Tíminn - 08.11.1980, Blaðsíða 5
Laugardagur 8. nóvember 1980
iilillllLLlLl
5
„Fjolmiðill þjóðarinnar”
verður að fá húsnæði
Markús Á Einarsson, hefur á
alþingi flutt tillögu til þings-
ályktunar þess efnis aö þingiö
lýsi yfir vilja sinum um, aö Rik-
isútvarpinu veröi heimilaö aö
hefja aö nýju framkvæmdir viö
byggingu útvarpshússí Reykja-
vik. ! greinargerö fjallar Mark-
ús um byggingaráætlun hússins
og nauösyn þess aö leysa vand-
ræöi rikisútvarpsins, en þar
segir:
Bygging útvarpshúss I
Reykjavik hefur legiö niöri um
hriö, þótt fyrir hendi sé fjár-
magn i byggingarsjóði stofnun-
arinnar og þrátt fyrir skipuleg-
ar áætlanir forráöamanna Rik-
isútvarpsins og yfirlýsingar
menntamálaráðherra um nauð-
syn þess að byggingarfram-
kvæmdum sé haldið áfram.
Svo sem kunnugt er hófst
jarövegsvinna við grunn áform-
aös útvarpshúss á árinu 1978 og
var þá í starfsáætlun gert ráö
fyrir að hljóövarpið gæti flutt i
nýbyggingu árið 1983 og sjón-
varp ári siðar. Undirbúningur
framkvæmda hafði þá staöið i
71/2 ár, og frá 1971 voru sam-
kvæmt 14. gr. útvarpslaga 5% af
brúttótekjum stofnunarinnar
lagðar i Framkvæmdasjóð og
skyldi fé hans varið til að
tryggja viöunandi húsnæði og
tækjakost fyrir starfsemi henn-
ar.
Með lögum nr.49/1979, um
breytingu á útvarpslögum, var
framlag i Framkvæmdasjóö
hækkað úr 5 i 10%, og var Vil-
hjálmur Hjálmarsson fyrrver-
andi menntamálaráðherra
flutningsmaður þess frum-
varps. Mátti lita á samþykkt
frumvarpsins sem visbendingu
um að nú væri komið að bygg-
ingarframkvæmdum og reynd-
ar einnig sem ótviræðan, já-
kvæðan hug alþingismanna til
áformaös útvarpshúss, en þeir
greiddu nær allir atkvæði meö
hækkun framlagsins.
I sem skemmstu máli varö
raunin hins vegar sú, að fram-
kvæmdir stöðvuöust meö ölluaö
lokinni jarövegsvinnu og stend-
ur grunnurinn enn opinn og
óhreyfður. Ekki vill flutnings-
maður fullyröa neitt um þaö,
hverjuþessar tafir sæta, en fyrii
liggur vilji forráðamanna Rík-
isútvarpsins um áframhald
byggingarinnar. Menntamála-
ráðherra, Ingvar GIslason,hef-
ur ítrekaö lýst á opinberum
vettvangi vilja sinum til þess aö
svo megi verða, enda unnið aö
þvimáli innan rikisstjórnarinn-
ar. Fram hefur komið af hálfu
menntamálaráðherra að bygg-
inginhafi fyrst og fremst stöðv-
ast fyrir áhrif frá samstarfs-
nefnd um opinberar fram-
kvæmdir, sem ekki hafi treyst
sér til að leggja til við fjármála-
ráöherra og Alþingi aö fram-
kvæmdir héldu áfram að sinni.
Óhjákvæmilegt er aö minna á
þá sérstöðu þessarar fram-
kvæmdar hvað varðar fjár-
mögnun sem Framkvæmda-
sjóðurinn skapar.
Aætlaður byggingarkostnað-
ur, miðaö við verölag 1. jan.
1980, var 5 750 milljónir króna
fyrir hús sem rúmaöi bæði
hljóðvarp og sjónvarp. Miðaö
við byggingartima 1980-1986
heföi sjóðurinn alfarið staðið
undir kostnaði út árið 1982 og
hefði því fyrst komiö til beinna
framlaga á árinu 1983, eöa þá
lántöku sem sjóðurinn stæöi sið-
ar skil á.
Gerðar hafa veriö áætlanir
um tvo minni áfanga, þar sem
einungis er reiknaö með að
leysa úr vanda hljóðvarps í
byrjun. A verðlagi 1. jan. 1980
kostaði ódýrari kosturinn 3100
milljónir króna. Er f þvi sam-
bandi athyglisvert, aö staða
Framkvæmdasjóös er á svipuð-
um forsendum áætluö 3030 mill-
jónir króna um áramót 1983/84.
Þaö hlýtur að vera ihugunar-
efni, að samkvæmt þessu á aö
vera unnt að byggja yfir hljóð-
varpið á grundvelli tekna
Framkvæmdasjóðs eins sér, en
húsnæðisvandræði þess hluta
stofnunarinnar eru svo geig-
vænleg, að þaö háir nú þegar
starfseminni mjög, ekki sist I
dagskrárgerð.
Flestirmunu samdóma um að
Rikisútvarpið sé öflugur og
mikilvægur menningar- og fjöl-
miðiil og reyndar eini fjölmiöill-
inn sem meö nokkrum rétti get-
ur talist vera fjölmiðill þjóðar-
innar allrar. Eigi stofnunin á
næstu 50 árum aö gegna meö
sóma jafnþýöingarmiklu hlut-
verki og hún óneitanlega hefur
gegnt undanfarin 50 ár, veröur
ekki hjá því komist að skapa
henni þá aðstöðu sem til þess
þarf. Nýtt útvarpshús mun á ör-
fáum árum gerbreyta aðstöðu
til fjölbreyttrar dagskrárgerðar
og útsendingar með bestu gæö-
um. Flutningsmaöur þessarar
tillögu er eindregið þeirrar
skoöunar, aö ekki veröi undan
þvi vikist að hefja þegar á nýj-
an leik framkvæmdir þar sem
frá varhorfið fyrir tveim árum.
