Tíminn - 23.10.1980, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.10.1980, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 23. október 1980. Borgarráð hafnar háhýsum Byggungs Kás — Borgarráö samþykkti á siöasta fundi sinum aö hafna þeim skipulagshugmyndum Byggungs (Byggingarsamvinnu- félags ungs fólks) um breytt skipulag á Eiösgranda, sem m.a. fól i sér byggingu háhýsa þar. Aður haföi Skipulagsnefnd hafnaö hugmyndum Byggungs. Hins vegar telur borgarráö að leita beri leiöa til aö lækka kostnaö á hverja íbúö á úthlutuðu svæöi Byggungs innan ramma samþykktra skipulagshugmynda og felur Skipulagsnefnd aö vinna að málinu á þeim grundvelli. -Tímamynd; Rábert 87,6 milljarðar til framkvæmda árið 1981: 20,9 MILLJARÐAR TIL VEGAMÁLA ____— og Krafla blessunin fær 6,3 milljarða króna_ HEI — Samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu er áætl- að að 87,6 milljarðar fari til framkvæmda og fram- kvæmdasjóða. Lang stærsti liðurinn þar er til vegamála, eða samtals 20,9 milljarðar, þar af eru 2,6 milljarðar til fram- kvæmda í þéttbýli. Næst i röðinni eru framlög til Byggingasjóðs ríkisins, 11,8 milljarðar, en þar af fara 7,5 milljarðar til Byggingas jóðs verka- manna. Á þessum lið er um mikla breytingu að ræða frá fjárlögum 1980, en þá fóru 432,5 millj. til Byggsj. verkamanna en 7,1 milljarður til Byggingasj. ríkisins. Þá er ráðgert aö veita 7,9 milljöröum til skólabygginga, 7,5 milljörðum til sjúkrahúsa og ann- arra mála i þeim flokki, 4 milljörðum til landbúnaöarmála sem munu aðallega vera framlög til jaröræktar og Stofnlánadeild- ar, næst er byggöasjóöur meö 3,7 milljaröa, til landshafna 3 milljaröar, til flugmála 1,9 milljaröar, sama upphæö til fisk- veiöisjóös, 1,9 milljaröar til iðnaðarmála, sam upphæö til <#ndgræðslu og skógræktar og siöast en ekki slst má nefna Kröflu, sem á næsta ári er áætlað aö fái 6,3 milljarða króna, blessunin. M j ólkurf ramleiöslan í september: 8,2% MINNI EN í FYRRA HEI — 1 septembermánuði s.l. var innvegin mjólk á landinu rösklega 10,1 milljónir litra. Þaö er rúmum 900 þús. litrum minna en iseptember i fyrra, eöa 8,2 % minna. A svæði Mjólkursamsölunnar i Reykjavik nemur samdráttur- inn um 7,1% milli ára, sem skiptist þannig á mjólkurbúin: Mjólkurbú Flóamanna 5,3% minnkun, M.S. 12%, Borgarnes 13%€en nánast óbreytt i Búðar- dal. Fyrir noröan er þvi um meiri samdrátt milli ára að ræöa. Á Hvammstanga nemur þaö 4%, á Blönduósi 19%, á Sauöárkróki á Akureyri 10% og 7,5% á Húsavik. Guömundur Stefánsson hjá Framleiösluráöi sagöist telja aö mjólkurframleiöslan virtist nú vera aö komast i visst jafnvægi talsvert fyrir neöan þaö sem hún var i fyrra. Þaö væri i sjálfu sér ekkert merkilegt, þar sem aö heföi veriö róiö öllum árum eins og öllum hlyti aö vera |kunnugt um. ,SINNULEYSI KVENNA UM EIG IN HEILSU VEKUR FURÐU’ — segir Sveinn Guöbjartsson hjá Heilsugæslustöö Hafnarfjarðar AB — „Viö hófum hér skipulegar athuganir á ónæmi hjá konum i Hafnarfiröi fyrir rauöum hundum 14. október, en þátttaka kvenna I athugunum þessum hefur vægast sagt veriö ótrúlega léleg. Viö höf- um gert okkur vonir um aö 1 til 2000konur myndu koma i athugun þessa, en reyndin hefur veriö sú aö fyrsta daginn komu 24 konur og siöan ekki nema 6 til 8 dag hvern.” sagöi Sveinn Guöbjarts- son hjá Heilsugæslustöö Hafnarfjaröar. Sveinn sagði jafnframt, að þessidræma þátttaka vekti furðu