Tíminn - 23.10.1980, Blaðsíða 16
Gagnkvæmt
tryggingafélag
m
<i
KISIGNODE
Sjálfvirkar bindivélar
Sjávarafurðadeild
Sambandsins
Simi 28200
Fimmtudagur 23. október 1980
Bráðabirgðalög um 2% hækkun lægstu launa 1. des. 1979 ekki verið staðfest af Alþingi:
Laun láglaunamanna hefðu
átt að lækka um 2% í vor
Kás — 1 Ólafslögunum svo-
nefndu sem samþykkt voru i
april á siöasta ári er kvcöiö svo
á um aö viö útreikning verö-
bótavísitölu skuli taka tillit til
þess aö hluta ef viöskiptakjjör
þjóöarinnar rýrni eöa batni.
1 bráðabirgöaarákvæöi sem
fylgir kaflanum um verðbætur á
laun segir þó að frádráttur frá
verðbótavisitölu hinn 1. júni
1979 vegna rýrnandi viðskipta-
kjara skuli hæst nema 2% af
verðbótavisitölu, og honum
skuli algjörlega sleppt á laun
sem eru lægri en 210 þús. kr.
Hins vegar stóð til að láglauna-
menn sypu seyðið af þessari
ráðstöfun 1. des. sama ár, þann-
ig aö þeir fengu lægri verðbætur
en aörir, sem svaraði þessari
mismunun.
Starfsstjórn Benedikt Grön-
dals kom þó i veg fyrir það og
gaf Ut lög um að allar verðbætur
yrðu jafnháar 1. des. sl.
Eins og vera ber voru þau
bráðabirgöalög lögð fyrir Al-
þingi eftir vetrarkosningarnar i
fyrra til staðfestingar. En sam-
kvæmt stjórnarskránni þá falla
bráðabirgðalög úr gildi við
þinglausnir sem ekki eru stað-
fest af Alþingi á þinginu eftir aö
þau eru gefin út.
1 bréfi sem Verslunarráð Is-
lands hefur sent Gunnari Thor-
oddsen, forstætisráðherra, segir
að við athugun Verslunarráðs-
ins á störfum Alþingis sl. vetur
hafi komið i ljós, að frumvarp til
laga um staðfestingu á bráða-
birgðalögum um 2% hækkun
lægstu launa hinn 1. des. 1979
hafi ekki orðið útrætt á þinginu.
„Einungis var gengið frá
nefndaráliti i fyrri deild,
Neðri deild, þann 28.april árið
1980, þar sem lagter til að frum-
varpið verði samykkt. Ef
ákvæði frumvarpsins hafa ekki
verið tekin upp i önnur lög, átti
umrædd launahækkun að falla
úr gildi þann 29.mai 1980,” segir
i bréfi Verslunarráðsins.
„Þegarlögin féllu úrgildi, féll
einnig .niður sú launahækkun,
sem lögin kveða á um. Af þess-
um sökum hefðu laun þeirra,
sem um getur i lögunum, átt að
iækka um 1.96% þann 29.mai sl.,
viö þinglausnir. Svo varð þó
ekki og þvi mun þeim aðilum,
sem „lögin” taka til hafa verið
ofgreidd laun frá sama tima.”
Jaröskjálfti
við Kröflu
— Hraunrennsli hefur
aukist, þó dregið hafi
úr gosmekki
KL — 1 gær um kl. 16 varð fólk i
Mývatnssveit vart við jarð-
skjálfta, en það teist tii tiðinda,
þrátt fyrir yfirstandandi gos i
Leirhnjúk. Jaröskjálftinn mæld-
ist 2,7 stig á Richtermælikvarða.
Að sögn Armanns Péturssonar
á skjálftavaktinni hafa mælar þar
sýnt stöðugt sig siðan aöíaranótt
þriðjudags. Kemur það heim og
saman við þá skoðun skoðunar-
manna, sem aðsetur hafa i stöðv-
um Norrænu eldfjallastöðvarinn-
ar, að hraunrennsli muni hafa
aukist, þrátt fyrir það, að dregið
hafi úr gosmekkinum.
1 gær var tekinn inotkun vegspotti fram hjá Skúlatorgi i framhaldi af Sætúni inn á Skúlagötu, þannijg að biðin viö Skúlatorg er úr sögunni fyrir
þá sem aka um Sundin úr Breiðholtinu niöur ibæ. Timamynd: Róbert.
Ólga I Alþýöuflokknum
Gegn Benedikt - hvað
það kostar
sem
Það er talið fullvist, að hver
sem er, geti sigraö Benedikt f
kosningunni. Þetta er ástæðan
til þess, að Kjartan gefur nú
kost á sér.
Þessa skýringu gefa margir
alþýöuflokksmenn á þvi að
Kjartan Jóhannsson hefur nú
gefið kost á sér i kjöri um for-
mann Alþýðuflokksins gegn
Benedikt Gröndal. Það fylgir
sögunni, að Kjartanhafi i fyrstu
alls ekki ætlaö aö keppa við
Benedikt, en eftir aö hann sá
fram á aö „hver sem er” eöa þvi
sem næst gæti sigrað, hafi hann
taliö, aö nú væri tækifærið eöa
einhver annar gripi það ella.
