Tíminn - 23.10.1980, Blaðsíða 1
Síöumúla 15 • Pósthólf 370 - Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 ■ Kvöldsimar 86387 & 86392
Grafa bændur rolluskrokka?
— í stað þess að þurfa að borga þúsundir króna með þeim i sláturhúsin
HEI — Bóndi á SuOurlandi full
yrti i samtali viO Timann i gær,
aO altalaO væri i sinni sveit, aO
sumir bændur sem hefOu haft fé
umfram kvóta, hefOu gripiO til
þess ráös, aö skera gamalærnar
heima, jafnvel nokkra tugi, og
jaröa siöan hræin f staö þess að
leggja þær inn i sláturhúsin og
tapa á þeim. ,,t kvótavitleys-
unni miöuOu þessir blessaöir
höföingjar nefnilega viö kilóa-
tölu i innleggi i staö þess aö
miöa viö verögildi. Þannig eru
gamalær og dilkar i stjörnu-
flokki lögö aö jöfnu, fari menn
yfir kvótann sinn, svo einhvern
veginn veröa menn þvi aö
bregöast viö dellunni”, sagöi
þessi viömælandi okkar.
Fréttamaöur lét i ljós efa-
semdir og fékk þá svariö:
„Þetta er manni sagt og maöur
veit þó altént hvaö maöur gerir
sjálfur. Mér datt ekki i' hug aö
setja rollurnar i sláturhiísiö”.
„Éghef jú heyrt þetta, en hef
engar sannanir fyrir því, enda
tekiö þaö meira sem hótanir en
aö ég trúi þvi aö bændur geri
þetta”, sagöi einn af starfs-
mönnum bændasamtakanna aö-
spuröur.
Annar þeirra sagöist lika hafa
heyrt talaö um þetta, en þegar
hann hafi fariö aö spyrja menn
nánar vildi enginn viö slikt
kannast. Hann staöfesti hins
vegar þá skoöun bónda, aö úr
þvi miöaö væri viö kilóatöluna,
þá gæli þaö veriö rétt aö hag-
stæöara væri aö grafa rollukjöt-
iö en selja þaö I sláturhús.
Þetta dæmi reiknast eins og
kunnugt er eiga bændur aöeins
aö um 34% af veröi þess
kindakjöts sem er umfram
kvótann, sem þýöir þá aö i
kringum 1.600 kr. af veröi hvers
kilósfá þeir ekki greiddar. Fari
þeir þvi umfram kvótann meö
innleggi á rollukjöti fyrir ca.
1.000 kr. á kilóiö getur minusinn
kannskinumiöum 600krónum á
hvert kiló umfram kvóta.
Haft var samband viö nokkra
menn viöa um land, en enginn
vildi kannast viö slikar jaröar-
farir á gamalám. Einn sagöist
hins vegar heyra talaö um
mikla heimaslátrun i sinni
sveit, sem nánast hafi veriö þar
úr sögunni áöur. Hinir könnuö-
ust lika viö aö menn væru aö
dútla viö einhverja heimaslátr-
un, en sögöu lika alltaf hafa ver-
iö eitthvaö um sliktog þvi óvist
aö þaö væri neitt meira mlna.
Bændur á svæði Mjólkursamsölunnar:
Tímamynd: Róbert
Nú hvattir tíl að
auka mjólkur-
framleiðsluna
HEI — „Það er ekki öll vitlcysan
eins. Nú er Mjólkursamsalan bú-
in aðskrifa öllum framleiðendum
á sinu svæöi bréf með hvatningu
um að framleiða mjólk eins og
þeir geta til áramóta og skitt með
kvótann og allt það. Lofað er fullu
verði á alla framleiðsluna til ára-
móta”, sagði bóndi nokkúr sem
fréttamaöur ræddi viö I gær. t
Launþegar ekki ginnkeyptir
fyrir verkfallsboðun ASÍ
— segir Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSl, en 85 félög innan ASÍ
hafa ekki boðað til verkfalls nk. miðvikudag
HEI— „Þetta synir þaö allvcga,
aö þaö er viös fjarri aö um sé aö
ræöa allsherjarverkfall” sagöi
Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri VSl, en samkvæmt
þeirra yfirliti eru um 85 stéttarfé-
lög á landinu sem ekki hafa boðað
verkfall hinn 29.október n.k.
Þorsteinn taldi það eðlilegt, að
ASl menn hefðu álitið hérumbil
öll félög á landinu með i þessu,
eins og fram kom i Timanum i
gær. ASl fengi ekki tilkynning-
arnar um verkfallsboðanir og
gæti þvi ekki gert slika úttekt. En
ljóst væri af þessu, að fólk i land-
inu væri ekki ginnkeypt fyrir þvi
að fara i verkfall nú.
