Tíminn - 08.11.1980, Blaðsíða 15

Tíminn - 08.11.1980, Blaðsíða 15
Laugardagur 8. nóvember 1980 IÞROTTIR Marteinn var bestur Framarar hafa þann háttinn á á hverju hausti aö þeir kjósa besta mann fé- lagsins i knattspyrnunni og er þá tekiö tillit til allra leikja sumarsins. Þessari kosningu er nú lokiö i ár og hreppti Marteinn Geirsson fyrirliöi liösins hnossiö. Þaö þarf engum aö koma á óvart þar sem Martéinn lék mjög vel fyrir liö sitt i sumar og stýröi þvi i 2. sætiö i Islandsmótinu auk þess sem hann fékk þann heiöur aö taka viö bikarnum i Bikarkeppninni. Að launum hlaut Marteinn fagra verðlaunagripi til varöveislu. —SK. Marteinn Geirsson. Tekst Fram að sigra Hauka? Fjórir leikir verða um helgina í 1. deild Islands- mótsins í handknattleik. I dag kl. 2 í Laugardalshöll munu Vikingur og FH eig- ast við og að þeim leik loknum keppa Þróttur og Valur. Búast má við hörku- baráttu í báðum þessum leikjum. A morgun, sunnudag, keppa Fram og Haukar og hefst sá leik- ur kl. 20 i Laugardalshöll. Eins og kunnugt er þá kræktu Framarar sér i sin fyrstu stig á mótinu á móti Val og.reikna mámeö aö þeir séu ákveönir f aö endurtaka þann leik og gera betur á móti Hauk- um. Strax aö loknum þeim leik þá keppa Fylkir og KR i Höllinni en sá leikur hefst kl. 21.15. Tveir leikir veröa i 1. deild kvenna i dag og einn i 2. deild kvenna og eru þeir allir i Laugar- dalshöll. KR og Haukar keppa kl. 16.30 og Fram og FH keppa kl. 17.30. 1 2. deild keppa Fylkir og ÍR og hefst sá leikur kl. 18.30. Hálfrar millj. króna gróði Aöalfundur Styrktarfélags knattspyrnunnar á Akranesi var haldinn laugardaginn 1. nóv. s.l. A fundinum kom fram aö tekjur félagsins námu um 4,4 millj. en útgjöld um 3,9 millj. Lang- stærstur hluti þeirrar upphæöar var notuö til aö greiöa niöur vinnutap leikmanna i meistara- flokki eöa 2,8 millj. Auk þess veitti félagið Unglingaráöi fjár- styrk, alls 600 þúsund. Félagið kaus Leikmann Is- landsmótsins á fyrsta fundi sinum eftir aö mótinu lauk. Fyrstur til aö hljóta þessa viður- kenningu var hinn frábæri mark- maður okkar, Bjarni Sigurösson. Á aöalfundinum var honum veitt viöurkenning vegna þessa, kr. 200 þúsund. Stjórn félagsins var einróma endurkjörin en hana skipa: Hinéik Haraldsson formaöur, Kristin Aðalsteinsdóttir gjald- keri, Karl Alfreösson bókari, Marsibil Siguröardóttir ritari, Viöar Karlsson og Aki Jónsson meöstjórnendur og Þorgeir Jósefsson blaöafulltrúi. Nokkrir leikmenn mættu á fund inum og lýstu þeir yfir þakklæti sinu og ánægju meö starfsemi fé- lagsins. Einnig kom fram þakk- læti eiginkvenna leikmanna vegna greiðslna á vinnutapi svo aö æfingar gætu hafist kl. 5 siö- degis og leikmenn geti verið með fjölskyldum sinum á kvöldin. Styrktarfélagiö hyggst færa út kviarnar d næsta sumri. 