um starfsemi að
ræða, sem er nokkuö hafnsækin.
Innflutningsdeildin er þarna, og
það er meiningin að flytja Skipa-
deildina þangað, hér í bænum er
Sjávarafurðadeild. Við erum á 6
stöðum i borginni með þessa
starfsemi eins og er, og það segir
sig sjálft, að þvi fylgja miklir
kostir skipulagslega, að hafa alla
þessa starfsemi á einum og sama
stað.
Þarna er gert ráð fyrir skrif-
stofubyggingu, þar sem allt að
250-300 manns ynnu. Nú vinna I
Holtagöröum um 185 manns.
A það ber að lita, að þetta hús
hefur ekki endanlega verið teikn-
að, þó að einhverjar hugmyndir
liggi fyrir um útlit þess og annaö,
þannig að ekki er vitað, hvernig
það verður i laginu. Þaö eina,
sem liggur fyrir, er stærðin”,
sagöi Þorsteinn að lokum.
„Fullviss að tekið verður tillit
tii mótmæla okkar”
segir Magnús Óskarsson formaður Sundasamtakanna
KL — „Ég er þess full-
viss, að fullt tillit verður
tekið til mótmæla okk-
ar”, segir Magnús Ósk-
arsson, formaður i ný-
stofnuðum Sundasam-
tökum. „Það kom mér
mjög á óvart, hversu al-
mennur áhugi er á
stefnumálum samtak-
anna og hversu mikill
fjöldi tók þátt i stofnun
samtakanna”.
Sl. sunnudag voru stofnuð I
Reykjavik Sundasamtökin, sem
hafa á stefnuskrá sinni verndun
þess hluta strandlengju Reykja-
vikur, sem enn hefur fengiö að
vera i friöi, með þeim fyrirvara
þó, að Reykjavikurborg hafi sina
höfn og athafnasvæöi. Á stofn-
fundinum var fjöldi manns. Var
þar kosin stjórn og er formaður
sem fyrr segir Magnús óskars-
son....
Magnús óskarsson.
— Við sjáum fjölmörg dæmi
þess, að almenningsálitiö getur
haft áhrif á ákvarðanir stjórn-
málamanna um skipulagsmál
sem annað. Má þar nefna sam-
þykktir um byggingu ráðhúss i
Tjörninni.Seölabankahúss á Arn-
arhðli, niöurrif Torfunnar, sem
skyldi vikja fyrir nýju Stjórnar-
ráði, en þeim var öllum hnekkt
vegna sterks almenningsálits,
sem var þeim andsnúið.
Þetta mál, verndum strand-
lengjunnar, á sér miklu lengri aö-
draganda en þetta tiltekna mál,
sem nú er á oddinum. Þaö beinist
þvi að sjálfsögöu hvorki gegn SÍS
né núverandi borgarstjórn, enda
geröu Sundasamtökin ályktun,
þar sem þau beindu þvi til borg-
arstjórnar, að hún léti SÍS fá að-
stöðu á góðum stað i staö þess,
sem nú er fyrirhugaður.
Þess má geta, aö aöalskipulag
Reykjavikurborgar gerir ráð
fyrir hafnsækinni starfsemi á
svæðinu við Sundin, og skrifstofu-
hús af þessari stærð brýtur I bága
viö það. Auk þess brýtur það i
bága við deiliskipulag, og það er
enn alvarlegra, sagði Magnús.
Aö lokum gat Magnús þess, aö
er birgöastöð SIS var risin i
Holtagöröum, hefðu yfirvöld
borgarinnar heitið þvi, aö ekki
yrði byggt meira á þessum stað.
„Enda er vandséð, hvernig hægt
er aö leyfa eina byggingu, en sið-
an ekki fleiri”, sagði Magnús.
Fastar
áætlunarferðir.
ROTTERDAM
Umboðsmenn:
Erhardt & Dekkers
Van Vollenhovenstraat 29
P.O.Box 23023
3001 KA ROTTERDAM
Skeyti: Wyklyn
Telex: 22261 wykl nl
Sími: 010 36 23 88
SKIPADEILD SAMBANDSINS
Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Land-Rover eigendur
Nýkomið á mjög
&
öxlarframan
öxulflansar
Stýrisendar
Girkassaöxlar &
Kambur & Pinion
Hosur
Motorpúðar
Kúplingsdiskar
Straumlokur
Bremsubarkar
hagstæðu verði:
aftan
Fjaðrafóðringar
Tanklok
Girkassahjól
Pakkdósir
Hraðamælisbarkar
Vatnsdælur
Kúplingspressur
Hj.dælu gúmmi
M.fl.
Sendum i póstkröfu.
Bílhlutir h/f
Suðurlandsbraut 24
S.38365.
Reykjavik.
Auglýsið í Tímanum
AUGLYSINGASTOFA SAMBANOSINS
DAMIXA
Nýtt blöndunartæki með tveimur
handföngum, sem snúast aðeins 1A
úr hring.
Ódýr, stílhrein og auðveld í notkun.
Nýjungarnar fylgja Damixa.
• *
miiKfli
dönsk gæðavara