Tíminn - 26.10.1980, Blaðsíða 6
6
Sunnudagur 26. október 1980.
Útgefandi Pramsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Hitstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurbsson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Elrfksson. Aug-
lýsingastjóri: Steingrfmur Gislason.
Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar
SfOumúla 15. Sfmi 86300. — Kvöldslmar blaöamanna: 86562,
86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö f lausasölu kr. 2:,0
Askriftargjald kr. 5000 á mánuöi. Blaöaprent.
F ormannsraunir
stjórnarandstæðinga
Stjórnarandstaðan reið ekki feitum hesti frá um-
ræðunum um stefnuræðu forsætisráðherra. Þær
báru þess glögg merki, að stjórnarandstæðingar
séu ekki aðeins stefnulitlir og ráðalausir, heldur
þjáistflokkar þeirra af innvortismeinsemdum. Það
dregur eðlilega úr þeim kraft og dug.
Það er sameiginlegt með Sjálfstæðisflokknum og
Alþýðuflokknum, að miklar deilur hafa staðið yfir
um formennskuna. í Sjálfstæðisflokknum er öflug
andstaða gegn þvi, að Geir Hallgrimsson haldi
forustunni áfram. Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra heldur þvi opnu að gefa kost á sér til fram-
boðs gegn honum um formannsstöðuna, en hafnar
þvi að vera áfram varaformaður.
Þeirri skoðun virðist vaxa fyigi innan Sjálf-
stæðisflokksins, að ekki sé önnur sæmileg iausn á
þessu máli en að nýr maður verði valinn til forustu.
Gunnar Thoroddsen og fylgismenn hans gætu sætt
sig við það, en Geir Hallgrimsson og fylgismenn
hans munu ekki fallast á það, nema nauðugir. Þeir
finna hins vegar að stuðningurinn við Geir er að
minnka. Það er þvi ekki útilokað, að þeir sætti sig
við bræðrabyltu Gunnars og Geirs.
En þótt nýr maður veldist til forustu i Sjálfstæðis-
flokknum, er raunum hans ekki lokið. Meirihluti
forustusveitar hans hefur tekið óábyrga afstöðu til
landstjornar. Meðan það ástand varir, er flokkur-
inn i eins konar eyðimerkurgöngu.
Hjá Alþýðuflókknum hafa formannsraunirnar
verið litlu minni en hjá Sjálfstæðisflokknum. Bene-
dikt Gröndal hefur lýst yfir þvi, að hann vildi halda
formennskunni áfram. Varaformaðurinn, Kjartan
Jóhannsson bauð sig fram gegn honum. Á þingi
flokksins, sem kemur saman um næstu helgi, hefur
fylgi þeirra verið talið nokkuð svipað.
Það inun þó ekki koma til kosninga milli þeirra
þar, þvi að Benedikt Gröndal hefur talið rétt að
reyna að firra vandræðum með þvi að draga fram-
boð sitt til baka. Augljóst er þó af öllu, að hann gerir
það nauðugur og hlytur það þvi að skilja eftir viss
sárindi bæði hjá honum og fylgismönnum hans.
Sennilega verður þetta þó ekki erfiðasta vanda-
mál Alþýðuflokksins. Siðan flokkurinn tvöfaldaði
þinglið sitt, hefur þingflokkurinn verið nánast
ósamstarfshæfur, þvi að þar hafa flestir hinna nýju
þingmanna stefnt hver i sina áttina.
Meira óróalið hefur ekki áður verið i einum flokki
á Alþingi.
Benedikt Gröndal hefur verið ásakaður fyrir það,
að hafa ekki getað haldið þessum sundurleita hópi
saman. Fall Benedikts stafar mest af þessari
ástæðu.
Engin ástæða er hins vegar til að ætla, að þetta
breytist, þótt Kjartan Jóhannsson verði kosinn
formaður. Hann mun lenda i sömu vandræðum með
þingflokkinn og Benedikt Gröndal. Fljótlega mun
spretta upp sú hreyfing hjá óróafólkinu, að Kjartan
eigi að fara sömu leiðina og Benedikt.
Það hefur ekki bætt úr skák, að utan þingflokks-
ins hafa bætzt við nýir óróamenn, sem telja sig eiga
heima þar og munu beita flestum ráðum i þeim til-
gangi.
Það þarf mikið að breytast hjá Alþýðuflokknum
til þess að hann verði samstæður traustverkjandi
flokkur. Raunir hans eru ekki minni en Sjálfstæðis-
flokksins. Þessar innri meinsemdir stjórnarand-
stöðuflokkanna bæta ekki ástand þjóðmálanna um
þessar mundir.
Þórarinn Þórarinsson:
Erlent vfírHt
ForsíietisTáðherra sýnir
afskræmdan fót sinn
Rajai keppir við Bani-Sadr um völdin
Nabavi utanrlkisráöherra Irans hvfslar I eyraRajai
á blaöamannafundinum I New York.
ÞÓTT innrás Iraka f tran hafi
skapaö þjúöareiningu gegn
innrásarhernum, viröist ekki
slik einnig hafa skapazt hjá
æöstu mönnum þjóöarinnar,
Þeir standa aö visu saraan út á
viö og munu vafalitiö gera þaö
meöan styrjöldin varir. En inn á
við búa þeir sig undir að takast
á um völdin eins fljótt og
styrjaldarátökunum lýkur.