1 sumar greiddi félagið vinnutap vegna tveggja æfinga i viku en áformaö er aö fjölga þeim æfingum og greiða bónus til leikmanna fyrir hvert stig sem liöinu hlotnast á Islandsmótinu á næsta sumri. Vitað er um mjög stóran hóp dyggra stuöningsmanna i Reykjavik og er ætlunin að leita til þessa hóps á næsta sumri. Fyrirhugað er að boöa fund i Reykjavik i byrjun næsta árs og kynna hugmyndir félagsins nán- ar. Þaö er samdóma álit allra þeirra sem fylgst hafa meö störfum félagsins aö þaö hafi náö tilgangi sinum. Að efla knatt- spyrnuna á Akranesi. Hins vegar þurfa fleiri að leggja hönd á plóginn ef félaginu á aö takast aðhrinda áformum sinum i fram- kvæmd. Þaö er þvi von félagsins aö allir meölimir þess haldi áfram þátttöku sinni og fái fleiri til liös viö félagiö. Aö lokum þakkar Styrktarfé- lagiö meölimum sinum, sem búa á svæöinu frá Grindavik norður til Skagastrandar góöan stuðning á fyrsta starfsárinu meö von um góðar undirtektir á næsta sumri. Þ.J. ÍÞR0TTIR 15 Armenningurinn Valdimar Guölaugsson er ekki mjög fyrirferöarmikill á þessari mynd viö hliö ris- ans Jarnes Breeler en hann skoraöi 40 stig gegn UMFN I gærkvöldi og Valdimar skoraöi 12 stig og lék vel. BREELER SK0RAÐI 40 STI6 6E6N UMFN — en þaö dugði skammt gegn góöum Njarðvíkingum sem sigruðu Armenninga 108:80 i gærkvöldi Þaö fór eins og viö var aö bú- ast I gærkvöldi þegar Njarövik- ingar léku gegn Armenningum i úrvalsdeildinni i körfuknattleik. Armenningar áttu aldrei sigur- möguleika og lokatölur uröu 108:80 UMFN í vil. Staöan i leik- hléi var 60:42 UMFN i hag. Armenningar komust einu sinni yfir i leiknum og var þaö i byrjun hans, en siðan ekki sög- una meir. Njarðvikingar voru betri aðilínn allan leikinn og það var aðeins risinn i Ármanns- liöinu, James Breeler sem eitt- hvað gat ógnað veldi Njarðvik- inga á leikvellinum. Hann skoraði 40stig og hirti mikinn fjölda frákasta auk þess að verja tjóldann allan af skotum andstæðinganna. Sannkallaður stórleikur hjá Breeler og greini- legt að varla er fyrir hvitan mann að ráða við hann. Atli Arason átti einnig ágætan leik, skoraði 19stig og sömuleiöis var Valdimar Guðlaugsson góður en hann skoraði 12 stig. Hjá Njarðvikingum var Danny Shouse sem fyrr lang- besti maður en einnig var Guð- steinn mjög góður að vanda. Þá áttu þeir Jónas Jóhannesson og Gunnar Þorvarðarson góða spretti og sérstaklega var Jónas góður i vörninni. Danny var stigahæstur, skoraði 35 stig þrátt fyrir aö hann léki litið með — i blakinu þegar Þróttur mætir ÍS Hörkuleikur veröur háöur I tslandsmótinu I blaki um helgina. Þróttur mætir 1S á sunnudaginn og hefst leikurinn um kl. 14.30. Þrótturog IShafa lengi veriö i liöinu aö þessu sinni. Þessi sigur UMFN er fjóröi sigurleikur liös- ins i úrvalsdeildinni i röð og greinilegt að erfitt veröur fyrir hin félögin að stööva þá snill- inga aö sunnan i átt þeirraaö ts- landsmeistaratitlinum. —Ó.TH./SK Valur-KR Einn leikur fer fram í úrvals- deildinni um helgina Valsmenn mæta KR-ingum I Laugardals- höllinni á sunnudag og hefst leikurinn kl. 14.00. Þetta mun örugglega veröa einn af úrslita- leikjum mótsins. fremstu röð i blakinu og þaö þarf ekki að fara um þaö mörgum orðum aö um liklegan úrslitaleik i mótinu hlýtur aö verða aö ræöa. Þróttarar eru sterkir um þessar mundir og er þar skemmst aö minnast sigurs þeirra yfir 1S i Haustmótinu sem nú er nýafstaðiö. A eftir leik Þróttar og 1S leika Fram og UMFL. —SK. Urslitaleikur á sunnudaginn?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.