Þeir aörir sem einkum hafa
veriö nefndir i sambandi viö
formannskosninguna á væntan-
legu flokksþingi Alþýöuflokks-
ins eru Sighvatur Björgvinsson,
Jóhanna Sigurðardóttir og
Magnús H. Magnússon. En það
fylgir sögunni, aö svo mikill
áhugi sé á því, að boöið veröi
fram gegn Benedikt, aö þaö sé
taliö fullvist innan Al-
þýöuflokksins, aö kjörinn veröi
nýr flokksformaður — næstum
þvi hvaö sem það kostar.
Innan Alþýöuflokksins hefur
þessi framvinda mála valdiö
talsverðum úlfaþyt. Fylgis-
menn Benedikts Gröndal halda
þvi mjög á lofti aö Jón Baldvin
Hannibalsson ritstjóri standi aö
baki „aöförinni” gegn formann-
inum. Benda þeir á, aö Jón sé
varaþingmaöur fyrir Reykja-
vikurkjördæmi og ætli sér aö
hreppa þingsætiö ef Benedikt
hrekst út i kuldann.
NTTT LÁGMARKSVERÐ Á SÍLD 0G NÝR VERÐMÆTAKVÓTI
AB — A fundi yfirnefndar Verö-
lagsráðs sjávarútvegsins f fyrra-
dag var ákveðið nýtt lágmarks-
verð á sild til söltunar, er giidir
frá l.okt. til 3i.des.l980.
Veröið er frá 87 krónum fyrir
kilóið af sild (25 cm. að 27 cm)
upp 1202 krónur fyrir kilóiö af siid
(33 cm. og þar fyrir ofan).
Stærðarflokkunin framkvæmist
af Framleiðslueftirliti sjávaraf-
urða. Verðiö er miðað við sildina
upp til hópa komna á flutnings-
tæki viö hlið veiðiskips og skal
sildin vegin islaus.
Verðið var ákveðiö af odda-
manni og fulltrúum kaupenda
gegn atkvæðum seljenda. Odda-
maöur var Ólafur Davíbsson, Jón
Þ. Arnason og Margeir Jónsson
voru fulltrúar kaupenda, en
Agúst Einarsson og Ingólfur S.
Ingólfsson voru fulltrúar selj-
enda.
í gær var ákveöið á fundi Verð-
lagsráös að sama verð skuli gilda
fyrir sild til frystingar framan-
greint timabil.
Vegna þessa nýja sildarverðs
hefur sjávarútvegsráðuneytið
ákveöiö aö verðmætakvóti sild-
veiðibáta, eftir l.okt. miðist við 42
milljónir krón, en hverju skipi er
þó óheimiit að veða meira en 275
lestir af sild.
Aflakvóti loðnubáta, sem
stunda sildveiðar veröur óbreytt-
ur eða 150 lestir af sild.
Brúarfoss
seldur
Hf. Eimskipafélag islands hef-
ur selt Ms. Brúarfoss fyrirtæki i
Bandarikjunum og er gert ráð
fyrir að skipið fari til niðurrifs.
Sem kunnugt er lenti skipið I
harkalegum árekstri við
Panamaskip undan Nova Scotia
þann 18. september sl. Hélt skipið
áfram ferðinni til Gloucester,
Cambridge og Portsmouth og los-
aði farm sinn þar, en skipið var
hlaðið frystum fiski.
Viðendanlega skoðun á skipinu
kom i ljós, aö viðgeröarkostnaður
þessyröi verulegur. Var þvi sú á-
kvörðun tekin að selja skipið ó-
viðgert, en vátryggingafélagið
greiðir Eimskip áætlaðan við-
gerðarkostnaö skipsins. Sölu-
verðmæti skipsins að viðbættum
tryggingabótum nemur álika
uþphæð og markaðsverð aö
lokinni viðgerð. Var skipiö selt
fyrirtæki i Brownsville i Texas og
er nú á leið þangað.
Verkefni þau, sem Ms. Brúar-
foss var i, verða leyst með
breyttu skipulagi i flutningunum,
auknum gámaflutningum og með
aukinni söfnun með minni frysti-
skipunum Ms. Ljósafossi og Ms.
Bæjarfossi i stærri frystiskip fé-
lagsins, en það styttir lestunar-
tima þeirra hérlendis.
Ms. Brúarfoss er 20 ára gamall,
smiöaður i Aalborg Værft i Dan-
mörku og afhentur árið 1960.
Hann er 4065 burðarlestir að
stærð og smiðaður til frystiflutn-
inga. Systurskip hans Ms. Selfoss,
sem smiðaður var árið 1958,
verður áfram I frystiflutningum
og öðrum flutningum á vegum
Eimskips. Var gerð á honum 4
ára klössun á sl. sumri.
Fleiri og fleiri fá sér
TIMEX
mest selda úrið