þess fólks sem starfaði að heilsu- gæslumálum. Hann sagði að skoðun þessi væri ætluð öllum konum á Hafnarfjarðarsvæðinu sem væru á aldrinum 16 til 40 ára. Þó væri konum á öörum aldri að sjálfsögðu ekki visað frá. Þaö kom fram i máli Sveins, að athugun þessi færi fram i Heilsu- gæslustööinni Strandgötu 8-10 daglega á timabilinu kl. 4-6. Athugun þessi stendur út þessa viku og er nú skoraö á hafnfirskar konur aö nýta sér þessa þjónustu, sem er þeim með öllu að kostnaöarlausu. Athugun sem þessi kostar heil- brigöisyfirvöld i Hafnarfiröi bæöi fé og fyrirhöfn og má því ætla aö það sé sanngjörn lágmarkskrafa aö konur sinni þessu með þvi aö mæta i athugunina og sýni þar meö áhuga á eigin heilsu að ekki sé talaö um þær konur sem van- færar eru. A mánudag og þriðjudag i næstu viku verður sams konar athugun i Flataskóla Garðabæ íyrir konur i Garðabæ. Athugunin . verður framkvæmd á sama tima, eða frá 4-6. Magnús Tómasson myndlistar- maöur, en hann hlýtur starfslaun Reykjavikurborgar sem lista- inaöur, og er hann fyrstur Reyk- vikinga til aö hljóta laun þessi. Magnús Tómasson hlýtur starfslaun Reykjavíkurborgar sem listamaður A fundi stjórnar Kjarvalsstaöa fyrir skömmu voru lagðar fram umsóknir um starfslaun til lista- manns. Alls bárust 20 umsóknir. Samþykkt var samhljóða að Magnús Tómasson myndlistar- maöur hljóti launin frá og með 1. nóv. i 12 mánuði. Þetta er i fyrsta sinn sem út- lilutað er starfslaunum til lista- manns á veguni Reykjavikur- borgar samkvæmt samykkt borg- arstjórnar frá þvi i vor. Starfs- launin nema launum kennara viö framhaidsskólastigið. Stjórn Kjarvalsstaða velur listamann- inn sem starfslaunin hlýtur á grundvelli umsókna er henni ber- ast. Kjarnorku- blúsarar AB —Laugardaginn 25. október kl. 21-23 mun hljómsveitin Kjarn- orkublúsararnir frá Keflavik • halda hljómleika I Félagsbiói, Keflavik. Dagskrá hljómleikanna, sem byggist á frumsömdu efni þeirra félaga, er að stórum hluta til framlag til baráttunnar gegn kjarnorku, hvort heldur i mynd orkuvera eða tortimingarvopna. Segast þeir félagar nýta hryn- form eins og rokk, blues, og raggae máli sinu til áherslu. Miðar, sem kosta 3000 krónur veröa seldir á skrifstofu Her- stöövaandstæðinga, Skólavörðu- stig 1. Prentsmiðjan Edda: AUKIÐ HUSNÆÐI 06 BETRI VÉLAK0STUR KL — Svo sem komið hefur fram i fréttum, flytur Prentsmiðjan Edda i nýtt húsnæði að Smiðjuvegi 3, fljótlega upp úr áramótum. Fær prentsmiðjan þar 1300 fermetra til umræða og gefur aukið húsnæði tækifæri til breytinga og endurbóta á rekstri hennar. í nýútkomnum Sam- bandsfréttum segir svo um rekstrarbreytingar prentsmiðjunnar: Þá er einnig von á nýrri prentvél til Eddu sem verður mun af- kastameiri en allar eldri vélar hennar. Meðal annars mun hún geta annast prentun á sam- hangandi eyðublöðum til tölvuvinnslu. Sömu- leiðis hafa verið keyptar tvær ljóssetningarvélar sem jafnframt geta unnið umbrot, og vinna þær með laser-geisla. Erþessi gerð hin fyrsta þeirrar tegundar á markaðnum. Þessar vélar hafa 29 leturteg- undir auk möguleika á ýmsum gerðum af ská- letri, og skapar tilkoma þeirra m.a. mikla möguleika i auglýsinga- og skiltagerð. Slikar vélar hefur prentsmiðj- una vantað mjög mein- lega við hlið núverandi offset-prentvéla sinna, en ætlunin er að þær verði teknar i notkun eftir flutninginn I nýja húsnæðið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.