„Ég hugsa að höfuðástæðan
fyrir því aö þátttakan er ekki
meiri en þessi sé sú aö allur al-
menningur geri sér grein fyrir þvi
að það er ekki verið að semja um
bætt lífskjör, heldur verðbólgu-
krónur”, sagði Þorsteinn.
Af þessum 85 félögum sem ekki
hafa boðað verkfall eru 20 sem
eiga beina aöild aö ASl, 12 félög
sem eru innan Verkamannasam-
bandsins, nær öll verslunar-
mannafélög landsins nema VR og
fjöldi félga innan Málm- og skipa-
smiöasambandsins, Rafiðnaðar-
sambandsins, Sambands bygg-
ingamanna og Sjómannasam-
bandsins auk Iöju á Akureyri.
STEFNURÆÐU FORSÆTISRAÐ-
HERRA ÚTVARPAÐ f KVÖLD
í kvöld veröur umræöu um
stcfnuræöu forsætisráöherra út-
varpað frá Alþingi. Forsætisráö-
herra byrjar ræöu slna kl. 20, og
hefur hálfa klukkustund til um-
ráöa. Fulltrúar þingflokkanna,
þ.á.m. Sjálfstæöisflokksins hafa
siðan 20 mínútur hver I fyrri um-
ræöu til aö fjalla um stefnuræö-
una. t siðari umferð fær hver
flokkur 10 minútna ræöutima, og
þaö fá jafnframt stuöningsmenn
Gunnars Thoroddsen á Alþingi.
Skipting ræöutimans i kvöld
var gerð með sérstöku samkomu-
lagi þingflokkanna, en i henni
felst frávik frá ákvæðum þing-
skapa um útvarp frá umræðunni.
Athyglisverðast við skipting-
una er sú staðreynd að engu er
likara en að fimm þingflokkar
taki þátt i umræöunni. Ræðutim-
anum væri einmitt réttilega skipt
á þennan hátt samkvæmt þing-
sköpum væru fimm þingflokkar á
Alþingi.og forsætisráðherra væri
meðlimur i einum þeirra.
Þessi staöreynd er athyglis-
verð þegar haft er i huga að hún
er gerð á sama tima og stjórnar-
þingmennúr Sjálfstæðisflokknum
kjósa að standa með stjórnarand-
stæðingum úr Sjálfstæðisflokkn-
um við kosningu i nefndir Alþing-
is.
Fyrir Framsóknarflokkinn
taka þeir Steingrimur Hermanns-
son og Guðmundur G. Þórarins-
son þátt i umræðunum i kvöld.
bréfinu var bcnt á að mjólkur-
Iramleiðslan væri nú 10% minni
en I fyrra, og voru bændur hvattir
til að nota kjarnfóður til aö halda
uppi mjólkurframleiöslu á næstu
vikum og mánuöum.
Timinn spuröi Guðlaug Björg-'
vinsson forstjóra MS hvort ekki
væri mótsögn i þvi, að íyrst væri
hamast á bændum með öllum
vörum til að draga úr íramleiðsl-
unni og þegar það siðan iæri að
skila árangri, þá færu þeir hvattir
til að framleiða eins og þeir geta.
Guðlaugur benti á, að þótt talað
hafi verið ufn 10% samdrátt i
bréfinu, þá væri hann raunveru-
lega ennþá meiri nú siðustu
vikurnar. Það sem þeir hjá MS
teldu alvarlega þáttinn i þessu,
sem þeir hefðu reyndar varað við
fyrr á árinu væri það að með
sama áframhaldi stefndi i
mjólkurskort I vetur á svæði
Mjólkursamsölunnar. Allavega
stefndi i verulega flutninga á
mjólkurvörum á milli svæða i
vetur. Bæði væru þetta dýrir
flutningar og siðan heföi auðvitað
enginn tryggingu fyrir að færðin
leyfði flutningana þegar þörfin á
þeim væri kannski mest.
Gunnlaugur taldi þvi ekki þurfa
að felast neina mótsögn i þessari
hvatningu nú.
Það hefði verið skynsamlegt aö
draga úr mjólkurframleiöslunni i
sumar, en gæti verið jafn mikil
ástæða til að menn notuðu sinn
kvóta fyrst og fremst til að fram-
leiða mjólk á haust- og vetrar-
markaðinn.
Það að bændum væri lofað fullu
verði til áramóta, sagði Guðlaug-
ur að bæri að skilja á þann veg, að
næsta vor verðiað vanda gert upp
við bændur fyrir allt árið i ár.
Kvótatimabilið sé 1. sept. til 31.
ágúst, þannig að skerðingin hlyti
þvi að koma á næsta ár. Aðspurö-
ur kvað hann þvi ekki að neita, að
yrði framleiðslan á verðlagsárinu
öllu of mikil, þá gæti svo fariö aö
bændur fengju litið sem ekkert
fyrir mjólkina i júli og ágúst á
næsta ári.