Þaö hefur vakið athygli I
þessu sambandi, aö Rajai
forsætisráöherra mætti á fundi
öryggisráösins, þegar umræöa
hófst þar um kæru trans á
hendur íraks vegna innrás -
arinnar. Af þessu er dregin sú
ályktun, aö Khomeini eöa ráðu-
nautar hans vilji ekki siður láta
bera á Rajai en Bani-Sadr
forseta.
Fyrst eftir innrásina bar
langmest á Bani-Sadr, en nú
hefur dregiö úr þvi. Rajai er
þeim mun meira í sviösljósinu.
Eins og áöur hefur veriö sagt
frá, hefur verið grunnt á þvi
góöa milli Bani-Sadr og Rajai.
Bani-Sadr vildi ekki tilnefna
Rajai sem forsætisráöherra, en
var neyddur til þess af foringj-
um lýðveldisflokksins, en hann
hefur meirihluta á þingi. Þingið
þarf aö samþykkja tilnefning-
una og átti Bani-Sadr aö lokum
ekki annan kost en aö tilnefna
Rajai.
Bani Sadr geröi þetta svo
nauöugur, aö hann lýsti yfir
jafnhliöa, aö hann bæri tak-
markað traust til Rajai. Hann
sagöi, aö Rajai væri reynslu-
lltill, öfgafuilur og ósamvinnu-
þýöur.
Margt bendir til, aö
framundan veröi hörö deila um
hvort forsetinn eöa forsætisráö-
herrann eigi aö hafa meiri völd
og vera hinn raunverulegi
leiötogi þjóöarinnar. Rajai
viröist hafa haft betur í þeirri
deilu, þegar hann var valinn til
Amerikuferðarinnar.
ÞETTA var i fyrsta sinn sem
Rajai fór út fyrir landsteinana.
Hann þekkir þvi litið til
erlendis. Bani-Sadr. hefur hins
vegar dvaliö 12 ár I Frakklandi.
Mohammed Ali Rajai er 47
ára gamall, fæddur I smábæ,
sem er 90 milur frá Teheran.
Hann fluttist ungur til Teheran
og dlst upp i einu versta
fátækrahverfinu þar. Sautján
ára gamall gekk hann f flugher-
inn, en stundaði nám viö
kennaraskóla samtimis. Hann
brautskráöist þaöan, þegar
hann var 27 ára gamall.
Rajai geröist reikningskenn-
ari aö náminu loknu og hóf jafn-
framt afskipti af stjórnmálum.
Hann gekk i Sjálfstæöisflokk
þann, sem Bazargan veitti
forustu, og tók þátt I virkri and-
stööu gegn keisarastjórninni.
Hann var hvaö eftir annaö
hnepptur I fangelsi og sætti oft
hinni verstu meöferö.
Þegar Khomeini fól Bazargan
stjórnarmyndun, geröi hann
Rajai aö menntamálaráöherra i
stjórn sinni. Þvi starfi gegndi
hann þangaö til hann varö
forsætisráöherra.
Rajai þótti sýna sem mennta-
máiaráöherra, aöhann er mikill
áhangandi Khomeinis. Hann
rakkennara úrembættum og lét
loka skólum, ef honum bauö svo
viö aö horfa. Hann reyndi mjög
aö stuöla aö þvi, aö skólarnir
yröu áróöursstofnanir fyrir
kenningar Khomeinis.
Þetta féll leiötogum
Lýöveldisflokksins vel i geð, en
þeirerustrangtrúarmenn. Ekki
er vitaö, hvort Rajai er I flokkn-
um, en forustumönnum hans
likaöi svo vel viö hann sem
menntamálaráöherra, aö þeir
íttu mestan þátt i aö hann varö
'orsætisráöherra.
RAJAI flutti ræöu i öryggis-
ráöinu, sem stóö i 55 minútur.
Hún var flutt I tilfinningafullum
áróöursstil, þar sem
upphrópunum og staöhæfingum
var meira beitt en rökum.
Rajai dvaldi aöeins i tvo daga
i New York. Hann hafnaöi
viöræöum viö bandariska ráöa-
menn, enda haföi hann ekki
komið til New York þeirra
erinda.
Aöur en hann hélt heimleiöis
hélt hann blaðamannafund i
bækistöðvum Sameinuöu
þjóöanna. Hann ræddi aöallega
um gislamáliö, sem hann taldi
nálgast lausn sina, þvi aö
iranska þingiö myndi brátt
ákveöa skilyröi fyrir framsali
þeirra.
Litiö annaö nýtt kom fram i
máli hans. Rajai ræddi um
gislamáliö af meiri hógværö en
margir áttu von á. Meöal ann-
ars vottaöi hann aöstandendum
gislanna samúö og kvaðst
skilja tilfinningar þeirra.
Rajai fór óvægum oröum um
keisarastjórnina og sýndi
afskræmdan fót sinn til sönn-
unar um þá meöferö, sem
fangar hennar höföu sætt.
Neglurnar höföu veriö rifnar af
Rajai.
Ekki veröur sagt, aö Rajai
hafi unniö sér hylli blaöamann-
anna, enhann spillti heldurekki
fyrir sér.
Rajaisvnir blaðamönnum afskræmdan fótsinn.