Flutningsmaður vill með til-
lögunni vekja máls á mikilvægu
málefni og styðja ásetning
menntamálaráðherra aö leysa
úr þeim hnút sem tafið hefur
framgang þess. Anægjulegast
væri þó ef viðbrögð stjórnvalda
yröusvo skjót að tiliagan reynd-
ist óþörf.
Forsvarsmenn Kaupmannasamtakanna. Tfmamynd: G.E.
Kaupmannasamtök íslands 30 ára:
„Verslun verði
gefin frjáls”
EKJ — Kaupmannasamtök Is-
lands eiga 30 ára afmæli f dag.
Það voru 4 sérgreinafélög sem
stóðu að stofnunni, en siðan hefur
þeim fjölgað jafnt og þétt og telja
nú 20. Formaður samtakanna er
Gunnar Snorrason og
framkv.stjóri er Magnús E.
Finnsson og f tilefni afmælisins
boðuðu Kaupmannasamtökin til
blaðamannafundar að Marargötu
2, i húsi Samtakanna sem keypt
hefur verið f áföngum, siðan 1965.
Tilgangur samtakanna er að
vinna að hagsmunamálum félaga
sinna og koma fram fyrir þeirra
hönd gagnvart opinberum aðilum
i öllum þeim málum sem snerta
hagsmuni félagsmanna. Annast
undirbúning og gerð kjarasamn-
inga fyrir hönd félagsmarina við
samtök launþega. Þá leggja sam-
tökin brýna áherslu á að beita sér
fyrir umbótum á verslunarlög-
gjöfinni og vinna aö afnámi háfta
verðlagsákvæða og hvers konar
þvingana er skeröa rétt og frjáls-
ræði verslunarinnar.
Gunnar Snorrason formaöur
minntist á stofnun Versiunar-
sparisjóðs sem er i dag Verslun-
arbanki Islands h.f. en kaupmenn
innan vébanda Samtakanna eiga
u.þ.b. helming af hlutfé bankans.
Hefur sá þáttur átt stóran hlut I
uppbyggingu verslunarinnar I
landinu. Þá má nefna að Kaup-
mannasamtökin eiga fulltrúa i
Lifeyrissjóð verslunarmanna og
samtökin áttu einnig hlut að máli
þegar Tollvörugeymslan var
stofnuð. Þá eru fjórir stofnlána-
sjóðir innan vébanda samtak-
anna. Allir þeir sjóöir stuöla aö
uppbyggingu smásölu-
verslananna viðs vegar um
landiö, bæði nýbyggingum,
endurnýjun eldra húsnæðis og
endurnýjun innréttinga og tækja-
búnaðar.
Kaupmannasamtökin hafa gef-
ið út i 30 ár timaritið Verslunar-
tiðindi og hafa einnig beitt sér
fyrir fræðslu og námskeiðahaldi
fyrir félagsmenn.
Gunnar Snorrason formaður
vilda nefna að helstu mál sam-
takanna nú væru í fyrsta lagi
skipulagsmál, þ.e. að tekið sé til-
lit til verslana þegar gömul hverfi
eru skipulögö og að verslanir I
nýjum hverfum yröu skipulagðar
á sem hagkvæmastan hátt. I öðru
lagi mætti nefna verðlagsmál,
þar sem samtökin vilja leggja á
það mikla áherslu að fá opinbera
viðurkenningu á þvi að vöru-
birgðir megi hækka i samræmi
við innkaup hverju sinni, svo aö
hægt sé að f jármagna ný innkaup
hverju sinni og standa undir há-
vöxtum og veröbólgu. 1 þriðja
lagi er stofnun kaupmannasam-
taka viðs vegar um landið mikiö
mál, sem þegar hefur borið ár-
angur.
Gunnar minntist einnig á
„kartöflustriðiðog mjólkurstrlðið
sem bæði unnust til ómetanlegs
Framhald á bls. 19.
Prestskosning í Eyr-
arbakkaprestakalli
Stjas — Sunnudaginn 9. þessa Ulfar Guðmundsson, sóknar- lundi f Gaulverjabæjarsókn.
mánaðar, fer fram prestskosning prestur á ólafsfirði. Kjörfundirnir hefjast kl.13.00 og
i Eyrarbakkaprestakalli, I Arnes- Kosið veröur i kirkjunni á Eyr- lýkur þeim kl.19.00 á Eyrarbakka
prófastsdæmi. arbakka, i samkomuhúsinu og Stokkseyri, en kl.18.00 I Gaul-
Einn umsækjandi er I kjöri, Gimli, á Stokksevri og i Félags- verjabæjarsókn.
Þinn bíll...
frá INTERNATIONAL
CARGOSTAR
Fjölhœfni og afkastageta CARGO-
STAR vörubifreiða er ekkert leyndar-
mál, enda fjölmargar slíkar í notkun
hér á landi.
Sterkar en léttbyggðar grindur skipta
miklu máli í landi þungatakmarkana,
hafa auk þess áhrif á eldsneytiseyðslu.
INTERNA TIONAL dieselvélar,
165—210 hö.
— allt eftir þörfum hvers og eins.
Vel hannaður stjómbúnaður, sérstak-
lega stýri, skipting og hemlar.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavlk Simi 38900